uk

Karfan

Karfan

Sports IS ↓ Епізодів: 695

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.karfan.is

Автор

Karfan

Категорія

Sports

Сайт подкасту

www.karfan.is

Останній епізод

22 лис 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android 10 млн+ завантажень · рейтинг 4,7+ iOS незабаром

Епізоди

Aukasendingin - Vörutalning og slúður í Subway: Einkunn fyrir hvert lið, bestu leikmenn valdir og hverjir eiga mest inni 17.01.2022

Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Þann Kvíðna Guðmund Auðunn til þess að gefa tímabili allra liða Subway deildar karla einkunn, velja besta leikmann hvers liðs og finna út hver á mest inni fyrir seinni helming deildarkeppninnar. Þá eru einnig til umræðu fyrsta og önnur deild, fréttir vikunnar, slúður, nýjir leikmenn og margt fleira. Í lokin er svo farið yfir leikina sem fr...

Social Chameleon #15 - Davíð Eldur um íslenskan körfubolta, Keflavík og margt, margt fleira 08.01.2022

Dominykas Milka ræddi við ritstjóra Körfunnar Davíð Eld Baldursson um hina ýmsu fleti íslensks körfubolta, hvernig það hafi verið að alast upp sem stuðningsmaður Keflavíkur, hvernig það kom til að hann tók við Körfunni og margt, margt fleira.  Tekið er fram að þátturinn er tekinn upp á milli jóla og nýárs 2021. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugave...

Aukasendingin: Hannes um frekara norrænt samstarf, Höllina, VÍS bikarinn og Covid frestanir “Verðum að geta treyst hverjum og einum” 07.01.2022

Vegna sóttkvíar og einangrunar stjórnenda Aukasendingarinnar var brugðið á það ráð að fresta hefðbundinni umfjöllun þáttarins um íslensku deildirnar fram í næstu vikur. Í staðinn var heyrt í formanni KKÍ Hannesi Jónssyni og hann spurður út í hin ýmsu málefni sem brenna á aðdáendum þessa dagana. Ræðir Hannes frekara samstarf Norðurlandana, frestanir tengdar kórónuveirufaraldrinum, færslu VÍS bikark...

Ársins 2021 - Social Chameleon #6 - Brenton Part 1 - A conversation about New York City, high school and college basketball 31.12.2021

Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um að alast upp í New York, en bæði hann og Dominykas ólust upp í borginni. Þá ræðir hann einnig hvernig það var að leika fyrir framhals- og háskólalið þar og margt fleira. Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta, en í þeim seinni ræðir hann atvinnumannaferilinn. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas r...

Ársins 2021 - Social Chameleon #6 - Brenton Part 2 - Going pro, Iceland and dealing with injuries 31.12.2021

Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um hvernigþað hafi verið að gerast atvinnumaður, að koma til Ísland, eiga við meiðsli og margt fleira. Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta. Sá fyrri er aðgengilegur hér, en í honum ræðir hann hvernig það hafi verið að alast upp í New York og spila með framhalds- og háskólaliðum þar. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur,...

Ársins 2021 - Undir Körfunni - Embla um erfið meiðsli sín, dólgslegan leikstíl, barneigna tilkynningar og erjur við þjálfara á ferlinum „Ég setti fótinn niður og sagði hingað og ekki lengra“ 31.12.2021

Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, er viðmælandi í fimmta þætti Undir Körfunni. Embla ræðir um feril sinn hingað til, helstu ástæður vegna félagaskipta og tilveruna í Borgarnesi. Embla tilkynnti á dögunum að hún ætti von á sínu öðru barni og mun ekki spila meira á tímabilinu með Skallagrím. Embla svarar slúðursögum sem hafa gengið á varðandi tilkynningar hennar til félagsins og Embla ræ...

Undir Körfunni – 2/2 – Þröstur um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík, um gælunafnið Sölli Tattoo Passport Smoker og mikilvægi hans í liði Keflavíkur, „Kæruleysið er mér svo kært“ 30.12.2021

Þröstur um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík, um gælunafnið Sölli Tattoo Passport Smoker og mikilvægi hans í liði Keflavíkur, „Kæruleysið er mér svo kært“ Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, er gestur í áttunda þætti af Undir Körfunni. Áttundi þætti er skipt upp í tvo hluta og í seinni hluta ræðir Þröstur meira um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík sem er innbyggður í alla íbúa í Reyk...

Undir Körfunni - 1/2 - Þröstur um leikinn stóra gegn Njarðvík, um tímann sinn með Tindastól og Þór Akureyri sem og vonir og eftirsjár af ferli sínum „Ég er mikill kex kall“ 29.12.2021

Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, er gestur í áttunda þætti af Undir Körfunni. Áttundi þætti er skipt upp í tvo hluta og í fyrri hluta fer Þröstur vel og ítarlega yfir körfuboltaferill sinn til þessa og segir sögur frá tímanum sínum með Tindastól og Þór Akureyri sem og allskonar sögur úr Keflavík. Þröstur ræðir vonir og eftirsjár af ferli sínum og hvers vegna honum tókst aldrei að koma...

Aukasendingin - Áramótabomba: Verðlaun fyrir almanaksárið 2021 í öllum flokkum 27.12.2021

Aukasendingin fékk til sín Snáða 1 Ísak Wium og Þann Hundtrygga Hraunar Karl til þess að gera upp árið 2021 í sannkallaðri áramótabombu. Veitt eru verðlaun fyrir bestu leikmenn, valið í úrvalslið, besti ungi leikmaður, besti þjálfari, besti landsliðsmaður og margt, margt fleira.  Þá eru einnig til umræðu stærstu fréttir og félagaskipti ársins, sem og hver staðan í annarri og fyrstu deildinni hefur...

Undir Körfunni: Katla Rún um ferilinn sinn til þessa, ótrúlega yngri flokka í Keflavík og stórleikinn gegn Njarðvík í næstu umferð „Þau hafa montréttinn núna en það breytist þann 29. des“ 26.12.2021

Katla Rún Garðarsdóttir, leikmaður Keflavíkur, mætti í sjöunda þátt af Undir Körfunni. Katla fer yfir körfubolta feril sinn til þessa, bestu og verstu augnablikin og uppáhalds hluti. Katla hefur alla tíð leikið með Keflavík en hún fer meðal annars yfir ótrúlegt gengi Keflavíkur í yngri flokkunum og eftirminnanlegan fyrsta tapleik á ferlinum. Fraumundan hjá Kötlu er stórleikur þegar Keflavík tekur...

Social Chameleon #14 - Everage um ferðalagið frá Brooklyn til Breiðabliks, 42 stig að meðaltali í Þýskalandi og hvernig það er að leiða Subway deildina í framlagi 35 ára að aldri 22.12.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Breiðabliks Everage Richardson um bernskuna í New York, háskóla boltann í Suður Karólínu og hvernig það hafi verið að vera atvinnumaður í Þýskalandi og Lúxemborg. Þá ræða þeir komu hans til Íslands og hvernig hann hefur á síðustu árum verið einn besti leikmaðurinn í nokkrum deildum hér á landi. Everage kom upphaflega til Íslands 2017 og lék fyrir Gnúpverja. Tímab...

The Uncoachables: Holiday cheer and more report cards 18.12.2021

Helgi and David finished up their report cards before Christmas and discussed the Icelandic national team games plus their predictions and some news stories that have come up. Enjoy and happy holidays! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

The Uncoachables: Report cards and Rúnar Ingi 17.12.2021

Helgi and David had a great guest from Njarðvík for this episode, Rúnar Ingi Erlingsson. Rúnar Ingi is head coach of the Njarðvík women's team that just got promoted to the Subway league and are currently in the top spot on the table.  We talked to Rúnar about his team, their identity, transitioning from playing to coaching and where he sees his team going. Later (00:42:00) we did report card...

Undir Körfunni - Hilmar Pétursson um brottför Bilic, tímann undir Israel Martin, framtíðarplön sín og vonir Breiðabliks „Sætasti sigurinn á enn þá eftir að koma“ 16.12.2021

Hilmar Pétursson, leikmaður Breiðabliks, er til tals í sjötta þætti af Undir Körfunni. Hilmar ræðir um feril sinn, bestu og verstu augnablik. Hilmar kemur af mikilli körfuboltafjölskyldu, í Breiðablik leikur hann með bróðir sínum, Sigurði Péturssyni, undir stjórn föður þeirra, Pétri Ingvarssyni. Næstu leikir Hilmars með Breiðablik eru gegn frænda hans, Kára Jónssyni, hjá Val og besta vini hans, Hi...

Fókus: Bras í Borgarfirðinum, sigling á Njarðvík og Fjölni og næsta umferð Subway deildarinnar 15.12.2021

Fókus kom saman og fór yfir síðustu umferð Subway deildar kvenna, spáði fyrir um þá næstu og velti fyrir sér vandræðum Skallagríms, sem á dögunum dró lið sitt úr keppni í Subway deildinni. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstar...

Aukasendingin – Njósnir í Grindavík, uppgjöf í Borgarnesi og hverjir eru bestu erlendu leikmenn deildarinnar 14.12.2021

Aukasendingin fékk til sín Hrafn Kristjánsson og Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og VÍS bikarkeppnina. Þá er í lokin valið í tvö byrjunarlið. Það fyrra af bestu bandarísku leikmönnum deildarinnar, en það seinna bestu evrópsku leikmenn deildarinnar. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Krista...

Social Chameleon #13 - Khalil Ahmad um árið á Íslandi, Drew sumardeildina og hvernig það hafi verið spila við Ball bræður í yngri flokkum 13.12.2021

Dominykas Milka ræðir við fyrrum leikmann Keflavíkur Khalil Ahmad um ferðalag hans frá Kaliforníu til atvinnumennsku á Íslandi og í Danmörku. Þá ræðir hann einnig hvernig það er að æfa með NBA leikmönnum á sumrin, en hann hefur síðustu ár leikið í Drew sumardeildinni þar sem margar af skærustu stjörnum boltans láta sjá sig. Khalil kom upphaflega til Íslands árið 2019, en á sínu fyrsta tímabili í a...

Aukasendingin - Keflvíkingar komnir á toppinn, fallbaráttan að harðna og íslenskir leikmenn sem valdið hafa vonbrigðum 07.12.2021

Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Þann loftslagskvíðna Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og fyrstu deildina. Þá er í lokin farið yfir hvaða íslensku leikmenn hafa verið bestu viðbæturnar við sín lið í Subway deildinni og hvaða leikmenn hafa ekki skilað því sem til var ætlast. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsa...

Undir Körfunni - Embla Kristínardóttir um erfið meiðsli sín, dólgslegan leikstíl, barneigna tilkynningar og erjur við þjálfara á ferlinum „Ég setti fótinn niður og sagði hingað og ekki lengra“ 06.12.2021

Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, er viðmælandi í fimmta þætti Undir Körfunni. Embla ræðir um feril sinn hingað til, helstu ástæður vegna félagaskipta og tilveruna í Borgarnesi. Embla tilkynnti á dögunum að hún ætti von á sínu öðru barni og mun ekki spila meira á tímabilinu með Skallagrím. Embla svarar slúðursögum sem hafa gengið á varðandi tilkynningar hennar til félagsins og Embla ræ...

Social Chameleon #12 – Callum Lawson um líf atvinnumannsins, breskan körfubolta og hvað hann ætli að gera eftir ferilinn 05.12.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Vals Callum Lawson um breskan körfubolta, erfiða byrjun á atvinnumannaferil og hvað hann ætli að gera eftir að körfuboltaferil hans lýkur. Callum kom upphaflega til Íslands tímabilið 2019-20, en frá því hann kom hefur hann leikið með Keflavík, Íslandsmeisturum Þórs og nú Val. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugaver...

Fókus: Njarðvík rígheldur í efsta sætið, Fjölnir á siglingu og hverjir eru efnilegustu leikmenn Íslands? 03.12.2021

Fókus kom saman og fór yfir síðustu umferð Subway deildar kvenna, spáði fyrir um þá næstu og velti fyrir sér hverjir væru efnilegustu leikmenn landsins. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactic...

Undir Körfunni – Dúi Þór um lífið á Akureyri, körfubolta áhugann sem og viðureignir við og með Þór Akureyri. „Það eru fáir í deildinni sem geta unnið mig í 100 metra spretthlaupi“ 29.11.2021

Dúi Þór Jónsson, leikmaður Þórs Akureyri, er viðmælandi í fjórða þætti Undir Körfunni. Dúi fer yfir feril sinn til þessa, yngri flokkana og þá sérstaklega hörð einvígi Stjörnunnar við Þór Akureyri og svo skipti Dúa yfir til Þórs. Dúi ræðir fyrstu skref sín inn í meistaraflokk, hans helstu fyrirmyndir og fjölskyldumeðlimi, ásamt því hverjum hann myndi helst vilja syngja með í dúett. Dúi gefur upp d...

Social Chameleon #11 - Jaka Brodnik um erfiðleika í byrjun ferilsins, að spila með Jokic og Nurkić í NBA sumardeildinni og ferðalagið til Íslands “Deildin á Íslandi er vanmetin” 28.11.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Keflavíkur Jaka Brodnik um hvernig það hafi verið að alast upp í slóvenskum körfubolta, erfiðleika á fyrstu árum atvinnumennsku, ferðalag vestur um haf í sumardeild NBA deildarinnar, hvernig hann hafi endað á Íslandi og margt fleira. Jaka kom upphaflega til Íslands til Þórs í nóvember 2018. Þaðan fór hann til Tindastóls og var með þeim frá 2019 til 2021 áður en h...

Fókus: Sterkur sigur Njarðvíkur og vandræði í Kópavogi 26.11.2021

Fókus kom saman og fór yfir fyrstu leiki eftir landsleikjahlé, mikilvægan sigur Grindavíkur á Breiðablik, vafaatriði í Dalhúsum, erfitt gengi Skallagríms og margt fleira. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar...

Social Chameleon #10 - Logi Gunnarsson um Njarðvík, árin í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður “Vill ekki hætta fyrr en ég er tilbúinn til þess” 24.11.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Njarðvíkur og fyrrum leikmann íslenska landsliðsins Loga Gunnarsson um ferilinn með Njarðvík, liðum víðsvegar í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar...

Слухайте подкаст Karfan у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали