Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

3. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Innkastið - Albert Brynjar og brjáluð barátta um þann stóra 24.08.2021

18. umferð Pepsi Max-deildarinnar gerð upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Sérstakur gestur þáttarins er Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður Kórdrengja. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Albert Brynjar fara yfir leikina og fréttir sem eru tengdar þeim. Víkingar sýndu magnaða frammistöðu gegn Val og opnuðu titilbaráttuna í Pepsi Max-deildinni upp á gátt. Breiðablik vann KA og getur farið á toppinn á...

Útvarpsþátturinn - Boltinn með Blandon og Fram fögnuður 21.08.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir sviðið en eins og oft áður er íslenski boltinn í forgrunni. Úlfur Blandon, sérfræðingur þáttarins, ræðir um það helsta sem er í gangi í Lengjudeildinni. Í Lengjudeildinni er Fram komið upp og úrslitin í deildinni svo gott sem ráðin. Í Pepsi Max-deildinni eru stórleikir framundan. Í þættinum er einnig rætt við Jón Sveinsson, þj...

Ítalski boltinn - Þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila 20.08.2021

Aldrei áður hafa eins margir Íslendingar spilað fótbolta á Ítalíu og þeim fjölgar með hverri vikunni. Í þessum upphitunarþætti verður farið yfir stöðu Íslensku strákanna og hitað upp fyrir Serie A sem hefst um helgina. Tekst Internazionale að verja titilinn? Verður endurkoma Allegris eins og endurkoma Marcellos Lippis? Hvernig mun Jose Mourinho ganga í borginni eilífu? Ítalski boltinn - Þar sem Ís...

Ástríðan - Tvö lið að falla úr 2.deild og loksins heil umferð kláruð í 3.deild 19.08.2021

Sverrir Mar mætti að vanda í stúdíóið en Gylfi Tryggva tók sér frí. Með Sverri Mar var kominn Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Víðis frá Garði, annan þáttinn í röð. Þeir fóru yfir 17.umferð í 2.deild og úrskurðuðu K&aacut...

Ástríðan - Gestur í stúdíóinu og farið yfir helgina 19.08.2021

Sverrir Mar mætti að vanda í stúdíóið en Gylfi tók sér frí. Með Sverri Mar var kominn Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Víðis frá Garði. Þeir fóru yfir 16.umferð í 2.deild þar sem stutt er í að fallbaráttunni ljúki en nóg eftir...

Enski boltinn - Veislan er hafin! 17.08.2021

Kjartan Henry Finnbogason, sóknarmaður KR, og Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, eru gestir í fyrstu útgáfu tímabilsins af hlaðvarpinu Enski boltinn á Fótbolta.net.

Innkastið - Reiði, rauð spjöld og TikTok skot úr stúkunni 17.08.2021

Elvar Geir og Tómas Þór eru í Innkasti vikunnar. Með þeim að þessu sinni er Sverrir Mar Smárason sem kom á lánssamningi frá Ástríðunni. Sex efstu lið Pepsi Max-deildarinnar unnu í 17. umferðinni en sex neðstu liðin töpuðu. Hverjir verða Íslandsmeistarar? Meðal efnis: Kristall þaggaði niður í stuðningsmönnum Fylkis, Kórinn breyttist í suðupott, Skagamenn reiðir eftir vítaspyrnudóm, markaflóð FH geg...

Fantabrögð - BruYES Fernandes og breiddin er mikilvæg 17.08.2021

Enski boltinn var mættur aftur fullur af fjöri. Stóru strákarnir Salah og Bruno sýndu hvers þeir eru megnugir. Lukaku er stór strákur. Hann er kominn í deildina. Á að velja hann strax? Er Benrahma alvöru gæi? Hvað á að gera við alla þessa 4.0 gæja í vörninni sem fengu að...

Útvarpsþátturinn - Boltahlaðborð og góðir gestir 14.08.2021

Elvar Geir og Benedikt Bóas bjóða upp á boltahlaðborð í útvarpsþætinum. Það er nóg að ræða enda íslenski boltinn í fullum gangi og boltinn byrjaður að rúlla á Englandi. Gunnar Ormslev lýsandi á Síminn Sport kemur í heimsókn og skoðar boltafréttir vikunnar. Gunnar lýsti opnunarleik Brentford og Arsenal sem heimamenn unnu 2-0. Gunnar Birgisson segir ferðasögu frá Skotlandi en hann var í stúkunni á l...

Ungstirnin - Ungir og spennandi í enska 14.08.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti fjalla drengirnir um hvaða ungu leikmönnum í hverju liði ensku úrvalsdeildarinnar skal fylgjast með í vetur. Drengirnir ræða einnig um hvaða ungstirni hafa verið að færa sig um sess í...

Enski boltinn - Risa þáttur um tvö vinsælustu félögin 13.08.2021

Magnús Þór Jónsson, stuðningsmaður Liverpool, og Þorsteinn Hjálmsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið.

Fantabrögð - Er liðið þitt tilbúið? 10.08.2021

Fantabrögð eru mættir aftur og komu með sjóðandi heit ráð fyrir komandi tímabil sem hefst á föstudaginn. Farið var yfir liðin, þeirra helstu leikmenn, strategíur og leikjadagskrá. Gylfi, Gunni, Hemson og Ásgeir voru við hljóðnemann. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þe...

Enski boltinn - Rosaleg gæði í Chelsea og Man City 10.08.2021

Enska úrvalsdeildin, uppáhalds deild flestra Íslendinga, hefst á föstudaginn.

Ástríðan - Sérstakur 3. deildar þáttur 10.08.2021

Sverrir og Gylfi fóru yfir málin í 3. deildinni og það sem hefur gerst undanfarna daga. Leikjadagskráin þar er óregluleg vegna smita í herbúðum KFG og Ægis en fjórum leikjum hefur verið frestað. Höttur/Huginn eru svo gott sem komnir upp, Augnablik eru farnir að einbeita sér að næsta...

Ástríðan - Sérstakur 2. deildar þáttur 10.08.2021

Sverrir og Gylfi hittust og gerðu upp það sem gerðist í kringum verslunarmannahelgina. Bjarni Jó hættur með Njarðvík. Peningar ráða ekki öllu. Af hverju eru bara til ungir Haukamenn? Hver er munurinn á Kára og Fjarðabyggð? Þetta var til umræðu og margt fleira.

Innkastið - Valur býður í meistaradans og Blikar kunna sporin 09.08.2021

Við spilum Maggi-ball með Ólympíuandann að vopni í Innkastinu að þessu sinni. Elvar Geir, Gunni Birgis og sérstakur gestur er Magnús Már Einarsson, fyrrum ritstjóri Fótbolta.net og þjálfari Aftureldingar. 16. umferð Pepsi Max-deildarinnar er í brennidepli en einnig er rætt um Sambandsdeildina og smá um Lengjudeildina. Meðal efnis: Meistarabragur á Blikum, Escobar kláraði Íslandsmeistarana, Víkinga...

Heimavöllurinn - Hverjar standast storminn þegar spennan eykst? 09.08.2021

Það er langt liðið á sumarið og línur aldeilis að skýrast í öllum deildum. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta með góðum gestum, þeim Alexöndru Bíu Sumarliðadóttur og Sigríði Dröfn Auðunsdóttur, sem hafa fjallað vel um boltann á Fótb...

Enski boltinn - Erkifjendurnir Arsenal og Tottenham 09.08.2021

Það er minna en vika í upphafsflaut ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2021-22. Arsenal tekur á móti Brentford í opnunarleiknum á föstudag.

Enski boltinn - Upphitun fyrir úrvalsdeildina og Messi umræða 07.08.2021

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 7. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Kristján Atla Ragnarsson um enska boltann. Kristján kemur með sína spá fyrir tímabilið en enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudag. Einnig er rætt um Lionel Messi sem er á leið til PSG.

Íslenski boltinn - Sambandsdeildin, Lengjan og Pepsi Max með Rabba 07.08.2021

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 7. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Rafn Markús Vilbergsson um íslenska boltann. - Einvígi Breiðabliks og Aberdeen í Sambandsdeildinni. - Besti leikmaður annars þriðjungs í Pepsi Max-deildinni. - 15. umferð Lengjudeildarinnar skoðuð. - Besti leikmaður annars þriðjungs í Lengjudeildinni. - Komandi umferð í Pepsi Max.

Innkastið - Sjokkerandi FH-ingar og Hlíðarendahlátur 04.08.2021

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas eru í Innkastinu eftir 15. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Benedikt brunaði (á löglegum hraða) á skrifstofu Fótbolta.net eftir stórleik Vals og KR. Í þættinum er einnig fjallað um Breiðablik í Sambandsdeildinni, Lengjudeildina og tilnefningar í kosningu á besta leikmanni annars þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar. Meðal efnis: Sigur Vals í toppslagnum gegn KR, St...

Útvarpsþátturinn - Blikar í banastuði og peningarnir í íslenska boltanum 31.07.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Árni Vilhjálmsson á línunni og Þórir Hákonarson gestur. Í fyrri hlutanum: Boltafréttir vikunnar, Lengjudeildin, Pepsi Max slúður og Sambandsdeildin. Í s...

Ástríðan - Markalaus jafntefli í 2. deild - stuð í 3. deild 28.07.2021

Sverrir og Gylfi voru mættir á sinn heimavöll í Krókhálsi að ræða málin. Þar fóru einstaklega tíðindalitlir leikir fram í 2. deildinni á meðan 3. deildin hélt áfram að gefa og taka. Sum lið einfaldlega neita að vera í toppbaráttu á meðan sum li&et...

Innkastið - KR lék sér að bráðinni og ótrúleg úrslit suður með sjó 26.07.2021

Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis í Innkastinu þessa vikuna. Gönguferð á Meistaravöllum, Keflavík vann Breiðablik (aftur) í ótrúlegum fótboltaleik, Lennon elskar að skora þrennu á Skaganum, Pedersen elskar að skora gegn HK, Stubbur í stuði á Domusnova, Smit í Breiðholti, Víkingar hóta einvígi gegn Val, Stjörnubíóið heldur áfram, Gunni giskar, Sambandsdeildin og Lengjudeildarhornið.

Ungstirnin - Heimsókn frá Hlíðarenda 25.07.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Khvicha Kvaratskhelia (Rubin Kazan) og Odilon Kossounou (Leverkusen). Gestir þáttarins að þessu sinni eru Valsmennirnir, Sverrir Páll Hjaltested og Birkir Heimisson. Dren...

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály