Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

7. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Innkastið - Bestir í Evrópu og Barton skýring 15.04.2019

Topplið Englands vinna alla fótboltaleiki og nú er komið að lokaspretti deildarinnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir allt það helsta í enska boltanum, skoðuðu Meistaradeildina og völdu úrvalslið tímabilsins í Evrópuboltanum. Þá var Daníel með s&...

Niðurtalningin: Fylkir - Aron Snær og Ragnar Bragi 15.04.2019

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Aron Snæ Friðriksson og Ragnar Braga Sveinsson leikmenn Fylkis. Fylki er spáð 8. sætinu í spá Fótbolta.net fyrir Pepsi Max-deildina.

Niðurtalningin: Grindavík - Gunnar Þorsteins og Alexander Veigar 15.04.2019

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Alexander Veigar Þórarinsson og Gunnar Þorsteinsson leikmenn Grindavíkur. Grindavík er spáð 9. sæti af Fótbolta.net.

Hannes fór yfir málin í hljóðveri X977 13.04.2019

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson mætti í hljóðver X977 og ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Umtöluð skipti hans í Val, staða landsliðsins og margt fleira var til umræðu í skemmtilegu spjalli.

Bjarni Guðjóns tekinn inn í úrvalslið áratugarins 13.04.2019

Bjarni Guðjónsson, fyrrum leikmaður KR, var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni af tíu ára afmæli þáttarins á X977. Bjarni er aðstoðarþjálfari KR í dag en hann var lykilmaður hj&aa...

Vetrarverðlaunin - Tobias valinn bestur 13.04.2019

Annað árið í röð var haldin sérstök vetrarverðlaunahátíð til að krydda hið ótrúlega langa undirbúningstímabil á Íslandi. Til gamans var haldin sérstök vetrarverðlaunahátíð og þeir bestu á undirbúningstímabilinu heiðra&et...

Niðurtalningin: ÍBV - Gummi og Felix 12.04.2019

Niðurtalning Fótbolta.net. Daníel Geir Moritz, fréttaritari Fótbolta.net í Vestmannaeyjum, fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn ÍBV en liðinu er spáð 10. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Guðmundur Magnússon og Felix Örn Friðriksson.

Niðurtalningin: Víkingur - Dofri Snorra og Davíð Atla 11.04.2019

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Víkingana, Dofra Snorrason og Davíð Örn Atlason. Víkingum er spáð 11. sæti í Pepsi Max-deildinni.

Innkastið - Miði er smá Man Utd möguleiki 10.04.2019

Það er rosalegur sumargluggi framundan í Evrópuboltanum, Barcelona er líklegast til að vinna Meistaradeildina og einvígi Manchester City og Liverpool heldur áfram. Eftir leiki kvöldsins tóku Elvar og Daníel upp Evrópu-Innkastið í boði Ölvers. Meðal annars var rætt um bikarkeppnina, kynþ&a...

Niðurtalningin: HK - Leifur Andri og Hörður Árna 10.04.2019

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn úr HK en HK-ingum er spáð 12. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Leifur Andri Leifsson og Hörður Árnason.

Atlarnir í FH í viðtali - Teknir inn í áratugarliðið 06.04.2019

FH-goðsagnirnar Atli Viðar Björnsson og Atli Guðnason voru teknir inn í áratugarliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þessir mögnuðu leikmenn mættu í viðtal og fóru yfir málin á áhugaverðan og skemmtilegan hátt. Atli Viðar er búinn að leggja skóna á hilluna og verður í sérfræðingateymi Pepsi Max-markaþáttarins í sumar en Atli Guðna setur stefnuna á að slá stoðsendingamet áður en hann hættir...

Berger og Smicer í spjalli um Liverpool 06.04.2019

Það var létt yfir tékknesku Liverpool goðsögnunum Patrik Berger og Vladimir Smicer í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þeir eru hér á landi á vegum Liverpool klúbbsins. Tómas Þór Þórðarson ræddi við þá félaga.

Fótboltafréttirnar - Hannes á heimleið 06.04.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu fótboltafréttir vikunnar. Rætt var um tíðindin af Hannesi Þór Halldórssyni, valið á besta þjálfara Íslands í dag og úrslitaleik Lengjubikarsins.

Innkastið - Sterk meistaralykt af Liverpool 01.04.2019

Liverpool er með meistaralið en þó er alls ekki víst að liðið muni standa uppi sem sigurvegari þetta tímabilið. Elvar og Daníel mæta með Evrópu-Innkastið á nýjan leik. Farið er yfir gang mála í ensku úrvalsdeildinni og slaginn framundan um Evrópusætin, titilinn og að halda sæti í deildinni. Meðal efnis: Hræðileg mistök Lloris, ráðning Solskjær, reiði Warnock, gæði og vinnusemi Bernardo Silva, ókey...

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir neðri deildirnar 01.04.2019

Í síðasta þætti Heimavallarins fóru þáttastýrur yfir ótímabæra spá sína fyrir Pepsi-Max deildina. Í þætti dagsins spreyta þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir sig aftur í spádómum en í þetta skiptið spá þær í spilin fyrir 2. deild og Inkasso-deildina en keppni í deildunum hefst eftir 6 vikur.

Davíð Snorri um leið U17 á EM 30.03.2019

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 þann 30. mars. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um landsliðið og þá kom Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U17 landsliðsins, í heimsókn. U17 landsliðið komst tryggði sér sæti í úrsli...

Hræringar í síðustu ótímabæru spánni 30.03.2019

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Það eru 27 dagar í að flautað verði til leiks í Pepsi Max-deildinni og síðasta ótímabæra spáin fyrir deildina var opinberuð í útvarpsþættinum. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már skoðuðu málin. Það er nóg af hræringum í spánni. Einnig var Daníel Laxdal tekinn inn í úrvalslið áratugarins.

Miðjan - Landsliðsumræða með Einari Erni og Kristjáni Guðmunds 26.03.2019

Íslenska landsliðið hefur leikið fyrstu tvo leiki sína í Undankeppni fyrir EM2020. Í Andorra á föstudaginn vann íslenska landsliðið 2-0 sigur á heimamönnum og í gærkvöldi voru það heimsmeistararar Frakka sem unnu Íslendinga 4-0 á Stade de France í París. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV og Kristján Guðmundsson knattspyrnuþjálfari voru gestir Miðjunnar að þessu sinni. Þeir fóru yfir þessa...

Hversu mikill er áhuginn á íslenska boltanum? 23.03.2019

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 23. mars. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson fjölluðu um rannsókn á áhuga almennings á Pepsi Max-deildunum. Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitík, kíkti í heimsókn.

Landsliðsumræða - Þrjú stig komin í hús 23.03.2019

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 23. mars. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um landsliðið og sigurleikinn gegn Andorra í fyrsta leik undankeppni EM. Rýnt var í frammistöðuna og komandi leikur gegn Frakklandi skoðaður. Elvar Geir Magnússon var á línunni en hann er að fylgja íslenska landsliðinu.

Miðjan - Bjarni Jó fer yfir rúmlega 30 ára þjálfaraferil 21.03.2019

Bjarni Jóhannsson er einn reynslumesti meistaraflokksþjálfari á Íslandi frá upphafi og hann er enn að. Bjarni er þjálfari Vestra í 2. deildinni í dag. Þjálfaraferill Bjarna spannar rúmlega 30 ár og hefur hann þjálfað á öllum landshornum. Bjarni er gestur Miðjunnar í þessari viku og fer hann yfir þjálfaraferilinn frá upphafi til dagsins í dag.

Landsliðsumræða - Skylda að vinna Andorra 16.03.2019

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Komandi leikir Íslands, þeir fyrstu í undankeppni EM, voru til umræðu. Sérstaklega var rætt um leikinn gegn Andorra sem verður næsta föstudag. Hópurinn sem Erik H...

Baldur Sigurðsson tekinn inn í úrvalslið áratugarins 16.03.2019

Sjötti leikmaðurinn var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni af tíu ára afmæli þáttarins á X977 og samanstendur af leikmönnum í efstu deild 2009-2019. Baldur Sigurðsson, miðjumaður Stjörnunn...

Meistaradeildin - Spáð í spilin fyrir 8-liða úrslit 16.03.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu dráttinn í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar en dregið var á föstudag. Ajax - Juventus Liverpool - Porto Tottenham - Man City Man Utd - Barcelona

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 15.03.2019

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins spá þáttastýrurnar í spilin fyrir komandi tímabil. Nú eru 7 vikur í að keppni hefjist í Pepsi Max-deildinni og af því tilefni skella þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir í ótímabæra spá fyrir deildina.

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály