Podcaststöðin
Spekingar Spjalla
Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.
Forfatter
Podcaststöðin
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
17. apr. 2025
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
286. Skírdags sprell 17.04.2025 1:28:16
Páskagír í strákunum. Yfirferð á páskaeggjum, Topp 3 uppáhalds frídagarnir, Gull Lite Testið með páskaívafi og dagskrá Spekinga yfir hátíðirnar. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
285. Allt er fertugum fært 09.04.2025 1:23:04
Fullur bátur tjútjú. Spekingar fóru yfir stóru málin. Slúður, Geymt en ekki gleymt, Hvenær Dó Hann, Kvikmyndaskorið og Helgin. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
284. Spekingar fara yfir staðreyndir 26.03.2025 1:22:56
Spekingar fara yfir mál líðandi stundar. Slúðrið er á sínum stað, nú í boði gervigreindar. Staðreyndir um manneskjuna og að sjálfsögðu er farið vel yfir vikuna. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
283. Mars er mánuðurinn hans Matta 12.03.2025 1:26:21
Ég hef aldrei skilið fólk sem fílar Mars enda Snickers maður sjálfur. Kóngurinn Matthías Óskarsson er þó mars-barn og gladdi heiminn með fæðingu sinni þann 16. mars 1983. Þökkum guði og lukku fyrir það. Efnisliðir þáttarins: Geymt en ekki gleymt, Hvenær dó hann/hún/hán er nýr og ferskur og Kvikmyndaskorið. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
282. Þökkum guði hvað febrúar er stuttur 27.02.2025 1:06:16
Vitringarnir þrír mættir í hljóðver. Fórum yfir ýmislegt gagnlegt fyrir hlustendur. Slúður, Snælduvitlausar Staðreyndir um hina heilögu bók og Kvikmyndaskorið. Fleira var það ekki að sinni. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
281. Febrúar Fjör 19.02.2025 1:49:56
Allir landvættirnir mættir í dag. Slúður, Fjársjóðurinn var gull, Topp 3, Umræðan er nýr liður og Helgin framundan. Matti mætti með tollinn. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
280. JútjúbJón snýr aftur 13.02.2025 1:54:21
JútjúbJón mætir loksins aftur eftir jólafrí og kemur inn fyrir Matta sem þurfti að bregða sér af landinu. Fórum yfir það helsta undanfarið, Kendrick Lamar Slúður, Umhverfishorn Jóns, PottCastið og Myndir´ðu Fyrir Smá Aur. Þéttur pakki að vanda. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
279. Rauð skemmtiviðvörun 05.02.2025 1:34:08
Veðrið hefur aldrei stoppað Spekinga. Skelltum í eina upptöku á milli utanlandsferða Matta. Pólítík, verkföll og almennt stuð í upphafi þáttar. Slúðrið, Kvikmyndaskorið og Helgin. Allt saman uppskriftin hennar ömmu. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
278. Nýtt ár og nýtt stórmót 23.01.2025 1:45:14
Strákarnir okkar heldur betur að standa sig stóra sviðinu á HM. Fórum yfir sigurinn gegn Egyptum og miklu fleira. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
277. Jólaskraut og önnur mál 20.12.2024 1:51:53
Titringur á meðal Spekinga í aðdraganda jóla. Ætluðum í fasta liði en við komumst ekki í þá. Jólastuff og nærbuxur til umræðu. Allt saman eyrnakonfekt í eyrum þeirra sem vilja njóta. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
276. Catalina - Gimsteinn í hjarta Kópavogs 12.12.2024 1:36:28
Stór helgi að baki hjá Spekingum. Slúðrið á sínum stað, TayTay véfréttin , Myndir Þú Fyrir Smá Aur, Kæjinn og Hver Er Maðurinn. Loks helgarplönin framundan. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
275. Annar í aðventu framundan 05.12.2024 1:30:02
Full lestað í dag choo-choo! Almennar umræður, SlúSlú, rætinn Tilfinningaskali og Meiða eða Leiða Valkyrjuspecial, allt í boði Alþingis. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
274. Betriborgara klippur 28.11.2024 55:31
Skammdegið siglir hraðbyri til landsins og Spekingar fara ekki varhluta af því. Það er ekki bara möndulhalli jarðar sem fælir Spekinga frá upptökum heldur eru 3/4 Spekinga bara obboslega uppteknir við að fá sér nú þegar aðventan er að ganga í garð. En Sæþór stendur vaktina og gefur ykkur vikulega skammtinn sem þið eigið skilið. #101 Jólabjór með Atla Þór Albertssyni - Hver er besta eftirherma land...
273. Eldgosa þáttur 21.11.2024 1:43:45
Það er enginn tilviljun að það fór að gjósa á sama tíma og Spekingar luku upptökum enda eldvirkur þáttur. Eldfimt Slúður, Hvort Myndir Þú Heldur, Myndir Þú Fyrir Smá Aur og Kvikmyndaskorið á sínum stað. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
272. Ljúfir, kátir og í besta falli léttir 15.11.2024 1:43:02
Spekingar eru alltaf ljúfir og kátir en varla léttir, í líkamlegri skilgreiningu þess orðs. Svefn & heilsa (ekki auglýsing) í fyrirrúmi með þar sem Sæþór er farinn að sofa eins og sjálfur Gabríel engill guðs. Hver er Maðurinn, nýr liður frá Matta og Vafflan ekki upp á sitt besta í þetta skipti. Allt þetta og meira til. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
271. Nóvember hnossgæti 08.11.2024 1:26:48
Kalt er það Klara en veðrið hefur ekki áhrif á Spekinga enda hlýtt í studíói Podcaststöðvarinnar. Við komumst ekki hjá því að ræða aðeins forsetakosningar í BNA, Snældu-vitlausar Staðreyndir, Hvort Myndir þú Heldur og flugvéla Kvikmyndaskor. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar og eru í boði GULL LITE
270. Spekingar after dark 31.10.2024 1:53:19
Eftir gyllta mola í síðustu viku er tímabært fyrir Spekinga að snúa aftur í stúdíó, þó í misjöfnu ástandi. TayTay Hornið lét heldur betur vita af sér, PottCastið leiðbeindi hlustendum í vali á eldhúsáhöldum, Hver er maðurinn siðlaus að vanda og GULL LITE Testið gulls ígildi. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar og eru í boði GULL LITE
269. Oldies but goldies 26.10.2024 53:50
Spekingar eins og aðrir eru að vinna í sjálfum sér um þessar mundir. En örvæntið ei, þáttur þessa vikuna fer með okkur á gamlar og góðar slóðir. Eva Ruza (Júní 2019) - Tvíburar og konungborið fólk Heiðar Logi (Apríl 2019) - Lífsháski og föðurmissir Siggi Gunnars (Ágúst 2019) - Skápurinn, Bretland og Spánn/Tenerife Logi Bergmann (Nóvember 2018) - Stjórnmálafræði og handbók hrekkjalómsins Spekingar...
268. Yes We Can 17.10.2024 1:09:02
Vetur konungur færist nær en það er hlýtt í hjörtum Spekinga. Meiða eða Leiða, Topp 3, Frægar Línur og Gumma Emils Hornið. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
267. Armageddon 09.10.2024 1:52:07
Bæng! Eftir óvænt frí í síðustu viku eru Spekingar mættir til starfa. Vikan viðburðarrík, Gull Lite Testið Yellowstone edition, Frægar stórslysamynda Línur og október Kvikmyndaskor. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
266. Spekingar mæta aftur eftir frí 25.09.2024 1:24:46
Spekingar eru mættir aftur eftir tveggja vikna frí, en þó ekki fullmannaðir. Slúður, Snældu vitlausar staðreyndir, Hver er maðurinn, Topp 3, Hvort myndirðu frekar og helgin. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
265. Shake á liðið 05.09.2024 1:28:31
Gular viðvaranir hafa engin áhrif á mætingu Spekinga þó Matti hafi nælt sér í fjarvist. Ítarleg yfirferð á fertugsafmæli Sesa og spúsu, kanónur í Slúðrinu og Heldur Betur Pétur Andri spurningarkeppnin. Léttir, ljúfir og kátir. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
264. Endurkoma gríska prinsins 29.08.2024 1:33:03
Hvert fór sumarið? Hvaða sumar segja sumir. En það er ávallt sól í hjörtum Spekinga. Hnefafullur þáttur, Topp 3, VöffluSpáin reyndist sannspá og In A Mood For Some Food snéri aftur inn á völlinn eftir langa bekkjarsetu. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
263. Hvar er gríska goðið? 22.08.2024 1:20:01
Þegar almúginn er snúinn aftur til vinni heldur fríið þó áfram hjá Matta. En við látum það ekki stoppa sýninguna. Frægar Línur, Topp 3 skyndibitar á Íslandi og Kvikmyndaskorið. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
262. Palli Spes 15.08.2024 1:53:08
Rjúkandi beint úr ofninum þessa vikuna. Vikan, heldur karllæg, Slúður, Myndir Þú Fyrir Smá Aur, Hver er Maðurinn, brakandi fersk og ný WöffluSpá og ekkert óvænt í helgarplönum Matta. Gríska goðið verður frá í næstu viku en við stefnum á að halda óbreyttri dagskrá. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.