Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Video rekkinn
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn
Autor
Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Kategorie
Web podcastu
Nejnovější epizoda
6. čvc 2026
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
#63 Misgóðar hugmyndir af bókum, nýjar græjur og lífið bara gott - How to Train Your Dragon (2025) 16.06.2025 56:28
Í þætti vikunnar 📻 ræðum við bókmenntahugmyndirnar sem Raggi er að þróa 📚 og kíkjum á nýja upptökubúnaðinn okkar 🎙️. Við förum líka vel yfir teiknimyndastikklur 🎞️ og höfum ýmislegt um þær að segja 💭. Að lokum segjum við frá bíóferðinni okkar í Laugarásbíó 🍿 á How to Train Your Dragon 🐉 og spjöllum um hvað okkur fannst um myndina og upplifunina í heild 🎬.
#62 Hvítasunnan, hjónaerjur, GTI bílar og fillerí í bíó - Ballerina (2025) 09.06.2025 1:05:26
Í stútfullum þætti vikunnar tökum við púlsinn á kristilegum gildum ✝️, veltum fyrir okkur merkingu Hvítasunnu 🕊️ og rifjum upp hvað nákvæmlega gerðist þá, eða að minnsta kosti gerum heiðarlega tilraun til þess. Við skoðum líka munin á stemningunni í laugardagsbíó vs fimmtudagsbíó 🎬 og minnumst bílamenningar unglingsáranna og alls konar karakterum úr æsku tengdum bílamenningu 🚗😅. En stærstur hlu...
#61 Sjómannadagur, VÆB, börn á háhest og The Phoenician Scheme (2025) 02.06.2025 52:58
Í þætti vikunnar 🎧 ræðum við nýliðinn sjómannadag ⚓, yfirspennta VÆB-bræður 🎤, börn á háhesti 🐎, harða heiminn sem fylgir því að eiga börn í maímánuði 👶🌷 og margt fleira 🤯. Öllu þessu blöndum við saman við umfjöllun okkar um nýjustu mynd Wes Anderson, The Phoenician Scheme 🎬.
#60 Vísindakirkjan, Grímutilnefningar og sólin – Mission: Impossible: Final Reckoning (2025) 26.05.2025 1:14:47
Í dag tökum við sólina ☀️ fyrir enn og aftur — sérstaklega hvernig hún hefur áhrif á fólk og íþróttalíf ⚽️. Við ræðum drykkjuvenjur Íslendinga 🍻, hvort sem það er á menningarviðburðum 🎭 eða íþróttaleikjum 🏟️. Þá köfum við djúpt í Vísindakirkjuna 🛸 (það er eiginlega óhjákvæmilegt), og endum á nýjustu Mission: Impossible myndinni 🎬 Final Reckoning 💥.
#59 Eurovision, sólin og Final Destination: Bloodlines (2025) 18.05.2025 41:02
Í þætti dagsins kemst lítið annað að ☀️ en góða veðrið, Eurovision-pólitík 🇪🇺, klassískt menntaðir söngvarar 🎤 og dauðsföll 💀 — þar á meðal þau í Final Destination: Bloodlines 🔪.
#58 - Veðrið sveik, en bjargaði Kerry deginum? - Shadow Force (2025) 12.05.2025 44:55
Í þætti vikunnar fórum við yfir vorið 🌼, hvað það gefur, ofbeldissambandið sem við eigum við íslenskt veðurfar 🌧️ og margt fleira. Þessu öllu blöndum við saman við umfjöllun okkar um hasarmyndina Shadow Force 💥 með drottningunni Kerry Washington 👑 og franska hjartaknúsaranum Omar Sy 💘.
#57 Kvíði, hnjúkurinn, Endurskoðandinn og Thunderbolts* (2025) 05.05.2025 1:00:17
Í þætti dagsins förum við yfir veikindi 🤒, Bæjaraland 🏘️, prófkvíða 📚😬, kvíða almennt 😵💫 og fjallgöngur sem mögulega valda enn meiri kvíða 🏔️😰. Við minnumst örlítið á The Accountant 2 💼🔫, en eyðum mestu púðri í Thunderbolts ⚡— nýjustu Marvel-myndina sem við vitum lítið um 🤷♂️, en höfum sterkar skoðanir á engu að síður 🎬🔥.
#56 -Sjálfsafgreiðsla og sænsk sambönd - Sinners (2025) 28.04.2025 1:00:35
Í þætti vikunnar ræðum við sænsku leiðina í samböndum 🇸🇪💑, sumargjafir 🎁 og sólarkaffipönnukökur 🥞, sjálfsafgreiðslukassa 🤖 og eitt pirrandi vandamál sem flestir þekkja – að velja bíómynd með fjölskyldunni 🎬👨👩👧👦. Að lokum vefjum við þessu öllu saman í umfjöllun okkar um hina hasarmiklu 💥, blóðugu 🩸 og erótísku 💃 Sinners (2025).
#55 Skonsutertur og kristileg gildi - Drop (2025) 21.04.2025 1:01:54
Í þætti vikunnar ræðum við skonsutertur 🍰, hangikjöt 🍖, kristileg gildi ✝️, annan í páskum 🐣, Melrose Place 📺 — og hvort við myndum… eða myndum ekki 🤔. Þetta allt fléttum við saman við umfjöllun okkar um bíómyndina Drop (2025) 🎬, þar sem glæsilegt fólk 😎 með úthugsaðar hárgreiðslur, 💇♀️ í glæsilegum fötum, 👗👔 leikur stórt hlutverk.
#54 Guð, hárblásarar og Jason Statham - A Working Man (2025) 14.04.2025 57:19
Í þætti dagsins förum við yfir kristileg gildi ✝️, uppruna dymbilviku 🐣, tuðum yfir fólki sem þurrkar á sér kynfærin með hárblásurum í almenningssturtum 💨🚿, vanþakklátu fólki sem skipuleggur ekki hluti 📅🤷♂️ en er samt til í að tuða yfir þeim, eru Rússar verstu vondu kallarnir í myndum? 😤— og þetta allt tengjum við hasarmyndina A Working Man 💥 með sköllótta hjartaknúsaranum Jason Statham 🧔...
#53 The Monkey (2025) 07.04.2025 51:29
Í þættinum í dag ræðum við 🌋 eldgos, stöðuna í heimsmálunum 🌍, af hverju öll sæti eru góð sæti í Laugarásbíó 🎬, og hvort það sé ekki kominn tími til að finna nýtt nafn á „walk of shame“ — sleppum skömminni 😌. Inn á milli troðum við svo Höskuldarlausri umfjöllun 🐵 um hina stórgóðu kvikmynd The Monkey.
#52 Zhang Yimou - 十面埋伏 (House of Flying Daggers) (2004) 31.03.2025 54:55
Í þætti dagsins fjöllum við um tilhneiginguna að öskra á ensku á heyrnalaust fólk 🗣️👂❌, hvað gerir skoðanir frægs fólks merkilegri en annarra 🤔🎤, og hvort tveggja lítra Coke-flaska standi við þau stórkostlegu loforð sem hún gefur 🥤✨. Síðast en ekki síst fjöllum við um sagnfræðihefðina Wuxia ⚔️🐉 og tengjum hana við meistaraverkið House of Flying Daggers 🎬🔥.
#51 Jet Li - Hero (2002) 24.03.2025 52:29
Í nýjasta þætti Video Rekkans förum við yfir það þegar barnastjörnur fullorðnast ⭐️, björtu von Íslands, Svedda Tönn 🌟, tölum óvitsmunalega um sólarganginn 🌞 og einhvers staðar þar á milli ræðum við um kínversku snilldina Hero(2002) 🎥 – stórkostlega mynd sem er svo góð að hér er um að ræða okkar fyrsta spoiler-free umfjöllun, einfaldlega a 🎙️ f því að við viljum að gjörsamlega allir sjái hana!...
#50 Richard Donner - Lethal Weapon 4 (1998) 17.03.2025 59:34
Í þessum þætti förum við yfir Berlínævintýrið 🇩🇪, raðir á flugvöllum ✈️ og nýju vopnaleitina 🔍. Svo veltum við fyrir okkur vitleysingunum sem halda að vorið sé komið í mars 🌦️🫠 og köfum ofan í páskaeggin 🍫 – hversu margar hitaeiningar eru við að tala um? 🔥 Að lokum tökum við fyrir fjórðu og síðustu Lethal Weapon myndina 🎬💥 og spyrjum stóru spurninganna: Af hverju var þetta gert? 🤔 Og hverni...
#49 Joe Pesci - Lethal Weapon 3 (1992) 10.03.2025 1:07:16
Í 🎙️ þætti dagsins rifjum við upp minningar af öskudegi 🎭, hættulega unglinga 😈, kristilegar tengingar sprengidagsins ⛪💥, lönguföstu ✝️ og búningapartí 🎉. Að sjálfsögðu blöndum við þessu saman við umfjöllun okkar um langbestu myndina í Lethal Weapon seríunni – hina stórkostlegu Lethal Weapon 3. 🎬🔥 Húmor 😂, vinátta 🤝, bílaeltingarleikir 🚗💨 og ómótstæðileg tónlist 🎸 gera þessa mynd að al...
#48 Danny Glover - Lethal Weapon 2 (1989) 03.03.2025 58:46
Í þætti dagsins kafar Video Rekkinn ofan í doomsday-preppið ⛺, mikilvægi þess að fagna litlu ljósgjöfunum í myrkri janúars, febrúars og mars 🕯️, og auðvitað bolludaginn 🍩 – þar sem við rýnum í deiluna um vatnsdeigsbollur vs. gerdeigsbollur 🤔. Við förum einnig dýpra í umræðu um heimsfrið ☮️ og tengjum þetta allt saman við framhaldsmyndina Lethal Weapon 2 🎬, þar sem vinátta 🤝, hefndarmorð 🔥 og...
#47 Mel Gibson - Lethal Weapon (1987) 24.02.2025 1:05:21
Í þessum þætti ræðum við 🍕 föstudagspizzur, hvítar sósur, jafning, upphaf Góu, lok Þorra ❄️ og ótal margt fleira. Einhvern veginn blandast þetta fullkomlega við Lethal Weapon frá 1987 – engin bringuhár, áttunda áratugar saxafónar 🎷 og, síðast en ekki síst, vinátta 🤝. Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Video Rekkans! 🎬🔥
#46 Jason Isaacs - The Patriot (2000) 17.02.2025 1:14:56
📺 Í þætti vikunnar ræðum við mátt fyrirgefningarinnar, vopnaburð unglinga, smá meira um flokkunarsmánun og andlega dauðann sem fylgir því að eiga ung börn. 🎬 Samofið öllu þessu kynnum við okkur frelsisstríð Bandaríkjanna eins og það birtist í aldamótamyndinni The Patriot. Hér fléttast sögufalsanir saman við tónlist John Williams 🎻, þarna eru líka ástralskir hjartaknúsarar ❤️🔥 af sitthvorri ky...
#45 Sam Neill - Event Horizon (1997) 10.02.2025 1:09:10
Í þætti dagsins förum við yfir allt frá nágrannadeilum 🏘️ og ruslaflokkun ♻️ til nafnlausra statusa í lokuðum hópum 🕵️♀️. Við veltum líka fyrir okkur hvað Einar er að bralla í borginni 🌆 og hvort nýr meirihluti eða kosningar séu á leiðinni 🗳️. Að auki deilum við sögunum af svaðilför Video Rekka teymisins á Nosferatu 🧛♂️. Að sjálfsögðu blöndum við þessu öllu saman við umfjöllun okkar um cult-...
#44 Dean Cundey - Jurassic Park (1993) 03.02.2025 1:20:46
🎙️ Í þætti vikunnar ræðum við hverfular vinnuvikur ⏳ sem líða alltof hratt, stöðuna á vinnumarkaðnum 💼 og meðalútgjöld fjölskyldu fyrir skíðaferð 🎿 til Salzburg — svo fátt eitt sé nefnt. Um leið tengjum við Big Trouble in Little China ⚡ við nostalgíuverk eins og Jurassic Park 🦕, tæknibrellur 💥, töfra kvikmyndanna 🎥, staðalímyndir 🧓🦖 og að sjálfsögðu, risaeðlur 🦖. Allt þetta og meira í...
#43 Kim Cattrall - Big Trouble in Little China (1986) 27.01.2025 1:07:32
Í þætti vikunnar fjöllum við um matarboð 🍽️, búslóðaflutninga 🚚, hversu stutt er í klikkhausinn 🤯 innra með manni á íþróttamótum barnanna ⚽🎾 og stór vandamál í Litlu Kína 🏮🐉. Já, kæru vinir – synthar 🎹, hasar 💥, töfrar ✨, skrímsli 👹 og margt annað stórskemmtilegt í þessari yfirferð okkar um þessa hasar-, ævintýra-, gaman-, ráðgátu-, drauga- og skrímslamynd! 👻🎬 Hin stórkostlega Big Trou...
#42 Hugh Wilson - Police Academy (1984) 20.01.2025 40:52
Janúarþunglyndið nær hámarki 😞, svo við ræðum depurð 🫤, kvikmyndasýningar 🎥, Bob Dylan 🎸 og hvort orðið gleðikona eða m#lla eigi betur við 🤔. Meðfram þessu förum við yfir hina sígildu Police Academy frá 1984 👮♂️ – nostalgíuna 🕰️, skyldubrjóst áttunda áratugarins 👗 og margt fleira. Allt þetta og meira í þessum þætti af Video Rekknum! 🎬✨
#41 Goldie Hawn - The First Wives Club (1996) 13.01.2025 56:41
Í nýjasta þætti Video Rekkans er fjallað um óvenjulega ástríðu Hildar fyrir þorrablótum 🥩🍻, endalausa janúarþungann ❄️⏳ og hina gleðilegu 90’s gamanmynd First Wives Club 🎥✨. Dívurnar þrjár fá sína umfjöllun fram og til baka, enda ekki mikið annað að gera þegar handritið er hálfgerður klúður 📄🤦♀️ og þorrinn af myndinni hálf leiðinlegur… 😴🎬 Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Video R...
#40 Nancy Meyers - Private Benjamin - 1980 06.01.2025 1:05:53
Í þessum þætti fórum við um víðan völl og ræddum að sjálfsögðu um Judy Benjamin, ofdekruðu prinsessuna hans pabba síns 👑, Henrí, frakkann sem er fullur af sjálfum sér 🇫🇷, vonda eiginmenn 😡 og hártískuna 💇♀️. Auk þess voru jólin gerð upp 🎄, kalkúnadrama á gamlárs rifjað upp 🍗 og farið yfir helstu atriði sem vert er að muna í janúar 🗓️. Allt þetta og meira til í umræðum um áttunda áratugs...
#39 - Áramótabomban - Director's Cut 30.12.2024 1:35:31
Eins og allir þættir sem bera vott af smá sjálfsvirðingu, erum við auðvitað með sérstakan áramótaþátt! Við förum yfir lykilatriði þess að vera gestur í áramótateiti, hvað þarf að hafa í huga við eldun kalkúns, og margt fleira. Þetta er eins og ef Vikan með Gísla Marteini og útvarpsþátturinn Milli Mjalta og Messu ættu saman barn, útkoman yrði cirka þessi þáttur👀 🦃🎉🎇 Endilega hlustið og njótið...
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály