Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Society IS ↓ 680 Folgen

Hlaðvarp

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Kategorie

Society

Podcast-Website

www.spreaker.com

Neueste Folge

23. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

#168 Stjórnvöld skapa starfsumhverfi, ekki verðmæti (með Heiðari Guðjónssyni) 20.08.2022

www.patreon.com/einpaeling Heiðar Guðjónsson er fráfarandi forstjóri fjölmiðlasamsteypunnar Sýnar, sem rekur meðal annars Vodafone, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Hann hefur verið umsvifamikill á ýmsum sviðum atvinnulífsins, bæði á Íslandi og víða annars staðar. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Heiðar um fyrirtækjarekstur á Íslandi, hvatastýringu, hvernig það er að reka fjölmiðil, aðkomu stjórnvald...

#167 Hvaða flokk kýs peltor gröfukarlinn? (með Árna Helgasyni) 16.08.2022

Er Brynjar Níels hinn nýji almannatengill? Hafa Hjörvar Hafliða og FM95Blö meiri áhrif á íslenska menningu heldur en fólkið á Twitter? Brugðust stjórnvöld rétt við í veirufaraldrinum? Hvaða flokk kýs hinn þögli meirihluti? Árni Helgason, fyrrum hlaðvarpsstjórnandi Hismisins, lögmaður og fleira, reynir ásamt Þórarni Hjartarsyni að svara þessum spurningum og fjölmörgum öðrum.

#166 Ekki ólíklegt að húsnæðisverð taki dýfu (með Má Wolfgang Mixa) 13.08.2022

Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskóla Íslands, komst nýlega í fréttirnar þegar hann tjáði fjölmiðlum að það myndi ekki koma honum á óvart ef að húsnæðisverð myndi koma til með að taka dýfu á næstunni. Í þessu hlaðvarpi er rætt um hvað hafi áhrif á fasteignaverð, ástæður þess afhverju Már telur að það muni koma til með að taka dýfu, leigumarkaðinn, kjaraviðræður, hrunið og fleira.

#165 Samfélagsmiðlar eru tvíeggja sverð (með Kristínu Sif) 10.08.2022

www.patreon.com/einpaeling Kristín Sif er útvarpskona, áhrifavaldur, afrekskona í hnefaleikum og margt fleira. Í þessu hlaðvarpi er rætt um áhrif samfélagsmiðla á sálarlíf ungs fólks og áhrifavalda. Farið er yfir hvort að þetta sé óumflýjanlegur veruleiki barnanna okkar, hvernig maður getur komist hjá því að vera stanslaust tengdur, breytt samskiptamynstur og margt fleira.

#164 Ósættið er þessi íslenska öfund - Sjávarútvegskerfið, Samherjamálið og eignarhald (með Vilhjálmi Árnasyni) 07.08.2022

Vilhjálmur Árnason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur sjávarútvegskerfið vera mikilvæga stoð í íslensku samfélagi og að gagnrýni á það byggist helst á öfund þeirra sem að keyptu ekki kvóta eða seldu hann snemma. Í þessum þætti er rætt um réttlæti, Samherjamálið, milliverðlagningu, uppbyggingu kerfisins, hugmyndafræði og margt fleira.

#163 Er þess virði að niðurgreiða landbúnað? (með Þórarni Inga Péturssyni) 04.08.2022

Þórarinn Ingi þingmaður Framsóknarflokksins mætir í annað skipti í hlaðvarpið. Að þessu sinni er rætt um niðurgreiðslu í landbúnaði, stöðu fæðuöryggis í heiminum vegna innrásarinnar, samráð, hugmyndafræði og margt fleira.

#162 Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar á ungt fólk? (með Bjarna Kristni Gunnarssyni) 31.07.2022

Bjarni Kristinn Gunnarsson er sálfræðingur sem að hefur tjáð sig um áhrif samfélagsmiðla á ungt fólk. Í þessu hlaðvarpi spyr Þórarinn Bjarna úr spjörunum um framtíðarhorfur í þessum efnum, hvað sé hægt að gera til þess að sporna við vanlíðan og kvíða ungs fólks og hvers vegna þessir geðheilsukvillar hafa aukist undanfarin ár.

#161 Afhverju líður okkur illa? (með Þorsteini Guðmundssyni) 29.07.2022

Þorsteinn Guðmundsson er klínískur sálfræðingur en margir muna eflaust eftir honum úr sjónvarpsþáttunum sívinsælu Fóstbræðrum. Þórarinn ræðir við Þorstein um vanlíðan, áföll, kvíða, samskipti foreldra, reiða foreldra og margt fleira. Að lokum spyr Þórarinn Þorstein hver sé hans uppáhalds stikla í Fósbræðrum.

#160 Takmarkaðar auðlindir og afleiddar afleiðingar (með Bergþóri Ólasyni) 23.07.2022

Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins. Rætt er um stöðu Miðflokksins, innflytjendamál, orkumál og menningu.

#159 Leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi - Rauði múrinn, ESB og hugmyndafræði (með Hirti J. Guðmundssyni 19.07.2022

Hjörtur J. Guðmundsson er alþjóðastjórnmálafræðingur sem hefur undanfarið skrifað pistla um leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi á ýmsum vettvöngum. Í þættinum er rætt um þessar snörpu en mikilvægu kosningar en kjörinn leiðtogi verður sjálfkrafa forsætisráðherra Bretlands. Farið er stuttlega yfir sögu leiðtogavals Íhaldsflokksins, rætt um Brexit, ESB, "Rauða Múrinn" í norðri og fleira.

#158 Er að koma kreppa? Húsnæði, hrávörur og aðföng (með Ólafi Margeirssyni) 17.07.2022

Ólafur Margeirsson snýr aftur í þáttinn. Ólafur er með doktorsgráðu í hagfræði og fjallar mikið um húsnæðismál á Íslandi á Patreon reikningi sínum. Að þessu sinni er rætt stöðu efnahagsmála í víðu samhengi. Rætt er um áform ríkisstjórnarinnar að byggja 35.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum sem nú virðist vera möguleiki þrátt fyrir að það hafi talist ómögulegt þegar að Sósíalistaflokkurinn lagði það...

#157 Skortur á aðhaldi gegn spillingu á Íslandi - Getuleysi eða viljaleysi? (með Atla Thor Fanndal) 14.07.2022

Atli Thor Fanndal er framkvæmdarstjóri samtakanna Transparency International sem að berjast gegn spillingu. Í hlaðvarpinu er meðal annars rætt um spillingu á Íslandi, Samherjamálið, Íslandsbankasöluna, hvort spilling sé öðruvísi á Íslandi en annarsstaðar, stöðu stjórnmálaflokkanna í þeim efnum, og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokksins.

#156 Tyranny, social division and woke culture (with Zuby) 10.07.2022

Recorded in December of 2021: Zuby is an entrepreneur, rapper, coach, podcast host, and the list goes on. Zuby has made an impact on cultures around the world with his unique voice conveying a message of personal resilience and responsibility. He is not afraid to challenge the popular narrative in every sphere of society. In this conversation, Tóti and Zuby discuss the challenges to free speech, w...

#155 What is the greatest threat to scientific inquiry? (with Lawrence Krauss) 09.07.2022

Lawrence M. Krauss is an American theoretical physicist who runs the Origins Project Foundation. He served on the science-policy committee for Barack Obama in 2008 and has taught at some of the most elite institutions in America. In this conversation Tóti probes Lawrence about what are the greatest threats to science today. They speak about university culture, the impacts of woke thinking, the inf...

#154 Áfengi - Netverslun, lýðheilsa og frelsi (með Arnari Sigurðssyni) 06.07.2022

Þórarinn ræðir við Arnar Sigurðsson sem er frumkvöðull á sviði netverslunar áfengis. Rætt er um lýðheilsu, frelsi, samfélagslegt umburðarlyndi, drykkju ungmenna og margt fleira.

#153 „Ég er pólitískur aðstoðarmaður“ – Transmál, þungunarrof og #MeToo (með Brynjari Níelssyni) 01.07.2022

www.patreon.com/einpaeling Brynjar Níelsson mætir í tólfta skiptið. Að þessu sinni er rætt um transmál, þungunarrof, #MeToo, þversagnarkennda rökhugsun rétttrúnaðarins, mál Vítalíu og Arnars Grant og margt fleira.

#152 Hefur Sjálfstæðisflokkurinn útilokað sjálfan sig? (viðtal við Arnar Þór Ingólfsson) 29.06.2022

Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður Kjarnans, skrifaði nýlega leiðara um síðastliðnar borgarstjórnarkosningarnar. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau skrif. Titill leiðarans er "Flokkurinn sem útilokaði sjálfan sig" og fjallar um að Sjálfstæðisflokknum hafi tekist að útiloka sjálfan sig fyrir síðustu kosningar. Arnar gefur lítið fyrir hugmyndir flokksmanna Sjálfstæðisflokksins um að aðrir séu að beina s...

#151 Að vera í minnihluta á Alþingi er keimlíkt því að vera blaðamaður (Viðtal við Jóhann Pál Jóhannsson) 24.06.2022

www.patreon.com/einpaeling Jóhann Páll er fyrrum blaðamaður á Stundinni en hann situr nú á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar. Í þættinum er drepið á ýmsu. Rætt er um stöðu minnihlutaflokka á Alþingi, hvernig megi betur búa um hnútanna þegar það kreppir að í efnahagsmálum, sérstöðu og formannsmál Samfylkingarinnar og margt fleira.

#150 Húsnæðismál - Ungt fólk, slæmar ákvarðanir og Seðlabankinn (Viðtal við Halldór Kára Sigurðarson) 18.06.2022

Halldór Kári er hagfræðingur fasteignasölunnar Húsaskjól. Í þessum þætti er rætt um áhrif ákvarðanna Seðlabankans, skuldsetningu ungs fólks á fasteignamarkaði, framtíðarhorfur, stöðu sveitarfélaga og fleira.

#149 Hugleiðingar Jordan Peterson - Frelsi, ábyrgð og hamingja (með Gunnlaugi Jónssyni) 10.06.2022

Dr. Jordan Peterson mætir til Íslands í annað skipti þann 25. júní næstkomandi. Gunnlaugur Jónsson sér um að láta þessi kvöld verða að veruleika en í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við hann um hugmyndir og áherslur Peterson ásamt öðru. Rætt erum frjálshyggju, frelsi, ábyrgð, síbreytilegum áherslum vinstri- og hægrimennsku í vestrænum samfélögum, hamingju, velferð og fleira.

#148 Hver mun sigra stríðið í Úkraínu? (með Alberti Jónssyni) 04.06.2022

Albert Jónsson er einn helsti sérfræðingur Íslendinga á sviði alþjóðasamskipta. Þetta er í annað skiptið sem að Albert kemur í hlaðvarpið og umræðuefnið að sjálfsögðu stríðið í Úkraínu. Rætt er um hver sé að vinna stríðið, herþreyta beggja fylkinga, vanmat Rússa á samstöðu Vesturveldanna, áhrif refsiaðgerða, breytt staða í málefnum flóttamanna, stöðu Íslands og NATO aðild Finna og Svía.

#147 Hópbrottvísun hælisleitenda - Pólitík, menning og aðlögun (með Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttir) 02.06.2022

www.patreon.com/einpaeling Arndís Anna hefur verið áberandi í umræðum undanfarna daga um hælisleitendur og hópbrottvísun sem á að framfylgja á næstu dögum. Í þessu hlaðvarpi er rætt um pólitískan áhuga fyrir auknum stuðningi við hælisleitendur, hversu mörgum Ísland eigi að taka á móti, menningarárekstra, aðlögun, reynslu Norðurlandanna og fleira.

#146 Vændi - Valdaójafnvægi, frelsi og ábyrgð (með Ívu Adrichem) 26.05.2022

Þórarinn ræðir við góðvin þáttarins, hana Ívu Adrichem. Umræðuefnið að þessu sinni er vændi. Rætt er um hvort að heimspekileg sjónarmið sem snúa að því hvort að ófrítt fólk eigi að hafa aðgengi að vændi, valdaójafnvægi, ábyrgð kúnna og kynlífsverkafólks, rétttrúnað og margt fleira.

#145 Ísland er samfélag sem tryggir jöfn tækifæri, ekki jafna útkomu (Viðtal við fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson) 22.05.2022

Þórarinn ræðir við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, um ýmis mál. Meðal annars persónulegar pólitískar áherslur og hugmyndafræði Bjarna, stjórnmál á Íslandi, kulnun og atvinnulífið, Íslandsbankasöluna og margt fleira.

#144 Hrakval pólitískrar efnahagsstefnu (með Jónasi Atla Gunnarssyni) 20.05.2022

www.patreon.com/einpaeling Jónas Atli er hagfræðingur og fyrrum blaðamaður Kjarnans. Í þessu hlaðvarpi er rætt um peningamagnskenningar, fjármálalæsi, orsakir og afleiðingar mismunandi efnahagsstefna og fleira. Sérstaklega er rætt um pólitísk loforð sem ekki taka tillit til raunveruleikans.

Höre den Podcast Ein Pæling in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet