Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: fotbolti.net
Forfatter
Fotbolti.net
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
25. nov. 2026
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
Sævar Péturs: Vissum að skítkast væri í vændum 23.01.2017
KA sendi frá sér umtalaða yfirlýsingu í síðustu viku um að samningur um samstarf KA og Þórs í knattspyrnu kvenna yrði ekki endurnýjaður. Mikil læti hafa verið fyrir norðan en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, sagði frá hlið félagsins í þessu máli í viðtali við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu.
Innkastið - Myndi Sir Alex nota #Pogba? 15.01.2017
Hljóðvarpsþátturinn Evrópu-Innkastið snýr aftur eftir frí. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu sér sæti eftir að hafa horft á stórleik Manchester United og Liverpool. Farið var yfir leikinn og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum.
Þórir Hákonar um komandi ársþing og formannskjör 15.01.2017
Ársþing KSÍ sem verður haldið í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar verður það fréttnæmasta á seinni árum. Geir Þorsteinsson stígur af stóli formanns og tveir hafa staðfest framboð; það eru Björn Einarsson formaður Víkings og Guðni Bergsson fyrrum landsliðsmaður.
Hitað upp fyrir stórleik Man Utd og Liverpool 14.01.2017
Það er risaslagur í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar Manchester United mætir Liverpool en beðið er eftir leiknum með mikilli eftirvæntingu.
Garðar Jó: Þegar KR kemur þá segir maður ekki nei 14.01.2017
Í gær bárust fréttir af því að framherjinn reyndi, Garðar Jóhannsson, værin genginn í raðir KR. Garðar hætti hjá Fylki eftir síðasta tímabil og gekk til liðs við KFG í 3. deildinni. Hann hefur hins vegar nú gengið í raðir KR.
Enska hringborðið - Annað fjórðungsuppgjör 07.01.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðan gest við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.
Jólakæfan 2016 - Fótboltaárið gert upp 31.12.2016
Jólakæfan 2016 var í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 í dag.
Innkastið - Þeir bestu í enska 2016 20.12.2016
Það er komið að síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2016! Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir liðna umferð í ensku úrvalsdeildinni og litu einnig til Spánar, Þýskalands og Frakklands.
Fótboltafréttir vikunnar með Hödda Magg 17.12.2016
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Hörður Magnússon fóru yfir fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.
Innkastið - Föst skot innan og utan vallar 14.12.2016
Það er sérstaklega mikil gleði þegar leikið er í enska boltanum í miðri viku. Eftir að leikjum kvöldsins lauk fengu Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz sér sæti og tóku upp Innkast vikunnar.
Freysi gerir upp viðburðaríkt ár kvennalandsliðsins 12.12.2016
Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Heimir gerði upp viðburðaríkt ár kvennalandsliðsins 2016 og er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum.
Formannsumræða og Evrópa gegn Suður-Ameríku 11.12.2016
Í spilaranum hér að ofan má heyra brot úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 sem var á dagskrá í gær.
Enska hringborðið - Tottenham þema með Hjamma og Hödda 10.12.2016
Það var mikið stuð við enska hringborðið á X-inu FM 97,7 í dag en þar var Tottenham þema að þessu sinni. Tveir þekktir stuðningsmenn Tottenham mættu í heimsókn, Hörður Ágústsson sem kenndur er við Macland og Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og Snapchat Stjarna.
Ragnar Bragi: Hugurinn í Pepsi-deildinni 10.12.2016
Víkingur R. styrkti sig til muna í gær þegar samningar náðust við Fylki um félagsskipti Ragnars Braga Sveinssonar úr Fylki yfir í Víking. Ragnar skrifaði undir þriggja ára samning við Víkinga, en hann segist hafa metnað til þess að spila á meðal þeirra bestu í Pepsi-deildinni.
Innkastið - Tíðindamikil boltahelgi að baki 05.12.2016
Evrópu-Innkastið er mætt. Fjallað er um liðna fótboltahelgi að vanda þar sem enski boltinn er í algjöru aðalhlutverki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz voru við hljóðnemana og ræddu um leiki helgarinnar.
Gregg Ryder ræðir Newcastle: Klassa ofar en önnur lið 05.12.2016
„Kannski er betra að við séum bara í Championship deildinni og vinnum leiki þar frekar en að tapa í hverri viku í úrvalsdeildinni. Núna veit ég hvernig það er að vera stuðningsmaður Mancheter City eða Chelsea, maður býst við sigri í hverri viku," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, léttur í bragði í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Gregg er uppalinn í Newcastle og hann...
„Gylfi er 25 milljóna punda virði" 05.12.2016
Chris Wathan, blaðamaður hjá Wales Online, segir að Gylfi Þór Sigurðsson nái sínu besta fram hjá Swansea þar sem gífurlega mikil ábyrgð hvílir á honum. Gylfi er potturinn og pannann í sóknarleik Swansea en hann hefur komið að meirihluta marka liðsins á þessu tímabili.
Enska hringborðið - Yfirferð úr útvarpsþættinum 03.12.2016
Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson sátu við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Farið var yfir gang mála og rýnt í baráttuna á toppi og botni.
Hlustaðu á Heimi gera upp ævintýraár Íslands 2016 28.11.2016
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Heimir gerði upp ævintýraár Íslands 2016 og er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum.
Bara álit Dalglish sem skiptir máli í þessu vali 28.11.2016
Liverpool-goðsögnin Steven Gerrard lagði skóna formlega á hilluna í síðustu viku. Rætt var við Kristján Atla Ragnarsson á kop.is í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag.
Aron Sigurðar: Ætla að pakka næsta tímabili saman 22.11.2016
„Eftir fína byrjun á tímabilinu var orðið nokkuð erfitt að vera ekki að spila mikið. Það var mjög gott að ná að enda þetta svona," sagði Aron Sigurðarson, leikmaður Tromsö, í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 síðasta laugardag.
Innkastið - Leikmenn Arsenal leiddir fyrir dóm 21.11.2016
Evrópu-Innkastið snýr aftur úr landsleikjafríi. Fjallað er um liðna fótboltahelgi að vanda þar sem enski boltinn er í algjöru aðalhlutverki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz voru við hljóðnemana en Daníel, sem er stuðningsmaður Arsenal, fékk það verkefni að gefa leikmönnum Arsenal einkunnir fyrir frammistöðu sína það sem af er tímabili.
Innkastið - Kári og Raggi gera upp magnað ár 14.11.2016
Innkastið, hljóðvarpsþáttur Fótbolta.net, er sendur út frá Möltu að þessu sinni en framundan er vináttuleikur þar annað kvöld. Gestir innkastsins eru varnarmennirnir Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson. Í innkastinu fara þeir á skemmtilegan hátt yfir magnað ævintýri landsliðsins á EM, sigurinn á Englendingum, samstarf þeirra í vörninni og þeirra framlag í föstum leikatriðum sóknarlega svo eitthvað s...
Innkastið - Jói Berg í ítarlegu viðtali frá Parma 10.11.2016
Innkastið, hkjóðvarpsþáttur Fótbolta.net, er sendur út frá Parma á Ítalíu að þessu sinni. Þar eru strákarnir okkar í íslenska landsliðinu að búa sig undir komandi stórleik gegn Króatíu sem verður í Zagreb á laugardag.
Innkastið - Leikmenn Man Utd dæmdir 07.11.2016
Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru umsjónarmenn Innkastsins en þeir fóru yfir boltahelgina. Enski boltinn var í brennidepli að vanda.
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.