uk

Karfan

Karfan

Sports IS ↓ Епізодів: 686

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.karfan.is

Автор

Karfan

Категорія

Sports

Сайт подкасту

www.karfan.is

Останній епізод

29 вер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

The Uncoachables: The Road Trip to Síkið 25.05.2025

Helgi and David take their equipment on the road as they drive to Sauðárkrókur for Game 5 of the men's Icelandic Championship (the final deciding game) between Tindastóll and Stjarnan.  We discuss the playoffs up until now, how the women's Icelandic Championship ended (also a deciding Game 5) and some gossip and news from around the leagues. Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell...

Aukasendingin: KR stakk undan Keflavík, slúður og allt undir í Síkinu 19.05.2025

Aukasendingin kom saman með þjálfaranum Guðmundi Inga Skúlasyni og tónlistarmanninum og körfuknattleiksspekingnum Jóni Frímanns til þess að ræða fréttir vikunnar, slúður og úrslitaeinvígi Tindastóls og Stjörnunnar. Þá er farið yfir einhverja topp fimm lista í upptökunni, meðal annars hverjir séu bestir í að lýsa leikjum í sjónvarpi. Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus...

Sjötti maðurinn: Skapmiklir Skagfirðingar, oddaleikir og Bónus spjallið logar 13.05.2025

Sjötti maðurinn mættur aftur og fullskipaðir! Farið var ítarlega yfir seríu Tindastóls og Stjörnunnar. Rætt um bonus spjallið og Grísku bræðurna, sömuleiðis "gömlu" kallana í Stjörnunni og Silfurskeiðina. Einnig var tekin umræða um úrslitaeinvígið kvenna megin en sú sería er hrikalega spennandi. Sömuleiðis ræddum við oddaleik Ármanns og Hamars þar sem Ármenningar tryggðu sig upp í deild...

Aukasendingin: Stólarnir í þremur, Hörður hættur og orðið á götunni 06.05.2025

Aukasendingin fékk til sín Mumma Jones og Árna Jóhanns til að ræða undanúrslit og úrslit Bónus deildar karla/kvenna, fréttir vikunnar, nýja reglu um erlenda leikmenn, orðið á götunni, vandræði Keflavíkur, tónlist á leikjum og margt fleira. Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lyk...

Sjötti maðurinn: Svakalegir Stólar, Grindvíska geðveikin og orðið á götunni 04.05.2025

Sjötti maðurinn loksins mættur aftur eftir alltof langa pásu. Púlsinn tekinn á úrslitakeppninni karlamegin og sömuleiðis farið yfir úrslitaeinvígi kvenna. Fyrsta deildin tekin í nefið, bæði karla og kvenna.  Nokkrir fastir liðir, hvaða þjálfarar geta tekið næsta stökk? ...og hvaða leikmenn eiga nýliðarnir að leita í? Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson...

The Uncoachables: Semi-finals in full swing 26.04.2025

Helgi, David and Jeanne are back now that the semi-finals are on their way. We discuss the quarterfinals and interesting results as well as going over the lower divisions. Predictions have been made and we've already gotten some stuff wrong! Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat The Uncoachables is brought to you by Lykill, Bónus, Kristall and Lengjan. Samstarfsa...

Sjötti maðurinn x Hrafn Kristjánsson: King of the court, undanúrslitin ráðin og ná Króksararnir að landa þeim stóra? 16.04.2025

Sjötti maðurinn x Hrafn Kristjánsson: King of the court, undanúrslitin ráðin og ná Króksararnir að landa þeim stóra? Sjötti maðurinn mættur aftur eftir alltof langa hvíld og fékk til sín þungavigtargest en í þetta skiptið var það Hrafn Kristjánsson þjálfari Breiðabliks. Ferillinn var ræddur, bæði leikmanns og þjálfara. Farið yfir ýmis atvik á ferlinum og sömuleiðis rætt undanfarin ár í þjálfun.  E...

Sjötti maðurinn X Georgi Tsonev: Playoffs byrjað, óvænt úrslit og hver tekur þann stóra? 08.04.2025

Sjötti maðurinn var ekki fullmannaður og þá kemur maður i manns stað. Í þetta skiptið kom Georgi Tsonev, mikill vinur þáttarins. Farið var vel yfir úrslitakeppnina bæði í efstu deild og í þeirri fyrstu. Þrír góðir liðir og bara stuð og stemmari! Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lyki...

The Uncoachables: Playoffs, Here We Come! 31.03.2025

Helgi, David and Jeanne meet up just when the regular seasons are done and the playoffs are approaching! We begin by going over the national teams that the Iceland men's NT will be in a group with in Eurobasket next August. Everyone get tickets!  We then discuss the newly finished Icelandic Basketball Federation biannual basketball summit and the rule changes. Regular season awards are review...

Sjötti maðurinn: Verðlaunaafhending, playoffs að byrja og landsbyggðarhetjur að kveðja leikinn 29.03.2025

Sjötti maðurinn tók upp uppgjörsþátt Bónus deildar karla og fékk til sín góðan gest hann Árna Gunnar fyrirliða Stjörnunar b. Allskonar verðlaun og skemmtilegt ívaf í mörgum flokkum, einnig úrvalslið íslendinga og erlendra leikmanna. Þá var spáð í spilin varðandi úrslitakeppnina í efstu deildum karla- og kvenna sem og í fyrstu deild karla. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ö...

Aukasendingin: Mummi og Máté ræða lokaumferðina í Bónus, VÍS bikarvikuna og hverjir græða mest á hertum reglum 25.03.2025

Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Máté Dalmay og Mumma Jones í heimsókn til að fara yfir sviðið.  Ræddar eru fréttir vikunnar, lokaumferðin í Bónus deild karla, VÍS bikarvikan, hræðilegt ástand Keflavíkur og Þorlákshafnar, brotthvarf Evans úr Njarðvík, styrk Vals og margt fleira. Þá fer Mummi yfir hvaða fimm íslensku leikmenn eiga eftir að græða mest á hertum reglum um erlenda leikmenn í d...

Sjötti maðurinn X Maté Dalmay X FrikkiBeast: Dramatík í fyrstu, VÍS bikarvikan og körfuknattleiksþingið 18.03.2025

Sjötti maðurinn var á sínum stað þessa vikuna en í þetta skiptið með tvo rándýra gesti innanborðs í Máté Dalmay og Frikka Beast. Að vanda var farið yfir Bónus Karla en einnig snert mikið á allskonar málefnum úr liðinni viku. Þingið rætt, bikarinn ræddur og dramatíkin í 1. deildinni rædd. Maté með lið og að sjálfsögðu þekktir liðir á sínum stað.  Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnas...

Aukasendingin: Egill fer yfir þing helgarinnar, reglur um erlenda leikmenn, fjölgun leikja og margt fleira 12.03.2025

Aukasendingin fékk formann KR Egil Ástráðsson í heimsókn til þess að kryfja flest þeirra mála sem kosið verður um á körfuknattleiksþingi helgarinnar.  Stærst mála eru kannski breytingar á reglum um erlenda leikmenn og fjölgun leikja í efstu deild, en einnig er um fjölda annarra mála að ræða svosem hvaða búningum heimalið geta verið í, hversu margir leikmenn geti farið á venslasamning og hvort taka...

Sjötti maðurinn x Snorri Vignis: Stórsigrar toppliða, ÍA í Bónus og Reykjavíkurslagur af bestu gerð 11.03.2025

Sjötti maðurinn var ekki fullskipaður að þessu sinni en fékk til sín góðan gest en það var enginn annar en Snorri Vignisson.  Rætt var um Bónus deild karla, 1. deild karla og fréttir vikunnar. Allskonar liðir fengu að láta ljós sitt skína og það var meðal annars snert á tillögum sem eru á borði KKÍ varðandi reglubreytingar í einum liðnum. Snorri ræddi 3x3 á Íslandi og margt, margt fleira.  Stjórne...

Aukasendingin: Hannes um samninginn við Pólland, EuroBasket og tillögur komandi þings KKÍ 05.03.2025

Aukasendingin spjallaði í dag við Hannes Jónsson framkvæmdastjóra KKÍ. Til umræðu voru mörg ólík málefni, aðallega þó sá samningur sem sambandið gerði við pólska sambandið um að Ísland myndi leika í Katowice á EuroBasket í haust. Þá er í seinni hluta spjallsins farið yfir stórar tillögur sem fara fyrir þing KKÍ sem er á dagskrá 15. mars og þær breytingar sem verða á stjórn og hjá formanni sambands...

Sjötti maðurinn: Fallbaráttan búin, hikstandi topplið og hverjir komast í playoffs? 02.03.2025

Sjötti maðurinn mættur með þátt vikunnar, en hann er með hefðbundnu sniði. Bónus deild karla er í aðalhlutverki ásamt föstum liðum inná milli. Kraftröðun, byrja/ bekkja, senda á Leifstöðina og fyrstu deildar hornið heldur áfram göngu sinni eftir góðar móttökur.  Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar,...

Sjötti maðurinn: Viðbrögð við leik Íslands í Ungverjalandi 20.02.2025

Sjötti maðurinn kom saman beint eftir leik Íslands gegn Ungverjalandi í undankeppni EuroBasket 2025 og ræddi leikinn. Ísland mátti þola níu stiga tap í leiknum og þurfa því að treysta á að geta annaðhvort sigrað Tyrkland komandi sunnudag í Laugardalshöll eða að Unhverjalandi mistakist að vinna Ítalíu á sama tíma til að tryggja sig áfram á lokamótið. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Á...

Aukasendingin: Baldur Þór um kröfuhörð samfélög, tímann í Þýskalandi og íslenska landsliðið 20.02.2025

Aukasendingin spjallaði við aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins og þjálfara Stjörnunnar í Bónus deildinni Baldur Þór Ragnarsson á leikdegi íslenska liðsins fyrir leik gegn Ungverjalandi í Szombathely í undankeppni EuroBasket 2025. Baldur Þór hefur verið aðstoðarþjálfari íslenska liðsins á síðustu árum ásamt því að hafa verið með yngri landsliðum Íslands, en á báðum vígstöðum hefur hann gert ans...

Aukasendingin: Haukur Helgi um landsliðið, lokamótin og hvern hann tæki með sér í The Purge 18.02.2025

Aukasendingin hitti fyrir leikmann íslenska landsliðsins Hauk Helga Briem Pálsson á hóteli liðsins í Berlín í gærkvöldi, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025. Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag. Haukur Helgi var aðeins 19 ára gamall árið 2011 þegar h...

Aukasendingin: Ægir Þór um menningu íslenska landsliðsins ,,Maður fer inn í landslið á öðrum forsendum" 17.02.2025

Aukasendingin hitti fyrir fyrirliða íslenska landsliðsins Ægir Þór Steinarsson á hóteli liðsins í Berlín í dag, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025. Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag. Ægir Þór hefur marga fjöruna sopið með íslenska liðinu. Var í bá...

The Uncoachables: It's All Greek to Me 17.02.2025

Helgi, David and Jeanne have been away for a while, but it was because of a storm. We go over the tables and where teams might finish at the end of the season. The women's league is about to split into the A- and B-division and we discuss if Tindastóll will keep the fifth position, if Grindavík will survive after this season as well as some other storylines.  We talk about the best and worst...

Sjötti maðurinn: Landsliðið, ný regla fyrir erlenda leikmenn og hverjir komast í playoffs? 16.02.2025

Sjötti maðurinn mættur aftur eftir viku pásu. Að vanda rennt yfir Bónus deild karla og í þetta skiptið var valið amk. eitt lið sem hvert einasta lið vildi ekki mæta í úrslitakeppnisseríu. Fórum yfir 1. deildina og liðna umferð þar, fréttir vikunnar, fastir liðir og allskonar stuð.  Þá er sérstök umræða um landslið Íslands sem leikur í vikunni lokaleiki sína í undankeppni EuroBasket 2025. Stjórnend...

Aukasendingin: Endalok Keflavíkur, Stólarnir sterkastir og frábær leikur Íslands í Izmit 07.02.2025

Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Sigurð Orra “Véfrétt” Kristjánsson í heimsókn til að fara yfir sviðið.  Ræddar eru fréttir vikunnar, síðasta umferð Bónus deildar karla, leikir kvennalandsliðs Íslands gegn Tyrklandi í gær og Slóvakíu komandi sunnudag, sigurvegarar og taparar vikunnar, topp fimm listi og margt, margt, margt fleira. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunn...

Sjötti maðurinn: Titilvonir í Skagafirðinum, útlendingamál rædd og félagsskiptagluggi aldarinnar? 03.02.2025

Sjötti maðurinn var að vanda að taka upp á sunnudagskvöldi. Farið var yfir leiki sunnudagsins en sömuleiðis var farið yfir leikina á fimmtudags og föstudags.  Margir fastir liðir, margar pælingar og útlendingamál rædd í lok þáttarins. Fyrsta deildin fékk áframhaldandi sviðsljós, topp 5 listi og margt, margt fleira.  Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson....

Sjötti maðurinn: Breytingar hjá Grindavík, óstöðvandi ÍR-ingar og 1. deildin fær sviðsljósið 27.01.2025

Sjötti maðurinn var fullskipaður í þetta skiptið. Farið var vel yfir Bónus deild karla og sömuleiðis fréttir vikunnar. Í fyrsta skipti í sögu  þáttarins fékk 1. deild karla sviðsljósið og var það gert vegna fjölda áskorana. Power ranking og margt, margt fleira. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, K...

Слухайте подкаст Karfan у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали