Söguskoðun hlaðvarp
Söguskoðun
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: www.soguskodun.com
Forfatter
Söguskoðun hlaðvarp
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
12. okt. 2026
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
79 - Íslömsku "púðurveldin": Safavídar, Mógúlar og Ottómanar 12.01.2024 1:28:31
Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires . Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega...
78 - Krímstríðið 1853-1856 05.01.2024 1:05:21
Andri og Ólafur ræða í þessum þætti gang og afleiðingar Krímstríðsins 1853-1856 milli Rússa annars vegar og Frakka, Breta, Tyrkja og Sardiníumanna hins vegar. Krímstríðið var fyrsta styrjöldin sem háð var á milli evrópsku stórveldanna eftir Vínarfundinn 1815. Hún var einnig fyrsta stórveldastríðið í Evrópu eftir að iðnbyltingin hóf innreið sína með tilheyrandi tækninýjungum. Þetta var svo að segj...
77 - Evrópski konsertinn og aðdragandi Krímstríðsins 29.12.2023 1:27:11
Þátturinn byrjar á 18 mínútu. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður. Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið...
76 - Jólaþáttur 2023 - Hinn sögulegi Jesús 25.12.2023 1:23:36
Í tilefni jólanna komu Söguskoðunarmenn saman til að ræða Jesú Jósefsson frá Nasaret, en hann fæddist (samkvæmt vestrænni hefð) á þessum degi fyrir 2727 árum, nánar tiltekið árið u.þ.b. 4 fyrir okkar tímatal. Ólafur setti upp guðfræðingagleraugun og fór yfir helstu atriði um hinn sögulega Jesú í tilefni dagsins. Eins eins og flestir vita var Jesús krossfestur árið c.a. 30, og eftir hans dag varð t...
75 - Fasismi og nasismi í Austurríki 14.12.2023 2:08:44
Þátturinn byrjar á 24 mínútu. Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika. Árið 1934 var ko...
74 - Keltar á Íslandi 23.10.2023 1:30:03
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Kelta á Íslandi og keltnesk áhrif á íslenska menningu, tungumál og sögu. Norrænir menn komust í mikil tengsl við Kelta á Bretlandseyjum um það leyti er Ísland var að byggjast á árunum 800 til 1000. Enginn vafi leikur á því að hluti landnámsmanna voru frá Bretlandseyjum og af keltneskum uppruna og hefur þetta verið óumdeilt. Ekki allir eru þó sammála um þa...
73 - Galdrar, brennur og galdrafár 26.09.2023 2:04:31
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn galdrafárið í Evrópu og galdramálin á Íslandi á 17. öld. Í Evrópu voru tugir þúsunda meintra norna og galdramanna brennd á báli, eða tekin af lífi með öðrum hætti fyrir það að stunda svartagaldur og hvítagaldur. Langstærstur fjöldi þeirra voru konur. Á Íslandi voru 22 brennd á báli fyrir ástundun galdurs, þar af ein kona. Galdrafárið á Íslandi, ef svo mætti...
72 - Silkivegurinn 31.08.2023 1:31:20
Andri og Ólafur koma saman í þættinum í dag til að ræða silkiveginn í víðu og þröngu samhengi. Silkivegurinn er nafið sem loðað hefur við leiðina frá Miðjarðarhafinu (Evrópu og Rómarveldi), í gegnum Mið-Austurlönd og Mið-Asíu og til Kína á fornöld og á miðöldum fram til ca. 1500. Á þessu svæði fór fram verslun, m.a. með silki, en einnig fór þar um straumur hugmynda, trúarbragða, menninga, tungumál...
71 - Býsanska lýðveldið 22.08.2023 1:32:37
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri kenningu sagnfræðingsins Anthony Kaldellis um "býsanska lýðveldið" sem hann birti í bók sinni The Byzantine Republic sem kom út árið 2015. Kaldellis er góðvinur hlaðvarpins enda hefur hann oft borið á góma þegar rætt er um málefni Austrómverska ríkisins. Segja má að bækur hans The Byzantine Republic og Romanland séu uppistöðurit í hans leiðangri að...
70 - Sumargleði Söguskoðunarbræðra 17.06.2023 1:26:09
Söguskoðunarmenn komu saman í eigin persónu, í annað sinn síðan hlaðvarpið hóf göngu sína, og ræddu heima og geima áður en haldið var í sumarfrí. Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube: https://youtu.be/NADuRUF6xn0 Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .
69 - Konungsríkið Kongó 30.05.2023 1:22:55
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur miðaldakonungsríkið Kongó í Mið-Afríku sem stofnað var undir lok 14. aldar og leið ekki formlega undir lok fyrr en á 20. öld. Fá miðstýrð ríki voru til staðar í Afríku sunnan Sahara fyrir nýlenduvæðinguna, en konungsríkið Kongó varð til við samruna ættbálka og samþjöppun valds í kringum höfuðstaðinn Mbanza-Kongo sem nú er í norðanverðri Angóla. Kongó varð flj...
67 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu I. hluti 16.05.2023 1:20:13
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruni...
68 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu II. hluti 16.05.2023 1:16:50
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruni...
66 - Heródótos og Persastríðin 27.04.2023 2:02:13
Heródótos frá Kalikarnassos er kallaður faðir sagnfræðinnar (og faðir lyganna). Í þættinum í dag hverfum við aftur til fornaldar og skoðum það sem kallað hefur verið fyrsta eiginlega sagnfræðiverkið í vestrænni sagnaritunarhefð, en það er saga Heródótosar af Persastríðinum milli Grikkja og Persa árin 499 til 449 f. kr. Persaveldi var mesta heimsveldi sem sést hafði á þessum tíma, en Grikkland var...
65 - Ancien Régime: Frakkland á barmi byltingar 07.04.2023 1:50:34
Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af bylt...
64 - Um söguskoðun og sögustaði 21.03.2023 1:13:29
Fyrir jólin kom út ný bók eftir Helga Þorláksson, Á sögustöðum , þar sem fjallað er um sex fræga sögustaði á Íslandi, sögu þeirra og framsetningu sögunnar. Bókin vakti mikla athygli enda er beint sjónum að mikilvægu stefi í íslenskri sagnfræði sem er söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar og samspil akademískrar sagnfræði og almennrar söguvitundar. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri bók Helga, og...
63 - Hvað var þetta svokallaða Heilaga rómverska ríki? 22.02.2023 1:28:06
Heilaga rómverska ríki hinnar þýsku þjóðar hefur oft borið á góma hér í hlaðvarpinu, enda spannar saga þess 1000 ár í hjarta Evrópu. Saga þessa ríkis hófst með krýningu Karlamagnúsar sem nýs Rómarkeisara í vestrinu árið 800, og það leið undir lok þegar nýr keisari frönsku byltingarinnar réðist inn í Þýskaland 1806 og nýr keisari Austurríkis lagði frá sér krúnu Karlamagnúsar í hinsta sinn. Ólafur...
62 - Brúðukeisarinn 09.02.2023 1:17:09
Í þættinum í dag segir Ólafur frá Aisin Gioro Puyi sem var síðasti keisari Kína. Puyi fæddist á miklum umrótartímum og ber ævi hans þann vott. Hann var settur af sem keisari þegar Kína varð lýðveldi árið 1912 og bundinn var endir á yfir 2000 ára sögu kínverska keisaradæmisins. Puyi varð á stríðsárunum leppur Japana í Mansjúríu fram til 1945, og eftir 15 ára fangavist og endurmenntun endaði hann æv...
61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hluti 30.01.2023 1:16:38
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni h...
60 - Deus vult! Fyrsta krossferðin I. hluti 28.01.2023 1:29:33
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni he...
59 - Bastarðurinn 1066 11.01.2023 1:25:56
Á jóladag 1066 var Vilhjálmur bastarður hertogi af Normandí, krýndur konungur Englands. Rúðujarlinn hafði þá leitt innrás franskra og normanskra riddara til Englands, sem yfirbuguðu húskarla síðasta engilsaxneska konungsins, Haralds Guðnasonar í hinni víðfrægu orrustu við Hastings. Englendingar hafa síðustu aldir þakkað Ermasundinu sérstöðu sinni sem eyju, varin árásum frá meginlandinu, en innrá...
58 - Síðasti einvaldurinn 06.12.2022 1:46:10
Fyrr á þessu ári ræddum við sögu rússneska keisaradæmisins frá fæðingu þess á miðöldum og fram að þeim tíma er Rússland varð evrópskt stórveldi á 18. og 19. öld. Í þessum þætti ljúkum við þríleiknum með því að ræða fall keisaradæmisins og líf og störf síðasta keisarans. Nikulás II Rússakeisari er stundum talinn síðasti konungborni einvaldurinn í Evrópu, þótt um þetta megi deila. Hann barðist gegn...
57 - Stutt greinargerð um Ísland 1593 17.11.2022 1:18:58
Arngrímur Jónsson lærði er gamalkunnur góðvinur þáttarins. Arngrímur var höfundur fyrsta Íslandssöguritsins, Crymogæa , sem kom út á latínu árið 1609. Sem ungur og upprennandi fræðimaður árið 1592 var Arngrímur í Kaupmannahöfn þar sem hann hafði kynnst sagnfræðingum sem höfðu mikinn áhuga á íslenskum fornsögum. Hann hafði með í fórum handrit að bók sem var svo gefin út árið eftir, einnig á latínu....
56 - Af varúlfum og morðingjum 31.10.2022 1:05:23
Í anda hrekkjavökunnar koma Söguskoðunarmenn saman í dag til þess að ræða varúlfa, raðmorðingja og annað skelfilegt. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .
55 - Tyrkjaránið 02.10.2022 1:41:06
Tyrkjaránið er vafalaust einn óhuggulegasti atburður Íslandssögunar. Sumarið 1627, á tímum gríðarlegra hallæra og fátæktar á Íslandi, og á hápunkti hins harða lúterska réttrúnaðar, gerðu sjóræningjar (eða víkingar) frá Norður-Afríku, sem þá tilheyrði veldi Tyrkjasoldáns, strandhögg á nokkrum stöðum á Íslandi. Þeir fóru um rænandi hendi, myrtu fólk, brenndu hús og numu á brott hátt í 400 Íslendinga...
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.