Podcaststöðin
Mótorvarpið
Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum og fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: podcasters.spotify.com
Автор
Podcaststöðin
Категорія
Сайт подкасту
Останній епізод
23 вер 2026
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
#19 Konur í Mótorsporti 04.03.2020 1:03:09
Bragi fékk til sín þrjár eðal konur sem allar hafa gert það gott í Mótorsporti á einn eða annan hátt. Þær Ásta Sigurðardóttir, Eva Arnet og Hanna Rún Ragnarsdóttir tala um hvernig hægt sé að auka áhuga kvenfólks á akstursíþróttum.
#18 Sögustund - Hjörtur og Ísak 28.02.2020 1:59:47
Rallkapparnir Hjörtur Pálmi Jónsson og Ísak Guðjónsson fara yfir litríkan feril sinn á svokölluðu gullaldartímabili ralls á Íslandi.
#17 Torfæra - Guðbjörn Grímsson 26.02.2020 1:16:56
Bragi fékk til sín í spjall Íslandsmeistarann í torfæru frá árinu 1987, Guðbjörn Grímsson. Bubbi hefur unnið hörðum höndum bakvið tjöldin í torfærunni bæði á Íslandi og erlendis.
#16 Sögustund - Árni Kópsson 20.02.2020 1:28:21
Bragi fékk hinn eina sanna Árna Kópsson torfærukappa í spjall. Árna þarf ekki að kynna fyrir áhugafólki um mótorsport, hann vann þrjá Íslandsmeistaratitla í röð á tímabili sem torfæran var ein vinsælasta íþrótt þjóðarinnar.
#15 Torfæra - Þór Þormar Pálsson 13.02.2020 1:06:09
Bragi fékk ríkjandi Íslandsmeistara í sérútbúna flokknum í torfæru í spjall. Bragi og Þór Þormar fara yfir síðasta tímabil og spá í spilin fyrir sumarip 2020.
#14 Sögustund - Páll Halldór og Jóhannes (JóPal) 09.02.2020 1:51:26
Bragi fær til sín Íslandsmeistarana í ralli frá árinu 1998 í spjall. Í þættinu ræða þeir Páll og Jóhannes um gullaldartímabilið svokallaða í rallinu í kringum aldamótin og margt fleira.
#13 Formúla 1 - Kristján Einar Kristjánsson 31.01.2020 1:12:48
Bragi og Kristján fara yfir 2019 tímabilið í Formúlu 1 og rýna í hvað gæti gerst árið 2020.
#12 WRC hringborðið - Monte Carlo 26.01.2020 1:15:24
Bragi setti saman draumalið WRC áhugamanna á Íslandi. Rallkapparnir Borgar Ólafsson, Magnús Ragnarsson og Hlöðver Baldursson tala um fyrstu umferð heimsmeistarakeppninnar í ralli sem fram fór helgina 23. til 26. Janúar.
#11 Torfæra - Magnús Sigurðsson 22.01.2020 1:32:15
Bragi spjallar við Magnús Sigurðsson torfærukappa sem er á leið til keppni í Kaliforníu. Magnús ræðir gaumgæfilega um hugmyndavinnuna á bakvið torfærubílnum Kubb ásamt King of the Hammers keppninni sem fer fram í byrjun febrúar.
#10 Rallý - Baldur Arnar og Heimir Snær 20.09.2019 1:03:18
Bragi talar við nýkrínda Íslandsmeistara í ralli þá Baldur Arnar Hlöðversson og Heimi Snæ Jónsson. Þeir félagar spajlla um rallið gera upp sumarið auk þess að hita upp fyrir bikarmót í rallýcrossi.
#9 Torfæra - Jakob Cecil Hafsteinsson 23.08.2019 1:06:24
Jakob þarf varla að kynna fyrir torfæruáhugamönnum. Hann hefur verið að mynda sportið síðastliðin 15 ár og er Youtube rás hans komin með yfir 12 þúsund fylgjendur. Bragi og Jakob fara yfir tímabilið í torfærunni en síðasta umferð Íslandsmótsins fór fram um helgina.
#8 Formúla 1 - Kristján Einar Kristjánsson 15.08.2019 1:08:49
Bragi talar við Formúlu sérfræðing landsins, Kristján Einar Kristjánsson um allt sem við kemur F1. Einnig tala þeir félagarnir um torfæruna en lokaumferð Íslandsmótsins fer fram á Akureyri um helgina.
#7 Brautarakstur - Hilmar Jacobsen og Ingimundur Helgason 02.08.2019 55:47
Bragi ræðir við þá Hilmar og Ingimund sem keppa undir merkjum Crazy Racing í brautarakstri og kvartmílu. Eurol þolaksturskeppnin er gerð upp og almennt spjallað um brautarakstur.
#6 Drift - Anton Örn Árnason og Birgir Sigurðsson 11.07.2019 1:07:02
Bragi spjallar við Birgi og Anton úr Be Sick Racing en þeir félagar enduðu í fyrsta og öðru sæti í þriðju umferð Íslandsmótsins í Drifti. Í þættinum ræða þeir um Driftið ásamt torfæru þar sem Birgir keppti í henni á síðasta ári.
#5 Rallý og Torfæra - Heimir Snær Jónsson og Haukur Viðar Einarsson 26.06.2019 1:01:12
Bragi hitar upp fyrir Mótorsport viðburði helgarinnar með Heimi rallara og Hauki torfærukalli. Báðir leiða þeir Íslandsmótið í sínum greinum fyrir keppnir helgarinnar. Rætt er um Hamingjurallið á Hólmavík og Blönduóstorfæruna.
#4 Torfæra - Þór Þormar Pálsson 18.06.2019 1:08:55
Bragi spjallar við ríkjandi Íslandsmeistara í torfæruakstri, Þór Þormar Pálsson. Þeir félagar fara yfir KFC torfæruna sem fór fram á Bíladögum á Akureyri ásamt því að tala bara almennt um íslensku torfæruna. Þór rekur svo feril sinn sem byrjaði árið 1994.
#3 Rallýcross og Rallý - Vikar Sigurjónsson og Birgir Kristjánsson 06.06.2019 1:12:36
Bragi fær Rallýcross kappana Vikar og Birgi í spjall. Vikar keppir einnig í rallakstri og í þættinum gera þeir upp fyrstu umferð Íslandsmótsins í Ralli og hita upp fyrir aðra umferðina í Rallýcrossi. Einnig er rætt um torfæru þar sem Birgir er í Team Thor torfæruliðinu.
#2 Torfæra - Bessi Theodórsson 02.06.2019 1:09:25
Bragi ræðir við Bessa, sem þekktur er sem kynnir á torfærukeppnum. Í þættinum ræða þeir um allt tengd íslensku torfærunni, gera upp fyrstu tvær keppnir ársins og spá fyrir um úrslit í mótinu.
#1 Rallý - Baldur Arnar Hlöðversson og Ragnar Bjarni Gröndal 20.05.2019 1:04:18
Ragnar Bjarni Gröndal er ríkjandi Íslandsmeistari í ralli og Baldur Arnar Hlöðversson endaði þriðji í mótinu í fyrra. Í þættinum ræðum við um allt tengt rallakstri ásamt því að hita upp fyrir Orkurallið, fyrstu keppni Íslandsmótsins sem fer fram helgina 31. maí til 1. júní á Suðurnesjum.
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали