Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: fotbolti.net
Forfatter
Fotbolti.net
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
25. nov. 2026
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
Aukaþáttur - Fótboltafréttir vikunnar og landsliðsval 18.03.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á morgun laugardag þar sem boðið verður upp á pakkfulla dagskrá. Boðið er upp á sérstakan aukaþátt á föstudegi þar sem Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Þá er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara. Landsliðsval fyrir vináttuleiki gegn Finnum og Spánverjum, Lengjubikarinn, Meistaradeildardráttur og enski boltinn ko...
Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir neðri deildir 2022 17.03.2022
Í boði Dominos og Heklu Bílaumboðs halda ótímabærar spár Heimavallarins áfram og nú er komið að því að skoða 2. og Lengjudeild. Knattspyrnuþjálfararnir Margrét Magnúsdóttir og Ruth Þórðardóttir mæta og fara yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
Enski boltinn - Ástríða, Meistaradeild og saxað á City 17.03.2022
Farið var um víðan völl í Enska boltanum þessa vikuna. Farið var yfir síðustu umferð og tengt það við leiki ensku liðanna í Meistaradeildinni. Þeir Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason ræddu málin með Sæbirni Steinke. Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni og átti ekkert skilið í gær, City getur ekki skorað gegn Palace og Liverpool vélin mallar og mallar. Arsenal er líklegast í 4. sæ...
Ungstirnin - Prófessorinn og Thor 16.03.2022
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Alejandro Garnacho (Man Utd) og Arda Guler (Fenerbahce) eru til umfjöllunar í þættinum að þessu sinni. Þá eru tvö viðtöl, við Ólaf Kristjánsson sem tók nýlega við sem yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki og...
Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, Gústi Gylfa og fótboltafréttir 12.03.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. mars. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Gestir: Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis og Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar. Rætt um Bestu deildina og fótboltafréttir vikunnar, bæði h&e...
Fantabrögð - Frekjuköst og forföll 11.03.2022
<p>Strákarnir í Fantabrögðum tóku upp þátt um leið og umferð 28 kláraðist í <a href="https://fantasy.premierleague.com/" target="_blank">Fantasy Premier League</a>. Þeir fóru stuttlega yfir síðustu umferð en einbeittu sér fyrst og fremst að komandi umfer...
Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Bestu deildina 2022 11.03.2022
Það er komið að því! Heimavöllurinn hendir í ótímabæra spá fyrir Bestu deildina 2022. Knattspyrnuþjálfarinn Guðni Þór Einarsson mætir og fer yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
Enski boltinn - Chelsea í fordæmalausri stöðu 10.03.2022
Sérstakur aukaþáttur vegna stórfrétta dagsins af málum Chelsea. Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar. Chelsea hefur notið mikillar velgengni í eignartíð Abramovich en nú eru framundan nýir og breyttir tímar. Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke fara yfir tíðindin og með þeim er stuðningsmaður Chelsea, Ágúst Reynir Þorstein...
Enski boltinn - Stöðnun hjá United og ömurleg líðan gegn West Ham 08.03.2022
Umferðinni í enska boltanum lauk með stórsigri Tottenham gegn Everton. Risaleikur umferðarinnar var á Etihad á sunnudag, City liðið sýndi mikla yfirburði og þá sérstaklega í seinni hálfleik! Þátturinn í dag var smá litaður af því að Blikinn Andri Rafn Yeoman ræddi um sína menn í Brighton og fá hlustendur innsýn inn í hlutina á Amex. Það var Blikaþema því Adam Örn Arnarson var hinn gesturinn. Adam...
Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og boltafréttir 05.03.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 5. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Íslenskar fótboltafréttir vikunnar, ótímabær spá fyrir Lengjudeildina og Ívar Ingimarsson, nýr stjórnarmaður KSÍ, á línunni.
Heimavöllurinn: Ævintýri á framandi slóðum og stóra málið í nefnd 02.03.2022
Viðburðarrík fótboltavika var að líða. Stelpurnar okkar tóku 2. sætið á She Believes Cup og U16 spreytti sig í Miðgarði. Vanda Sigursteinsdóttir var endurkjörin sem formaður KSÍ og ýmisleg mál voru rædd á nýafstöðnu ársþingi. Knattspyrnuspekúlantinn Daði Rafnsson mætti á Heimavöllinn og fór yfir allt það helsta ásamt þáttastýrunum þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
Enski boltinn - 22 vítaspyrnur og Bielsa farinn 28.02.2022
Enski boltinn er gerður upp með tveimur leikmönnum Stjörnunnar. Þeir Eggert Aron Guðmundsson, stuðningsmaður Chelsea, og Ísak Andri Sigurgeirsson, stuðningsmaður Liverpool, fara yfir úrslitaleik Liverpool og Chelsea í enska deildabikarnum. Í tilefni af því að tveir Stjörnumenn voru mættir var einnig talsvert rætt um Stjörnuna. Þá er hringt í Mána Pétursson og farið yfir stjórabreytingu Leeds. Máni...
Útvarpsþátturinn - Ótímabær spá fyrir Bestu og Heimir Guðjóns 26.02.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977, 26. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór opinbera uppfærða spá fyrir Bestu deildina 2022. Það eru nokkrar áhugaverðar breytingar frá síðustu spá! Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals. Í þættinum er einnig rætt um enska boltann og ársþing KSÍ.
Ungstirnin - Nýr meðlimur og verðandi stórstjörnur 25.02.2022
34. þátturinn af Ungstirnunum er mættur. Kristinn Helgi Jónsson er nýjr meðlimur í tveggja manna teymi þáttarins en hann og Arnar Laufdal eru nú umsjónarmenn. Í þessum þætti er Savio sem er að ganga til liðs við Manchester City kynntur. Einnig er fjallað um Gabriel Carvalho nýjasta leikmann Atletico Madrid og svo Brenden Aaronson hjá RB Salzburgs sem mun 100% taka næsta skref í sumar og ganga til...
Fantabrögð - Þreföld ánægja og spilataktík 25.02.2022
<p>Aron og Gunni gerðu upp umferð 26 fyrir leik Arsenal og Wolves. Salah skilaði heldur betur sem þrefaldur fyrirliði hjá þorra þjóðarinnar í Fantasy samfélaginu með þá 84 stig. Burnley vann tvo leiki og hélt hreinu.</p><p>Aðallega ræddu þeir samt hvað á að ger...
Ítalski boltinn - Meistaratitill fæst gefins 25.02.2022
Toppliðin halda áfram að misstíga sig í hnífjafnri toppbaráttu. Mourinho lætur dómara finna fyrir syndum feðranna og er kominn í bann. Bandaríska innrásin heldur áfram og stuðningsmenn Cagliari og Napoli hata hvora aðra af undarlegum ástæðum. Silvio Berlusconi fagnar marki í &Iac...
Besta deildin - En er þetta Besta nafnið? 24.02.2022
Efstu deildir karla og kvenna hafa fengið nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks Toppfótbolta í Bæjarbíói í dag. Í tilefni fundarins er hér aukaþáttur í hlaðvarpsformi af útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um kynningarfundinn, útlitið og nafnið á deildinni og sigurskjöldinn. Þá er rætt við Björn Þór Ingason, markaðsstjóra ÍTF, um þá undirbúningsvinnu...
Lesendur spyrja - Vanda og Sævar í formannsbaráttu 23.02.2022
Á laugardaginn verður ársþing KSÍ haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það verður kosið kosið til formanns en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ákvað að taka slaginn og bjóða sig fram á móti Vöndu Sigurgeirsdóttur. Fótbolti.net gaf lesendum kost á því að senda inn spurningar á Sævar og Vöndu og setti svo saman lista með tólf spurningum. Við þökkum öllum þeim sem sendu inn spurningar og þó einhverj...
Enski boltinn - Tveir af skemmtilegri leikjum vetrarins 22.02.2022
Það var létt yfir mönnum í þætti dagsins. Þeir Ísak Máni Wium og Tómas Steindórsson sátu með Sæbirni Steinke og þá var Ingimar Helgi Finnsson á línunni, reif upp tólið á Tenerife. Ísak er stuðningsmaður Manchester United, Tómas heldur með West Ham og Ingimar er Tottenham-megin í lífinu. Rætt var um leiki umferðarinnar og aðeins spáð í leiki Liverpool, Man Utd og Chelsea í miðri viku. Hversu góður...
Útvarpsþátturinn - Nýir tímar í íslenska boltanum 19.02.2022
Útvarpsþátturinn 19. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í upphafi þáttar er yfirferð yfir Lengjubikarinn og fréttir úr íslenska boltanum. Gestir þáttarins eru Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur þáttarins. Rætt er um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing. Þeir spá jöfnum og spennandi formannskosningum. Í lok...
Heimavöllurinn: Kemur alltaf einhver kona til að hleypa vindlareyknum út 19.02.2022
Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær u...
Ítalski boltinn - Íslenskt vor í lofti og ljótir söngvar í Bergamo 17.02.2022
AC Milan fór á toppinn og miðað við leikjaprógramið framundan fara þeir ekki þaðan í bráð. Nýr Íslendingur var í hóp hjá Venezia og Björn Már skoðar hvaða ungu Íslendingar eru líklegastir til að fá tækifærið í Serie A næ...
Enski boltinn - Tvær umferðir og Meistaradeild 17.02.2022
Það er loksins komið að því, tvær síðustu umferðir í ensku úrvalsdeildinni gerðar upp og leikir vikunnar í Meistaradeildinni. Þeir Arnar Laufdal Arnarsson og Egill Sigfússon ræddu málin með Sæbirni Steinke. Þrír sigrar hjá Liverpool, þrír sigrar hjá Man City en ekki gekk eins vel hjá Man Utd og Tottenham. Þá var hringt í Þórodd Hjaltalín Jr. og hann spurður út í tvöfalda gula spjaldið á Gabriel Ma...
Fantabrögð - Triple captain time 17.02.2022
Aron, Heiðmar og Ásgeir hittust og ræddu umferð 25 í Fantasy sem "réðist" á síðustu sekúndu. Strákarnir skoðuðu risavaxna umferð 26 og ræddu möguleikana sem flestir velta fyrir sér eins og Triple captain á Salah, Bench boost, Free Hit og hvað þetta allt heitir nú....
Útvarpsþátturinn - Íslensk lið styrkja sig og enski boltinn aftur á fulla ferð 12.02.2022
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþætti vikunnar. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og heyrt í Rúnari Kristinssyni þjálfara KR og Hólmari Erni Eyjólfssyni sem er kominn heim úr atvinnumennskunni og samdi við Val. Enski boltinn er einnig til umfjöllunar en Sæbjörn Steinke er nýkominn til landsins eftir rannsóknarleiðangur til Englands þar sem hann skellti sér á þrjá leiki.
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.