Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

7. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Innkastið - Guðjón Baldvins og indverska ævintýrið 08.03.2018

Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður Stjörnunnar, er nýkominn frá Indlandi þar sem hann var á lánssamningi hjá Kerala Blasters í indversku Ofurdeildinni. Guðjón lék þar undir stjórn David James og með leikmönnum á borð við Wes Brown og Dimitar Berbatov. Í þessum aukaþætti af Innkastinu ræðir Elvar Geir Magnússon við Guðjón um þetta óvænta ævintýri sem óhætt er að segja að hann hafi notið til botns.

Návígi - Óli Kristjáns 08.03.2018

Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH. Ólafur er mættur aftur í íslenska boltann eftir að hafa starfað í Danmörku undanfarin ár. Í viðtalinu eru ýmsar áhugaverðar pælingar varðandi fótboltann og farið...

Innkastið - Langt Innkast og enskt landsliðsval 06.03.2018

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz bjóða upp á lengsta Innkastið til þessa enda gósentíð í Evrópuboltanum. Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is er gestur. Flautumark Manchester United, Maggi frá Liverpool, Meistaradeildin, neikvæð umræða um Allegri utan vallar, Son í Suður-Kóreu, Arsenal endurtekningar, hreinskilni Gylfa, Balotelli horn og fleira!

Gulli Jóns um Návígi og umræðu um að lengja Íslandsmótið 03.03.2018

Gunnlaugur Jónsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Hann ræddi við Elvar og Tómas um hlaðvarpsþáttinn Návígi sem hefur slegið í gegn og um íslenska boltann. Er kominn tími til að lengja Íslandsmótið í fótbolta?

Björn Berg ræddi um peninga- og markaðsmál fótboltans 03.03.2018

Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson um fjármál og markaðssetningu í fótboltanum. Í fyrri hluta spjallsins var rætt um sjónvarpssamninga og peningaflæði enskra úrvalsdeildarfélaga. Í seinni hlutanum var rætt um hvað íslenska deildin getur lært af þeirri norsku.

Návígi - Óli Jó 01.03.2018

Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Ólafur Jóhannesson, þjálfari Íslandsmeistara Vals. Ólafur hefur átt skemmtilegan feril en hann er einn reyndasti fótboltaþjálfari Íslandssögunnar. Í viðtalinu er farið yfir ferilinn, sagðar skemm...

Innkastið - Liverpool gestur, Manchester ferð og Arsenal vesen 28.02.2018

Það var víða komið við í Innkasti vikunnar. Daníel Geir Moritz blaðraði sig í gegnum veikindi en hann og Elvar fengu til sín góðan gest, Martin Sindra Rosenthal sem er stuðningsmaður Liverpool. Fjallað var um vandræðaganginn hjá Arsenal sem steinlá fyrir Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins og ferð Elvars á leik Manchester United og Chelsea. Þá voru önnur tíðindi rædd og farið yfir tíu be...

Enska hringborðið - Þriðja fjórðungsuppgjör 24.02.2018

Þriðja fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar var við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðvini þáttarins. Kristján Atli Ragnarsson, talsmaður Liverpool á Íslandi, og Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is mættu í hljóðver. Farið var yfir stöðu mála og þeir Kristján og Tryggvi völdu sín úrvalslið eftir þriðja...

Návígi - Heimir Hallgríms 22.02.2018

Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er enginn annar en landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson. Í þættinum er farið yfir feril Heimis og leiðina í landsliðsþjálfarastólinn. Rætt er um starf hans hjá KSÍ og hvert hugur hans leitar efti...

Innkastið - Meistaradeildarstuð og bikarrómantík 21.02.2018

Innkast vikunnar er að þessu sinni á miðvikudagskvöldi þar sem fyrri leikir 16-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu eru að baki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir leikina og ræddu meðal annars leik Sevilla og Manchester United sem fram fór í kvöld.

Ítalska deildin sú eina með spennu í titilbaráttunni 17.02.2018

Af stærstu deildum Evrópu er ítalska deildin sú eina sem er með alvöru spennu í titilbaráttunni. Þar eru Napoli og Juventus að slást um titilinn. Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag.

Þórir Hákonar - Hvernig fáum við fleira fólk á vellina? 17.02.2018

ÍTF, hagsmunasamtök félaga í efstu tveimur deildum karla, hafa boðist til þess að sjá um markaðsmál fyrir Pepsi-deildina í sumar. Þetta kom fram í samtali við Þóri Hákonarson hjá ÍTF í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. KSÍ hefur ekki svarað beiðni ÍTF. Þórir mætti í þáttinn til að ræða um hvað þurfi að gera til að bæta aðsókn á Pepsi-deildina.

Magnús Þór um magnaða upplifun á leik Liverpool í Portúgal 17.02.2018

Magnús Þór Jónsson á kop.is hafði ekki farið á útileik hjá Liverpool í Evrópukeppni áður en hann ákvað að skella sér á leik Porto og Liverpool á dögunum. Elvar og Tómas heyrðu í Magnúsi í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Ási Haralds: Freysi og Óli að mörgu leyti ekki ólíkir 17.02.2018

Ásmundur Haraldsson er aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins og var í haust einnig ráðinn sem aðstoðarþjálfari Ólafs Kristjánssonar hjá FH. Ásmundur er á leið til Algarve ásamt kvennalandsliðinu en hann mun stýra lokaleik Íslands á mótinu þar sem Freyr Alexandersson verður á þjálfaranámskeiði hjá UEFA.

Návígi - Heimir Guðjóns II 16.02.2018

Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Þetta er seinni hluti viðtals Gulla við Heimi Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum. Í seinni hlutanum er fjallað um tíma Heimis sem aðalþjálfari FH og hæðir og lægðir á þeim kafla. Rætt er um brottrekstur hans frá FH og lauslega um...

Návígi - Heimir Guðjóns I 15.02.2018

Návígi er nýr hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net en umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Fyrsti viðmælandi Gulla er Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum. Viðtalið er í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er rætt um nýtt verkefni í Færeyjum, leikmannaferil Heimis og fyrstu skrefin í þjálfun.

Innkastið - Hitnar í kolum og Conte á förum 12.02.2018

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu góðan gest í Innkasti vikunnar. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, fór yfir öll helstu málin tengd félaginu. Er Conte vinsæll hjá stuðningsmönnum og hvenær yfirgefur hann félagið? Getur Chelsea slegið út Barcelona í Meistaradeildinni? Myndi Jóhann skipta út Eden Hazard fyrir Kevin De Bruyne í dag? Einnig voru aðrir leikir helgarinnar skoða...

Halli Björns mætti í stórskemmtilegt spjall 11.02.2018

Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, er einn skemmtilegasti viðmælandinn í íslenskum fótbolta. Hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um boltann, Stjörnuna, gervigras og fleira. Þá var spjallað um hans gömlu félaga í Östersund í Svíþjóð sem eru að fara að mæta Arsenal í Evrópudeildinni næsta fimmtudag.

Fyrrum enskur landsliðsmaður ræðir um Guðjón og indverska boltann 11.02.2018

Russell Osman lék á sínum tíma ellefu landsleiki fyrir England en þessi fyrrum leikmaður Ipswich, Leicester og Southampton starfar nú sem sparkspekingur í indverska sjónvarpinu. Þar fjallar hann um indversku Ofurdeildina og allt sem að henni snýr. Rætt var við Osman í útvarpsþættinum F&o...

Frábær Fjölnisvika gerð upp 10.02.2018

Fjölnismenn urðu Reykjavíkurmeistarar í fótbolta í vikunni þegar þeir unnu sigur á Fylki í úrslitaleik. Þá endurheimti félagið Bergsvein Ólafsson og Guðmund Karl Guðmundsson sem eiga vafalítið eftir að styrkja hóp þeirra vel. Elvar Geir, Tómas Þ&oacu...

Boltaspjall - Hvar er peningunum best varið í íslenskum fótbolta? 10.02.2018

Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson spjölluðu um íslenskan fótbolta í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Rætt var um Lengjubikarinn, hvernig má bæta undirbúningstímabilið og hvernig er peningunum b...

Innkastið - Spurs gestur og Liverpool drama 05.02.2018

Enski boltinn er helsta umræðuefnið í Evrópu-Innkastinu. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir helstu tíðindin og leiki úrvalsdeildarinnar. Jóhann Ólafsson, fréttamaður mbl.is og stuðningsmaður Tottenham, er gestur vikunnar.

Ítalski boltinn - Napoli 05.02.2018

Eftir hlé er Björn Már Ólafsson mættur aftur með podcast þættina um ítalska boltann sem slógu í gegn á síðasta tímabili.

Rasmus ræddi um samkeppnina í Val og lífið á Íslandi 04.02.2018

Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þessi geðþekki leikmaður varð Íslandsmeistari með Val í fyrra. Hann ræddi við Elvar og Tómas um samkeppnina í Valsliðinu og lífið innan sem utan vallar.

Gunnar Jarl og bransasögur úr dómgæslunni 04.02.2018

Gunnar Jarl Jónsson kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og spjallaði við Elvar og Tómas. Gunnar hefur ákveðið að leggja flautuna á hilluna og telur líklegra en ekki að hún muni verða þar áfram. Hann hefur verið einn allra besti dómari Íslands um margra ára skeið.

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály