Útvarp 101
Ólafssynir í Undralandi
Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: www.buzzsprout.com
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Dirty gervigreind 13.04.2025 56:20
Kæru vinir nær og fjær! Við óskum ykkur gleðilegs sunnudags og færum ykkur þennan þátt úr smiðju Undralandsins á silfurfati. Verði ykkur að góðu og njótið dagsins.
Aron svarar spurningum úr Ungfrú Ísland 06.04.2025 59:44
Það var góð orka í Undralandinu í dag þar sem ýmsar umræður áttu sér stað. Aron spreytir sig m.a. á spurningum úr Ungfrú Ísland, en það er vægast sagt ólíklegt að hann muni stíga á svið í síðkjól í bráð. Eigiði dásamlegan sunnudag elsku vinir og munið að vera góð hvort við annað.
Eftirsjár & mýtur 30.03.2025 55:54
Gleðilegan sunnudag gott fólk. Ekki láta eftirsjá vera hluti af þínu lífi. Ekki heldur trúa öllu sem þú heyrir. Fleira var það ekki frá Ólafssonum, nema það sem kemur fram í þættinum.
Velmegun okkar byggir á þrælum fortíðar 23.03.2025 51:48
Já kæru hlustendur, í dag bjóðum við upp á 52 mínútur af heilaleysi, en aftur á móti áhugaverðum umræðum um byggingar, þrælahald og margt fleira. Hafið það náðugt þennan sunnudaginn.
Einræðisherrar: Napóleon (Ásamt Nilla og Gunnari Smára) 16.03.2025 1:34:08
Þeir mættu til okkar tveir helstu sérfræðingar landsins í Napóleon fræðunum, þeir Níels Thibaud og Gunnar Smári. Þeir hafa unnið hörðum höndum að uppsetningu á Níels er Napóleon undanfarið og koma því glóðvolgir í Undralandið. Þessi þáttur er sá fyrsti í röðinni "Einræðisherrar" en við munum koma til með að fá fleira skemmtilegt fólk til að ræða við okkur um helstu einræðisherra mannkyns...
Frægðin verður mörgum að falli 09.03.2025 58:34
Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar. Við Ólafssynir færum ykkur 155.þátt Undralandsins. Í þættinum ræðum við stórleikara, óskarinn, minnisglöp og fleira skemmtilegt. Verið góð hvort við annað.
Draugar, álfar og óendanleiki 02.03.2025 1:02:26
Það var ýmislegt sem kom til umræðu í þætti dagsins eins og titill þáttarins segir til um, en líklega var óvæntasta uppákoma þáttarins sú að það færðist til hljóðnemi í stúdíóinu þegar að talið barst að draugum. Ekki missa af þessum, kæru Undralendingar!
AK special X Egill Ploder 23.02.2025 1:11:00
Þeir Ólafssynir voru á ferð og flugi um helgina ásamt Agli Ploder, góðvini þáttarins.
Við lifum í hermi 16.02.2025 1:01:40
Já kæru hlustendur! Það getur eiginlega ekki annað verið en að við séum bara dýr á tilraunastofu einhversstaðar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það eru allar líkur á því að við munum komast að því í náinni framtíð og þá verður það væntanlega skammtatölvan sem mun leysa það vandamál. Spurningin er hins vegar sú hvað í fjandanum við gerum þegar við áttum okkur á því að við lifum í hermi?
Face your fear 09.02.2025 49:35
Já kæru Undralendingar - mætið óttanum ykkar. Eigið yndislega viku!
Vertu hvatvís! 02.02.2025 1:13:30
Kæru Undralendingar! Í þætti dagsins mæta Ólafssynir með skottið á milli lappanna og útskýra Live-show havaríið. Hvatvísi gæti spilað þar hlutverk en svo fer umræðan á einhvern furðulegan hátt út í völd. Góðar stundir.
Persónulegar nótur 26.01.2025 57:36
Já þeir eru mættir aftur í stúdíóið, ferskari en aldrei fyrr. Þeir fara á persónulegu nóturnar í dag og ræða fæðingarsögu Arnarssonar og ræða svo Donald Trump. Eigið góða viku kæru Undralendingar
Sveppi í Undralandi: Njáluslóðir - Seinni hluti 19.01.2025 1:02:10
Í þessum seinni hluta færist fjör í leikinn.
Sveppi í Undralandi: Njáluslóðir - Fyrri hluti 12.01.2025 1:03:55
Í þessum fyrri hluta Njáluslóða förum við aftur í tímann með Sveppa.
Áramótaheit & Manifestation 05.01.2025 1:00:46
Fyrsti þáttur ársins er ekki af verri endanum. Það er það eina sem þið þurfið að vita. Það er okkar einlæga ósk að þú náir að manifesta velgengni á árinu. Gleðilegt nýtt ár elskurnar!
Saga Garðars í Undralandi 29.12.2024 1:25:25
Gleðilega hátíð kæru hlustendur! Saga Garðars kíkti við í Undralandinu til að taka upp síðasta þátt ársins með okkur. Í þættinum förum við um víðan völl en þó er þema dagsins að sjálfsögðu áramót en Saga hefur sjálf komið að nokkrum áramótaskaupum sem hafa ekki klikkað. Sannkölluð áramótaveisla í Undralandinu. Verið góð við hvort áfram á nýju ári.
Hálfgerð Jóla-nostalgía (ft. Jóhannes Haukur) 22.12.2024 58:49
Já þið lásuð rétt kæru hlustendur. Nú fara jólin að nálgast og að sjálfösgðu hentum við í jóla-nostalgíu eins og fyrri ár. Eins og oft vill þó gerast þá fór umræðan um víðan völl og meðal annars poppaði Jóhannes Haukur upp hjá okkur. Gleðilega hátíð kæru hlustendur og hafið það huggulegt yfir hátíðarnar!
Shrinkflation jól 15.12.2024 1:07:34
Shrinkflation er eitt af verkfærum djöfulsins og Ólafssynir segjum henni stríð á hendur. Annars viljum við óska ykkur kósý jóla og munið að vera góð við hvort annað, alltaf.
Egill Ploder í Undralandi: Kviss skandallinn (The men tell all) 08.12.2024 1:04:14
ATH að þessi þáttur inniheldur upplýsingar um nýjasta Kviss þáttinn á Stöð 2. Egill mætti í Undralandið í sérstakan "The men tell all" þátt þar sem Kviss skandallinn var krufinn til mergjar.
Stjórnmál á mannamáli með óháðum Snorra Mássyni 28.11.2024 1:31:59
Snorri Másson er góðvinur Undralandsins og því fengum við hann til að fara yfir stefnur og strauma í stjórnmálum á mannamáli. Því verður þó ekki leynt að drengurinn er sjálfur í framboði og til að gæta hlutleysis var inngripum beitt ef umræðan varð of fjólublá. Úr varð þáttur sem mun að öllum líkindum gera þig, kæri hlustandi, fróðari fyrir kosningar á laugardag og vonandi samræðuhæfari í næsta ma...
Steindi Jr. í Undralandi: Stjörnuvættir - 3.hluti: Frelsislogi 24.11.2024 1:05:09
Hér fáiði 3.hluta af þriggja hluta seríu þar sem við tökumst á við geimveruinnrás á jörðina ásamt Steinda.
Steindi Jr. í Undralandi: Stjörnuvættir - 2.hluti: Frá glötun til vonar 17.11.2024 1:05:02
Hér fáiði 2.hluta af þriggja hluta seríu þar sem við tökumst á við geimveruinnrás á jörðina ásamt Steinda.
Steindi Jr. í Undralandi: Stjörnuvættir - 1.hluti: Skugginn leggs yfir 10.11.2024 1:05:15
Eftir gríðarlanga bið er þátturinn lentur gott fólk!!! Hér fáiði 1.hluta af þriggja hluta seríu þar sem við tökumst á við geimveruinnrás á jörðina ásamt Steinda.
Alheimur 102 ásamt Stjörnu-Sævari 03.11.2024 1:56:35
Eftir tveggja ára fjarveru snéri Hilmir heim í Undralandið! Löngu tímabær heimsókn frá okkar besta manni og að því tilefni fengum við hann til að skóla okkur til í öllu því rugli sem hefur verið rætt í undanförnum þáttum. Sannir Undralendingar mega ekki missa af þessum þætti!
Bréfin eru græn 27.10.2024 1:01:18
Já bréfin eru græn þessa dagana. Það hefur þó lítið að gera með efni þáttarins, en Aron vildi endilega skíra þáttinn þetta. Eigið yndislegan sunnudag kæru vinir!
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály