Límónutréð
Límónutréð
Límónutréð er hlaðvarp um leikskólamál. Rætt verður um allt milli himins og jarðar sem tengist leikskólastarfi og gestir þáttanna koma úr öllum áttum leikskólasamfélagsins
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: podcasters.spotify.com
Forfatter
Límónutréð
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
20. dec. 2024
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
BeIn - Eyrún Bjarnadóttir og Regína Laufdal Aðalsteinsdóttir 20.12.2024 35:58
Við höldum áfram að tala við kennara sem tóku þátt í EECERA ráðstefnunni í Brighton í ágúst. Í þættinum segja þær Eyrún Bjarnadóttir, leikskólakennari í Múlaborg, og Regína Laufdal Aðalsteinsdóttir, leikskólakennari í Suðurborg, okkur frá Erasmus+ verkefninu BeIn sem gengur út á það að byggja upp traust með foreldrum.
OMEP - Adrijana Visnjic-Jevtic 15.11.2024 16:42
Límónutréð hitti Adrijönu Visnjic-Jevtic á EECERA ráðstefnunni í Brighton. Adrijana er dósent við háskólann í Zagreb, Króatíu. Hún er einnig forseti evrópudeildar OMEP samtakanna. Í þættinum segir Adrijana okkur frá rannsóknaráherslum sínum og starfi OMEP
Vöxum saman - Ráðstefna 1. nóvember 2024 15.10.2024 29:36
Í þættinum segja þær Harpa Kolbeinsdóttir, leikskólastjóri í Stekkjarási og Unnur Henrysdóttir, leikskólakennari í Marbakka, okkur frá ráðstefnunni Vöxum saman sem haldin verður í Skátaheimilinu í Hafnarfirði 1. nóvember n.k. Skráning fer fram í gegnum netfangið voxumsaman@gmail.com
EECERA ráðstefna í Brighton-inngangur 04.10.2024 45:05
Límónutréð fór á EECERA ráðstefnu í Brighton í byrjun september s.l. og tók upp nokkra þætti. Í þessum þætti hittum við nokkra íslenska þátttakendur og heyrum hvernig þeirra upplifun var af ráðstefnunni. Næsta ráðstefna EECERA verður í lok ágúst 2025 í Bratislava, Slovakiu
Ærslaleikur - Hugrún Helgadóttir 14.03.2024 43:02
Límónutréð heimsótti Hugrúnu Helgadóttur leikskólakennara í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi. Hugrún sagði okkur frá meistararannsókn sinni sem heitir Ærslaleikur ungra barna: óþarfa hamagangur eða fyrstu skref í samleik?
Kerhólsskóli: Innleiðing flæðis í leikskólastarf - Emilía Lilja Rakelar Gilbertsdóttir og Sigríður Þorbjörnsdóttir 15.02.2024 35:54
Límónutréð heimsótti Kerhólsskóla á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi og hitti leikskólakennarana Emilíu Lilju Rakelar Gilbertsdóttur og Sigríði Þorbjörnsdóttur. Þær sögðu okkur frá innleiðingu flæðis í leikskólastarf Kerhólsskóla, en hann er samrekinn leik-og grunnskóli. Emilía Lilja og Sigríður hafa einnig skrifað grein í Netlu ásamt Ingibjörgu Ósk um ferlið: https://netla.hi.is/greinar/2023/a...
Eiturefnalaus leikskóli - Inda Björk Gunnarsdóttir 15.12.2023 36:58
Límónutréð heimsótti Indu Björk Gunnarsdóttur, leikskólastjóra í Kiðagili á Akureyri. Hún sagði okkur sína sögu og hvernig stefnt er að því að hafa leikskólann án eiturefna.
Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir - sönglög til málörvunar 27.10.2023 27:19
Í þættinum segir Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir, leikskólakennari í Urðarhóli, frá meistaraprófsverkefni sínu sem heitir: Sönglög til málörvunar í íslensku: með börnum af pólskum uppruna. Lögin og fleira efni má nálgast á vefnum: krakkakunst.com
Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir 16.09.2023 31:39
Samtal við Jennýju Dagbjörtu Gunnarsdóttur, þróunarfulltrúa leikskóla í Hafnarfirði
Anna Elísa Hreiðarsdóttir 16.09.2023 42:49
Samtal við Önnu Elísu Hreiðarsdóttur, lektor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri
Hæglæti í leikskólastarfi - Alison Clark og Kari Carlsen 15.09.2023 44:56
Í þættinum fjalla þær Alison Clark og Kari Carlsen um hæglæti í leikskólastarfi. Þær heimsóttu Ísland vorið 2023 og Límónutréð var svo heppið að ná samtali við þær.
Móttaka og leiðsögn í leikskóla - Linda Ósk Sigurðardóttir 06.07.2023 29:16
Í þættinum segir Linda Ósk Sigurðardóttir, sérkennslustjóri í leikskólanum Hlíð í Reykjavík, okkur frá meistararannsókn sinni. Linda Ósk lauk meistaranámi í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf við Menntavísindasvið HÍ og í rannsókninni skoðaði hún móttöku og leiðsögn nýs starfsfólks í leikskóla.
Leikskólinn Iðavöllur, Akureyri 29.05.2023 30:41
Í þættinum heimsækjum við leikskólann Iðavöll á Akureyri og tölum við Önnu Lilju Sævarsdóttur leikskólastjóra. Við fórum um víðan völl enda á leikskólinn sér langa sögu og margt áhugavert er framundan í starfinu, t.d. eru kennarar að taka þátt í nýju verkefni sem tengist hæglæti og fljótlega verður opnuð ungbarnadeild í húsnæði grunnskóla í hverfinu.
Fjölmenning í leikskólum - Fríða Bjarney Jónsdóttir 20.04.2023 39:19
Í þættinum segir Fríða Bjarney Jónsdóttir, deildarstýra Nýsköpunarmiðju menntamála hjá Skóla-og frístundasviði Reykjavíkurborgar, okkur frá starfi sínu. Fríða Bjarney segir okkur einnig frá doktorsrannsókn sinni sem þar sem hún skoðar námsrými fjöltyngdra barna í leikskólum. Þar sem Barnamenningarhátíð stendur nú yfir í Reykjavík, endum við á lagi hátíðarinnar 2023, Kæri heimur með hljómsveitinni...
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri 19.02.2023 31:16
Í þættinum segja þau Íris Hrönn Kristinsdóttir og Gunnar Gíslason okkur frá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Þar er unnið að ýmsum áhugaverðum verkefnum sem m.a. tengjast leikskólastiginu.
Málörvun og læsi í leikskólum - Dr. Rannveig Oddsdóttir 15.12.2022 26:10
Límónutréð heimsótti Dr. Rannveigu Oddsdóttur, lektor við Háskólann á Akureyri. Hennar sérsvið er málþroski og læsi og í þættinum fjallar hún um sínar rannsóknir sem tengjast málörvun og læsi í leikskólum.
Flæði og jákvæð sálfræði - Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi 16.11.2022 32:27
Í þessum þætti heimsækjum við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi þar sem unnið er í út frá kenningu Mihaly Csikszentmihalyi um Flæði og hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Þær Kristín Gísladóttir, leikskólastjóri og Elín Friðriksdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, sögðu okkur frá starfinu í Uglukletti og hvernig það hefur þróast frá opnun leikskólans árið 2007.
Raunfærnimat í leikskólakennaranámi 06.04.2022 25:04
Í þættinum segja þær Ína Dögg Eyþórsdóttir, Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir og Dr. Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir frá raunfærnimati í leikskólakennaranámi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Um þessar mundir er verið að meta þróunarverkefni um raunfærnimat sem unnið var á þessu skólaári og taka ákvarðanir um næstu skref.
Samskipti tveggja ára barna - Bryndís Gunnarsdóttir 22.03.2022 30:53
Í þessum þætti kynnumst við Bryndísi Gunnarsdóttur, leikskólakennara frá Ísafirði og doktorsnema við Menntavísindasvið. Hún segir okkur frá dokotorsverkefninu sínu þar sem hún skoðar samskipti tveggja ára leikskólabarna.
Yngstu börnin í leikskólanum - Dr. Hrönn Pálmadóttir 22.10.2021 29:03
Í þættinum segir Dr. Hrönn Pálmadóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, okkur frá rannsóknum sínum sem tengjast yngtu leikskólabörnunum. Hvað þarf að hafa í huga þegar leikskólastarf fyrir yngstu börnin er skipulagt?
Leiklist í Laufskálum - Hildur Lilja Jónsdóttir og Sigríður Jóna Clausen 08.10.2021 46:33
Í þessum þætti heimsóttum við leikskólann Laufskála í Grafarvogi sem leggur áherslu á leiklist starfinu. Hildur Lilja Jónsdóttir leikskólastjóri, og Sigríður Jóna Clausen verkefnastjóri, sögðu okkur frá hvernig unnið er með leiklistina bæði í skipulögðum stundum og hvernig hún fléttast inn í daglegt starf.
Styrking leikskólastigsins - skýrsla starfshóps 03.09.2021 46:00
Í þessum fyrsta þætti haustins komu fulltrúar starfshóps á vegum Mennta-og menningarmálaráðuneytsins um styrkingu leikskólastigsins og kynntu tillögur hópsins. Hópurinn leggur fram fjölþættar tillögur um hvernig efla megi skólastarf á leikskólastigi, m.a. um endurskoðun á aðalnámskrá leikskóla, reglugerð um starfsumhverfi leikskóla og byggingarreglugerð. Tillögurnar eru nú til umfjöllunar í ráðune...
Samfélagið og leikskólinn - Sigríður Gunnarsdóttir leikskólastjóri Arakletts á Patreksfirði 19.03.2021 22:24
Í þættinum fáum við innsýn í leikskólastarf á Patreksfirði. Sigríður Gunnarsdóttir leikskólastjóri okkur frá hvernig starfinu í Arakletti og hvernig samfélagið allt tekur þátt í því.
Reynsla karla af leikskólastörfum - Dr. Þórdís Þórðardóttir 03.03.2021 37:51
Í þættinum segir Dr. Þórdís Þórðardóttir, dósent í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, okkur frá nýrri bók sem fjallar um reynslu karla af leikskólastörfum. Bókin heitir Exploring Career Trajectories of Men in the Early Childhood Education and Care Workforce: Why They Leave and Why They Stay. Ritstjórar eru David L. Brody, Kari Emilsen, Tim Rohrmann og Jo Warin. Bókin byggir á n...
Samtal um fagið - nýtt námskeið í leikskólakennaranámi við Menntavísindasvið 15.02.2021 25:19
Í þessum þætti fengum við fjóra kennara frá Menntavísindasviði til okkar, Dr. Kristínu Karlsdóttur, Önnu Katarzynu Wozniczka, Renötu Emilsson Pesková og Dr. Susan Rafik Hama. Þær segja okkur frá nýju námskeiði í leikskólakennaranáminu við sviðið þar sem leikskólakennaranemum með annað móðurmál en íslensku er boðið upp á samtalsvettvang um fagið.
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.