RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ Epizody: 1167

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategorie

Arts

Web podcastu

www.ruv.is

Nejnovější epizoda

24. lis 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android 10 mil.+ stažení · hodnocení 4,7+ iOS už brzy

Epizody

Eldri konur, Jarðljós/rýni, Nordic Affect og Norðuróp/rýni 26.11.2024

Við lítum í heimsókn til Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, í þætti dagsins. Eva Rún var að gefa út Eldri konur, sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur Eva Rún gefið skáldverkið Óskilamuni og þrjár ljóðabækur. Eldri konur fjallar um konu með þráhyggju fyrir eldri konum. Aðalpersónan rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsáranna gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana....

Helga Lilja Magnúsdóttir fatahönnuður, Þín eru sárin, Reykjavík Dance Festival / rýni 25.11.2024

Við förum út á Granda í þætti dagsins og heimsækjum fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttir. Helga Lilja hlaut hönnunarverðlaun Íslands í byrjun mánaðarins í flokknum vara ársins fyrir ullarpeysuna James Cook. Í umsögn dómnefndar er peysan sögð vera gott dæmi um framúrskarandi íslenska hönnunarvöru sem hafin er yfir síkvika strauma tíðarandans, hugsuð og framleidd fyrir íslenskan veruleika og veður...

Á okkar máli, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, Reykjavík Dance Festival/rýni 21.11.2024

Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum...

Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd 20.11.2024

Hallveig Rúnarsdóttir kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu og vissi snemma að hún myndi syngja mikið alla ævi. Hún ætlaði samt ekki endilega að verða söngkona, langaði frekar að verða leikkona og dreymdi um að komast í Guildhall School of Music and Drama í London sem slík. En söngurinn tók yfir og Hallveig endaði í óperudeild skólans. Hún er oft spurð að því hvort alþjóðlega óperusviðið hafi ekki...

Steinunn Sigurðardóttir um Skálds sögu, Eyrnakonfekt Valdísar Þorkelsdóttur, Ég færi þér fjöll / rýni 19.11.2024

Steinunn Sigurðardóttir ætlaði sér aldrei að verða skáld. Kvenfyrirmyndir voru ekki margar og um tíma var hún spéhrædd við gáfumennin sem gerðu grín að kerlingabókmenntum. En svo tóku skrifin bara yfir og þegar bókunum fjölgaði, fengu viðurkenningu og fóru að ferðast til útlanda þá var hún orðin skáld, hvort sem henni líkaði betur eða verr. Við ræðum við Steinunni um Skálds sögu í þætti dagisns, e...

Börn í Reykjavík, prjónaiðnaður og sellóverk Veronique Vöku 18.11.2024

Við hefjum þátt dagsins á nýju tónverki af plötu sem kom út í síðustu viku, Neige éternelle, five pieces for solo cello, eftir tónskáldið Veronique Vöku, í flutningi Sæunnar Þorsteinsdóttur. Veronique Vaka hefur búið hér á landi frá því að hún útskrifaðist með meistarpróf í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og eru verk hennar innblásin af íslenskri náttúru. Á þessari nýju plötu er að finna fimm v...

Veður fyrir Veðurstofuna, Heimur í orðum, Rúmmálsreikningur/rýni 14.11.2024

Á laugardaginn opnar samsýningin Veður fyrir veður í húsnæði Veðurstofu Íslands og í undirgöngunum þar sunnan við. Sýningarstjórn er í höndum þeirra Söru Riel og Eddu Ýrar Garðarsdóttur en markmið sýningarinnar er, að sögn Söru, að gefa sálarfæði inn í hversdaginn, fyrir starfsfólk Veðurstofunnar. Sýningin samanstendur af úrvali verka íslenskra listamanna, sem eiga það sameiginlegt að hverfast um...

Emiliana Torrini - Svipmynd 13.11.2024

Emilíana Torrini fór snemma að syngja og spinna upp sögur og segist drifin áfram af forvitni um fólk og fínni blæbrigði í lífinu. Hún ólst upp hjá iðnum foreldrum í Kópavoginum en dvaldi stóran hluta af barnæskunni hjá ömmu á Borgarfirði Eystri og frændfólki í Þýskalandi. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu sextán ára en síðan eru þær orðnar átta og verkefnin fjölmörg og fjölbreytt, meðal annars í sa...

Reykjavík Dance Festival /Ólöf Ingólfsdóttir, Birta Ásmundsdóttir, Listdans á Íslandi/Ingibjörg Björnsdóttir 12.11.2024

Reykjavík Dans Festival hefst með pompi og prakt á morgun, miðvikudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin var stofnuð árið 2002 og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum menningarársins. Síðastliðin ár hefur reykjavík dance festival tengt sig við Lókal svo úr hefur orðið ein allsherjar sviðlistahátíð. Við tökum forsmekk á sæluna í þætti dagsins sem verður undirlagður undir...

Strá fyrir straumi, Flothetta og Skálds saga/rýni 11.11.2024

„Ég stend svona eins og strá fyrir straum og segi með Gretti, ber er hvur að baki nema bróður eigi" - Þetta skrifar Sigríður Pálsdóttir bróður sínum, Páli Pálssyni, skrifara á Stapa, árið 1865. Í bréfasafni Páls hafa varðveist um 250 bréf frá Sigríði á yfir 50 ára tímabili og bréfin eru grunnurinn að nýrri ævisögu Sigríðar, Strá fyrir straumi, sem kemur út á morgun. Bókina skrifar sagnfræðingurinn...

Dagur Hjartarson/Sporðdrekar, Pétur Thomsen og Tókýó-Montana hraðlestin/rýni 07.11.2024

Sporðdrekar birtast á ýmsum stöðum í nýútkominni skáldsögu Dags Hjartarssonar með sama titil. Þeir eru eins og lím, endurtekið tema, tákn sem gæti verið tilviljun, eða vitnisburður um eitthvað óumflýjanlegt. Skáldsagan er umfangsmesta verk höfundar til þessa, og að baki útgáfunni er 7 ára meðganga. Ljóðrænn stíll Dags er skammt undan en Sporðdrekar er saga þrungin spennu, pælingum um dauðann og dr...

Rúnar Guðbrandsson / Svipmynd 06.11.2024

Rúnar Guðbrandsson hafði ekki þolinmæði fyrir einsleitninni á Íslandi á kaldastríðsárunum, ákvað strax eftir menntaskóla að fara eins langt og hann kæmist, og endaði á því að fara að mestu gangandi frá Danmörku, til Indlands og upp í Himalya fjöllin. Útrásin og forvitnin fyrir því því sem er handan hornsins, handan götunnar, hafa verið leiðarstef í lífi hans og hann varð snemma spenntur fyrir leik...

Halla Þórðardóttir, Sif Margrét Tulinius og Íslenski dansflokkurinn/rýni 05.11.2024

Við kynnum okkur nýútkomna hljómplötu sem ber titilinn De Lumine, eða varðandi ljósið. Fiðluleikarinn Sif Margrét Tulinius segir titilinn einkennandi fyrir verkin sem hún leikur á plötunni, sem innihalda meira ljós en myrkur þrátt fyrir sterkar andstæður í tónlistinni. Um er að ræða þrjú einleiksverk fyrir fiðlu, eftir jafn mörg íslensk tónskáld, þá Hjálmar H Ragnarsson, Huga Guðmundsson og Viktor...

Poslouchej podcast Víðsjá v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály