RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ Epizody: 1167

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategorie

Arts

Web podcastu

www.ruv.is

Nejnovější epizoda

24. lis 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android 10 mil.+ stažení · hodnocení 4,7+ iOS už brzy

Epizody

Draumaland Kjarvals, dulvísindi í Sorbonne, arkitektúr og kynþættir. 12.06.2025

Við erum með hugann við dagdrauma og dulspeki í þætti dagsins og rifjum upp viðtal Svövu Jakobsdóttur, rithöfundar, við unga íslenska stúlku sem er í þann mund að flytja til Parísar til að hefja nám í dulvísindum við Sorbonne háskóla. Við heyrum líka af dulspekilegum og trúarlegum vísunum og táknmyndum í verkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarval, og hittum fyrir sýningarstjóra Draumalands á Kjarvalsst...

Kári Egilsson, heimspeki um ljós og skugga og Engel Lund 11.06.2025

Þáttur dagsins er flétta heimspekilegra hugmynda, tónlistar og dans. Við heyrum djúphugsaða hugleiðingu úr brunni Freyju Þórsdóttur, sem í dag veltir fyrir sér samspili ljóss og skugga og gildi þess að horfast í augu við myrkrið. Í beinu framhaldi heyrum við brot úr viðtali við Pál Skúlason heitinn, þar sem hann veltir fyrir sér hlutverki heimspekingsins í samfélaginu, en nýverið stóð Háskóli ísla...

Skjaldborg, leiksýningin Skot og Skálds saga 10.06.2025

Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður tveimur nýafstöðnum hátíðum sem marka upphaf sumars; Reykjavík Fringe Festival og Skjaldborgarhátíðinni. Svo mætir í hljóðstofu eitt höfuðskáld bókmenntasenunnar, Steinunn Sigurðardóttir, og rifjar upp tilurð Skálds sögu, í tilefni af viðburði Forlagsins á Fiskislóð á fimmtudag. Leiksýningin Skot, eftir Júlíu Gunnarsdóttur var sýnd í tvígang á Reykjavík Fring...

Búðarkirkja vinsæll áfangastaður og Revolta í Eldborg 05.06.2025

Af einhverjum ástæðum hefur Búðakirkja orðið gríðarvinsæll áfangastaður erlendra ferðamanna undanfarin ár. Kirkjan er ein af mest mynduðu kirkjum á Íslandi og ferðast fólk oft langar leiðir til þess að gefa sig saman í henni. Við kynnum okkur málið nánar í þætti dagsins og skoðum sömuleiðis sögu kirkjunnar en í henni kemur fyrir sterk kvenpersóna, Steinunn Sveinsdóttir, sem fer sínar eigin leiðir...

Svipmynd af Hildi Ásu Henrýsdóttur 04.06.2025

Hildur ólst upp á Þórshöfn á Langanesi, hefur frá útskrift úr Listaháskóla Íslands unnið málverk, skúlptúra og gjörninga en listsköpun hennar gefur einlæga sýn inn í mannlegan reynsluheim. Hún afbyggir aktíft hugmyndir um fullkomnun og rannsakar persónuleg tengsl sem fólk skapar sín á milli, líkamlega og tilfinningalega. Hún hefur sýnt víða, meðal annars í Hafnarborg, Gerðarsafni, Listasafni Akure...

Ný músík með Bogomil Font, Guðrún frá Lundi 138 ára og Lisa O'Neill 03.06.2025

Sigtryggur Baldursson á sér langan og skrautlegan feril en hann er kannski einna helst þekktur sem Bogomil Font, hans auka sjálf í söngnum sem varð til í Júgóslavíu árið 1989. Bogomil Font hefur lítið veri að koma fram upp á síðkastið en nú er hins vegar komin út ný tónlist og stutt tónleikaferðalag í vændum. Sigtryggur leit við í hljóðstofu og ræðir ferilinn og nýja tónlist. Við rifjum einnig upp...

Ný skáldsaga Soffíu Bjarnadóttur og tónleikar með Heather Ragnars 02.06.2025

Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur, ljóð- og leikskáld, heimsækir okkur í dag og segir frá nýútgefnu skáldverki sínu sem nefnist Áður en ég brjálast. Um er að ræða feminískt skáldverk um ástir, ólík breytingarferli og lífsreynslu róttækrar móður sem leitar heim í skáldskapinn þar sem goðsagnaverur vappa um. Við hugum einnig að tónlist því listahátíðin Reykjavík Fringe hóf göngu sína í gær og stendur...

Svipmynd af Götuhorni 28.05.2025

Svipmynd Víðsjár er af bókinni Götuhorni; Skáldtextar innblásnir af íslenskri myndlist, sem var gefin var út af Listasafni Íslands og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Á blaðsíðum birta 15 rithöfundar texta sem þeir skrifa út frá listaverkum í safneign Listasafns Íslands. Textarnir eru í mörgum mismunandi stílum og túlka, prjóna við, líkja eftir og/eða greina listaverkin. Götuhorn er því skemmtilegt...

Tolstoj og Þorvarður Árnason 27.05.2025

Við hugum að rússneska rithöfundinum Leo Tolstoj en bók hans Anna Karenína kom út árið 1878 og hefur svo að segja verið í deiglunni allar götur síðan. Þessi heimsbókmennt verður til umræðu hjá okkur í sjomlahorni dagsins. Rebekka Þráinsdóttir kemur við í hljóðstofu og greinir frá verkinu. Þorvarður Árnason heimsækir þáttinn einnig. Hann er líffræðingur, ljósmyndari, kvikmyndagerðarmaður og umhverf...

Kolkrabbinn, dægurlög, Albertine æfingarnar, skrúfur og tappar 26.05.2025

Kolkrabbinn er ný viðburðaröð Ensemble Adapter í samvinnu við Tjarnarbíó. Á Kolkrabbanum má sjá verk sem dansa á mörkum tónlistar, gjörningalistar, dans og leikhúss, einhverskonar tilrauna-tón-leikhús sem er samt ekki ópera. Kolkrabbinn er með alla anga úti og allt í öllu og annað kvöld verður hann í fyrsta sinn á sviði Tjarnarbíós með verk sem heitir Everything Everywhere. Hörpuleikarinn Gunnhild...

Ásgerðarsafn, ný íslensk stórsveitartónlist og arkitektúrpistill #2 22.05.2025

Ásgerður Búadóttir var frumkvöðull í listvefnaði á Íslandi og telst meðal fremstu myndlistarmanna þjóðarinnar. Í síðustu viku opnaði glænýtt safn tileinkað Ásgerði og ævistarfi hennar á veraldarvefnum, á slóðinni asgerdarsafn.is. Umsjónarmaður safnsins og sonur Ásgerðar, Björn Þrándur Björnsson, segir okkur nánar af safninu og vinnunni að baki í þætti dagsins. Samúel Jón Samúelsson segir okkur lík...

Svipmynd - Barbara Hannigan - þýdd útgáfa 21.05.2025

Barbara Hannigan er margverðlaunuð sópransöngkona og hljómsveitarstjóri, tónlistarkona í framlínu þess áhugaverðasta og vandaðasta sem gerist í klassíska tónlistarheiminum í dag. Hún er þekkt fyrir hugrekki og frumlegheit í efnisvali og sérlega vandaðar tónleikaefnisskrár, þar sem hún blandar saman gömlu og nýju á músíkalskan og áhrifaríkan hátt. Hannigan er án efa meðal hæfileikaríkustu og eftirs...

Svipmynd - Barbara Hannigan - ensk útgáfa 21.05.2025

Jakob Bro, merkingarleit og pissuskálin alræmda 20.05.2025

Danski gítarleikarinn Jakob Bro hefur boðað komu sína til landsins. Hann ásamt saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni og bassaleikaranum Skúla Sverrissyni stefnir á tónleikaferð um landið sem mun hefjast á laugardag. En samferða tónleikahaldi munu þeir stunda lagasmíðar. Við mælum okkur mót við Óskar Guðjónsson í þætti dagsins og ræðum Jakob Bro og ferðalagið. Freyja Þórsdóttir flytur pistil þar sem...

Poslouchej podcast Víðsjá v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály