RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.ruv.is
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Ábyrgð og skyldur ríkja í loftslagsmálum 04.08.2026 9:55
Ár er liðið frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag birti ráðgefandi álit á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga. Eftir mikla gagnarýni og langan málflutning komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að loftslagsmál hefðu áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum, og að öllum ríkjum bæri því skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lö...
Minkasleppingar - dýravernd eða skemmdarverk? 31.07.2026 9:39
Íslenskar löggæslustofnanir á láði og legi hafa haft í nógu að snúast síðustu sólarhringa vegna aðgerða sem tengjast umdeildu dýrahaldi og dýraveiðum. Hér er vísað til innbrots óþekktra aðila í síðasta minkabú landsins annars vegar, Dalsbú í Mosfellsdal, og aðgerðir félaga í Paul Watson-samtökunum gegn hvalveiðiskipum Hvals hf. hins vegar. Rétt er að undirstrika að ekki er vitað hver það eru sem b...
Baráttan um boltann - FIFA og EUFA takast á 30.07.2026 10:20
Þetta er Spegillinn. Umsjónarmaður er Ævar Örn Jósepsson. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins ætla að sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta sambandsins um að selja 20 prósenta hlut í mótinu ná fram að ganga. Þetta var samþykkt á neyðarfundi evrópska sambandsins í dag. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að andrúmsloftið á fundinum hafi verið baneitrað,...
Minkar á Íslandi - lausir og villtir 29.07.2026 10:00
Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar. Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri el...
Minkar á Íslandi - lausir og villtir 29.07.2026 9:56
Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar. Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri el...
Stéttarfélög og ESB 28.07.2026 10:14
Síðast þegar íslensk stjórnvöld sóttust eftir inngöngu í Evrópusambandið var drjúgur meirihluti innan Alþýðusambands Íslands hlynntur þeirri vegferð. Sú afstaða kom meðal annars fram í ræðum, ályktunum og samþykktum á þingum ASÍ, og það ítrekað. En hvernig er þetta í dag? Hólmfríður María Ragnhildardóttir kannar málið og ræðir við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tækn...

Sprenging í net- og símaglæpum 27.07.2026 9:44
Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel. Raktar eru sláa...
Kjarnorkusamningar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu 23.07.2026 10:12
Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu í gærkvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál, um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirliti með henni Samningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð...
Sýrland í dag 22.07.2026 10:21
Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag? Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu Ma...
Mannfall og mannekla í Úkraínustríðinu 21.07.2026 10:04
Fjórum árum og fimm mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur stríðið milli landanna breyst mikið. Drónar hafa að miklu leyti tekið við af hermönnum í fremstu víglínu, en það breytir því þó ekki að mannfall er enn mikið í báðum herjum. Þá hefur mannfall líka stóraukist í röðum almennra borgara, beggja vegna landamæranna. Ein afleiðing þessa er sú að æ erfiðara verður að manna herina og he...
Valdaskipti í Bretlandi 20.07.2026 10:04
Húsbóndaskipti urðu í bústað breska forsætisráðherrans að Downingstræti 10 í Lundúnum í dag, þegar Keir Starmer flutti þaðan og Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins flutti þar inn. Bretar eru á meðal okkar næstu nágranna og helstu bandalags- og viðskiptaríkja, og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um þessi valdaskipti, ef það er rétta or...
Fiskveiðistefna ESB - annar hluti 17.07.2026 9:59
Hvað felst í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og er hægt að fá varanlegar undanþágur frá henni? Um þetta er tekist á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir engan vafa leika á því að mögulegt sé að semja um ýmsar undanþágur og sérlausnir, þótt það verði ekki endi...
Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB 16.07.2026 10:02
Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjó...
Bílabólgan mikla - bílar stækka og stækka 15.07.2026 10:14
Bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi. Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og hvorutveggja bre...
Stríð Bandaríkjanna og Írans II 14.07.2026 10:06
Það sem átti að verða stríð til að steypa klerkastjórninni í Íran hefur að talsverðu leyti þróast út í stríð um þá mikilvægu siglingaleið, Hormússund, sem bæði ríki vilja stjórna allri umferð um og jafnvel rukka fyrir - eða ekki. Annar ásteytingarsteinn, sem nauðsynlegt er að ryðja úr vegi ef nokkur von á að vera um eitthvað í líkingu við varanlegan frið, er árásarstríð Ísraela á Líbanon. Íranar l...
Stríð Bandaríkjanna og Írans 13.07.2026 10:14
Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af jaf...
Þúsund manns krefjast skaðabóta af Samherja 09.07.2026 14:58
Alþjóðasamtökin Transparency International afhentu héraðssaksóknara í dag skaðabótakröfur ríflega eitt þúsund Namibíumanna sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna meintra mútubrota og spillingar Samherja í Namibíu. Transparency samtökin hafa lengi hafi barist fyrir því að fórnarlömb spillingar í alþjóðaviðskiptum fái áheyrn og skaða sinn metinn. Samherjamálið hafi haft alvarlegar afleiðingar í...

Nigel Farage boðar til kosninga 08.07.2026 9:59
Nigel Farage, formaður breska Umbótaflokksins, sem kosinn var á þing fyrir tveimur árum, sagði í gær af sér þingmennsku og tilkynnti um leið að hann hygðist bjóða sig fram í aukakosningunum sem afsögn hans kallar á. Næsta öruggt má heita að hann fari með sigur af hólmi, enda ætla aðrir helstu flokkar landsins að sniðganga kosningarnar, sem þeir segja ódýrt auglýsingatrix hjá Farage, til þess ætlað...

Kynningarefni Landskjörstjórnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og íslenskir kafbátar 07.07.2026 10:10
Landskjörstjórn er falið að sjá um kynningarefni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar síðsumars. Hún þarf að gæta hlutleysis og ekki er hægt að gefa afdráttarlaus svör við öllum spurningum sem vakna en það er mikilvægt að fólk taki ígrundaða afstöðu og kynni sér málin að mati Ástríðar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Íslenska fyrirtækið Teledyne Gavia, sem eitt sinn hét Hafmyn...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали