Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: mordcastid.libsyn.com
Autor
Unnur Borgþórsdóttir
Kategorie
Web podcastu
Nejnovější epizoda
22. říj 2026
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Orð dagsins er: Mr.Big 25.01.2024 1:00:13
Í þætti dagsins eru systur enn og aftur staddar í Ástralíu. Í þessum þætti segir Bylgja frá sögu yndislegs unglings sem lenti í rigningu og þar af leiðandi í hræðilegum aðstæðum. Og allt endar ömurlega, eins og eiginlega alltaf. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Sjóvá, GoodGood og Stöð 2+. Mál hefst: 07:43
Orð dagsins er: Belial 18.01.2024 1:31:27
Góðan daginn, tvöhundruðasta fimmtudaginn! Mjög margir þættir að baki og að því tilefni er alveg ógnar langur þáttur í dag. Hrikalegt mál með allskonar hörmulegu, en það er þó allavega upplýst. Eða við höldum það allavega. Kannski? Þátturinn er í boði Ristorante, Stöð 2+, Happy Hydrate og Nettó. Mál hefst 7:35.
Orð dagsins er: Glomma 11.01.2024 50:40
Tvær tættar og ein á vitlausu tímabelti hittast og ræða ákaflega kaótískt um allt og ekkert. Svo segir Bylgja frá hvarfi húsmóður í norskri sveit. Þátturinn er í boði Ristorante, Sjóvá, Happy Hydrate, GoodGood, Stöð 2+ og MFitness Mál hefst: 16:36
Orð dagsins er: Bílaþvottastöð 04.01.2024 40:10
Í fyrsta opna þætti ársins segir Unnur okkur frá lítilli stelpu sem langaði bara að labba heim til sín. Þið getið eflaust giskað á hvernig það gekk. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og Nettó. Mál hefst: 04:28.
Orð dagsins er: Olíupeningur 28.12.2023 1:05:50
Sæmilega gleðilegan fimmtudaginn, þann síðasta árið 2023. Unnur segir frá konu sem sagði aldrei satt og hvernig áhrif það hafði á ótal manneskjur í kringum hana. Þátturinn er í boði Ristorante, Swiss Miss, Happy Hydrate, Sjóvá, Nettó, GoodGood, Pringles og Stöð 2+. Mál hefst: 08:00
Orð dagsins er: True Detective 14.12.2023 1:02:00
196. Orð dagsins er: True Detective Unnur segir sögu af því hvernig kona ein gerðist sinn eigin einkaspæjari, en nýtti kraftana til ills en alls ekki góðs. Þátturinn er í boði Stöð 2+, Nettó, Ristorante, Swiss Miss, Sjóvá, GoodGood, Pringles og Happy Hydrate. Mál hefst: 09:02
Orð dagsins er: Fótafúin 16.11.2023 1:26:02
Unnur segir í mjög löngu máli frá mjög skrítnu máli sem gerðist fyrir langa löngu í okkar besta Noregi. Maður tekur ítrekað rangar ákvarðanir og það hefur slæm áhrif á fjölda (gamals) fólks. Þátturinn er í boði Happy Hydrate, Stöð 2+, Ristorante, Sjóvá og Swiss Miss. Mál hefst:
Orð dagsins er: Hundaól 02.11.2023 52:45
Bylgja fer með okkur og ykkur á hræðilegar slóðir í dag þar sem ágætis vinátta (ofan og neðan mittis) endar vægast sagt á ógeðfelldan hátt. Einnig öpdeit af litla, franska Emile og Natalee Holloway. Þátturinn er í boði Ristorante, Sjóvá, Happy Hydrate, Swiss Miss og Stöð 2+. Mál hefst: 17:35.
Orð dagsins er: True Crime 19.10.2023 42:29
Góðan og gleðilegan fimmtudaginn. Þátturinn í dag er þemaþáttur í samstarfi við Stöð 2+ og í honum segir Unnur frá konu sem átti í ákveðnu basli með félagsleg samskipti og og það er spurning hvort hún hafi hlustað of mikið á sakamálahlaðvörp? Þátturinn er í boði Stöð 2+, Happy Hydrate, Ristorante, Swiss Miss og Sjóvá.
Orð dagsins er: Smella 05.10.2023 52:07
Góðan daginn, fimmtudaginn! Ótrúlegt hvernig það er alltaf fimmtudagur, þó það séu bara tveir opnir þættir í mánuði. Allavega. Það er alltaf sama hörmungin hér í þessu hlaðvarpi en í dag þá eru það tveir unglingar sem hljóta alveg hreint ömurleg örlög fyrir nákvæmlega ekki neitt, að við höldum amk. Við vitum samt ótrúlega lítið um þetta mál þó að við vitum mikið, en við getum allavega staðfest að...
Orð dagsins er: Kjallari 21.09.2023 58:31
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Unnur ykkur frá máli (málum?) sem áttu sér stað í Bandaríkjunum þegar enn einn drulludelinn heldur að hann sé flottastur allra. Algjör hörmung og sorgarsaga eins og venjulega. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid Þátturinn er í boði Ristorante, Swiss miss, Sjóvá og Stöð 2+
Orð dagsins er: Djöggl 07.09.2023 47:25
Sigríður Fanney segir frá ungum fjöldamorðingja í dönsku þema í Californiu í sjöunni. Puttaferðalangar, danskt þema og byssur. Þátturinn er í boði Ristorante, Sjóvá og Swiss Miss.
Orð dagsins er: Keliútskot 24.08.2023 48:17
Í Bandaríkjunum gerast náttúrulega stanslaust hræðilegir hlutir en við förum í áttuna í dag og heyrum um ömurleg örlög fjölda fólks á sögulegum stað. Þátturinn er í boði Swiss Miss, Ristorante og Sjóvá.
Orð dagsins er: Storkur 10.08.2023 47:33
Fimmtudagur er það og það þýðir bara að systurnar eru mættar og það er ógeð. Unnur segir okkur frá stúlku sem átti allt betra skilið en foreldrana sem hún endaði hjá. Þátturinn er í boði Sjóvá, Ristorante og Swiss Miss. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Rjómagulur 27.07.2023 49:31
Góðan daginn, FIMMTUDAGINN! Þökk sé Sjóvá, Ristorante og Swiss Miss eru Unnur og Sigríður Fanney mættar til að segja ykkur frá dönskum harmleik. Alltaf jafn ótrúlega ömurlegt en svaka merkilegt samt. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Gaddavír 13.07.2023 1:03:07
GÓÐAN DAGINN FIMMTUDAGINN! Algjörlega, fullkomlega og eingöngu þökk sé Ristorante, Sjóvá og Swiss miss þá erum við komnar aftur með opna þætti, tvo í mánuði fram að áramótum. Við erum þakklátar fyrir tækifærið og vonandi þið líka! Í þætti dagsins hlýtur ung áströlsk kona hræðileg örlög eftir að hafa sakleysislega ætlað að labba heim til sín. Langur og strangur þáttur, innilega hrottalegur og ég vi...
Orð dagsins er: Vitrun 29.12.2022 43:57
Góðan daginn þennan síðasta fimmtudag ársins! Í þætti dagsins, sem er áskriftarþáttur frá því fyrr á árinu, fer Bylgja með okkur í ferðalag til Bandaríkjanna og segir okkur frá máli þar sem að par elskar ekki vampírur og nornir jafn mikið og Bylgja sjálf gerir. Því miður, og það hefur vægast sagt hörmulegar afleiðingar. Vikuþættir Morðcastsins eru núna komnir í pásu en áskriftin okkar verður enn í...
182. Orð dagsins er: Bakpoki 22.12.2022 38:08
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins er spólað til baka í tíma í sögu Morðcastsins af því að í dag er þáttur dagsins eldri þáttur úr áskrift. Vikuþættirnir eru nefnilega að fara í smá pásu á meðan að áskriftin heldur ótrauð áfram þannig við vildum gefa ykkur smjörþefinn af áskriftinni okkar, sem er æðisleg þó við segjum sjálfar frá, og þar verður miklu meira en nóg um að vera næstu mánuðina...
181. Orð dagsins er: Kúkur 15.12.2022 48:30
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Tókýó þar sem hún segir frá vægast sagt hræðilegu en áhugaverðu máli þar sem hræðilegir hlutir gerast og það eina með lífsmarki í heilu húsi er einn kúkur sem flýtur um í klósettinu. Sko stórskrítið frá upphafi til enda. Í boði Ristorante, Orville, Nettó og Bjarts og Veraldar. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/...
180. Orð dagsins er: Vatnslás 08.12.2022 58:35
Góðan daginn, fimmtudaginn. Aftur fer Unnur með okkur til Svíþjóðar í kjölfar þess að ungur einstaklingur finnst látinn í baði. Mjög áhugavert mál með mörgum vinklum, en mjög hræðilegt og ógeðslegt vissulega líka. Í boði Nettó, Bjarts og Veraldar, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
179. Orð dagsins er: Bakpokaferðalag 01.12.2022 39:46
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag fer Bylgja með okkur alla leiðina frá Bæjaralandi til Ástralíu og segir okkur frá mjög skrítnu máli ungs fólks sem einfaldlega lagði af stað í lauflétt bakpokaferðalag. Allt við þetta er auðvitað ömurlegt, og eins og venjulega þá er endirinn ekki frábær þó þetta sé allt (því miður) mjög áhugavert. Þáttur dagsins er í boði Samkaupa, Bjarts og Veraldar, Ristorante o...
178. Orð dagsins er: Íslendingasögur 24.11.2022 58:16
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag fer Unnur með okkur í ferðalag til Noregs þar sem enn á ný einhver tekur þá skelfilegu ákvörðun að sveifla öxi, ekki í tré. Svakalega margar axir uppá síðkastið, því miður, en áhugavert er það nú alltaf. Í boði Prentsmiðs, Bjarts og Veraldar, Nettó, Ristorante, Orville og 1104byMar. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
177. Orð dagsins er: Sterasturlun 17.11.2022 37:55
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún kynnir okkur fyrir glímumanni sem sennilega fékk of mörg högg á hausinn. Alveg ótrúlega sorglegt mál en á sama tíma alveg svakalega áhugavert. Í boði Nettó, Bjarts og Veraldar, Ristorante, Orville og Prentsmiðs. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
176. Orð dagsins er: Ungabarn 10.11.2022 49:00
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til til Brooklyn í New York hvar ungum hjónum fæðist nýr fjölskyldumeðlimur. 3 dögum síðar á sér síðan stað eitthvað sem verður að teljast óútskýranlegur atburður, eða svona. Í boði Prentsmiðs, Bjarts og Veraldar, 1104byMar, Nettó, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
175. Orð dagsins er: Kenny 03.11.2022 43:08
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja okkur til Svíþjóðar og segir þar frá hrikalega sorglegu máli hvar NPA starfsmaður var myrtur. Málið er hræðilegt, sænskan ekki frábær en áhugavert er hvoru tveggja. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Orville, Prentsmiðs, Ekils ökuskóla og Nettó. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály