Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Útvarpsþátturinn - Enski boltinn, Pepsi Max og Inkasso 10.08.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 10. ágúst. Elvar Geir og Benedikt Bóas sáu um þátt dagsins. Í upphafi þáttar var fjallað um Inkasso-deildina. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. Eftir það var rætt um enska boltann og félagaskiptagluggann við Daníel Geir Moritz. Að lokum var komandi umferð í Pepsi Max-deildinni skoðuð með Magnúsi Má Einarssyni.
Enska upphitunin - Manchester City getur unnið alla titlana 09.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester City.
Enska upphitunin - Lokað á skrifstofu Liverpool 08.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Liverpool. Sigursteinn Brynjólfsson og skólastjórinn Magnús Þór Jónsson af kop.is ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil hjá Evrópumeisturunum og fleira! Meðal umf...
Enska upphitunin - Spennandi sumargluggi hjá Arsenal 08.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Arsenal. Sumarglugginn er að enda fjörlega hjá Arsenal og þeir Einar Guðnason og Jón Kaldal fóru yfir stöðuna hjá Skyttunum.
Innkastið - Brekka eftir brekkusöng 07.08.2019
15. umferð Pepsi Max-deildarinnar er að baki en Innkastið fer yfir umferðina og skoðar gang mála. Elvar Geir, Gunni Birgis, Tómas Þór og Magnús Már eru allir á sínum stað. Í þættinum eru meðal annars tilnefndir þeir fjórir leikmenn sem geta orðið besti leikmaður annars þriðjungs, Inkasso-horn og Gunni giskar.
Fantabrögð - Góð ráð fyrir Fantasy tímabilið 07.08.2019
Fantabrögð er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem farið er yfir Fantasy deildina í ensku úrvalsdeildinni. Þáttastjórnendur eru þeir Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson. Enska úrvalsdeildin hefst á föstudaginn en stefnan er sett á að vera með hlaðvarpsþáttinn reglulega í kringum tímabilið.
Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham 07.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Tottenham. Tottenham hefur verið mikið í umræðunni við gluggalok og þeir Hjálmar Örn Jóhannsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Ingimar Helgi Finnsson fóru yfir stöðuna hjá Spurs.
Enska upphitunin - Ungviði og engin kaup hjá Chelsea 06.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Chelsea. Í þættinum komu þeir Jóhann Már Helgason og Snorri Clinton frá cfc.is í spjall.
Enska upphitunin - Breyttur leikstíll Manchester United 06.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester United. Í þættinum komu þeir Halldór Marteinsson og Björn Friðgeir Björnsson frá raududjoflarnir.is í spjall.
Þórir Hákonar um könnunina hjá Leikmannasamtökunum 03.08.2019
Fótboltapólitík úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson mætti í þáttinn og ræddi við Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas um könnun sem gerð var meðal leikmanna Pepsi Max-deildarinnar. Launamál, hagræðing &u...
Gluggadómar og Eyjafjör í Maxaranum 03.08.2019
Sumarglugganum var lokað núna um mánaðamótin en Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas skoðuðuð þær hræringar sem urðu á leikmannamálum í Pepsi Max-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Skemmtanastjórinn Arnar Daði var einnig &...
Heimir Guðjóns í beinni frá Færeyjum 03.08.2019
Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum, var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. HB er eitt af fimm liðum sem eru í harðri toppbaráttu í færeysku Betri-deildinni og er auk þess komið í úrslitaleik bikarsins. Samningur Heimis við HB...
Inkasso-hornið - Farið yfir bæði topp- og botnbaráttuna 31.07.2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna í deildinni og bæði topp og botnbaráttan skoðuð og spáð í framhaldið. Línur eru farnar að skýrast í deildinni. Fimm lið eru í baráttu um sæti í Pepsi Max-deildinni og fjögur lið í harðri...
Heimavöllurinn - Úrvalslið Inkasso og súpersystur 31.07.2019
Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir opinbera úrvalslið fyrri hluta Inkasso-deildarinnar, velja besta leikmanninn og heyra í henni hljóðið. Þá fara þær yfir helstu fréttir vikunnar og taka púlsinn á félagaskiptum rétt fyrir gluggalok. Heimavöllurinn fékk svo hjálp á samfélagsmiðlum við að velja eftirlætissystur efstu deildar undanf...
Innkastið - Samstillt átak um að KR verði meistari 29.07.2019
Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már gera upp 14. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ljóst er að KR verður meistari en í þætti dagsins er farið yfir alla leikina, rætt um slúðursögur, vandræðagang FH, slæmt gengi Breiðabliks, markasúpuna í Grindavík, Evrópukeppnina, Inkasso-hornið, Gunni giskar og fleira og fleira.
Magnús Agnar: Hroki í garð íslensku deildarinnar 27.07.2019
Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem hann ræddi aðeins um bransann og leikmannamarkaðinn á Íslandi. Hann segir að árangur íslenska landsliðsins hafi ekki haft þau áhrif á áhuga erlendra félaga á íslenskum leikmönnum sem spáð var.
Lið fólksins á flugi - Leifur og Arnar í viðtali 27.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK og markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson voru gestir þáttarins. Nýliðar HK hafa verið á flugi í Pepsi Max-deildinni og eru búnir að vinna þrjá sigra í röð.
Inkasso, ÞÞÞ og komandi umferð í Pepsi Max 27.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Inkasso-deildina og fóru yfir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni. Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður FH, var á línunni en hann gekk í raðir Fimleikafélagsins frá ÍA í vikunni.
Heimavöllurinn - Bikardrama og markaregn eftir markaþurrð 25.07.2019
Knattspyrnuþjálfararnir Baldvin Már Borgarsson og Steinunn Sigurjónsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála í Pepsi Max-deildinni og helstu boltafréttir nýliðinnar viku.
Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi barátta í 2. deild 24.07.2019
Keppni í 2. deild karla er æsispennandi en þegar tólf umferðir eru búnar eru einungis sex stig sem skilja að topplið Selfyssinga og Völsung í 9. sætinu. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni en þeir eiga báðir mörg tímabil að baki í deildinni. Þeir kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir hvert einasta lið í deildinni og völdu einnig lið fyrri umferð...
Innkastið - Topp táningar og volæði í FH 22.07.2019
Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunni Birgis fara yfir 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hverjir eru bestu táningarnir í deildinni? Tom valdi topp fimm! Meðal efnis í þættinum: Brynjar Björn með frábæra uppskeru, volæði hjá FH, Björn Daníel mestu vonbrigðin, formaðurinn á lyklaborðinu, allt í núlli hjá Grindavík, Big Bó skorar, Kristján Flóki á leiðinni, Glenn ömurlegur á vinstri kantinum, I...
Útvarpsþátturinn - Aron Jó og boltaspjall 21.07.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir Tómas og Benni um boltann og heyrðu meðal annars í Elvari sem var á leið til Greni...
Innkastið - Basl hjá KA og breytt staða FH 16.07.2019
9. umferðinni í Pepsi Max-deild karla lauk loksins í gærkvöldi, tæpum mánuði eftir að hún byrjaði. Liðin í Evrópukeppni spiluðu í þessari umferð fyrir tæpum mánuði en nú eru öll lið með jafnmarga leiki í deildinni. KR er áfram með þægilegt forskot á toppnum en fallbaráttan harðnar og KA er komið í fallsæti. Arnar Daði Arnarsson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson skoðuðu stöðuna í Innkastinu...
Heimavöllurinn - Inkasso og 2. deildar veisla 15.07.2019
Það er komið að því að skoða hvað hefur verið í gangi í neðri deildunum það sem af er sumri. Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins en einnig er farið yfir gang mála í 2. deild. Gestur þáttarins að þessu sinni er knattspyrnuþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson.
Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars 13.07.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 13. júlí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Gestur: Óskar Hrafn Þorvaldsson. Aðrir viðmælendur: Arnar Þór Viðarsson og Daníel Geir Moritz.
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály