Podkastalinn

Podkastalinn

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: podkastalinn.libsyn.com

Forfatter

Podkastalinn

Kategori

Comedy

Podcastens hjemmeside

podkastalinn.libsyn.com

Seneste episode

7. okt. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,8 i bedømmelse iOS snart

Episoder

#40 Riddarar II 28.01.2021

Kæru riddarar, í dag er orðið ykkar. Í þættinum leysum við vandamál hlustenda, hugleiðum hugleiðingar og skoðum skoðanir þeirra. Engin rödd er of veik til að óma innan veggja kastalans. Nú eru það við sem hlustum.    

#39 Siðblindur í 12min 26.01.2021

Dýr brosa eingöngu til þess að verða ekki étin. Það heldur Gauti allavega. Hvað er svalasta eiturlyfið? Af hverju verður fólk siðblint í tólf mínútur? Arnar sem enginn veit hver er fer inn á löggan.is og finnur út úr þessu öllu saman meðan draugabanar landsins halda áfram að svíkja fólk.

#38 Er Nökkvi með bars? 21.01.2021

Nú þegar Kastalinn er orðinn vel established miðill sem fólk trúir og treystir á er tími til kominn að mynda sér stefnu og taka upp gildi eins og almennilegum business sæmir. En hver og afhverju þau en ekki þessi hér? Pressan sem fylgir væntingunum fólks til season 2 er farin að hafa veruleg áhrif, bara ef við hefðum gildi til að vísa okkur veginn. En eins og gauti er alltaf að segja "what doesn't...

#37 Q með Atla Fannari 19.01.2021

QAnon er sennilega það allra heitasta í samsæriskenningageiranum þessa dagana. Hver á ekki laufléttan frænda á facebook sem trúir því staðfast að Trump sé frelsari vorra tíma, að Obama borði börn með bestu list og að það sé eitthvað STÓRT handan við hornið? Í þættinum kemur Atli Fannar í heimsókn til að ræða Q, kenningarnar, stuðið og stemninguna.  

#36 Gestalæti 14.01.2021

Í fyrsta sinn í sögu kastalans hefur gestur hreiðrað um sig í turninum háa. Hann er langur og mjór eins og fyndið typpi, heitir Björn Geir og er vinur okkar frá Keflavík. Í þættinum segir hann okkur lauslega frá því hvernig er að vera gaur sem er til, fyrst í keflavík og svo 7 ár í oakland, california.  

#35 Podkastalandinn 12.01.2021

Hve marga þvala áhugaljósmyndara þarf til að ljósmynda séð og heyrt stelpu? Hve marga fretandi rassa þarf til að skjóta rappvídjó? Hve léttir geta tveir vinir verið á meðan veröldin skíðlogar, ill öfl hafa fundið sér leið úr iðrum jarðar og það er janúar og veðrið súrt? Mjög!

#34 Svartur beanie 07.01.2021

Húfur: Yfir eyrun eða aðeins rétt á toppi höfuðsins eins og smokkur áður en maður hefst handa við að renna honum niður skaftið? Og talandi um höfuð:Treystiru heilaskurðslækni sem sem ætlar að krukka í þér ef hann kaus Guðmund Franklín? Litlu málin eru HUGE í dag. Gauti segir frá óþolandi leyndarmáli um áramótaskaupið og yo hvaða 3d tónleika stunt var þetta á eftir skaupinu?

#33 Síðasta sjoppuferðin 07.01.2021

Podkastalamenn eru mættir feitir og endurnærðir eftir gott frí. Hvern hefði grunað að það yrði annað season? Eflaust öllum sem hlusta reglulega á þáttinn. Podkastalinn dembir sér beint í djúpu laugina eða öllu heldur á djúpa vefinn og Arnar reynir að komast að því hvað það kostar að drepa Gauta. Sú upphæð er eflaust ódýrari en að vera með skemmtipakka í áskrift frá Stöð 2. Afhverju eru menn alltaf...

#32 Season eitt FINALE 22.12.2020

2020, what a ride! Alvöru böllur á þessu ári. Kastalinn var endurbyggður á einni nóttu í sumar og hefur síðan þá sett sterkan svip á borgarmyndina með háum, skökkum turnum og fallbyssuskotum. Í dag fögnum við og kveðjum og hlæjum og grátum í einum rykk því líkt og árið er season 1 á enda. Þetta var frábært season, það besta segja sumir, en þetta er komið gott. Season 2 hefst á nýja árinu og það er...

#31 Friends bloopers 17.12.2020

Fólk treystir meira á varalestur en það gerir sér grein fyrir og það hlustar af ekki af jafn mikilli athygli og það lætur í ljós. Hvað gerist þá þegar varir eru huldar með þar til gerðum grímum svo fólk þarf alfarið að treysta á hlustun í munnlegum samskiptum? Hlustið og þér munið amk komast að því hvernig Gauti dílar við það. Í þættinum ræða strákarnir líka cool dót eins og flash mob og stomp tón...

#30 Sænskir Handrukkarar 15.12.2020

Hvernig tókst Gauta að eyða sólarhring í að kaupa tóbak? Afhverju fór hann ekki bara að hitta sænsku handrukkarana sem eru búnir að opna útibú útum allan bæ? Eru vapesölumenn svölustu gaurar í heimi? Svarið er augljóst en því er svarað í þætti númer þrjátíu af Podkastalanum. Uppeldisaðferðir Podkastalans koma fram í þættinum en svo fer umræðan aftur að nikótíni. Það eru miklar líkur á því að þú by...

#29 Himmelbjerget 10.12.2020

Eftir stuttar barsmíðar á brekkunni  Himmelbjerget  í Danmörku kafar  Podkastalinn í pósthólfin sín. Þar er að finna allskonar heimspekilegar vangaveltur um hina og þessa hluti úr daglegu lífi hlustenda. Hvort sem það er umræðuefni, ástarjátningar, spurningar um lífið eða spam  þá hvetjum við hlustendur kastalans að senda okkur skilaboð ( instagram / facebook ). Finndu  Podkastalann  á samfélagsmi...

#28 mömmurapp 08.12.2020

30. júlí 2020 sendir Gauti frá sér tweet sem hefur afleiðingar. Fólk snappar. Afhverju skrifaði Gauti tweetið? Afhverju snappaði fólk? Hefur Gauti recoverað að fullu? Arnar rannsakar málið og slakar ekki á fyrr en öll kurl eru komin til grafar.

#27 Geislavirkur úrgangur 03.12.2020

Podkastalamenn fara yfir gamla drauma um að drekka geislavirkann vökva til þess að öðlast ninjahæfileika. Þeir ræða um gæludýr en fara svo yfir það hvernig sé best að slást við villt dýr í náttúrunni. Kóngarnir í kastalanum eru orðnir betri í að svara innsendum fyrirspurnum og taka fyrir nokkur vel valin mál. 

#26 Hvíslenska 01.12.2020

Vampírur, kvíði, fóbíur, myrkur og Ole Lund Kirkegaard lífvana í skafli. Úff! Þátturinn er drungalegur enda veturinn vel á veg kominn og vonleysið sjaldan meira en á þessum árstíma. Strákarnir spila dularfulla upptöku sem breytir öllu um sakleysislegar hugmyndir þeirra um sund, potta og busl. Varúð, kæru hlustendur, fólk er ógeð.

#25 Á hálum ís 26.11.2020

Finnst pöddum við líka ógeðsleg? Eru blobfiskar í neyslu? Strákarnir opna þarfa umræðu um bodyshaming í hafinu. Mun veganismi taka bluetooth karla úr umferð? Strákarnir fara í ísbúð og fremja harakiri. Hvaða bragðarefur er bestur? Hvað er bannað að gera í ísbúð? Til hvers að fara út að hlaupa? Frá hverju ertu að hlaupa? Hvað var Gauti að gera í fína hverfinu úti á nesi klæddur eins og þjófur? Hvað...

#24 1997 24.11.2020

Árið er 1997. Hárið er aflitað og spiky, hjartað í þér slær fyrir Sarah Michelle Gellar og þú ert með nýja bók um galdrastrák sem er víst helvíti góð. Nema hvað árið er 2020, hárið á þér er niðurdrepandi náttúrulegum lit, Sarah hefur verið hamingjusamlega gift Freddie Prinze Jr. síðan 2002 og J.K. Rowling hefur verið aflýst. Hvað gerðist?

#23 Shang Tsung 19.11.2020

Þegar siðrofið hefst og fólk fer að éta hvert annað, með hverjum myndaru teymi til að komast af: rafíþróttamönnum eða röppurum? Ha?? Þetta og svo margt fleira, t.d. nautaat (horn á bólakaffi í bossanum í níðingum), fótboltalandsliðið (víkingaklappið, hot or not?) og þegar fólk annaðhvort rennur í hálku eða feykist um í vindi við sæbrautina og starfsmenn Advania ná því á video.

#22 Mjólk og byssur 17.11.2020

Í þættinum kemst Gauti að því hvað gerist ef maður kallar Arnar Sauðkrækling en ekki SauðkræKing. Strákarnir ræða áhugaverða hlið á hori sem er sjaldan rædd, velta því fyrir sér hvenær ólæst hjól verða almannaeign og stefna á lásasmiðanám. Rapparinn Ungi Besti spyr stóru spurningarinnar og karlmönnum í óléttumyndatökum er cancellað.

#21 Gauti Fischer 12.11.2020

Flestir vita að Gauti kann að rappa en fæstum grunar að hann sé skákmeistarinn sem hann er. En er skák íþrótt? Og enn fremur, eru tölvuleikir íþrótt? Seinast voru það töframenn og parkour hópar en nú er það eSamfélagið sem mun snappa. Það verður bara að hafa það. Strákarnir ræða ofsjónir, hor, 400 grömm af kókaíni, lottóvinninga og big ass pharma. Pakkaður þáttur þar sem það er vaðið úr einu í ann...

#20 Funny chicken logo 10.11.2020

Er rétt að þessa dagana sé blómlegur svartur markaður fyrir þá sem þrá ekkert heitar en fresh cut og axlanudd? Svo sannarlega. Kastalinn hvetur samt alla til þess að sýna styrk og safna hári og vöðvabólgu. Strákarnir halda áfram að hata símana sína, nú með sérstakri áherslu á minningarnar sem öll helstu öppin ota að manni frá morgni til kvölds en þeir jafna út hatrið með ást sinni á Hananum og öll...

#19 Beyglan í rjóðrinu? 05.11.2020

Gauti og dóttir hans lenda í hremmingum í elliðarárdalnum sem á orðið meira sameiginlegt með aðstæðum í i am legend með big willie en grænu fjölskylduvænu svæði á besta stað í Reykjavík. Við fáum að heyra frásögn af því og allar vekjaraklukkurnar í símanum hans Gauta. Félagarnir lesa og svara fyrirspurnum frá nokkrum hlustendum og verða meira að segja pínu alvarlegir á köflum.

#18 Riddarar Podkastalans 03.11.2020

Af hverju rukka tannlæknar svona sturlaðar upphæðir fyrir að putta mann í munninn? Er tannlæknirinn þinn mögulega goth undir hvíta gallanum. Gauti segir frá því þegar hann fór í covid test og var svo skammaður af sjö manneskjum í Melabúðinni fyrir að vera tillitslaus asni. Strákarnir fara yfir innsend skilaboð frá riddurum kastalans og reyna að ráða úr misgáfulegum málefnum sem berast þangað inn.

#17 Tréhús Skelfingar 29.10.2020

Þátturinn er með sérstöku hrekkjavökusniði og ræða félagarnir einungis það sem vekur að þeirra mati ugg og óhug, t.d. kolkrabba, flugvélar, bandorma og steypireyð. Öskudagurinn er cancelled því þetta er miklu skemmtilegri en fyrst og fremst praktískari hefð.

#16 Emmsjésen 27.10.2020

Afhverju verður besta fólk að fasistum þegar kemur að borðsiðum og kvöldmat? Við könnum málið. Gauti talar frá Serbíu og segir nöfnunum frá upplifun sinni af landi og þjóð. Mannanafnanefnd er á leiðinni í skrúfuna og strákarnir ræða hvort það sé raunveruleg hætta á því að allir taki upp nafnið Adolf Hitler. Smámálin eru funheit þessa vikuna!

Lyt til podcasten Podkastalinn i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.