Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: fotbolti.net

Forfatter

Fotbolti.net

Kategori

Sports

Podcastens hjemmeside

fotbolti.net

Seneste episode

25. nov. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android 10 mio.+ downloads · 4,7+ i bedømmelse iOS snart

Episoder

Leiðin úr Lengjunni - Njarðvíkingar brjóta blað og Árbæingar að vakna? 02.07.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Grasrótin - 10. umferð, Mosóbrósar jarðtengdir af mögnuðum Magnamönnum 02.07.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 10. umferð í 2. og 3. deild karla, 8. umferð í 4. deild og 7. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 6:05, 3. deild, 35:05, 4. deild, 1:02:20, 5.deild, 1:28:05, Utandeild, 1:36:20.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

EMvarpið - Fylgdarmaður, fallegur bær og fyrsti leikur 01.07.2025

Íslenska kvennalandsliðið hefur á morgun leik á Evrópumótinu er þær spila við Finnland í fyrsta leik. Guðmundur Aðalsteinn er staddur í Thun í Sviss þar sem hann er að fjalla um liðið. Hann settist niður í kvöld með þeim Bjarna Helgasyni og Ágústi Beinteini, betur þekktum sem Gústa B, af Morgunblaðinu. Ræddu þeir um fyrstu dagana í Thun, leikinn á morgun og möguleika Íslands.

Tímabilið nánast hálfnað í neðri deildunum! 30.06.2025

- Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferðar - Fyrsta umferð Fótbolta.net bikarsins - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Innkastið - Mótlæti og mætir ekki í viðtöl 29.06.2025

Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke. KR með nauðsynlegan sigur, Víkingur vann Aftureldingu naumlega, það hallar undan fæti hjá Vestra og ÍBV og Lárus Orri átti óskabyrjun sem þjálfari ÍA.

Útvarpsþátturinn - Besta deildin, TG9 og EM 28.06.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. júní. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars. Besta deildin er í aðalhlutverki og leikir gærdagsins gerðir upp. Lárus Orri Sigurðsson, nýr þjálfari ÍA, er á línunni og Tryggvi Guðmunds skoðar komandi leiki. Lengjudeildin er á sínum stað og Guðmundur Aðalsteinn er í beinni frá Sviss þar sem EM kvenna fer í gang á miðvikudag.

Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland 27.06.2025

Dagný Brynjarsdóttir er ein besta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Á því liggur enginn vafi. Hún er núna á leiðinni á sitt fjórða stórmót eftir að hafa eignast sitt annað barn. Dagný er elsti leikmaður íslenska liðsins og mesti reynsluboltinn en hún hefur spilað 118 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 38 mörk. Dagný settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu og ræddi um feril...

Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi 26.06.2025

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers eru tvær af þeim 23 sem valdar voru í EM-hóp Íslands. Þær eru á leið til Sviss um helgina og mótið hefst í næstu viku. Þær eru jafnaldrar og léku upp alla yngri flokkana saman með FH. Báðar stigu þær sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fimleikafélaginu áður en þær fóru mismunandi leið. Núna eru þær saman í landsliðinu sem er á leið á stórmót; Karól...

Turnar segja sögur: Ísland og Júgóslavía 26.06.2025

Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku og ástríðu sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskan fótbolta. Margir þeirra áttu glæsilegan feril hér á land...

Grasrótin - 9. umferð, línurnar farnar að skýrast í neðri deildum 25.06.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 9. umferð í 2. og 3. deild karla, 7. umferð í 4. deild og 6. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 12:00, 3. deild, 40:20, 4. deild, 1:05:35, 5.deild, 1:23:50, Utandeild, 1:34:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn sóttu langþráðan sigur 24.06.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda 23.06.2025

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Haraldur Örn í Innkastinu eftir 12. umferð Bestu deildarinnar. KR fékk skell gegn Val og stuðningsmenn KR létu óánægju sína í ljós, það voru læti í Kópavogi, Afturelding skoraði og vann á útivelli, Stjarnan á flugi, ekkert virðist geta bjargað ÍA og Gylfi átti góðan leik fyrir norðan.

Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM 23.06.2025

Það eru níu dagar í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í Sviss. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson hita vel upp fyrir Evrópumótið í þætti dagsins af Uppbótartímanum. Hvernig eru andstæðingar Íslands og hverjar eiga vonir okkar og væntingar að vera? Einnig er aðeins talað um Bestu deildina fyrir langa EM-pásu sem er framundan.

Tveggja Turna Tal - Ásmundur Guðni Haraldsson 23.06.2025

Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins. Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo gefandi að starfa með kvennalandsliðinu, liði sem hann hefur unnið með í yfir 100 landsleikjum og fórum...

Þjálfarar sem vita nákvæmlega hvað Ástríðan snýst um! 23.06.2025

Óskar Smári Haraldsson og Kristinn Hjartarsson mættu í settið! - Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferðar - Spurningar frá fans - Fótbolti.net bikarinn tippleikur!

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum 21.06.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við ÍA en Jón Þór Hauksson, sem var látinn taka pokann sinn eftir síðustu umferð, er á línunni í þættinum. Fjallað er um Mjólkurbikarinn, Bestu deildina, Lengjudeildina og ýmislegt fleira.

Turnar Segja Sögur - Kamerún 1990 19.06.2025

Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var það mál útrættMilla hafði þá þegar lagt skóna á hilluna, en ákvörðun forsetans reyndist snilldarleg. Vi...

Uppbótartíminn - EM hópurinn og þrjú lið jöfn á toppnum 18.06.2025

Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag. EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið? Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið e...

Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn 16.06.2025

Innkastið eftir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Sæbjörn Steinke. Jón Þór Hauksson var látinn fara eftir tap ÍA gegn Aftureldingu, Karl Friðleifur átti að fá rautt spjald í sigri Víkings gegn KR, Blikar stukku yfir einnota grill og aðrar hindranir í Eyjum, Vestri vann KA, Vuk heldur áfram á flugi og Valsmenn bregðast enn og aftur þegar þeir fá tækifærið.

Tveggja Turna Tal - Úlfur Ágúst Björnsson 16.06.2025

Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum. Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur. Njótið vel!

Betkastið - Eru öll lið svona jöfn í neðri deildunum? 16.06.2025

Hvað er eiginlega málið með að allir geta unnið alla og eru deildirnar að styrkjast? - Förum yfir allar neðri deildirnar - Nýjustu úrslit og umferðir - Hvað er að frétta í Utandeildinni? - Spurningar frá fans

Leiðin úr Lengjunni: Áhyggjur aukast í Árbænum og ÍR tók Breiðholtsslaginn 15.06.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.

Útvarpsþátturinn - Í návígi við Gulla Jóns og Bestu 14.06.2025

Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B. Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni.

Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn í mikilli brekku og Breiðholtsslagur framundan 12.06.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Fótbolta nördinn - Sigurvegarinn tekst á við þáttastjórnandann 12.06.2025

Fótbolta Nördinn snýr aftur með þessum sérstaka þætti þar sem sigurvegarinn í fyrstu seríu, Ragnar Bragi Sveinsson, tekst á við þáttastjórnandann, undirritaðann Harald Örn Haraldsson. Þá var fenginn að gesta þáttastjórnanda en það er hann Daníel Óli Ólafsson frá geysivinsæla  hlaðvarpinu Trivíaleikarnir.

Lyt til podcasten Fotbolti.net i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.