uk

Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ Епізодів: 364

Podcast by Handkastið

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com

Автор

Handkastið

Категорія

Sports

Сайт подкасту

soundcloud.com

Останній епізод

28 вер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Spenna á öllum vígstöðvum - Robbi Gunn í Val? 21.02.2025

Uppgjörsþáttur 18.umferðar Olís-deildar karla. Rætt var um stóra þjálfarakapalinn sem gæti orðið í sumar og hver tekur við Gróttu í sumar?

Valslestin farin að malla og Frammarar komnir á toppinn 13.02.2025

Valslestin farin að malla og Frammarar komnir á toppinn by Handkastið

Snorri Steinn gerir upp HM 11.02.2025

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari settist niður með Sérfræðingnum og fór yfir HM og miklu meira til.

Formannsskipti hjá HSÍ og Fram farnir að trúa því að þeir getu unnið þann stóra 09.02.2025

Formannsskipti hjá HSÍ og Fram farnir að trúa því að þeir getu unnið þann stóra by Handkastið

Olís deildin komin aftur af stað og Djammferð til Tene á enn eftir að bera árangur 04.02.2025

Ásgeir x2 mættu í stúdíó með Stymma Klippara og gerðu upp 15.umferð Olísdeildar karla sem er komin aftur af stað eftir HM pásu. 8 liða úrslit í bikarkeppni kvenna fara fram í vikunni.

HM uppgjör með Guðjóni Val og Kristjáni Andréssyni 29.01.2025

Guðjón Valur Sigurðsson og Kristján Andrésson gera upp HM hjá íslenska landsliðinu í símaviðtali við Sérfræðinginn í beinni frá Þýskalandi og Noregi.

Milliriðli lokið og nú leggst íslenska þjóðin á bæn! 26.01.2025

Stymmi Klippari, Alli Eyjólfs og Einar Ingi gerðu upp milliriðil Íslands og leik þeirra gegn Argentínu. Núna leggjumst við á bæn að Slóvenar geri kraftaverk og tryggi Íslandi áfram í 8 liða úrslit.

Er Ísland á leiðinni heim? Rándýr kennslustund frá Degi Sig í Zagreb 25.01.2025

Stymmi Klippari og Geiri Sly kíktu í studíóið á þessum laugardagsmorgni til að gera upp vonbrigðin gegn Króatíu. Arnar Daði var á línunni og gerði leikinn upp frá Zagreb. Hverir eru möguleikar Íslands í framhaldinu? Er Ísland á leiðinni heim??

Strákarnir okkar eru óstöðvandi! 22.01.2025

PBT og Mike kíktu til okkar í Dominos stúdíóið og gerðu upp leik Íslands og Egyptalands. Það er óhætt að segja að Snorri Steinn sé búinn að smíða vél og handboltaæði á Íslandi er farið að gera vart við sig.

Aldrei vekja mig frammistaða - Ísland með fullt hús stiga í milliriðil 20.01.2025

Sérfræðingurinn, Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Steinn Jónsson gerðu upp frábæran sigur Íslands á Slóveníu. Spáð var í spilin fyrir komandi leiki Íslands í milliriðli.

Æfingarleikjum lokið! Nú hefst alvaran 18.01.2025

Stymmi Klippari, Sérfræðingurinn og Ási kíktu í Dominos studio-ið og gerðu upp leik Íslands og Kúbu. Til hamingju Valur og Haukar með að vera komnar í 8 liða úrslit í evrópukeppninni. Æfingarleikirnir eru búnir og alvaran hefst á mánudaginn!

Séffinn og Óli Stef ræða boltann - Eru of margir í landsliðssósu fasa? 17.01.2025

Sérfræðingurinn fékk besta handboltamann sögunnar til sín og farið var yfir boltann. Stöðu íslenska landsliðsins, hvað þarf að gerast til að landsliðið nái árangri og allt þar á milli. Í lok þáttar fengu hlustendur að spyrja Óla misáhugaverðar spurningar.

HM vegferðin hafin - Skyldusigur hjá Strákunum Okkar 16.01.2025

Stymmi Klippari, Andri Geir og Stefán Rafn mættu í stúdíó og gerðu upp landsleikinn gegn Grænhöfðaeyjum. Vegferðin á HM er hafin og leiðin hefur aldrei verið greiðari!

Leiðin er greið - Það er raunhæft að Ísland fari í undanúrslit 15.01.2025

Sérfræðingurinn settist við hljóðnemann tók upp tólið og heyrði í þremur góðum mönnum rétt áður en strákarnir okkar hefja leik á HM í Þjóðaríþróttinni. Gunnar Birgisson var á línunni frá Zagreb, Kristján Andrésson fyrrum landsliðsþjálfari Svía og sérfræðingur ViaPlay í Svíþjóð var á línunni frá Eskilstuna og Logi Geirsson sérfræðingur í HM stofunni var á línunni úr penthouse íbúðinni í Reykjavík.

Handbragð Snorra farið að sjást og tilheyrir "íslenska geðveikin" fortíðinni? 12.01.2025

Stymmi Klippari, Arnar Sveinn og Jói Skúli settust niður á ræddu landsleik Íslands og Svíþjóðar. Teddi Ponza var á línunni. Er íslenska geðveikin horfin sökum breyttra tíma og hvað er til ráða? Evrópuævintýri Vals og Hauka halda áfram og Olísdeild kvenna hélt áfram í gær.

Jákvæð teikn á lofti - Dóri DNA finnur lyktina af málmi 09.01.2025

Sérfræðingurinn, Klipparinn og Dóri DNA fóru yfir fyrsta æfingaleik Íslands í aðdraganda HM sem framundan er. Jafntefli gegn gríðarlega sterku liði Svíþjóðar. Logi Geirsson var einnig á símalínunni og fór yfir leikinn.

10 dagar í HM - Farið yfir leiðina að gullinu 05.01.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gísli Freyr Valdórsson fóru yfir leiðina að gullinu hjá Strákunum okkar á HM sem framundan er. Gísli Freyr er formaður handknattleiksdeildar Fram og þáttastjórnandi Þjóðmála. Í þættinum valdi hann handboltalið stjórnmálamanna og kvenna og ræddi nýja ríkisstjórn og hvað við megum búast við af ríkisstjórninni í íþróttamálum.

Áramótaterta Handkastsins 30.12.2024

Árið 2024 var gert upp í sannkölluðum maraþonþætti. Frábært handboltaár að baki og mikil bjartsýni rýkir í mönnum fyrir 2025.

Snorri Steinn fer yfir ferilinn - Fyrirliði 19 ára - lygilegur tími hjá AG og vondi maðurinn í Frakklandi 27.12.2024

Sérfræðingurinn settist niður með Snorra Steini Guðjónssyni og fór yfir leikmannaferilinn. Allt frá yngri flokkunum í Val og þar til hann kom aftur heim til Vals sem spilandi þjálfari út á við. Stórmótin með landsliðinu, sigrarnir og vonbrigðin. Ótrúlegur tími hans í AG þar sem Kasi Jesper dældi peningum í liðið og hugarfarsbreytingin í Frakklandi þar sem hann ákvað loks að fara skora fleiri handb...

Aron Kristjánsson fer yfir tímann sinn með íslenska landsliðið og Bahrain 24.12.2024

Sérfræðingurinn settist niður með Aroni Kristjánssyni þjálfari Bahrain. Aron þjálfaði íslenska landsliðið árin 2012-2016. Farið var yfir tíma Arons með íslenska landsliðið, tíma sinn með Bahrain auk þess sem spáð var í spilin fyrir HM sem framundan er.

Snorri búinn að velja 18 manna hóp og Final four (næstum) klárt 19.12.2024

Snorri búinn að velja 18 manna hóp og Final four (næstum) klárt

Lítið um varnir og nýliðar í basli 13.12.2024

Síðasta umferðin fyrir jólin í Olísdeild karla gerð upp að undanskildum tveim leikjum. Styttist í stórmót og hvenær spilar FH í bikarnum?

Hvar eru landsliðstreyjurnar og Spiideo vélarnar sem lofað var? 11.12.2024

Sérfræðingurinn og Ponzan fóru um víðan völl í þættinum. Hvar er hægt að kaupa landsliðstreyjurnar og afhverju er HK - Fjölnir ekki sjónvarpsleikur? Hvar eru allar Spiideo vélarnar sem HSÍ keypti fyrir tímabilið og talað var um að myndu auka gæði sjónvarpsútsendingana í Handboltapassanum með fleiri sjónarhornum? Hvaða landsliðsmaður má alls ekki detta út fyrir HM og fær Svenni Jó. tækifærið á HM?...

Markvarslan við frostmark hjá Val og FH-ingar sýna engin þreytumerki 05.12.2024

Olísdeild karla gerð upp með Geira Sly og EuroBella. Kærumál Stjörnunnar komið á fullt og Meistraradeild Evrópu var á sínum stað.

EM kvenna krufið og enn eitt kærumálið 04.12.2024

Sérfræðingurinn, Klipparinn og Ragnheiður Júlíusdóttir fara yfir EM kvenna. Hverjar gætu hætt og hverjar eru næstar inn? Hverjar gætu farið út og er eitthvað betra að fara út? Spáð var í spilin fyrir 13.umferð Olís-deildar karla sem hefst annað kvöld.

Слухайте подкаст Handkastið у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали