Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

7. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Innkast frá Belgíu - Á vængbrotið lið Íslands möguleika? 14.11.2018

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Brussel þar sem íslenska landsliðið mætir efsta liði heimslistans, Belgíu, í Þjóðadeildinni. Í Innkasti frá Belgíu ræða þeir um líklegt byrjunarlið Íslands, ótrúlega langan meiðslalista, verkefni Hamren, ljótan heimavöll Belgíu, umdeilda Twitter færslu, lukkudýr landsliðsins, ofmetna hluti og fleira.

Innkastið: Spjallað um stórliðin í enska 11.11.2018

Evrópu-Innkastið gerði upp helgina í ensku deildinni og kom svo við í Þýskalandi og á Ítalíu. Daníel Geir og Elvar Geir fóru yfir hlutina eins og þeim er lagið og var farið með Elvar í Ander Herrera leikinn.

Útvarpsþátturinn: Arnar Grétars gestur - Landsliðið og fleira 10.11.2018

Hér má nálgast upptöku af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 10. nóvember. Arnar Grétarsson var gestur í þættinum og var aðalumræðuefnið íslenska landsliðið, hópurinn sem opinberaður var á föstudaginn og komandi leikir gegn Belgíu og Katar. Félagaskipti í íslenska boltanum koma einnig við sögu í upptökunni og þá var Arnar spurður að því af hverju hann væri ekki að þjálfa í dag. Þá var rætt um stö...

Binni Hlö um ævintýralegt ár í Færeyjum 10.11.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Breiðhyltingurinn Brynjar Hlöðversson varð Færeyjarmeistari undir stjórn Heimis Guðjónssonar í sumar. Hann var einn af þremur sem tilnefndir voru sem leikmaður ársins í deildinni. Brynjar spjallaði við Elvar og Tómas um ævint&y...

Heimavöllurinn - Landsliðsmálin í brennidepli 08.11.2018

Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. Í fyrsta þætti var farið yfir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar en í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir landsliðsmál með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur og Lilju Dögg Valþórsdóttur.

Miðjan - Túfa ræðir heraga í Serbíu, bróðurmissi, KA og Grindavík 07.11.2018

Gestur vikunnar í Miðjunni er Srdjan Tufegdzic sem tók á dögunum við liði Grindavíkur eftir þrettán ár hjá KA á Akureyri. Túfa fór yfir víðan völl í spjalli sínu við Magnús Má Einarsson.

Innkastið - Stórleikur, vont VAR og Ofurdeild 04.11.2018

Elvar og Daníel gera upp fótboltahelgina og er af nægu að taka. Meðal efnis: Jafntefli í stórleiknum, flautumörkin gefa og taka, gult fyrir minningarfagn, furðuleg stytta, Íslendingar heitir, Alfreð heitur janúarbiti, Morata vaknaður, Pochettino næsti stjóri Real Madrid, fyrsti sigur Newcastle, Úlfavonbrigði, VAR notað illa, vond hugmynd um Ofurdeild.

Rússagull á Skaganum og Gummi Magg í Eyjum 03.11.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað var um tíðindin af íslenska félagaskiptamarkaðnum, þar á meðal leikmennina sem Skagamenn hafa fengið til sín. Þá var Guðmundur Magnússon á línunni en hann gekk í raðir ÍBV frá Fram. Einnig er rætt við Kristin Björgúlfsson, formann leikmannasamtaka Íslands.

Bjössi Hreiðars ræddi um Val, íslenska boltann og landsliðið 03.11.2018

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Vals, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um liðið tímabil Valsmanna, leikmannakaup, samkeppnina í Pepsi-deildinni og einnig um íslenska landsliði&eth...

Miðjan - Hvað er í gangi hjá Real Madrid? 31.10.2018

Október 2018 er einhver versti mánuðurinn í glæstri sögu spænska stórveldisins Real Madrid en liðið tapaði 5-1 gegn erkifjendunum í Barcelona um síðustu helgi.

Innkastið - Harmleikur og þjálfaraspark 29.10.2018

Tíðindamikil helgi að baki í boltanum. Manchester City og Liverpool halda áfram að leiðast hönd í hönd á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, harmleikur í Leicester og Evrópumeistararnir spörkuðu stjóranum. Elvar og Daníel fengu félagsskap Halldórs Marteinssonar af raududjoflarnir.is í Innkastinu að þessu sinni. Skoðaðir voru leikir helgarinnar í enska boltanum, Arsenal og Tottenham misstu af stigum en...

Enska hringborðið - Fyrsta fjórðungsuppgjörið 27.10.2018

Toppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta lei...

Arnar Gunnlaugs og hans fótboltapælingar 27.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Arnar Gunnlaugsson er tekinn við sem aðalþjálfari Víkings í Reykjavík en hann var gestur þáttarins. Hann ræðir þar sínar hugmyndir um fótbolta, hvað hann vill gera með Víkinga og hvert þjálfarinn Arnar sækir sinn innblástur. Elvar Geir og Benedikt Bóas spjölluðu við hann.

Innkastið - Skautað yfir fótboltahelgina í Evrópu 22.10.2018

Fótboltadeildirnar í Evrópu fóru aftur á fulla ferð um helgina og þeir Elvar og Daníel skoðuðu allt það helsta. Eins og vanalega var enski boltinn í aðahlutverki. Meðal efnis: Lætin á Stamford Bridge, tíu í röð hjá Arsenal, frábær tölfræði Lamela, Shaqiri gerði gæfumun í heppnissigri Liverpool, hörmulegur varnarleikur hjá fokdýru Fulham, Gæði í Everton, stærsta áskorun Benítez, staðnaður Donnarumm...

Miðjan - Nýtt þjálfarateymi kvennalandsliðsins 22.10.2018

Miðjan er að þessu sinni send út frá Laugardalsvelli. Jón Þór Hauksson var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennalandsliðsins en hann tekur við af Frey Alexanderssyni. Aðstoðarmaður Jóns verður Ian Jeffs, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum þjálfari kvennaliðs ÍBV. Elvar Geir Magnússon fékk sér sæti með Jóni og Ian Jeffs eftir fréttamannafund í dag og við leyfum hlustendum að kynnast þeim tveimur betur...

Hringborðsumræða - Stærstu mál íslenska fótboltans 20.10.2018

Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 og var rætt um helstu mál íslenska boltans, innan vallar sem utan. Þórir ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór en meðal umræðuefna var: Viðar Örn...

Jóhann Már um Chelsea - Man Utd: Mourinho fékk ósanngjarnar móttökur 20.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var á línunni eftir dramatískt 2-2 jafntefli Chelsea og Manchester United. Mikil læti sköpuðust í uppbótartíma leiksins. Í upptökunni er einnig umræða um furðulegan fréttamannafund Bayern München í gær. Jóhann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um titilvonir Chelsea, Sarri og þeirra helstu leikmenn

Miðjan - Grétar Rafn yfirmaður fótboltamála 16.10.2018

Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður, menntaði sig í fótboltafræðunum eftir að skórnir fóru á hilluna og er í dag yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood í ensku C-deildinni. Félagið á sér það markmið að komast upp í Championship-deildina og fer vel af stað á þessu tímabili. Grétar var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni og Fótbolti.net fékk hann í spjall. Hann sagði frá starfi sínu hjá...

Innkast úr Laugardal - Ekki allir sem stóðust próf kvöldsins 15.10.2018

Komið er glænýtt Innkast frá Laugardalsvelli þar sem rýnt var í leik kvöldsins í Þjóðadeildinni, viðureignina gegn Sviss. Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson ræddu um leikinn en með þeim var Tómas Þór Þórðarson. Sviss vann 2-1 útisigur. Rýnt var í frammistöðu leikmanna og allt sem tengist leiknum. Hvað á að leggja áherslu á í næsta landsleikjaglugga? Mikilvægi boltastráka, enska landsliði...

Björn Berg Bryde og fréttir vikunnar í íslenska boltanum 13.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum. Björn Berg Bryde var á línunni en þessi hrikalega öflugi miðvörður yfirgaf Grindavík og gekk í raðir bikarmeistara Stjörnunnar. Hann e...

Landsliðsumræða - Frakklandsförin og upphitun fyrir Sviss 13.10.2018

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið var yfir jafnteflið gegn heimsmeisturum Frakka og frábæra frammistöðu Íslands. Elvar er nýlentur frá Frakklandi og Tómas lýsti leiknum á Stö&eth...

Innkast frá Frakklandi - Pogba skaut út á bílastæði 10.10.2018

Komið er nýtt Innkast frá Frakklandi, þar sem Ísland leikur vináttulandsleik gegn heimsmeisturunum annað kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Rúnarsson og Henry Birgir Gunnarsson hituðu upp fyrir leikinn. Rætt var um sýningaræfingu Frakka, líklegt byrjunarlið Íslands, gagnrýni á Þjóðadeildina og fleira.

Nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um knattspyrnu kvenna 10.10.2018

Kominn er í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður um íslenska knattspyrnu kvenna. Fyrsti þáttur varð aðgengilegur í gær en í honum fara þáttastjórnendurnir, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, yfir gang mála í Pepsi-deild kvenna í sumar. Ræða tímabilið og velja bestu leikmenn hvers liðs í deildinni.

Innkastið: Stórleiksvonbrigði en margir sáttir í hlé 07.10.2018

Evrópu-Innkastið fór yfir málin og hvort liðin gangi sátt inn í landsleikjahlé. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon stýrðu þættinum.

Íslenskar leigubílasögur - Heimir til Vancouver? 06.10.2018

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir slúðursögur úr íslenska fótboltanum og einhverjar staðfestar fréttir. Úr því spunnust ýmsar vangaveltur. Báðir höfðu þeir heyrt, úr ólíkum áttum, að Heimir Hallgrímsson fyrrum landsliðsþjálfari sé á óskalista kanadíska félagsins Vancouver Whitecaps sem spilar í MLS-deildinni bandarísku. Sagan segir að Heimir sé í Vancouver e...

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály