Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: fotbolti.net
Forfatter
Fotbolti.net
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
25. nov. 2026
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
EM Innkastið - Emmsjé, svekkelsi og Amazing Race 19.07.2017
EM Innkastið að þessu sinni er frá hóteli íslensku fjölmiðlamannana, Hof van Putten. Elvar Geir Magnússon, Arnar Daði Arnarsson og Guðmundur Marinó Ingvarsson fengu sér sæti í hótelgarðinum, létu renna í bjóra og spjölluðu um lífið í Hollandi. Aðalm&a...
Innkastið - Óútreiknanleg Pepsi-deild 18.07.2017
Innkastið er á sínum stað eftir allar umferðir í Pepsi-deild karla. Þeir Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir 11. umferðina í dag en Elvar Geir Magnússon var fjarri góðu gamni þar sem hann er staddur á EM í Hollandi. Í Innkasti dagsins var farið vel yfir 11. umfer&e...
EM Innkastið - Frá Konungsvelli í Tilburg 17.07.2017
EM Innkastið er sent út frá Hollandi meðan Ísland er með á Evrópumótinu. Fyrsti leikur stelpnanna okkar er gegn Frakklandi á morgun og er hitað upp fyrir leikinn í fyrsta þætti. Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson fóru yfir málin ásamt Hauki Harðarsyni, íþróttafréttamanni á RÚV, sem lýsir leiknum. Innkastið var tekið upp á hinum konunglega Willem II leikvangi í Tilburg þar sem leikurinn á...
Ítalski boltinn - Calcio Femminile 17.07.2017
Í tilefni af EM kvenna kemur út þessi sérstaki þáttur af Ítalska boltanum. Í þetta sinn er fjallað um ítalska kvennaknattspyrnu og lið Ítalíu á EM 2017. Er staða kvennaknattspyrnunnar og kvenréttina í landinu skoðuð og að lokum auðvitað farið yfir leikmannah&oac...
Þeir bestu í umferðum 1-11 í Inkasso-deildinni 15.07.2017
Það var veglegt Inkasso-hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Úrvalslið umferða 1-11 var opinberað ásamt besta leikmanninum og besta þjálfaranum. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Davíð Snorri Jónasson sátu við hringborðið.
Innkastið - Gleðiferð til Grindavíkur og óvæntustu úrslit sumarsins 10.07.2017
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru svo spenntir fyrir nýju Innkasti að þeir gátu ekki beðið eftir því að 10. umferðin myndi klárast. Í Innkasti vikunnar er rætt um þá fjóra leiki sem eru að baki í umferðinni. Einnig koma Evrópuleikirnir framundan við sögu.
Eiður Aron: Fínt að prófa að búa í bænum einu sinni 08.07.2017
Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur komið sterkur inn í lið Vals síðan hann kom frá þýska liðinu Holstein Kiel í maí. Hann hefur byrjað undanfarna leiki og spilað virkilega vel. „Þetta hefur verið skemmtilegt. Það er búið að ganga vel og það eru allir sáttir," sagði Eiður Aron þegar heyrt var í honum í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í hádeginu.
Davíð Þór og Beggi um tapið óvænta og Meistaradeildarleikinn 08.07.2017
Leikmenn FH, Bergsveinn Ólafsson og fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson, voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Tómas Þór Þórðarson ræddi við þá um tímabilið, tapið óvænta gegn Víkingi Ólafsví...
Rætt við Jörund Áka um Pepsi-deildina 08.07.2017
Jörundur Áki Sveinsson fótboltaþjálfari ræddi við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson um Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rætt var um óvæntan sigur FH gegn Víkingi Ólafsvík í gær og þá leiki sem framundan eru.
Innkastið - Innflytjendur í íslenskum fótbolta 04.07.2017
Það er sérstök aukaaútgáfa af Innkastinu, hljóðvarpsþætti Fótbolta.net, þessa vikuna. Rætt er um innflytjendur í íslenskum fótbolta. Elvar Geir Magnússon stýrði þættinum en hann ræddi við Þórð Einarsson, yfirþjálfara yngri flokka Leiknis í Breiðholti, og Hjalta Ómarsson, framkvæmdastjóra Retor Fræðslu, en hann hefur verið að starfa með liði Stál-úlfs sem stofnað var af innflytjendum.
Þórir Hákonar ræðir hugmyndir um þjóðarleikvanginn 02.07.2017
Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um hugmyndir varðandi nýjan þjóðarleikvang. Nú styttist óðum í hina nýju Þjóðadeild en hætta er á því að Ísland neyðist til að spila heimaleiki erlendis þar sem leikið er um vetrartímann.
Inkasso-umræða og Eyjó um skoðun sína á sameinuðu Breiðholti 01.07.2017
Inkasso-deildin var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, ræddi gang mála í deildinni. Þá var rætt við leikmann Stjörnunnar, Eyjólf Héðinsson, um umræðu um sameiningu Leiknis og ÍR. Eyjólfur er uppalinn ÍR-ingur og er með sterkar skoðanir á sameiningarmálum í Breiðholti. Hann vill sjá félögin sameina knattspyrnudeildir...
Helstu fótboltamálin rædd með Helga Sig 01.07.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu Helga Sigurðsson, þjálfara Fylkis, í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu. Rætt var um Fylkismenn og allar helstu fótboltamál vikunnar í íslenska boltanum. Meðal annars var rætt um það hvernig Íslandsmeistarar FH hafa verið að spila í sumar, hugsanlega komu Sölva Geirs Ottesen til FH, Evrópuframmistöðu íslensku liðanna, hrikalegan júnímán...
4. deildar Innkastið - Runólfur og Maggi Bö skoða Passion League 30.06.2017
Það er komið að þriðja þætti af 4. deildar Innkastinu en að þessu sinni er Ingólfur Sigurðsson fjarri góðu gamni. Runólfur Trausti og Magnús Valur Böðvarsson, sem hefur verið helsti sérfræðingur um neðstu deild í mörg ár, ræða málin. Að sjálfsögðu er Afríka í brennidepli en liðið hefur verið mikið í fréttunum í vikunni eftir að það neitaði að spila leik gegn KFR vegna þess dómara sem KSÍ setti á l...
Innkastið - Guðni Bergs í ítarlegu viðtali 30.06.2017
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, er gestur í Innkastinu á Fótbolta.net í dag. Guðni var kjörinn formaður KSÍ í febrúar og í Innkastinu ræðir hann fyrstu mánuðina í starfi.
Innkastið - Rifist um framherjamál Vals 27.06.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu um 9. umferð deildarinnar. Einnig ræddu þeir um 8-lið úrslit bikarsins.
Hreiðar Haralds: Andleg nálgun ætti að vera fastur liður í ferlinu 26.06.2017
Íþróttasálfræðiráðgjafinn Hreiðar Haraldsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardaginn. Hreiðar ræddi þar við Elvar Geir Magnússon um andlega þáttinn í fótboltanum og hvort félög á Íslandi hugsi nægilega mikið um hann varðandi leikmenn sína.
EM kvenna hringborð - Íslenski hópurinn og stórmótið framundan 26.06.2017
Þann 14. júlí heldur íslenska kvennalandsliðið til Hollands á Evrópumótið í Hollandi þar sem fyrsti leikurinn verður gegn stórliði Frakklands þann 18. júlí. Arnar Daði Arnarsson, fréttaritari Fótbolta.net og sérfræðingur um kvennaboltann, ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon um mótið framundan og íslenska hópinn sem valinn var á dögunum.
Freysi skoðar leikina í 9. umferð Pepsi-deildarinnar 24.06.2017
Freyr Alexandersson þjálfari kvennalandsliðsins fór yfir leiki 9. umferðar Pepsi-deildar karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Elvar Geir Magnússon ræddi við hann, örstutt um kvennalandsliðið, og svo var komið að því að fara yfir leikina framundan í Pepsi-deildinni.
Innkastið - Stórveldi í djúpri lægð á meðan aðrir koma á óvart 20.06.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Magnús Már Einarsson er í sumarfríi en Elvar Geir Magnússon fékk til sín tvo góða menn til að fara yfir 8. umferðina. Ingólfur Sigurðsson og Daníel Geir Moritz tóku upp hnífinn til að kryfja leikina. Einnig er fjallað aðeins um Inkasso-deildina og brottrekstur Ásmundar Arnarssonar.
Pepsi-hringborðið - Vegleg upphitun fyrir 8. umferðina 17.06.2017
Rætt var ítarlega um komandi umferð í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Farið var yfir alla leikina og ýmsum spurningum velt fram. Getur Fjölnir fallið? Hverjar eru líkurnar á því að Valur verði meistari? Er rétta lausnin að reka Willum? og fleiri spurningar flugu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu um allt það helsta. Einnig var I...
Kristján Guðmunds um ÍBV og Álfukeppnina 17.06.2017
Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, ræddi við Elvar og Tómas í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Rætt var um byrjun ÍBV á mótinu, síðasta leik gegn KR, lífið í Vestmannaeyjum og komandi leik gegn Grindavík. Þá var einnig rætt um Álfukeppnina í fótbolta sem mun lífga upp á boltaumræðuna næstu daga. Kristján er mikill aðdáandi Álfukeppninnar.
Elvar og Tómas ræða um Ronaldo, Færeyjar og landsliðið 17.06.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru mættir aftur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Fyrsti hluti þáttarins fór í að ræða um helstu mál fótboltans. Cristiano Ronaldo vill yfirgefa Spán, sagt er frá Færeyjarferð útvarpsþáttarins og loks rætt um íslenska landsliðið. Opinberað er hvaða leikmenn eru hæstir í einkunnagjöf Íslands í riðlinum.
Viðar: Menn í kringum liðið segja mér að ég eigi að kæra þá 13.06.2017
Viðar Örn Kjartansson endaði sem markakóngur í Ísrael á fyrsta tímabili sínu þar en hann skoraði 24 mörk með Maccabi Tel Aviv. Viðar var gestur í útvarpsþætti Fóbolta.net um helgina þar sem hann ræddi tímabilið í Ísrael.
Innkastið - 65% líkur á sæti á HM 11.06.2017
Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi riðilsins með 1-0 sigri í uppgjöri toppliðanna í kvöld. Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina markið undir lokin eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, og Magnús Már Einarsson settust niður á Laugardalsvelli eftir leik og fóru yfir leikinn. Í þættinum.... Frábær varnarleikur Íslands, öxlin hans Harðar, l...
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.