RÚV Hlaðvörp

Skáld og skrælingjar

History IS ↓ Epizody: 10

10 þátta röð fyrir Rás 1 í umsjón Þorgerðar E. Sigurðardóttur og Halldórs Guðmundssonar. Ísland og Kaupmannahöfn í spegli bókmenntanna: Í þáttunum verða þessi aldalöngu tengsl skoðuð frá mörgum sjónarhornum. Kaupmannahöfn var í næstum 500 ár eins konar höfuðborg Íslands, aðsetur stjórnsýslunnar, æðsta dómstólsins og konungsins. Sumir Íslendingar hröktust þangað eða voru fluttir til borgarinnar nauðugir, aðrir leituðu þar frelsis og réttinda sem þeir nutu ekki heima. Hvernig kom borgin þeim fyrir sjónir, hvernig breytti hún viðhorfum þeirra eða umturnaði lífshlaupinu? Óvíða sést þetta betur en...

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: shows.acast.com

Autor

RÚV Hlaðvörp

Kategorie

History

Web podcastu

shows.acast.com

Nejnovější epizoda

8. bře 2025

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

10. þáttur - Bækurnar og borgin 08.03.2025

Hvernig hefur íslenskum samtímabókmenntum vegnað í Kaupmannahöfn? Hefur borgin ennþá þýðingu fyrir nýja höfunda hérlendis og hver er mynd hennar? Rætt við Einar Má Guðmundsson og Annette Lassen. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

9. þáttur - Borgir og bókmenntir 01.03.2025

Hvað gerðist í bókmenntum þegar borgir urðu til? Af hverju geta bókmenntir frá Aþenu hinni fornu virkað eins og samtímabókmenntir á lesendur löngu síðar? Og hvaða hlutverki gegndi Kaupmannahöfn í dönskum og íslenskum bókmenntum? Rætt við Maó Alheimsdóttur og Sölva Björn Sigurðsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

8. þáttur - Hippar, hommar og lesbíur í Höfn 22.02.2025

Á 20. öldinni komu kynferðispólitískir flóttamenn frá Íslandi til Kaupmannahafnar, í borginni var hægt að haga lífi sínu eins og hver og einn kaus. En þangað kom líka fólk sem lét sig dreyma um öðruvísi og frjálsara samfélag. Rætt við Þorvald Kristinsson og Magneu Matthíasdóttur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

7. þáttur - Íslensk skáld í Kaupmannahöfn 15.02.2025

Í byrjun 20. aldar létu margir íslenskir sveitapiltar sig dreyma um að verða skáld og skrifa fyrir heiminn. Og nokkrir þeirra fluttu til Danmerkur og urðu höfundar á dönsku. Sumur öfluðu sér frægðar, aðrir féllu í gleymsku. Rætt við Jón Yngva Jóhannsson og Svein Einarsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

6. þáttur - Þjóðskáldin í Kaupmannahöfn 08.02.2025

19. öldin er öld ljóðlistar í íslenskum bókmenntum. Og mörg bestu ljóðin, þar með talin sum þekktustu ættjarðarljóðin, voru ort í Kaupmannahöfn. Það þurfti fjarlægð borgarinnar til að geta lofsungið landið. Rætt við Guðmund Andra Thorsson og Guðjón Friðriksson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

5. þáttur - Fangar í Kaupmannahöfn 01.02.2025

Á 18. öld er fimmtungur þjóðarinnar á flakki og margur þarf að stela sér til matar. Á sama tíma breyttist refsikerfið í þá átt að í stað lífláts voru sakamenn látnir þræla ævilangt í fangelsum og einhver hörmulegasti kafli í samskiptum Dana og Íslendinga hefst. Rætt við Þórarinn Eldjárn, Hauk Má Helgason og Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information...

4. þáttur - Eyjarskeggjar koma til borgarinnar 27.01.2025

Fyrstu Íslendingarnir sem skrifa ferðasögur eiga allir leið um Kaupmannahöfn. Hvernig varð þeim við að koma frá þessari afskekktu eyju í aldagamla borg? Hvernig mótaði hún sjálfsmynd þeirra? Rætt við Steinunni Ingu Óttarsdóttur og Gunnþórunni Guðmundsdóttur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. þáttur - Danir og hin gullna fortíð 27.01.2025

Hér segir frá því er Danir vildu leita í rætur menningar sinnar í íslenskum fornbókmenntum og konungar gerðu út menn að safna handritum. Hvaða viðhorf lágu þar að baki, hvernig brugðust Íslendingar við og af hverju var handritunum skilað að lokum? Rætt við Sumarliða Ísleifsson og Sigrúnu Davíðsdóttur Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

2. þáttur - Konurnar í Kaupmannahöfn 27.01.2025

Þátturinn fjallar um konur sem fóru til Kaupmannahafnar forðum, til að leita ásjár eða frelsis eða af því þeim nauðugur sá kostur. Vitnað er til ævisagna og heyra má áhrifamiklar örlagasögur sem ekki hafa verið sagðar opinberlega áður. Rætt er við Pálínu Magnúsdóttur og Þórhildi Þorleifsdóttur Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

1. þáttur - Skrælingjar í Kaupmannahöfn 03.01.2025

Hér er einkum sagt frá Íslendingum sem komu til náms í Kaupmannahöfn, einkennilegum siðum sem tíðkuðust í félagsskap þeirra og viðbrögðum, þegar til stóð að halda svokallaða nýlendusýningu í Kaupmannahöfn 1905. Rætt er við Margréti Jónasdóttur og Þórdísi Gísladóttur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Poslouchej podcast Skáld og skrælingjar v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály