Austurbrú
Austurland
Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
48 – Matarmót Austurlands – seinni þáttur 11.11.2024 28:19
Matarmót Austurlands 2024 var haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 9. nóvember. Í þættinum mætum við á staðinn og ræðum við skipuleggjendur, austfirska framleiðendur, landsliðskokka og gesti. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
47 – Matarmót Austurlands – fyrri þáttur 08.11.2024 28:43
Landsins gæði – austfirsk hráefni er þema Matarmóts Austurlands sem fram fer þann 9. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Á Matarmótinu kynna austfirskir matvælaframleiðendur vörur sínar og bjóða gestum og gangandi að bragða á, allt frá sælgæti og sultum til þurrkaðs ærkjöts og annars lostætis. Viðmælandi í þættinum er Sigrún Sól Agnarsdóttir. Hún er búsett... Read more »
46 – Ljósleiðaravæðing 04.11.2024 17:03
Í þessum þætti er til umfjöllunar ljósleiðaravæðing í sveitarfélaginu Fjarðabyggð en þann 28. október var undirritaður samningur á milli Fjarðabyggðar og Mílu um viðamikla framkvæmd sveitarfélagsins í að ljúka ljósleiðaravæðingu heimila og fyrirtækja allra byggðakjarna næstu tvö árin. Þetta eru stór tímamót fyrir sveitafélagið og búið að vera mikið kappsmál hjá íbúum að kalla eftir... Read more &#...
45 – Öruggara Austurland 15.10.2024 19:34
„Öruggara Austurland“ er heiti á þverfaglegum samráðsvettvangi á Austurlandi sem hefur það markmið að vinna sameiginlega gegn ofbeldi og öðrum afbrotum með markmiðum og aðgerðum sem byggðar eru á svæðisbundnum aðstæðum á Austurlandi. Mánudaginn 14. október var haldinn fjölmennur fundur á Reyðarfirði þar sem hagaðilar verkefnisins fóru yfir stöðuna og ræddu næstu skref. Í þættinum... Read more ...
44 – Starfamessa Austurlands 2024 19.09.2024 41:25
Starfamessa Austurlands 2024 var haldin á Egilsstöðum 19. september 2024. Markmiðið var að kynna störf og starfsgreinar í heimabyggð fyrir ungu fólki í landshlutanum. Í þættinum er rætt við ungt fólk, skipuleggjendur og fulltrúa fyrirtækja sem tóku þátt. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
43 – Íslenskukennsla og menningarleg næmni 06.09.2024 32:36
Í þættinum er rætt við Nichole Leigh Mosty sem vinnur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Hún var stödd fyrir austan fimmtudaginn 5. september og hafði umsjón með námskeiði fyrir leiðbeinendur í íslenskukennslu. Rætt er við hana um kennslufræði í slíkri kennslu, inngildingu og fleira. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
42 – Starfamessa Austurlands 2024 29.08.2024 26:52
Í þessum þætti fjöllum við um Starfamessu Austurlands 2024 sem haldin verður í íþróttahúsinu á Egilsstöðum þann 19. september. Allar nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á heimasíðu Austurbrúar, austurbru.is, en í þættinum er rætt við tvo Austfirðinga sem sinna ólíkum störfum. Þau segja frá sínum helstu daglegu verkefnum, hvað einkennir starfið, fyrir hvern/hverja hentar... Read more »
41 – Hinsegin Austurland 08.08.2024 26:58
Viðmælandi í þættinum er Jódís Skúladóttir, sem situr í stjórn félagsins Hinsegin Austurland, en í dag, 8. ágúst, hefst Regnbogahátíðin árið 2024. Við ræddum við Jódísi um hátíðina, félagið og réttindabaráttu hinsegin fólks. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
40 – LungA 24.07.2024 36:02
Viðmælandi í þættinum er Björt Sigfinnsdóttir, ein af forsprökkum LungA-hátíðarinnar sem haldin var síðasta skipti – í bili vonandi! – dagana 15. til 21. júlí á Seyðisfirði. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
39 – Menningarstofa Fjarðabyggðar 04.07.2024 35:27
Í þættinum er talað við Jóhann Ágúst Jóhannsson, forstöðumann Menningarstofu Fjarðabyggðar, um starfsemina, menningarhátíðina Innsævi, skapandi sumarstörf og listasmiðjur fyrir börn í Fjarðabyggð svo eitthvað sé nefnt. Umsjón hefur Jón Knútur Ásmundsson.
38 – Kolefnisspor Austurlands 12.06.2024 14:48
Um þrjátíu manns mættu á opinn fund Eyglóar og Austurbrúar sem fram fór á Reyðarfirði 11. júní en á honum kynnti Stefán Gíslason hjá Environice niðurstöður greiningar á kolefnisspori Austurlands. Í þættinum er spjallað við Stefán um greininguna en ítarleg skýrsla verður birt á vef Eyglóar á næstu dögum. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
37 – Grímuverðlaunin austur 03.06.2024 33:31
Í síðustu viku hlaut sýningin „Hollvættur á heiði“ eftir Þór Túliníus Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins. Verkið var unnið af leikhópnum Svipir í samstarfi við Sláturhúsið Menningarmiðstöð. Þetta eru mikil og stór tíðindi fyrir lista- og menningarlíf á Austurlandi og í þættinum er rætt við Ragnhildi Ásvaldsdóttur í Sláturhúsinu um þýðingu viðurkenningarinnar í litla og stóra... Read more »...
36 – Nýsköpun í litlum samfélögum 29.05.2024 34:01
Hvað er nýsköpun? Snýst hún bara um að skapa störf eða er hún eitthvað annað og meira? Þessum spurningum og fleiri er reynt að svara í þætti þar sem rætt eru um nýsköpun frá ýmsum hliðum við Arnar Sigurðsson. Hann fer fyrir fyrirtækinu „Austan mána“ og verður Austurbrú innan handar í nýsköpunarhraðlinum „Austanátt“ sem fer... Read more »
35 – Sköpunareldhús á Stöðvarfirði 14.02.2024 19:06
Í þættinum förum við á Stöðvarfjörð og spjöllum við Silju Lind Þrastardóttur. Hún fer fyrir verkefninu Fræ – Sköpunareldhúsi sem fékk nýverið myndarlegan styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands. Þetta verkefni á rætur í byggðaþróunarverkefninu Sterkur Stöðvarfjörður en það snýst um að byggja upp svokallað samfélagseldhús á Stöðvarfirði. Þarna eiga allir matgæðingar að geta komið og gert... Re...
34 – Síreksstaðir 02.02.2024 23:35
Í þættinum er rætt við Karenu Hlín Halldórsdóttur, sem m.a. rekur ferðaþjónustu á Síreksstöðum nálægt Vopnafirði. Á Síreksstöðum er fólki boðið að losa sig við daglega stressið, slaka á í rólegu umhverfi, upplifa daglegt líf á sveitabæ og njóta ferskrar matvöru beint af býli svo eitthvað sé nefnt. Karen segir frá rekstrinum, framtíðaráformum, matvælaframleiðslu og... Read more »
33 – Skógarafurðir 24.01.2024 38:33
Í þættinum er rætt við Bjarka Jónsson hjá Skógarafurðum ehf. en fyrirtækið sérhæfir sig í skógarafurðum úr eigin skógi og framleiðir t.d. pallaefni, parket og flettivið. Fyrirtækið fékk myndarlegan styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands þegar úthlutað var í desember og í þættinum rekur Bjarki sögu Skógarafurða, segir frá rekstrinum, helstu áskorunum og framtíðarsýninni. Umsjón hefur Jón... Read mo...
32 – Úthlutun Uppbyggingarsjóðs Austurlands 07.12.2023 31:15
Alls fengu 67 verkefni styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands þegar úthlutað var úr sjóðnum þann 5. desember 2023. Við vorum á staðnum, fræddumst aðeins um sjóðinn og tókum nokkra styrkþega spjalli. Viðmælendur eru Unnar Geir Unnarsson, formaður úthlutunarnefndar, Sóley Þrastardóttir hjá Sinfóníuhljómsveit Austurlands, Auður Vala Gunnarsdóttir og Ann-Marie Schlutz hjá Austfirskum krásum, Jón Svans...
31 – Skriðuklaustur og heilsársferðaþjónusta í Mjóafirði 29.11.2023 45:07
Skriðklaustur í Fljótsdal hlaut nýverið nýsköpunarviðurkenningu Samtaka ferðaþjónustunnar en síðustu ár hafa forstöðumenn Skriðuklausturs unnið að stafrænni þróun t.d. með leikjavæðingu safnsins. Við heyrum í Skúla Birni Gunnarssyni, forstöðumanni Gunnarsstofnunar, og ræðum við hann um starfsemina. Í Mjóafirði er verið að byggja upp heilsársferðaþjónustu undir einkunnarorðunum friðsæld og fegurð....
30 – Matarmót 2022 25.10.2022 55:58
Matarmót Matarauðs Austurlands 2022 var haldið föstudaginn 21. október í Hótel Valaskjálf. Þar voru haldnar málstofur auk þess sem matvælaframleiðendur á Austurlandi kynntu framleiðslu sína og buðu upp á smakk. Í þættinum er rætt við sýnendur, gesti, fyrirlesara og skipuleggjendur en fram koma: Bryndís Fiona Ford, skólastjóri Hallormsstaðaskóla; Þórhildur María Jónsdóttir, verkefnastjóri vörusmiðj...
29 – Austurbrú 10 ára – menningarstarf á Austurlandi 22.09.2022 24:17
Austurbrú hélt upp á sitt fyrsta stórafmæli í vor eftir viðburðaríkan áratug. Frá stofnun hefur stofnunin unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði markaðssetningar, atvinnuþróunar, fræðslu og síðast en ekki síst menningar. Fáir þekkja menningarstarfsemi á Austurlandi jafn vel og Signý Ormarsdóttir, yfirverkefnasstjóri hjá Austurbrú. Um árabil var hún framkvæmdastjóri Menningarráðs Austurlands, þegar...
28 – Námsferð til Svíþjóðar 12.09.2022 31:22
Dagana fimmta til áttunda september fóru nokkrir starfsmenn Austurbrúar í námsferð til Svíþjóðar til að kynna sér náms- og starfsráðgjöf fyrir innflytjendur. Í þættinum er sagt frá ferðinni, tilurð hennar og tilgangi. Rætt er við sænska náms- og starfsráðgjafann Daniel Hailemariam, íslenskukennarann Berglindi Einarsdóttur og ráðgjafana Þorbjörgu Ólöfu Jónsdóttur og Hrönn Grímsdóttur. Umsjón með þæ...
27 – Sterkur Stöðvarfjörður 29.08.2022 27:18
Stöðvarfjörður hefur alla burði til að eflast sem ferðamannastaður og menningar- og nýsköpunarbær. Hægt er að styrkja byggðina með því að nýta tækifæri á sem flestum sviðum og byggja á því sem þegar er til staðar. Leggja ætti áherslu á góða aðstöðu til útivistar og fjölskyldusamveru og mikilvægt er að auka framboð á íbúðarhúsnæði. Þetta... Read more »
26 – Austurbrú tíu ára 08.06.2022 30:44
Austurbrú hélt upp á sitt fyrsta stórafmæli nú í vor eftir viðburðarík tíu ár. Í tilefni afmælisins var boðið til hátíðardagskrár í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði þar sem m.a. voru haldin nokkur erindi. Öll tengdust þau með einum eða öðrum hætti Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044. Stefán Bogi Sveinsson, skáld og sveitarstjórnarfulltrúi, talaði um sjálfsmynd Austfirðinga. Páll... Read...
25 – Dyrfjallahlaup 11.01.2022 37:56
Í fyrsta þætti ársins fjöllum við um Dyrfjallahlaupið sem fram fer þann 9. júlí næstkomandi og verður efalítið einn af hápunktum ferðasumarsins á Austurlandi árið 2022. Þetta er utanvegahlaup sem nýtur vaxandi vinsælda enda hlaupið um einstaklega stórbrotið og fjölbreytt landslag. Viðmælandi þáttarins er Olgeir Pétursson, hlaupastjóri. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
24 – Fólk hugsar stærra 10.12.2021 27:11
Matarmenningin á Austurlandi er svo sannarlega bæði fjölbreytt og spennandi þessi misserin. Albert Eiríksson hefur verið á ferð á flugi fyrir austan og prófað girnilega rétti sem lesa má um á heimasíðunni hans alberteldar.is. Hann er ánægður með austfirskt matreiðslu- og veitingafólk og finnst það hugsa sífellt stærra. Jón Knútur Ásmundsson ræddi við Albert og... Read more »
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet