Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

News IS ↓ 655 episoder

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: rauda-bordid.simplecast.com

Forfatter

Gunnar Smári Egilsson

Kategori

News

Podcastens hjemmeside

rauda-bordid.simplecast.com

Seneste episode

2. okt. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,8 i bedømmelse iOS snart

Episoder

Rauða borðið 24. mars: Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár 24.03.2025

Rauða borðið 24. mars Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umr...

Synir Egils 23. mars - Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni 23.03.2025

Sunnudagur 23. mars Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson 22.03.2025

Laugardagur 22. mars Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður í Hólavallakirkjugarði er gestur í Helgi-spjallsins þessa vikuna. Heimir Björn kann margar sögur úr garðinum. Í spjalllinu segir hann Sigurjóni Magnúsi Egilssyni nokkrar ómetanlegar sögur.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 12 21.03.2025

Föstudagur 21. mars Vikuskammtur: Vika 12 Jódís Skúladóttir, Indriði H. Þorláksson og Sigursteinn Másson eru gestir í Vikuskammti að þessu sinni. Ræddar eru fréttir vikunnar og ekki síst afsögn mennta- og barnamálaráðherra. Þátturinn er í umsjá Björns Þorlákssonar.

Rauða borðið - Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa 20.03.2025

Fimmtudagur 20. mars Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa Þátturinn hefst á umræðu sem spyr spurninga um hvort Ísland sé að verða lögregluríki og hvort aðgreining yfirstéttar og almennings sé að aukast. Við ræðum dóm gærdagsins þar sem níu mótmælendur sem beittir voru harðræði fá ekkert fyrir sinn snúð. Sigtryggur Ari Jóhannsson og Sara Stef Hildar mó...

Rauða borðið 18. mars - Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk 19.03.2025

Miðvikudagur 19. mars Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk Við hefjum þáttinn á viðtali Laufeyjar Líndal Ólafsdóttur við Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttir Kemp og lögmanninn Gunnar Inga Jóhannsson, um Solaris málið svokallaða en ríkissaksóknari fól lögreglu að rannsaka fjársöfnun og átaksverkefni til að koma fólki út af Gaza. Bændur og búalið hér á landi sjá...

Rauða borðið 18. mars - Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð 18.03.2025

Þriðjudagur 18. mars Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að var...

Rauða borðið 17. mars: Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák 17.03.2025

Mánudagur 17. mars Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák Við hefjum leik á viðtali Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur við Harald Ólafsson hjá Heimssýn. Haraldur telur að valkyrkjustjórnin sé að reyna að koma landsmönnum inn í ESB undir fölsku flaggi varnarmála. Einnig verður umræða um fjölmiðla í umsjá Björns Þorláks þar sem blaðamennirnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sigurjón...

Synir Egils 16. mars - Fréttir, pólitík og átök 16.03.2025
Helgi-spjall 15. mars: Dagur B. Eggertsson 15.03.2025

Dagur B. Eggertsson þingmaður og fyrrum borgarstjóri er gestur Helgi-spjallsins þessa vikuna. Dagur ræðir uppvöxtinn, læknavísindin, pólitíkina, borgina og persónuleg mál við Björn Þorláksson.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 11 14.03.2025

Föstudagur 14. mars Vikuskammtur: Vika 11 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vilborg Bjarkadóttir doktorsnemi í þjóðfræði, Magnús Jochum Pálsson blaðamaður og gagnrýnandi, Þorkell Heiðarsson deild­ar­stjóri hjá Dýraþjón­ustu Reykja­vík­ur og Ester Bíbi Ásgeirsdóttir bassaleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Trump innan lands og utan en líka slætti og látum í pólitíkinni...

Rauða borðið - Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing 13.03.2025

Fimmtudagur 13. mars Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing Magnús Helgason sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúI ræða við Gunnar Smára um hvernig Donald Trump er að breyta Bandaríkjunum. Hversu miklar geta þær breytingar orðið? Og munu þær ganga til baka í næstu pólitísku sveiflu. Lexí Líndal, plötusnúður og listakona og Máni Emeric Pri...

Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir 12.03.2025

Rauða borðið 12. mars Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir Við hefjum leik á umfjöllun um stjórnmál en aldrei hafa kosningar í Grænlandi vakið meiri athygli en nú. Það skýrist ekki síst af áhuga Bandaríkjaforseta á að sölsa Grænland undir sig og ræðir María Lilja við Ingu Dóru Guðmundsdóttur um niðurstöður kosninganna. Atli Þór Fanndal, sem...

Rauða borðið 11. mars - Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar 11.03.2025

Þriðjudagur 11. mars Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, prófessor við Háskólann á Bifröst, ræðir við Björn Þorláks um gjörbreytta stöðu sem blasir við íslensku ríkisstjórninni vegna utanríkismála. Allar líkur eru á því að aðstæður hafi áhrif á ESB-áhuga Íslendinga. Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri Aflvaka g...

Rauða borðið 10. mars: Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl 10.03.2025

Rauða borðið mánudaginn 10. mars 2025 Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl verður á dagskrá Samstöðvarinnar í kvöld. Við hefjum leik við Rauða borðið með þeim Ragnari Sigurði Kristjánssyni, hagfræðingi hjá Viðskiptaráði og Stefáni Eiríksson útvarpsstjóra. Á RÚV að víkja af auglýsingamarkaði? Er Rúv bleiki fíllinn sem er að lama einkarekna fjölmiðlun í landinu? Bj...

Synir Egils 9. mars - Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga 09.03.2025

Sunnudagurinn 9. mars Synir Egils: Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Eyrún Magnúsdóttir blaðakona, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar og st...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson 08.03.2025

Laugardagur 8. mars Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson Héðinn Unnsteinsson, rithöfundur og ráðgjafi segir okkur frá lífi sínu í punktinum og utan hans, í skáldskap og samveru, einveru og rannsóknum á geði, kerfum, erfðum, áföllum, framsýni, frumefnum, næveru.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 10 07.03.2025

Föstudagur 7. mars Vikuskammtur: Vika 10 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Lína Thoroddsen klippari, Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona, Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður og Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af fyrirferð Donald Trumps, stríðsvæðingu Evrópu, tillögum um sparnað og niðurskurð og allskyns álitamálum.

Rauða borðið 6. mars - Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur 06.03.2025

Fimmtudagur 6. mars Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, ræðir við Oddnýju Eir um efnahagslegt ástand heimsins, afleiðingar Trömpismans og fjármálastríð heimsins. Sema Erla Serdarouglu, stjórnarformaður Solaris og Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur setjast til borðs með...

Rauða borðið - Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning 05.03.2025

Miðvikudagur 5. mars Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning Haraldur Sigurðsson prófessor og doktor í jarðefnafræði ræðir frá Bandaríkjunum við Björn Þorláksson um hækkun yfirborð sjávar sem getur valdið stórskaða í skaðabrimi eins og síðustu daga. Fyrrum þingmennirrnir Ásmundur Friðriksson, Mörður Árnason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eru reynslubo...

Rauða borðið 4. mars - Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur 04.03.2025

Þriðjudagur 4. mars Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræði...

Rauða borðið 3. mars: Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá 03.03.2025

Mánudagur 3. mars Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá Við ræðum Trump á bolludegi. Fyrst ræðir Gunnar Smári við Þorvald Gylfason prófessor í hagfræði um áhrif stefnu Trump á efnahag heimsins. Hver er stefna Trump og er hún til eftirbreytni? Gunnar Smári ræðir einnig við Jón Ólafsson prófessor í heimspeki um áhrif stefnu Trump á stöðu Rússlands. Í millitíðinni ræðir Björ...

Synir Egils 2. mars - Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum 02.03.2025

Sunnudagurinn 2. mars Synir Egils: Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum blaða- og þingkona, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum frétta- og þingmaður og Sunna Valgerðardóttir fyrrum fréttakona og starfsm...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson 01.03.2025

Laugardagur 1. mars Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson Pétur Gunnarsson rekur ferð sína um hugmyndir og heimsmyndir, hugsjónir sem hafa risið og hnigið, byltingar sem blómstruðu eða koðnuðu niður og aðrar sem runnu sitt skeið og reynir að skilja stöðu heimsins í dag, sem er kannski háskalegri en nokkurn tíma um daga Péturs.

Vikuskammtur: Vika 09 28.02.2025

Föstudagur 28. febrúar Vikuskammtur: Vika 09 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson nemi í mannfræði, Freyr Eyjólfsson öskukarl, Theódóra Björk Guðjónsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Halldór Auðar Svansson fyrrverandi borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af viðbrögðum við stefnu Donald Trump, nýjum meirihluta í Reykjavík, samningum k...

Lyt til podcasten Rauða borðið i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.