RÚV Hlaðvörp

Krakkaheimskviður

Kids IS ↓ Epizody: 96

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir Ritstjórn: Birta Björnsdóttir, Karitas M. Bjarkadóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: shows.acast.com

Autor

RÚV Hlaðvörp

Kategorie

Kids

Web podcastu

shows.acast.com

Nejnovější epizoda

17. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Sögulegar kosningar í Ungverjalandi 25.04.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Ungverjalands og kynnum okkar nýafstaðnar og sögulegar þingkosningar þar. Hverjir eru Viktor Orbán og Péter Magyar? Hvernig tengist Evrópusambandið kosningunum? Fréttamaðurinn Björn Malmquist veit allt um málið og er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Artemis II og menn á tunglinu 18.04.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða beinum við sjónum okkar að Artemis II, leiðangrinum sem farinn var á tunglið fyrr í mánuðinum. Sævar Helgi Bragason er gestur þáttarins og veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kosningar í Danmörku og Færeyjum 11.04.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur þingkosningar sem nýlega fóru fram í Danmörku og Færeyjum. Stjórnmálafræðingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir býr í Danmörku og fylgdist vel með kosningunum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni? 28.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar svefnvana Karitas hvers vegna klukkunum er breytt tvisvar á ári víðsvegar um heiminn - og hvers vegna það er ekki gert á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er að gerast í Íran? 21.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Apinn Punch og metár hjá LEGO 14.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um ofurkrúttið Punch, lítinn apa unga sem vann hug og hjörtu fólks um allan heim fyrr í mánuðinum. Í seinni hluta þáttarins skoðar Karitas sögu LEGO og metárið þeirra 2025. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

150 ár frá fyrsta símtalinu 07.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Allt um ramadan 28.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Pöndupólitík 21.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas pöndupólitík, eða pöndudiplómasíu og sögu risapöndunnar. Útvarpskonan Vera Illugadóttir og doktorsneminn Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir eru gestir þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bad Bunny og Ofurskálin 14.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas Ofurskálina sem fór fram síðustu helgi, tónlistaratriði Púertó Ríkó-mannsins Bad Bunny og hvernig það tengist stjórnmálum í Bandaríkjunum. Fréttamaðurinn Ingunn Lára Kristjánsdóttir er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vetrarólympíuleikarnar 07.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Vetrarólympíuleikana sem hófust á föstudaginn. Karitas rekur sögu leikanna og ræðir um keppnisgreinarnar við íþróttafréttamanninn Gunnar Birgisson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

EM og saga handboltans 31.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas þjóðaríþróttina handbolta. Hvaðan kemur hún og hvers vegna er handbolti svona vinsæll á Íslandi? Íþróttafréttamaðurinn Helga Margrét Höskuldsdóttir er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Saga Grænlands og vilji Grænlendinga 24.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða einbeitir Karitas sér að Grænlandi. Hver er saga landsins, hvers vegna eru allir að tala um það og hvað vill Trump eiginlega? Fréttamaðurinn Hallgrímur Indriðason veit ýmislegt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er að gerast í Venesúela? 17.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Venesúela, hvað gerðist þar í byrjun árs og hvers vegna. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er í vændum á nýju ári? 10.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða veltir Karitas því fyrir sér hvað verður í fréttum árið 2026. Fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir er gestur þáttarins og spáir í spilin. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Jólaverur frá ýmsum löndum 20.12.2025

Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir jól skoðar Karitas jólaverur frá ýmsum löndum með aðstoð Ingibjargar Fríðu Helgadóttir, umsjónarmanns Þjóðsögukistunnar á Rás 1. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Jane Austen 250 ára 13.12.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas breska rithöfundinn Jane Austen, hvað var svona merkilegt við hana og hvers vegna bækurnar hennar hafa aldrei verið vinsælli en nú, 250 árum eftir að hún fæddist. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Samfélagsmiðlabann í Ástralíu 06.12.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við yfirvofandi samfélagsmiðlabann fyrir börn yngri en 16 ára í Ástralíu. Þau Þóra Jónsdóttir og Haukur Brynjarsson frá NETVÍS eru gestir þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Saga Kóreu og K-pop 29.11.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Austur-Asíu og kynnum okkur sögu Norður- og Suður-Kóreu. Karitas skoðar svo Kóreupop með dyggri aðstoð K-pop aðdáandans Rögnu Fríðu Sævarsdóttur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Norðurljós í Mexíkó 22.11.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við norðurljós. Hvað eru þau eiginlega og hvað voru þau að gera í Mexíkó um daginn? Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og svarar spurningum Karitasar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hneyksli í BBC og allt um falsfréttir 15.11.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjallar Karitas um atburðina sem urðu til þess að fréttastjóri og útvarpsstjóri breska ríkisútvarpsins sögðu af sér í byrjun mánaðar. Hneykslið hefur komið af stað mikill umræðu um falsfréttir, sem fjölmiðlafræðingurinn Skúli Bragi Geirdal veit allt um. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Airbnb-bann í Barselóna og áhrif massatúrisma 08.11.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst til Feneyja og Barselóna. Þar hafa heimamenn harðlega mótmælt ágangi ferðamanna og stjórnvöld reyna að finna lausnir. Hvað er Airbnb-bann og hvaða áhrif hefur massatúrisma? Fréttamaðurinn Ólöf Ragnarsdóttir er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ránið á Louvre 01.11.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjallar Karitas um ránið á Louvre, þar sem fjórum þjófum tókst að hafa á brott ómetanlegum krúnudjásnum. Vera Illugadóttir er gestur þáttarins og rifjar upp fyrri rán á þessu frægasta safni Frakklands. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hrekkjavaka og saga graskersins 25.10.2025

Í þessum þætti Kakkaheimskviða fjallar Karitas um hrekkjavökuna sem er á næsta leiti. Þjóðfræðungirnn Dagrún Ósk Jónsdóttir segir okkur frá uppruna graskersins og hrekkjavökunnar á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vopnahlé á Gaza 18.10.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjallar Karitas um stöðuna á Gaza, vopnahlé og friðarviðræður. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson er gestur þáttarins og útskýrir atburði síðustu vikna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Poslouchej podcast Krakkaheimskviður v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály