Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

11. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Ejub: Hjálpum leikmönnum sem hafa verið í vandræðum 19.04.2016

Nýliðarnir í Víkingi Ólafsvík eru í ellefta sæti í spá fyrir Pepsi-deildina. Þeir voru í æfingaferð á Spáni þegar lið þeirra var kynnt en þjálfarinn, Ejub Purisevic, heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í dag og má heyra viðtal við hann í spilaranum hér að ofan.

Hemmi Hreiðars: Verð silkislakur á hliðarlínunni í sumar 19.04.2016

„Stefnan er alltaf sett á að bæta spilamennskuna og sjá hvert það fer með okkur," segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, um spá Fótbolta.net en liðinu er spáð 7. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Bjarni Jó: Oft kærusturnar sem stoppa þetta 19.04.2016

„Þetta er ekkert óeðlilegt. Þetta er svipuð staða og menn enduðu í fyrra. Fótbolta.net mótið hressti aðeins upp á sálarlífið og trú manna á að við getum náð aðeins betri árangri en í fyrra," segir Bjarni Jóhannsson þjálfari ÍBV en Fótbolti.net spáir liðinu 8. sæti í Pepsi-deildinni í ár. „Markmiðið er að losa sig við þessa botnbaráttu. Það er svo lítið á milli, að vera í ströggli eða vera í góðum...

Gústi Gylfa: Þetta mót verður eins og enska deildin 18.04.2016

„Það eru miklar mannabreytingar hjá okkur í ár. Við höfum misst 7-8 leikmenn og fengið aðra í staðinn. Það verður áskorun að búa til gott lið út úr þessu," sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis við Fótbolta.net í dag en liðinu er spáð 9. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Gummi Ben: Gæsahúð þegar þú talar um fótbolta við Wenger 16.04.2016

Guðmundur Benediktsson mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net í hádeginu í dag og ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon um enska boltann.

Gulli Jóns: Fólk á Akranesi vill þetta 15.04.2016

„Við höfum verið að spila ágætlega í vetur en blaðamenn Fótbolta.net horfa örugglega í að við höfum ekki fengið risa liðsstyrk. Ég held að við getum að mörgu leyti farið undir radarinn," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, en liðinu er spáð 10. sæti í Pepsi-deildinni í sumar hjá Fótbolta.net.

Innkastið - Meistaradeildin: Rosalegur Ronaldo 13.04.2016

Fjallað er um seinni leiki 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru með Innkast um Meistaradeildina í hverri leikviku keppninnar.

Grétar Sigfinnur: Menn finna blóðbragðið 12.04.2016

Varnarmaðurinn reyndi Grétar Sigfinnur Sigurðarson gekk í raðir Stjörnunnar í vetur eftir sigursæl ár hjá KR. Grétar kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu á laugardag síðasta laugardag og má heyra viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan. Grétar berst ásamt Daníel Laxdal og Brynjari Gauta Guðjónssyni um miðvarðastöðurnar tvær í Garðabænum.

Grobbelaar: Staða Liverpool undir stjórn Klopp mjög góð 12.04.2016

Bruce Grobbelaar var aðalmarkvörður Liverpool í þrettán ár og varð sex sinnum Englandsmeistari með liðinu, bikarmeistari þrívegis og Evrópumeistari einu sinni. Grobbelaar var hér á landi á vegum Liverpool-klúbbsins um síðustu helgi.

Innkastið - Meistaradeildin: Hallur Halls um Man City 06.04.2016

Fjallað er um fyrri leiki 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru með Innkast um Meistaradeildina í hverri leikviku keppninnar.

Gregg Ryder: Markmið að koma Þrótti í Evrópukeppni á næstu árum 04.04.2016

„Ég er sannfærður um að við munum gera vel, þvert gegn því sem veðbankar segja," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, í mjög skemmtilegu viðtali við Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn. Þróttarar komust upp í Pepsi-deildina í fyrra en úrslitin á undirbúningstímabilinu hafa verið allt annað en góð. Gregg er þó bjartsýnn fyrir sumarið og bendir á að liðið hafi heldur ek...

Hvaða 23 leikmenn fara með Frakklands? 03.04.2016

Íslenska landsliðið var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær eins og oft áður. Rætt var um hvaða 23 leikmenn verða í lokahópnum sem fer til Frakklands og litið á landsleikinn gegn Grikklandi sem var síðasta þriðjudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu málin og spjölluðu einnig við Magnús Már Einarsson sem var á leiknum í Aþenu.

Kristján Guðmunds um landsliðið: Gleðina vantaði 26.03.2016

Íslandi gengur erfiðlega að vinna vináttulandsleiki en síðasta fimmtudagskvöld tapaðist leikurinn gegn Dönum í Herning 2-1. Kristján Guðmundsson, þjálfari Leiknis, fór yfir leikinn með Tómasi og Elvari í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.

Arnór Ingvi: Er með sjálfstraustið í botni 26.03.2016

„Þetta var kannski ekki okkar besti leikur, en það var sætt að setja eitt í lokin,“ sagði Arnór Ingvi Traustason í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Arnór Ingvi skoraði mark Íslands í 2-1 tapinu gegn Dönum síðastliðinn fimmtudag, en Arnór hefur stimplað sig vel inn í íslenska landsliðshópinn.

Fréttir vikunnar: Cruyff, Johnson, landsleikir og fleira 26.03.2016

Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon fóru yfir helstu fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu en yfirferðina má heyra í spilaranum hér að neðan.

Gulli Gull: Vonaði að Stjáni Finnboga myndi spila illa 21.03.2016

Reynsluboltinn Gunnleifur Gunnleifsson er í íslenska landsliðshópnum sem mættur er til Danmerkur að undirbúa sig undir vináttuleiki gegn Dönum og Grikkjum. Fjórir markverðir eru í hópnum og er Gunnleifur í baráttu við Ögmund Kristinsson og Ingvar Jónsson um að fara út ásamt Hannesi Þór Halldórssyni

Pálmi Rafn: Þetta er engin vinsældakeppni 21.03.2016

Pálmi Rafn Pálmason, miðjumaður KR, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag en hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Pálmi kom heim úr atvinnumennsku fyrir ári síðan og gekk þá í raðir KR-inga.

EM-hringborðið: Hvað er hægt að lesa í landsliðshópinn? 19.03.2016

Hverjir eru úr leik í baráttunni um sæti í EM-hópnum fyrir sumarið? Hvað er hægt að lesa í landsliðshópinn sem kynntur var í gær?

Innkastið - Meistaradeildin: Dramatík og gervidráttur 16.03.2016

Það var boðið upp á mikla dramatík í Meistaradeildinni þessa leikvikuna.

Freysi: Skipinu beint til Hollands og ná árangri þar 13.03.2016

„23 leikmenn fengu að byrja leik hjá okkur á þessu móti. Ég held að það hafi tekist að láta alla fá stórt hlutverk í leikjunum. Það var fullt af mjög skemmtilegum og jákvæðum svörum og við erum komin með fína breidd," segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna. Freyr fór yfir Algarve-mótið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær en íslenska liðið landaði þar bronsi. Hægt er að hlusta...

Þeir sem eiga ekki að klikka í Pepsi-deildinni 12.03.2016

Í Fréttablaðinu í morgun birtist úttekt Tómasar Þórs Þórðarsonar og Óskars Ófeigs Jónssonar á þeim leikmönnum sem lið Pepsi-deildarinnar hafa fengið til sín.

Innkastið - Meistaradeildin og Liverpool - Man Utd 09.03.2016

Annað árið í röð sló PSG lið Chelsea úr leik í Meistaradeild Evrópu en franska stórliðið vann 2-1 sigur á Stamford Bridge í kvöld og samtals 4-2 sigur í einvíginu.

Landsliðshringborð - Hvernig er B-lið Íslands? 07.03.2016

Íslendingar halda áfram að telja niður í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Frakklandi í sumar, fyrsta stórmótið sem Ísland tekur þátt í.

Innkastið - Gríðarlega áhugavert kvöld í enska 02.03.2016

Það er mjög áhugavert kvöld framundan í ensku úrvalsdeildinni en Tottenham á möguleika á að komast á toppinn. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir leiki kvöldsins í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að ofan.

Innkastið - Kristján Finnboga: Langaði ekki að verða markvörður 02.11.2015

Kristján Finnbogason ákvað í síðustu viku að leggja skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril. 26 ár eru síðan Kristján spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik en síðan þá hefur hann orðið sjö sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari. Magnús Már Einarsson settist niður með Kristjáni og fór yfir feril hans.

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály