Sharkfood Inc.
Ellefu Bíó
Hugleikur Dagsson fær til sín góða gesti og spyr þau 11 spurninga um mikilvægustu bíómyndirnar í lífi þeirra.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: 11bio.castos.com
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
50: Björn Heimir Önundarson 04.11.2026 1:17:56
Myndasöguhöfundurinn og tónlistarmaðurinn Björ Heimir Önundarson skellti sér í ellefu-stólinn og fór gaumgæfilega yfir þær bíómyndir sem máli skipta.
49: Hrefna Sætran 28.10.2026 1:01:13
Matreiðslumeistarinn Hrefna Rósa Sætran kíkti til Hulla í afar ljúffengt og auðmeltanlegt spjall um kvikmyndir.
48: Haraldur Þorleifsson 22.10.2026 1:07:11
Hinn frumlegi frumkvöðull Halli Þorleifs kom sá og sigraði í ellefu bíó.
47: María Reyndal 15.10.2026 59:10
Leikstjórinn, leikarinn, höfundurinn og spéfuglinn María Reyndal hoppaði í heimsókn til Hulla og blaðraði um bíó!
46: Berndsen 30.09.2026 1:32:12
Listamaður tónsins, Davíð Berndsen hleypti Hulla inní stúdíóið sitt og fór vandlega yfir kvikmyndapælingar sínar með honum,
45: Dr. Gunni 23.09.2026 1:08:39
Poppgoðið Gunnar Lárus Hjálmarsson fór yfir allt sem honum finnst geggjað og ógeggjað í heimi kvikmyndanna.
44: Helga Braga Jónsdóttir 16.09.2026 1:01:04
Fóstbróðirinn og farfuglinn Helga Braga settist hjá Hulla og ræddi það helsta hvað varðar kvikmyndasmekk sinn.
43: Dröfn Ösp Snorradóttir-Rosaz 09.09.2026 1:03:11
Lífskúnstnerinn og LA-prinsessan Dröfn Ösp AKA DD-Unit hoppaði í heimsókn til hullans síns og henti í þétta ellefu bíó talningu eins og henni einni er lagið.
42: Gísli Marteinn 02.09.2026 1:21:29
Spjallkall Íslands, Gísli Marteinn Baldursson, fór yfir það helsta í sinni kvikmyndaglápssögu með Hullanum sínum.
41: Berglind Häsler 27.08.2026 56:26
Höfðingi Havarís, Berglind Häsler fór áreynslulaust yfir allar ræmurnar sem skipta máli í augum hennar.
40: Kjartan Rúnarsson 20.08.2026 1:07:57
Kvikmyndahlaðvarpsstjórnandinn og Bíófíkilinn Kjartan Rúnarsson útlistaði fyrir Hugleiki þær kvikmyndir sem vægi hafa í hans tilveru. Tékkið á podkastinu Bíófíklar og tékkið á Bíófíklasýningunum í Laugarásbíó.
39: Stjörnu-Sævar 12.08.2026 54:24
Sævar Helgi Bragason brá sér til Hulla og spáði í stjörnuþakinn kvikmyndahimininn.
38: Vigdís Hafliðadóttir 05.08.2026 1:20:10
Leikarinn, söngvarinn og grínarinn Vigdís Hafliða skellti sér í ellefu-stólinn og svaraði öllum bíó-spurningunum af bestu list.
37: Kristján Freyr Halldórsson 29.07.2026 1:15:23
Rokkstjórinn, fjölmiðlamaðurinn og trommutrommarinn Kriss Rokk kom í heimsókn til Hullans og taldi upp 11 (og gott betur) kvikmyndir sem öllu máli skipta í hans lífi.
36: Curver Thoroddsen 22.07.2026 1:23:01
Listamaðurinn og Hulla-lookalækið Curver Thoroddsen eyddi góðri stund með boyband bróður sínum og taldi upp sínar helstu ræmureynslur.
35: Steiney Skúladóttir 15.07.2026 1:12:13
Leikarinn, höfundurinn og skemmtikrafturinn Steiney Skúladóttir sagði allt sem segja þurfti hvað varðar kvikmyndir í Ellefuhellinum.
34: Villi Neto 09.07.2026 1:03:57
Öðlingurinn Vilhelm Neto slædaði upp að Hulla og hvíslaði að honum ellefu helstu kvikmyndir lífs síns og það var gaman.
33: Reynir Lyngdal 16.04.2026 1:30:53
Leikstjórinn Reynir Lyngdal læddist í Ellefu hellinn og spjallaði um þær helstu kvikmyndir sem hafa kitlað hann á einn eða annan hátt í gegnum lífsgönguna.
32: Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir 09.04.2026 1:18:53
Animation drottningin og heims-skaparinn og Ormhildarsagnaritarinn Þórey Mjallhvít fór yfir helstu kvikmyndir sjálfs síns með Hulla.
31: Einar Baldvin Arason 01.04.2026 1:26:53
HÆSTvirti leikstjórinn Einar Baldvin Arason tjattar við Hugleik um sín markverðustu ræmugláp. Tékkið á HÆST í sjónvarpi Símans.
30: Krummi Björgvinsson 26.03.2026 1:16:52
Krummi og Hulli tala um kvikmyndir eins og þeir hafa aldrei gert annað.
29: Rán Flygenring 19.03.2026 1:16:35
Teiknarinn og höfundurinn Rán Flygenring tjattaði við Hullsuna um allskonar sem við kemur hreyfiræmum hennar lífs.
28: Karen Briem 12.03.2026 1:24:57
Búningahönnuðurinn, listakonan og megabeiban Karen Sonja Mayen Briem deilir sínum mikilvægustu kvikmyndatitlum með manninum sínum.
27: Hannes Óli Ágústsson 05.03.2026 1:29:06
Hugleikur spjallar við stórleikarann og kvikmyndaunnandann Hannes Óla um allar myndirnar sem skipta einhverju máli!
26: Emil Hjörvar Petersen 13.11.2025 1:25:30
Vísindaskáldið, Hryllingshrottinn og draumavefjarinn Emil Hjörvar Petersen fór á kvikmynda-trúnó með Hulla í hlaðvarpsholunni.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet