Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ Epizody: 731

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: samstodin.simplecast.com

Autor

Samstöðin

Kategorie

News

Nejnovější epizoda

11. lis 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,7+ iOS už brzy

Epizody

Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar 26.10.2026

Mánudagur 26. október Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar Í þessum þætti Manngildis er gesturinn Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður sem hefur meðal annars komið að gerð þáttanna Með okkar augum og 50 ára afmælisþáttar Þroskahjálpar. Magnús vinnur nú að heimildarmynd um íslensku þátttakendur á Special Olympics 2027, undirbúning þeirra, upplifun og fólkið á bak við afrekin. Við...

Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall 25.10.2026

Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sý...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar 24.10.2026

Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég g...

Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43 23.10.2026

Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43 Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins eru Margrét Tryggvadóttir og Guðmundur Andri Thorsson, bæði rithöfundar, Lára Sigurðardóttir læknir og Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.

Rauða borðið 22. okt - Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt 23.10.2026

Fimmtudagur 22. október Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma hafa aukist gegn útlendingum og enn sé alvarleg stigmögnun í rasisma hér á landi. Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor emeritus í París greinir mótmælaölduna í Frakklandi í samtali við Gunnar...

Sjávarútvegsspjall - 94. þáttur: Af Alþingi 22.10.2026

Fimmtudagur 22. október Sjávarútvegsspjall - 94. þáttur Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis og þingmaður Flokks fólksins er gestur Grétars að þessu sinni.

Miðvikudagur 21. október - Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar 21.10.2026

Miðvikudagur 21. október Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og aukið ofbeldi í kynlífi ungra kvenna. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikararnir Jakob Van Oosterhaut, Unnur Ösp Stef...

Græna borðið 21 okt. - Gagnaver 21.10.2026

Græna borðið 21 okt. - Gagnaver Pólitíska forystu og reglur um starfsemi og vöxt orkugleypandi gagnavera skortir á Íslandi. Eftirlit með greininni og lög um hana vantar og gagnaver þurfa ekki einu sinni að fara í umhverfismat, þótt eitt slíkt geti haft víðtækari áhrif á náttúruna og samfélagið en heil stórvirkjun. Andstaða við þau er stórpólitísk í mörgum löndum. Geir Guðmundsson, orkuverkfræðingu...

Þriðjudagur 20. október - Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók 20.10.2026

Þriðjudagur 20. október Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarhe...

Bókaborðið - 6. þáttur: Bókin er töfraafl sem við megum ekki týna 20.10.2026

Þriðjudagur 20. október Bókaborðið - 6. þáttur: Bókin er töfraafl sem við megum ekki týna Páll Valsson útgáfustjóri Bjarts bókaútgáfu og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins hafa starfað að bókaútgáfu frá því á síðustu öld og hvergi næri hætt. Þau ræða við Brynhildi um bókaútgáfu, ritstjórn, gervigreind og bókaást.

Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn 19.10.2026

Mánudagur 19. október Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan dag...

Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar 19.10.2026

Mánudagur 19. október Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar Í fyrsta þætti Manngildis er gesturinn Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Við kynnumst Sóldísi, ræðum starf Átaks og mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun fái sjálft að hafa áhrif á ákvarðanir sem varða líf þess. Hlustar samfélagið á raddir fatlaðs fólks? Hvernig stöndum við okk...

Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka 18.10.2026

Sunnudagurinn 18. október Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni,...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Edda Björgvins 17.10.2026

Laugardagur 17. október Helgi-spjall: Edda Björgvins Edda Björgvinsdóttir segir frá æsku sinni og uppruna, lífinu og leikhúsinu, hlátri og grát.

Föstudagur 16. október Vikuskammtur: Vika 42 16.10.2026

Föstudagur 16. október Vikuskammtur: Vika 42 Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.

Rauða borðið 15. okt - Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla 15.10.2026

Fimmtudagur 15. október Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla Margrét Sanders, Arnar Björnsson og Gunnar Salvarsson voru gestir Sigurjóns að þessu sinni. Þau tala af reynslu og yfirvegun um helstu málefni líðandi stundar. Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smári um spennu milli VR og Eflingar og átökin innan Alþýðusambandsins. Hr...

Miðvikudagur 14. október - Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið 14.10.2026

Miðvikudagur 14. október Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fara yfir stöðuna á Trump með Gunnari Smára, samning hans við Pútín og aðrar tilraunir hans til að bæta stöðu sína fyrir kosningarnar eftir tæpar þrjár vikur. Getur kona í vímu veitt upplýst s...

Græna borðið 14. október - Laxeldi 14.10.2026

Græna borðið 14. október - Laxeldi

Þriðjudagur 13. október - Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur 13.10.2026

Þriðjudagur 13. október Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur Logi Einarsson menningarmálaráðherra, Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarmaður og formaður Samband íslenskra myndlistarmanna og Atli Bollason listamaður og menningarýnir ræða við Gunnar Smára um menningarastefnuna, hver hún er og hver hún ætti að vera. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræðir við Gunnar Smár...

Bókaborðið 13. október - Uppáhalds bókin 13.10.2026

Bókaborðið 13. október - Uppáhalds bókin Vigdís Gríms spjallar við Kristínu Helgu, Sveinbjörgu Bjarna og Hólmfríði Helgu un nokkrar uppáhaldsbækur þeirra. Þær koma með nokkrar bækur með sér og ræða hvers vegna þær völdu þessar en ekki aðrar. Við veltu fyrir okkur mörgum spurningum. Einsog t.d. Hvers vegna verða bækur okkur hjartfólgnar? Hvað er það sem við viljum finna í bókum? Standa uppáhaldsbæk...

Mánudagur 12. október - Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar 12.10.2026

Mánudagur 12. október Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar Þeir Arnaldur Grétarsson starfsmaður Félags hjúkrunarfræðinga, ritstjóri og framleiðandi og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu vilja báðir verða forseti Alþýðusambandsins. Þeir segja Gunnari Smára frá hvers vegna og hvernig ASÍ þeir vilja sjá. Stefán Jónsson leikstjóri, Hlín Agnarsdóttir þýðandi og leikarah...

Synir Egils 11. okt - Kjaramál, efnahagur, hitamál, hlýnun jarðar og kólnun Íslands 11.10.2026

Sunnudagurinn 11. október Synir Egils: Kjaramál, efnahagur, hitamál, hlýnun jarðar og kólnun Íslands Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Brynjar Níelsson borgarfulltrúi, Guðrún Johnsen doktor í hagfræði og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða kjaramál og önnur efnahagsmál og hitamál hér heima og erlendis. Síðan koma þau Andri Snær Magnason rithö...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Berglind Häsler 10.10.2026

Laugardagur 10. október Helgi-spjall: Berglind Häsler Berglind Häsler var gestur okkar í Helgispjallinu að þessu sinni. Berglind hefur víða komið. Hún missti eiginmann sinn, Svavar Pétur Eysteinsson, eða Prins Póló sem var listmannsnafn hans. Það var krabbamein sem tók Svavar. Berglind rekur og stýrir fyrirtækinu Havarí. Það er Sigurjón Magnús sem ræðir við Berglindi.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41 09.10.2026

Föstudagur 9. október Vikuskammtur: Vika 41 Atlaga gegn mennsku og menningu, aftökur í beinni, hroki og hleypidómar í verkalýðshreyfingunni og árshátíðarferð atvinnulífsins til Króatíu eru meðal umræðuefna í fréttaþættinum Vikuskammti. Tengist þetta kannski allt? Gestir eru Gunnar Alexander Ólafsson hjá ÖBÍ, Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, Valgerður Árnadóttir hvalavinur og baráttukona...

Rauða borðið 8. okt - Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn 08.10.2026

Fimmtudagur 8. október Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins, Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara, Jónína Hauksdóttir formaður skólamálaráðs KÍ og Anton Már Gylfason formaður félag stjórnenda í framhaldsskólum útskýra sýn verkalýðshreyfingar kennara á menntastefnuna. Gunnar V. Andrésson, Einar Kárason...

Poslouchej podcast Samstöðin v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály