Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: mordcastid.libsyn.com
Autor
Unnur Borgþórsdóttir
Kategorie
Web podcastu
Nejnovější epizoda
22. říj 2026
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
125. Orð dagsins er: Harlem 11.11.2021 51:29
Góðan daginn, fimmtudaginn! Venju samkvæmt þá gerast hræðilegir hlutir fyrir allskonar fólk í þætti dagsins. Bylgja segir frá máli sem gerist í Harlem um 1980, þar sem börn hverfa úr almenningsgarði. Unnur aftur á móti segir frá dreng sem elskar leiðbeiningar en hatar flest allt annað og gekk af þeim ástæðunum berseksgang í heimapartýi. Í boði Ristorante, 1104bymar.is, Stöð 2 plús og Artasan.
124. Orð dagsins er: Vitni 04.11.2021 35:57
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins er bara eitt mál, en það er þeim mun áhugaverðara. Stuttur en góður eins og maður segir. Hversu áreiðanleg eru vitni? Hvað getur haft áhrif á vitni? Hversu mikið treystiru því sem þú telur þig hafa séð? Já, margar pælingar í þætti dagsins þegar Unnur tekur fyrir mál Jennifer Thompson og hennar vitnisburð. Í boði Stöð 2 plús, Ristorante og Artasan.
123. Orð dagsins er: Ummerki 2 28.10.2021 54:05
Góðan daginn, fimmtudaginn! Haldiði ekki bara að það sé kominn einn þáttur í viðbót! Alltaf jafn merkilegt. Þáttur dagsins er þemaþáttur, þ.e.a.s. við skoðum aftur íslensk mál sem tekin eru fyrir í þáttunum Ummerki. Bylgja segir frá máli þar sem kona virðist mögulega kannski, líklegast, hafa myrt manninn sinn en Unnur hinsvegar tekur fyrir almenna umfjöllun á bankaránum á Íslandi. Enginn myrtur h...
122. Orð dagsins er: Snyrtivörur 21.10.2021 1:01:13
Góðan daginn fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Bylgja frá máli sem gerist í Bandaríkjunum og hefur að geyma margfalt fleiri spurningar en svör, mjög sorglegt og mjög hræðilegt. Unnur aftur á móti segir frá konu sem fæddist 1620 og helgaði líf sitt því að eitra fyrir karlmönnum. Í boði Artasan, Stöð 2+ og Ristorante.
121. Orð dagsins er: Jólaskraut 14.10.2021 52:07
Júhú. Nýr þáttur í dag, og ég er ekki frá því að hann sé enn sá hræðilegasti hingað til. Mörg börn deyja, einn lifir af. Allt í allt bara mjög sorglegt en á sama tíma áhugavert. Í boði Artasan, Stöð 2 plús og Ristorante
120. Orð dagsins er: Gírkassi 07.10.2021 59:08
Í dag eru akkúrat 12 fimmtudagar fram að jólum. Hvað sem því líður þá er nýr þáttur í dag, tvö mál og mikið um að vera. Bylgja segir frá máli sem er óupplýst þar sem stelpa hverfur úr símaklefa. Líklega amk. Unnur hinsvegar segir frá máli þar sem fjölskylda hverfur í Californiu, en þau finnast reyndar. Í boði Stöð 2 plús, Ristorante og Artasan.
119. Orð dagsins er: Öfund 30.09.2021 47:17
Jújú, þið þekkið þetta. Það er kominn fimmtudagur. Í þætti dagsins tekur Unnur fyrir mál sem gerist árið 1984 þar sem afbrýðissemi og samanburður gengur alltof of langt. Svo gerist reyndar lítið meira, Unnur fær munnræpu og Bylgja hlustar. Í boði Ömmu mús, Ristorante og Artasan. www.pardus.is/mordcastid
118. Orð dagsins er: Swastika 23.09.2021 1:16:09
Júllijúhú! Í þætti dagsins segir Bylgja frá hræðilegri fjölskyldu sem gerir hræðilega hluti og skammast sín ekki neitt. Ógeðslegt og ömurlegt í alla staði. Unnur segir frá pari sem hefði betur ekki gengið jafn langt og þau gerðu til þess að uppfylla adrenalínþránna. Í boði Artasan ehf., Ömmu mús og Ristorante. www.mordcastid.is
117. Orð dagsins er: Gaming 16.09.2021 1:27:19
Góðan daginn fimmtudaginn! Þáttur dagsins í dag er þemaþáttur, hvorki meira né minna en tölvuleikja þema. Gaming! Unnur segir frá allskonar tengingum við tölvuleiki áður en hún segir svo frá ungum strák sem framkvæmir hræðilegan hlut á heimili sínu. Bylgja segir svosem frá svipuðu máli, þó reyndar ekki því sama. Margir fjölskyldumeðlimir sem hljóta sorglegan endi hér í dag. Í boði Elko, Artasan, Ö...
116. Orð dagsins er: Hundur 09.09.2021 57:56
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Þáttur dagsins er alls ekki á jákvæðari nótum en einhver annar, því miður, illa farið með alltof margar manneskjur. Bylgja er staðsett í Bandaríkjunum að venju, þar er hundakona sem hlýtur hræðileg örlög og málið vekur margar spurningar sem við fáum því miður ekki svarað. Já hún er með óupplýst. Unnur hinsvegar segir frá máli sem tengist málinu hennar í L...
115. Orð dagsins er: Presley 02.09.2021 1:25:01
Góðan daginn fimmtudaginn! Það eru tvö mál í þætti dagsins og alltof mikill viðbjóður. Bylgja segir frá ungum systrum í Bandaríkjunum sem elska Elvis Presley á meðan Unnur segir frá konu (og hundi) sem lifir hamingjusöm til æviloka. Djók, því miður. Í boði Artasan ehf, Ömmu mús og Ristorante. Ps. Ef þið viljið hlusta á fleiri þætti þá mælum við með því að kíkja inná Pardus.is
114. Orð dagsins er: Eista 26.08.2021 46:06
Það er bara komið haust. Rútínan og endalausir fimmtudagar. Systur eru í bæði Evrópu og Norður-Ameríku í dag og segja hlustendum frá villuráfandi eista, ógeðslegu fólki og barnapíum sem áttu mun betra skilið en þær uppskáru. Þið getið fundið óklipptu útgáfu af þessum þætti auk fjölda annarra inná Pardus.is. Þátturinn er í boði Ristorante.
113. Orð dagsins er: Skemmtiferðaskip 19.08.2021 1:01:57
Skemmtiferðaskip, what a concept. Her líka, hvað er málið með her? Þáttur dagsins býður uppá tvö mál, í rauninni talsvert fleiri reyndar, en amk mjög mikið af ömurð. Annað málið gerist á skemmtiferðaskipi sem endaði sem ekkert sérstaklega skemmtilegt skip og hitt segir frá ungu pari í Bandaríkjunum sem hefðu ekki endilega átt að vera kærustupar. Þið getið fundið óklipptu útgáfu af þessum þætti auk...
112. Orð dagsins er: Karate 12.08.2021 59:32
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Það eru hvorki meira né minna en tvö mál tekin fyrir í þætti dagsins og gerast þau bæði í Bandaríkjunum. Það er margt sem gerist en helst er það kannski það að því miður verða alltof mörg börn fyrir ógeðslegu ofbeldi og við erum enn og aftur minnt á að vera frekar bara góð við hvort annað. Í boði 1104bymar.is og Ristorante
111. Orð dagsins er: Talnakóði 05.08.2021 1:04:21
Það eru bara 22 fimmtudagar eftir af árinu, sem þýðir að það eru bara 22 Morðcastsþættir eftir á árinu. Það hlýtur nú svosem að vera feikinóg. Allavega, í þætti dagsins fáum við systur munnræpu í mjög langan tíma áður en Unnur segir frá ömurlegu máli sem gerist í Orlando. Mjög ömurlegt. Svakalega væri gott ef fólk væri ekki ömurlegt. Jæja, gleðilegan fimmtudag! Í boði Ristorante og 1104bymar.is
110. Orð dagsins er: Útgöngubann 29.07.2021 29:56
Jú góðan daginn fimmtudaginn. Viðeigandi í þessari þrítugustu bylgju af Covid taki Bylgja fyrir mál sem er mjög tengt covid og samkomutakmörkunum? Það hefði ég haldið, alla leiðina frá Bretlandi til Íslands. Í boði 1104bymar.is og Ristorante.
109. Orð dagsins er: Boy 22.07.2021 41:33
Þrjúþúsundasti fimmtudagur ársins, merkilegt. Unnur segir frá áhugaverðu máli sem gerist í Bandaríkjunum, það er heimspeki, ástarþríhyrningur og í rauninni allt sem maður býst ekki við. Samt svo fyrirsjáanlegt eitthvað. Æj þið vitið hvernig þetta er. Í boði 1104bymar.is, Geosilica og Ristorante.
108. Orð dagsins er: Bókasafn 15.07.2021 45:45
Það er fimmtudagur og við erum stödd á bókasafni. Fleira er svosem ekki um það að segja. Í boði 1104bymar.is, Ristorante og Geosilica.
107. Orð dagsins er: Endurvinnslutunna 08.07.2021 44:30
Það er einhvernvegin alltaf fimmtudagur, og það er einhvernvegin alltaf munnræpa. Það er bara eitt mál í dag, en Unnur segir frá hræðilegum atburði sem átti sér stað í Bandaríkjunum þegar unglingur missti tökin. Svona vægt til orða tekið. Ekki gleyma öllum áskriftarmálunum sem er hægt að finna inná Pardus.is! Í boði Ristorante og Geosilica.
106. Orð dagsins er: Skrímsli 01.07.2021 59:16
Annar dagur, fleiri skrímsli. Jú kæru hlustendur, það er fimmtudagur og það eru hrottaleg mál. Í þætti dagsins fer Bylgja yfir mál þar sem faðir drengs gengur berseksgang í kjölfar fótboltaleiks, svona vægt til orða tekið. Unnur hinsvegar tekur fyrir mál þar sem ungur maður misnotar aðstöðu sína í gegnum Craigslist. Allt ömurlegt. Í boði Geosilica og Ristorante.
Orð dagsins er: Uppstoppun 24.06.2021 51:54
Góðan daginn fimmtudaginn! Það er sama blaðrið í dag eins og aðra fimmtudaga nema í þessum þætti blöðrum við okkur bara í gegnum eitt mál, ekki tvö. Ekkert að því, málið er mjög merkilegt og mikið að ræða. Bylgja segir semsagt frá máli þar sem augu spila stórt hlutverk, meira þarf ekki að segja um það. Í boði Arion banka, Geosilica og Ristorante.
104. Orð dagsins er: Silfurskeið 17.06.2021 46:15
Hæ hó og jibbí jei! Gleðilegan þjóðhátíðardag og alls ekki síður, gleðilegan morðdag. Í þætti dagsins segir Bylgja frá ömurlegu máli sem gerist í Bandaríkjunum og Unnur líka. Svosem ekkert nýtt undir sólinni þar, en málin eru bæði mjög sorgleg. Í boði Arion banka, Ristorante og Geosilica.
103. Orð dagsins er: Túnfiskur 09.06.2021 37:35
Júhú! Það er einn helvítis fimmtudagurinn enn og við stöndum að sjálfsögðu vaktina. Í þætti dagsins segir Bylgja frá máli Brian Shaffer sem, jah, æj þið verðið eiginlega bara að hlusta. Mjög skrítið alltsaman. Í boði Arion banka, Ristorante og Geosilica. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
102. Orð dagsins er: Pontiac 03.06.2021 44:46
Júní er það. Afmælismánuður Unnar Örnu, sem þýðir vissulega að konan verður óvinnufær þar til júlí rennur upp. Í þætti dagsins fær Unnur alla munnræpuna og segir frá ungri stúlku í Bandaríkjunum sem hverfur eins og dögg fyrir sólu. Sumt fólk á í alvörunni ekki neitt gott skilið! Í boði Geosilica, Arionbanka og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
101. Orð dagsins er: Bröns 27.05.2021 54:18
Alveg er þetta að verða ótrúlegt með hvernig það er alltaf fimmtudagur. Allavega. Í þætti dagsins þá segir Unnur frá mjög klókum unglingi sem tekur vægast sagt slæmar ákvarðanir á lífsleiðinni. Aðallega eina slæma ákvörðun reyndar. Bylgja segir frá konu sem reyndar tók líka fullt af slæmum ákvörðunum. Æji þetta var allt mjög hræðilegt. Í boði Geosilica, Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram....
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály