Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins
Í þættinum er að finna ýmist efni, bæði fræðandi og skemmtilegt. Við tökum viðtöl við blint og sjónskert fólk og aðra sem standa okkur nærri, fjöllum um tækninýjungar og samfélagsþróun sem varðar blinda og sjónskerta og margt fleira. Þátturinn kemur að jafnaði út mánaðarlega og hann má nálgast á öllum helstu stöðum þar sem hlaðvörp er að finna og er hann einnig aðgengilegur í vefvarpi Blindrafélagsins og á heimasíðu þess, blind.is.
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: www.blind.is
Autor
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Kategorie
Web podcastu
Nejnovější epizoda
25. zář 2026
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Þáttur 39 26.01.2024 1:14:18
Þessi þáttur er helgaður minningu Rósu Guðmundsdóttur, stofnfélaga og fyrrum formanns Blindrafélagsins. Rósa er önnur tveggja kvenna sem gegnt hafa því embætti. Sérstakur gestur þáttarins er Gísli Helgason sem ræðir við Eyþór og Hlyn um ævi og störf Rósu auk þess sem við heyrum gömul viðtöl við hana. Sérstakar þakkir fær einnig Helga Magnúsdóttir, systurdóttir Rósu, fyrir veittar upplýsingar við g...
Þáttur 38 22.12.2023 56:32
Í þessum þætti ræður jólaandinn ríkjum. Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins, les jólakveðju. Már Gunnarsson hefur grafið upp jólalög sem ýmist hafa verið samin eða flutt af félagsmönnum í Blindrafélagsins. Eyþór kynnir kappaksturstölvuleik sem hann hefur verið að spila undanfarið og við heyrum dæmi. Að lokum spurðum við fólk í þremur mismunandi löndum hvað jólin væru fyrir þeim og he...
Þáttur 37 24.11.2023 1:01:29
Í þessum þætti ræðir Eyþór við Rannveigu Traustadóttur, umferliskennara hjá Sjónstöðinni. Már Gunnarsson fer á stúfana, ræðir við Theodór Helga Kristinsson og kynnir sér heim stefnumótaforrita. Einnig ræða Eyþór og Hlynur um aðgengilega tölvuleiki.
Þáttur 36 27.10.2023 48:43
Í þessum þætti verður fjallað um vinnustaði fyrir blinda og sjónskerta og borin saman staðan á Íslandi og Grikklandi. Hrekkjavakan fær einnig sitt pláss og Már Gunnarsson kemur með innslag frá Manchester.
Þáttur 35 29.09.2023 47:52
Í þessum þætti spjöllum við um spennandi nýjung frá fyrirtækinu Be My Eyes sem nefnist Be My AI og Eyþór sýnir okkur hvernig hún virkar. Einnig tók Hlynur viðtöl við Sóley Guðmundsdóttur, sjálfbærnifulltrúa KSÍ og Kristinn Halldór Einarsson, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, varðandi nýtt samkomulag um sjónlýsingar á landsleikjum.
Þáttur 34 25.08.2023 39:08
Í þessum þætti er fjallað um Iris Vision gleraugun og farið yfir þá möguleika sem þau veita ásamt viðtölum við Völu Jónu Garðarsdóttur hjá Sjónstöðinni og Svavar Guðmundsson, félagsmann í Blindrafélaginu.
Þáttur 33 28.07.2023 52:19
Í þessum þætti fjöllum við um NaviLens merkingar og fyrirhugaða uppsetningu þeirra á öllum biðstöðvum og vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Einnig settist Hlynur niður og ræddi við Má Gunnarsson, ekki missa af því.
Þáttur 32 30.06.2023 41:46
Í þessum þætti fjöllum við um nýlega sjónlýsingu á leikjum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, Hlynur tók viðtal við Kristinn Halldór Einarsson varðandi það verkefni. Einnig fjöllum við um appið Clew sem er sniðugt staðsetningar- og leiðarvísis app en Eyþór ræddi við Þorkel Jóhann Steindal um það.
Þáttur 31 26.05.2023 1:18:12
Hljóðbrot er með öðru sniði að þessu sinni. Við héldum opinn umræðufund um foreldrahlutverkið og áhrif blindu og sjónskerðingar á það. Líflegar umræður sköpuðust, fólk deildi reynslusögum og nokkur góð trix litu dagsins ljós.
Þáttur 30 28.04.2023 41:36
Í þessum þætti er viðtal við Hjalta Sigurðsson, félagsmann í Blindrafélaginu og neyðarvörð hjá 112. Einnig leyfir Eyþór okkur að heyra upptökur frá páskum á Grikklandi, sem eru töluvert frábrugðnir páskunum eins og við þekkjum þá hérlendis.
Þáttur 29 31.03.2023 40:19
Í þessum þætti verður farið um víðan völl, rætt um nýjustu vendingar í tækniheiminum og þróun gervigreindar, litið við á markboltaæfingu og spilakvöld.
Þáttur 28 24.02.2023 1:05:45
Við höldum áfram umfjöllun okkar um hæfingu og endurhæfingu blindra og sjónskertra. Fróðlegt viðtal við Brynju Arthúrsdóttur um dvöl sína og endurhæfingu í Bretlandi.
Þáttur 27 27.01.2023 59:14
Í þessum þætti er fjallað um mikilvægi endurhæfingar blindra og sjónskertra. Við heyrum gamalt viðtal við Halldór Rafnar, en hann hefði orðið 100 ára 20. janúar síðastliðinn. Auk endurhæfingar er einnig rætt um hæfingu almennt og hæfni einstaklinga.
Þáttur 26 24.12.2022 42:11
Í þessum þætti fara Eyþór og Hlynur yfir stöðuna í nýlegu máli þar sem Eyþóri og eiginkonu hans var meinað að fljúga með SAS í tvígang með kornunga dóttur sína og nýjar upplýsingar koma fram. Einnig ræða þeir jólin, jólahefðir og Sigþór formaður Blindrafélagsins sendir jólakveðju.
Þáttur 25 26.11.2022 44:16
Í þessum þætti ræða Eyþór og Hlynur um íslenska máltækni og talgervla. Við fáum að heyra hljóðupptöku frá fyrsta talgervli sem búinn var til í heiminum árið 1939 og rekjum sögu talgervla, greinum stöðuna í íslenskri máltækni og veltum framtíðinni fyrir okkur.
Þáttur 24 28.10.2022 57:19
Í þessum þætti er rætt við Daniel Kish um umferli og aðgengismál. Daniel Kish er framkvæmdastjóri World Access for the Blind og missti sjón á fyrsta æviári sínu. Hann sinnir kennslu og þjálfun um víða veröld og framlag Daniels til rannsókna á skynjun ýmiskonar er víðtækt. Á ferli sínum hefur hann vakið mesta athygli fyrir færni og kennslu á sviði hlustunar, í því að skynja rými og í því að nýta ti...
Þáttur 23 30.09.2022 43:28
Í þessum þætti er fjallað um greiðslur með farsímum og hvernig er öruggast að borga ef maður getur ekki stimplað inn PIN númer. Einnig er fjallað um sjónlýsingar, hvaða hlutverki þær gegna og spiluð upptaka af sjónlýsingu á Árbæjarsafni.
Þáttur 22 15.06.2022 39:57
Í þessum þætti er fjallað um leiðsöguhunda. Heyrt var í nokkrum leiðsöguhundanotendum og þeir spurðir hvað hundarnir geri fyrir þau. Einnig er umfjöllun frá Þorkatli Steindal þar sem hann fer með hundinum sínum Gaur út í Kringlu. Þá umfjöllun er gott að hlusta á með heyrnartólum til að fá bestu upplifunina
Þáttur 21. 06.05.2022 22:20
Eyþór Kamban ræðir við Ástu Björnsdóttur um VIVA verkefnið.
Þáttur 20 23.12.2021 34:38
Í þættinum heyrum við jólakveðju frá formanninum Sigþóri U. Hallfreðssyni. Þórunn Hjartardóttir ræðir og fræðir okkur um hljóðlýsingar. Gísli Helgason sendir okkur jólakveðju frá Kanada. Svo er heyrum við jólakveðju frá Hljóðbókasafninu. Þættinum stýrir Eyþór Kamban Þrastarson.
Þáttur 19 12.11.2021 56:21
Í þættinum talar Hlynur Þór Agnarsson við Ísak Jónson foreldri í Blindrafélaginu um nýtt app sem hann vinnur nú að því að framleiða sem eykur aðgengi blindra og sjónskertra að borðspilum. Einnig er kynning á tölvuleiknum Eurofly frá Eyþóri þar sem flogið er frá Keflavík til Egilstaða.
Þáttur 18 24.09.2021 32:33
Í þættnum er að finna viðtal við Gunnar Thor Örnólfsson máltæknisérfræðing um nýjar íslenskar talgervilsraddir sem eru í þróun um þessar mundir. Einnig leit Marjakaisa Matthíasson við á Blindravinnustofunni í tilefni af 80 ára afmæli hennar.
Þáttur 17 27.08.2021 35:35
Í þættinum heyrum við í þeim Patreki Axelssyni og Má Gunnarssyni sem eru staddir í Tókíó og taka þáttí Ólympíumóti fatlaðra sem nú stendur yfir. Einnig heyrum við innslag frá Gísla Helgasyni sem fjallar um fyrsta tölvustýrða punktaletursprentarann sem kom til Íslands árið 1986 en nú eru þrjátíu og fimm ár liðin síðan.
Þáttur 16 28.05.2021 48:14
Eyþór Kamban Þrastarson sér um þáttinn. Friðrik Steinn Friðriksson tekur viðtal við Ásdísi Evalalíu Guðmundsdóttur, varaformann Blindrafélagsins.
Þáttur 15 30.04.2021 37:05
Eyþór Kamban Þrastarson sér um þáttinn. Hann og Þorkell Steindal fjalla um umferli í umferðinni. Gísli Helgason gróf upp ákaflega skemmtilega upptöku um ökudag blindra sem haldinn var 19. október árið 1997.
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály