HeilsuErla
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.heilsuerla.is
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Sníðum okkur stakk eftir vexti (Heilsumoli 29) 20.10.2025 8:18
Hugleiðingar HeiluErlu á mánudagsmorgni! Ert þú að gera of miklar kröfur til þín? Ert þú að brjóta þig niður þegar allt fer ekki eins og þig langar? Hvaða boltum ert þú að halda á lofti? Er hægt að leggja einhverja til hliðar tímabundið? Ert þú að sýna þér mildi? Ert þú að stefna á ,,vegginn"? Hvað nærir þig? Hvað hentar þér akkúrat núna? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
98. Settu athyglina á gnægð en ekki skort. (Þakklæti, núvitund, náttúran, hamingja og bjargráð). Erla Súsanna Þórisdóttir 11.10.2025 1:34:58
Í þættinum ræðir Erla við nöfnu sína Erlu Súsönnu Þórisdóttur og þakklætisdrottningu. Erla Súsanna er með heimasíðuna Töfrakistan og gaf fyrir nokkrum árum út Þakklætisdagbókina, sem er verkfæri sem getur hjálpað þér að innleiða hugarfar þakklætis inn í daglegt líf. Erla er að eigin sögn fróðleiksfús manneskja, jarðbundin en líka fiðrildi, lífsglöð og jákvæð. Henni þykir gaman að grúska í og skoð...
HEILSUÁSKORUN (Heilsumoli 27) 04.10.2025 4:08
Hvernig væri að breyta gömlum venjum sem eru ekki að gagnast þér lengur? Þessi áskorun snýst um að velja sér EITT atriði sem mun hafa jákvæð áhrif á heilsu þína og gera það daglega eða vikulega (fer eftir þínu markmiði) fram til 1.janúar 2026. Þú getur annað hvort bætt einhverju góðu inn í líf þitt eða tekið út eitthvað sem er að hafa neikvæð áhrif á heilsuna. Þetta getur t.d verið að bæta inn d...
Ungbarnasund Erlu (Heilsumoli 28) 04.10.2025 12:42
Í þessum heilsumola fer Erla yfir praktísk atriði fyrir alla sem hafa áhuga á því að koma á námskeið hjá Ungbarnasundi Erlu í Suðurbæjarlaug. Ungbarnasund hefur gífurlega jákvæð áhrif á heilsu barna, líkamlega, andlega og félagslega. Ungbarnasund örvar hreyfiþroska barna og styrk, stuðlar að betri svefni og matarlyst, örvar skynfæri barnsins og hækkar streituþröskuld. Einnig styrkir ungbarnasund...
97. Sálfélagslegt öryggi og heilsa. (Vinnustaðamenning, heilsumissir og innri vöxtur). Harpa Þrastardóttir 27.09.2025 57:40
Í þessum þætti ræðir Erla við Hörpu Þrastardóttur, hugrakka stelpukonu um erfiða lífsreynslu sem varð til þess að hún missti heilsuna. Hún hefur nýtt þessa reynslu og aukna þekkingu til innri vaxtar og til þess að fræða og valdefla aðra. Hún stofnaði í kjölfarið Kjarkur ráðgjöf sem býður upp á alhliða ráðgjöf og fræðslu á sviði vinnuverndar svo sem mannauðsmála, stjórnunar, EKKO mála, gæðamála, u...
Núllstilling -8 mínútur. Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 26) 19.09.2025 7:59
Laufey Haraldsdóttir eigandi Virkja færir hlustendum hlaðvarpsins þessa dásamlegu gjöf. Hún leiðir okkur í gegnum 8 mínútna núllstillingu en æfinguna getur þú hlustað á hvar og hvenær sem er þegar þér hentar. Tilvalið til þess að hægja á í amstri dagsins, minnka streitu og kyrra hugann. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Hvað er Virkja og hvernig getur markþjálfun hjálpað þér að vaxa? (Heilsumoli 25) 19.09.2025 32:09
Í þessum heilsumola ræða Erla og Laufey um Virkja og hvernig markþjálfun hefur hjálpað þeim að vaxa. Virkja er einn af dyggu samstarfsaðilum hlaðvarpsins og ég get ekki mælt meira með náminu hjá þeim en eins og þið heyrið í spjallinu þá hefur það gefið mér mjög mikið. Hægt er að bóka fría 20 mínútna námskynningu á virkja.is <3 Kíktu á Virkja á Instagram Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
96. Við erum bara mannleg. (Heildræn heilsa, þakklæti, taugakerfið, vöðvauppbygging og frelsi). Arnaldur Birgir Konráðsson 13.09.2025 1:34:03
Í þættinum ræðir Erla við Arnald Birgi Konráðsson sem er þjálfari og heilsuáhrifavaldur með yfir 20 ára reynslu. Hann hefur þjálfað bæði almenning og afreksfólk og er þekktur undir ýmsum nöfnum, m.a. Coach Birgir , Birgir Þjálfun og Biggi Bootcamp. Þau ræða um heildræna heilsu, þakklæti, taugakerfið, vöðvauppbyggingu á gamals aldri, hreyfingu, svefn, næringu, muninn á Íslendingum og Dönum og margt...
95. Hvatberaheilsa. (Vannæring, PCOS, næringarráðleggingar, faraldsfræði, efnaskipti og fræolíur). Ragnheiður Vernharðsdóttir 30.08.2025 2:27:34
Í þættinum ræðir Erla við Ragnheiði Vernharðsdóttur, sérnámslækni í augnlækningum og fjögurra barna móður sem er nýlega flutt heim til Íslands eftir nám í Noregi. Ragnheiður brennur fyrir bætta heilsu og vellíðan, bæði hjá sjálfri sér og öðrum og hefur í raun prófað allt milli himins og jarðar til að bæta heilsu sína. Til dæmis ólíkar tegundir mataræðis eins og vegan, grænmetisfæði og keto, fjölb...
94. Aldrei gefast upp. (Seigla, þolinmæði og óbilandi viljastyrkur 15 ára drengs). Magnús Máni Magnússon 16.08.2025 29:15
Í þættinum ræðir Erla við Magnús Mána Magnússon sem er aðeins 15 ára en hefur þegar sýnt meiri seiglu, þolinmæði og viljastyrk en margir upplifa á langri ævi. Sumarið 2023 breyttist líf Magnúsar á örfáum dögum. Eftir stutt veikindi missti hann mátt og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og olli alvarlegri bólgu sem lamaði hann. Síðastliðin 2 ár hefur h...
93. Að týnast í myrkrinu. (Andleg heilsa, áskoranir, sjósund og seigla). Sigurgeir Svanbergsson 02.08.2025 1:20:28
Í þættinum ræðir Erla við Sigurgeir Svanbergsson , íslenskan sjósundskappa sem lét ekki veðrið, öldurnar né marglyttur stoppa sig þegar hann lagði upp í eitt stærsta sundævintýri sem hægt er að ímynda sér, að synda yfir Ermasundið. Markmið hans var ekki aðeins að takast á við þessa gríðarlegu áskorun heldur einnig að vekja athygli og safna áheitum fyrir Píeta samtökin, sem vinna ómetanlegt starf í...
92. Frjósemi og heilsa. (Mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur, offita, úrræði og hlutverk lífsstíls). Snorri Einarsson 26.07.2025 1:32:40
Í þættinum ræðir Erla við Snorra Einarsson sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum um áhrif lífsstíls á frjósemi, mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur og hvaða úrræði eru í boði. Snorri hefur starfað við ófrjósemislækningar frá 2006 og er framkvæmdastjóri, yfirlæknir og einn af stofnendum Livio Reykjavík. Í frítímanum er það fjölskyldan og börnin fjögur sem skipa stærstan s...
91. Turning obsession into purpose. (Mental health, OCD, passion and healing). Matt Moreman 12.07.2025 1:23:49
In this first English speaking episode Erla´s guest is Matt Moreman, the creator of the hugely popular YouTube channel “ Obsessed Garage .” With over half a million followers, Matt has built a loyal audience by sharing his deep passion for quality, detail, and all things garage-related. But behind the videos is a personal story. Matt was diagnosed with OCD, and what started as a personal struggle...
90. Hvað er fjórða vaktin? (Foreldrakulnun, hindranir í kerfinu og úrræði). Lóa Farestveit Ólafsdóttir og Sara Rós Kristinsdóttir 28.06.2025 1:38:55
Í þætti vikunnar komu til Erlu í afar áhugavert spjall þær Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir til að ræða um fjórðu vaktina, foreldrakulnun, hindranir í kerfinu, podcastið 4.vaktina og margt fleira. En hvað er fjórða vaktin? Þriðja vaktin hefur fengið töluverða umræðu síðustu ár og er þar verið að vitna í það huglæga sem fólk þarf að sinna umfram daglega vinnu. Fyrir foreldra fa...
89. Ertu að hella upp á gleði eða sorg? (Öryggi, tengslamyndun, tengslarof, taugakerfið, uppeldi og sjálfsvinna). Angelía Fjóla Vilhjálmsdóttir 14.06.2025 1:49:15
Í þættinum ræðir Erla við Angelíu Fjólu Vilhjálmsdóttur um öryggi, tengslamyndun, tengslarof, tilfinningar, viðbrögð taugakerfisins, ég og þú boð, uppeldi, bjargráð, mikilvægi þess að tilheyra og sjálfsvinnu. En þetta eru allt þættir sem hafa mikil áhrif á heilsu okkar. Angelía Fjóla segir á einlægan hátt sögu sína sem er átakanleg og mótaði hana mikið. Hún segir að lífsreynslan hafa skilið eftir...
Núvitund- 4 mínútna hleðsla (Heilsumoli 24) 10.06.2025 4:09
Þú getur nýtt þér þessa örstuttu núvitundaræfingu þegar þú átt erfitt með að einbeita þér eða þarft aðeins að taka þér hugrænt hlé og ,,hlaða batteríiin þín". Núvitund er hugtak sem lýsir þeirri athygli sem við beinum viljandi að því sem er að gerast hér og nú, á hlutlausan og opinn hátt. Núvitund felur í sér að: Vera í meðvitund Veita athygli t.d. öndun, líkamshlutum, hugsunum eða tilfinning...
88. Þegar áskoranir verða innblástur. (Nýtt líf eftir veikindi, nýsköpun, næring sem boðefni, magasýrur, insúlínviðnám og óþol). Beta Reynis 31.05.2025 1:56:03
Í þættinum ræðir Erla við Betu Reynis næringarfræðing, næringarþerapista og frumkvöðul um magnaða lífreynslu þegar hún greindist með taugasjúkdóminn Guillain–Barré og lamaðist en náði að vinna sig upp úr heilsuleysinu með hugarfari og lífstíl. Þær stöllur ræða um næringu almennt og ýmsar næringarráðleggingar varðandi t.d. blóðsykur, magasýrur, fræolíur, soja prótein, eplaedik, bætiefni og steinef...
Astaxanthin. (Heilsumoli 23) 29.05.2025 6:39
Heilsuvara mánaðarins hjá HeilsuErlu og Heilsuhillunni er Astaxanthin. Astaxantín er öflugt andoxunarefni sem er aðallega unnið úr örþörungum (Haematococcus pluvialis) og gefur t.d. laxi, rækjum og flamingófuglum bleikarauðan litinn. Það er gagnlegt af nokkrum ástæðum en Astaxanthin hefur verið mikið rannsakað og er talið meðal annars: •styðja við húðheilsu – bæði gegn sólarskemmdum og öldrun húð...
Heimur geðlæknisins, Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 20) 17.05.2025 27:11
Í fyrsta viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heim geðlæknisins og geðlæknisfræðina. Hvernig starfar geðlæknir og hefur starfið breyst mikið? Eru tengsl á milli þarmaflóru og geðheilsu? Hver er helsti misskilningurinn um geðsjúkdóma? ofl Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran . Dásamlegur veitingastaður staðsettur í...
Forvarnir í geðheilsu. Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 21) 17.05.2025 26:19
Í öðru viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um forvarnir í geðheilsu. Hverjar eru helstu forvarnir í geðheilsu og eru þær árangursríkar? Afhverju er aukning í streitu og kulnun? Hvaða áhrif lífsstíll og kröfurnar í nútímasamfélagi? ofl Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran . Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðhei...
Heilsumissir í kjölfar áfalla. Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 22) 17.05.2025 30:42
Í þriðja viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heilsumissi í kjölfar áfalla. Hvernig hafa áföll áhrif á heilsu okkar? Hvað er að gerast í heilanum? Hvað er að gerast í líkamanum? Geta áföll setið í taugakerfinu? Er hægt að ná bata? Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran . Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheim...
Sagan og maðurinn á bakvið Spíruna. (Heilsumoli 19) 15.05.2025 26:38
Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Næsti samstarfsaðili sem ég kynni til leiks er Spíran. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara! Spíran er dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum við Álfabakka 6 í Reykjavík. Hann er fjölskylduvænn bistró-staður sem legg...
Gagnsemi kísils og GeoSilica. (Heilsumoli 18) 10.05.2025 17:57
Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Fyrst í spjall til mín var Steinunn Ósk Valsdóttir, markaðsstjóri Geo Silica sem er nýjasti samstarfsaðilinn. Steinunn segir okkur frá fyrirtækinu og gagnsemi kísils en GeoSilica® framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku, sem hjálpa til við endurnýjun líkamans frá toppi...
87. Töfrarnir í hinu óformlega. (Lýðskólar, innri vöxtur, heilsumissir, flæði og valdefling). Margrét Gauja Magnúsdóttir 03.05.2025 1:21:26
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Margréti Gauju Magnúsdóttur sem er að eigin sögn orkusprengja með mjög litríka og skrautlega ferilskrá. Hún starfar nú sem skólastjóri Lýðskólans á Flateyri og brennur fyrir óformlega menntakerfinu, úrræðum og velferð ungmenna. Við ræddum um lýðskóla, þar sem nemendur koma í skólann af innri áhuga og forvitni, fá hrós, hvatningu og stuðning. Engar einkunnir og ekker...
86. Meðvirkni og heilsa. (Birtingarmyndir og áhrif, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD, hugleiðsla og heilsumissir). Valdimar Þór Svavarsson 19.04.2025 1:51:22
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Valdimar Þór Svavarsson um meðvirkni og þau áhrif hún getur haft á líf okkar og heilsu. Meðvirknin er lævíst og lamandi fyrirbæri sem snertir fleiri en flesta grunar. Þau ræða um hvað meðvirkni er, hvernig hún þróast og hvernig hún getur birst í lífi okkar en einnig um heilsumissi Valdimars eftir að hann var bitinn af skógarmítli, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали