Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Society IS ↓ 680 Folgen

Hlaðvarp

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Kategorie

Society

Podcast-Website

www.spreaker.com

Neueste Folge

23. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

#104 Alþingiskosningar kærðar til Mannréttindadómstóls Evrópu (Viðtal við Magnús Davíð Norðdahl) 08.12.2021

Þessi þáttur er birtur í heild sinni. Til þess að fá aðgang að öllum þáttum hlaðvarpsins er hægt að fara inn á www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Magnús Davíð Norðdahl, en Magnús hefur ákveðið að kæra alþingiskosningar 25. september til MDE. Hann vill fá úr því skorið hvort ákvörðun um að láta kosningar í NV-kjördæmi standa samræmist lögum.

#103 Sóttvarnalæknir svarar spurningum í þriðja sinn (Viðtal við Þórólf Guðnason) 03.12.2021

www.patreon.com/einpaeling Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir svarar hugleiðingum Þórarins um framvindu faraldursins. Rætt er um hvernig honum lýst á nýjan heilbrigðisráðherra, hvað myndi gerast ef að allt yrði opnað, hvort að hægt sé að endurskoða sænsku leiðina núna þegar stærsti hluti Íslendinga er bólusettur, Omicron og hvort von sé á fleiri afbrigðum, af hverju bylgjur eiga sér ekki stað á Ind...

#102 Bólusetning, mismunun og frelsi (Viðtal við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson) 01.12.2021

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson um Covid-19. Þau hafa bæði lýst áhyggjum af framvindu mála í aðgerðum stjórnvalda gegn veirunni og um það hvort að bóluefni eigi að vera valkvæð. Rætt er um mikilvægi efans, frelsi, bólusetningar barna, trúarbrögð, tíma sem gjaldmiðil og fleira. https://www.patreon.com/einpaeling

#101 Að takast á við áföll (Viðtal við Kristínu Sif) 28.11.2021

Áskriftarleið fyrir viðtalið í heild sinni: https://www.patreon.com/einpaeling Kristín Sif er útvarpskona á K100, hnefaleikakona, Crossfit þjálfari og margt fleira. Kristín hefur gengið í gegnum margt á sinni lífsleið og í þessu hlaðvarpi fjallar hún um það hvernig best sé að takast á við áföll og hvernig hægt sé að nýta þau í að vera þakklátur með það sem maður hefur. Þórarinn og Kristín ræða sjá...

#100 Hefði sjálfstæðismaður stofnað Stígamót? (Viðtal við Brynjar Níelsson) 21.11.2021

Þórarinn og Brynjar Níelsson ræða áhrif tæknibreytinga á stjórnmál, #MeToo hreyfinguna, frelsi einstaklingsins, hvort að Sjálfstæðismaður myndi stofna samtök á borð við Stígamót, heilbrigðiskerfið og dagskrárvald.

#99 Hræðsluáróður eða nauðsynleg tilmæli? (Viðtal við Hildi Björnsdóttur) 18.11.2021

Þórarinn ræðir við Hildi Björnsdóttur borgarfulltrúa um ummæli hennar þar sem hún sagði tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis vera orðin líkari tilhæfulausum hræðsluáróðri en nauðsynlegum tilmælum. Rætt er um frelsi og sóttvarnaraðgerðir, bólusetningar, afleiddar afleiðingar, heilbrigðiskerfið og komandi borgarstjórnarkosningar.

#98 Lýðræði og skoðanafrelsi (Viðtal við Helga Hrafn Gunnarsson) 13.11.2021

Helgi Hrafn ræðir við Þórarinn um skoðanarelsi, tjáningarfrelsi, nýfasisma, hatursorðræðu, póstmódernisma, hetjur á twitter, leiðtoga og fleira.

#97 Að móðgast fyrir hönd annarra (Viðtal við Dr. Gunna) 09.11.2021

Þórarinn ræðir við Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, um pistil sem hann skrifaði fyrir um 13 árum og ber heitið "Að móðgast fyrir hönd annarra". Tvímenningarnir ræða allskyns hluti í samhengi við efni pistilsins, meðal annars rétttrúnað, kynjamál, Covid-19, tónlistarmanninn Auður og Gylfa Ægis.

#96 Hvað er hatursorðræða? (Viðtal við Þorbjörgu Þorvaldsdóttur) 04.11.2021

Þorbjörg Þorvaldsdóttir er formaður Samtakanna '78. Þórarinn rökræðir við Þorbjörgu um það hvort að hatursorðræða sé yfir höfuð til og, ef svo er, hvort að hana eigi að banna. Umræðuefnin snúa að lagalegum og siðferðislegum álitamálum, forréttindum, Dave Chapelle, slaufunarmenningu og fleira.

#95 RÚV, hatursorðræða, femínismi og rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 24.10.2021

Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar Grétarsson. Að þessu sinni ræða þeir stöðu RÚV, hatursorðræðu, femínisma, ofstæki og rétttrúnað.

#94 Ísland ætti að skoða að taka upp kínverska efnahagsstjórn (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson) 22.10.2021

Gunnar Smári Egilsson er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að Sósíalistaflokkurinn hafi beðið ósigur í kosningunum. Þórarinn ræðir við Gunnar um kosningarnar, nýfrjálshyggjuna, hvort að vinstrið þurfi nýjar áherslur, kínverska efnahagsstjórn og ummæli Gunnars um að stokka upp í dómskerfinu telji almenningur þörf á því.

#93 Aðgerðir eða aðgerðarleysi - Loftslagsmál og Covid-19 (Viðtal við Sigríði Á Andersen) 20.10.2021

Sigríður Á Andersen hefur verið þekkt fyrir að bíta ekki í tunguna á sér þegar erfið málefni dúkka upp. Í þessu viðtali ræðir Þórarinn við Sigríði um aðgerðir vegna covid-19 og loftslagsbreytinga.

#92 Mannréttindi eða aðgerðir (Viðtal við Jón Ívar Einarsson) 15.10.2021

Jón Ívar er prófessor við læknadeild Harvard Háskóla í Boston. Þórarinn ræðir við hann um hvaða afleiðingar harðar aðgerðir hafa haft í faraldrinum, vísindalegan sannleika, skuggabann samfélagsmiðla, sænsku leiðina, umfjöllun kveiks um bólusetningar, hræðsluáróður og tjáningarfrelsi.

#91 Twitter herinn, skólamál og alkahólismi (Viðtal við Björn Steinbekk) 12.10.2021

Björn Steinbekk er frumkvöðull sem að horfir á heiminn öðruvísi en flestir aðrir. Þórarinn ræðir við hann um kosningarnar, Samherja, twitter herinn, ásakanir á hendur tónlistar- og fótboltamanna, skóla- og uppeldismál, einelti og alkahólisma.

#90 Hvers virði eru fjölmiðlar? (Viðtal við Kristján Kristjánsson) 10.10.2021

Þórarinn ræðir við Kristján Kristjánsson, stjórnanda þáttarins Sprengisandur á Bylgjunni. Tvímenningarnir fara um víðan völl, ræða úrslit kosninganna, sérhagsmunaöfl, kjarabaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Rauði þráðurinn í samtali þeirra snýr að hlutverki fjölmiðla og því umhverfi sem fjölmiðlum er búið á Íslandi.

#89 Brynjar Níelsson kveður Alþingi (Viðtal við Brynjar Níelsson) 06.10.2021

Brynjar Níelsson mun kveðja Alþingi eftir að hafa sinnt þingmennsku frá árinu 2013. Þórarinn ræðir við Brynjar um hvað hann hann telur sig ætla að taka sér fyrir hendur og hvort hann muni koma til með að snúa aftur í stjórnmál. Auk þess ræða þeir aðgerðir vegna Covid-19, frelsi, akademíu og ofstæki, kynjafræði, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn of "woke" og að lokum hvort að Brynjar ætti að...

#88 Frelsi og ábyrgð (Viðtal við Arnar Þór Jónsson) 01.10.2021

Arnar Þór Jónsson hefur ákveðið að leggja niður dómarastörf og kveðst vilja leita á ný mið þar sem ekki er þrengt að hugsun hans og tjáningarfrelsi. Arnar spreytti sig nýlega á hinum pólitíska vettvangi og munaði litlu að hann kæmist inn á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Hlaðvarpið snýr að ábyrgð og frelsi. Arnar og Þórarinn ræða klaustursmálið, karlmennsku og Jordan Peterson, fórnarkostn...

#87 Hvað er að gerast á húsnæðismarkaðnum? (Viðtal við Ólaf Margeirsson) 28.09.2021

Ólafur Margeirsson fer með Þórarni Hjartarsyni yfir húnæðismál á Íslandi. Rætt er um tengsl fasteignaverðs við leiguverð, áhrif kjarasamninga og krónutöluhækkanna, áhrif krónunnar, hvort að aðkoma lífeyrissjóðanna geti bjargað málunum og hvort að fasteignaverð muni koma til með að halda áfram að hækka.

#86 Kosningaspjall - Framsókn (Viðtal við Sigurð Inga Jóhannsson) 22.09.2021

Þórarinn ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson um stefnu og áherslur Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar. Þeir ræða samgöngumál, atvinnumál og fjórðu iðnbyltinguna, orkumál og húsnæðismál. Þórarinn spyr einnig Sigurð hvort að hann myndi kjósa að fara með Gunnari Smára eða Sigmundi Davíð í hestaferð.

#85 Kosningaspjall - Viðreisn (Viðtal við Guðbrand Einarsson) 21.09.2021

Þórarinn ræðir við Guðbrand Einarsson um stefnu og áherslur Viðreisnar fyrir Alþingiskosningar 2021. Þeir ræða heilbrigðismál, húsnæðismál, niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, Evrópumál og fleira.

#84 Kosningaspjall - Sósíalistaflokkurinn (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson) 19.09.2021

Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um stefnu og áherslur Sósíalistafloksins fyrir komandi kosningar. Rætt er um efnahagsmál, heilbrigðismál, kvótamál og fleira.

#83 Kosningaspjall - Samfylkingin (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur) 18.09.2021

Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um stefnumál og áherslur Samfylkingarinnar. Rætt er um reynslu Kristrúnar úr fjármálageiranum og hvernig það orsakaðist að hún endaði í framboði fyrir Samfylkinguna, húsnæðismál, peningastefnumál, hvatastýringu, velferð og fleira.

#82 Kosningaspjall - Sjálfstæðisflokkurinn (Viðtal við Brynjar Níelsson) 16.09.2021

Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um áherslur og stefnu Sjálfstæðisflokksins. Rætt er um fleiri mál en umræðurnar snúa að einstaklingshyggju, hvað það sé að vera hetja, spillingu, kvótakerfinu, húsnæðismálum, heilbrigðismálum, ofbeldi, KSÍ og femínisma.

#81 Kosningaspjall - Píratar (Viðtal við Björn Leví Gunnarsson) 12.09.2021

Þórarinn ræðir kosningamál við Björn Leví Gunnarsson. Rætt er um Nýju stjórnarskránna, heilbrigðismál, atvinnumál og fleira.

#80 KSÍ - Klefamenning, þöggun og öfgar 09.09.2021

Þórarinn, Kristín, Eyþór og Iva Marín ræða um KSÍ málið.

Höre den Podcast Ein Pæling in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet