RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.ruv.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Grindavík, fjarskiptaöryggi við umheiminn, Hútar og ökklabönd á ofsækjendur kvenna 18.01.2024 20:00
Grindavík er hættulegur staður og verður það áfram næstu mánuði og líklega ár. Um þetta eru flestir jarðvísindamenn landsins sammála. Viðvarandi skjálftavirkni og hætta á fyrirvaralitlum eldgosum, gamlar sprungur sem hafa gliðnað og dýpkað og nýjar sprungur sem eru jafnvel ósýnilegar þar til einhverjum verður á að stíga fæti á örþunnt jarðlagið sem hylur þær gera bæinn í raun óbyggilegan eins og e...
Grindavík - byggilegur bær?, Vindorkugarður á Klausturseli, Traðkað á mannréttindum í landinu helga 17.01.2024 19:53
Grindavík er ekki staður sem fjölskyldur geta búið á eins og staðan er núna og líklegra að einhver ár líði frekar en mánuðir áður en það breytist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðvísindamaður í viðtali við Ævar Örn Jósepsson. Fyrirtækið Zephyr áætlar að byggja upp allt að 500 megavatta vindorkugarð í landi Klaustursels á Jökuldal í Múlaþingi. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræddi við Jónínu Brynjólfsdótt...
Grindavík - byggilegur bær?, Vindorkugarður á Klausturseli, Traðkað á mannréttindum í landinu helga 17.01.2024 20:00
Grindavík er ekki staður sem fjölskyldur geta búið á eins og staðan er núna og líklegra að einhver ár líði frekar en mánuðir áður en það breytist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðvísindamaður í viðtali við Ævar Örn Jósepsson. Fyrirtækið Zephyr áætlar að byggja upp allt að 500 megavatta vindorkugarð í landi Klaustursels á Jökuldal í Múlaþingi. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræddi við Jónínu Brynjólfsdótt...
Ávarp forsætisráðherra á íbúafundi, nýr sigdalur í Grindavík, Náttúruhamfaratrygging, Trump vann í Iowa 16.01.2024 20:49
Öryggi íbúa hefur verið forgangsmál stjórnvalda, sagði Katrín Jakobsdóttir á íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll. 70 íbúðir verða keyptar í næstu viku. Húsnæðisstyrkir verða endurmetnir. Á lokametrunum er frumvarp sem breytir regluverki í skammtímaleigu, meðal annars í atvinnuhúsnæði. Brot úr ávarpi Katrínar er spilað í Speglinum. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir frá sigdal sem mynd...
Ávarp forsætisráðherra á íbúafundi, nýr sigdalur í Grindavík, Náttúruhamfaratrygging, Trump vann í Iowa 16.01.2024 20:00
Öryggi íbúa hefur verið forgangsmál stjórnvalda, sagði Katrín Jakobsdóttir á íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll. 70 íbúðir verða keyptar í næstu viku. Húsnæðisstyrkir verða endurmetnir. Á lokametrunum er frumvarp sem breytir regluverki í skammtímaleigu, meðal annars í atvinnuhúsnæði. Brot úr ávarpi Katrínar er spilað í Speglinum. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir frá sigdal sem mynd...
Gæti gosið reglulega, hiti og rafmagn í Grindavík, varnargarðar og hraun, andleg líðan 15.01.2024 20:00
Spegillinn er tileinkaður Grindavík. Halldór Geirsson dósent í jarðeðlisfræði segir að enn streymi kvika inn í Svartsengi og það geti gosið reglulega á þeim slóðum. Heitavatnslögnin til Grindavíkur skemmdist í gosinu, heitavatnslaust er í bænum, en rafmagn er komið á í vesturhluta bæjarins, í bili að minnsta kosti. Það á að skoða hvort hækka þurfi varnargarðana við bæinn, því hraun rann upp að þei...

Landris við Svartsengi, samningafundur, dauðaslys í umferðinni í Noregi, Ísrael sakað um þjóðarmorð. 12.01.2024 19:04
Áfram mælist landris við Svartsengi vegna kvikusöfnunar sem getur leitt til eldgoss. Veðurstofa metur aukna hættu á að sprungur opnist í Grindavík. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðing og fagstjóra aflögunnarmælinga. Fulltrúar Samninganefndar samtaka Atinnulífisins og fylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hittust á samningafundi hjá ríkissáttasemjara í dag....
Bara tveir í fjölskipuðu loftslagsráði, löggjöf um gervigreind, kínversk stjórnvöld vara við sjálfstæðissinna 11.01.2024 20:00
Í lögum um loftslagsmál segir að starfrækja skuli loftslagsráð, sem hafi það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum. Loftslagsráð hefur verið giska duglegt að ráðleggja stjórnvöldum á þeim fimm árum sem það hefur starfað. En þótt formaður og varaformaður nýs loftslagsráðs hafi verið skipaðir í september síða...
Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví 10.01.2024 20:00
Jarðeðlisfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvika hlaupi úr Svartsengi á næstu dögum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Kristínu Jónsdóttur deildarstjóra á Veðurstofunni oum stöðuna þar syðra, viðvarandi landris frá síðasta gosi, 18. desember, kvikuhólf, kvikugang og kvikuflæði, myndun sigdals og ris lands meðfram börmum hans, aðferðir við mælingar á kviku og mat á goslíkum og fleira. Neyðará...
Óttast intifada, Breivik vill pennavin, Ása og dvergvetrarbrautirnar 09.01.2024 20:00
Bandarísk stjórnvöld halda áfram að þrýsta á ráðamenn í Ísrael að koma í veg fyrir frekara mannfall almennra borgara á Gaza. Umleitanir þeirra hafa verið eins og að stökkva vatni á gæs. Stjórnvöld í Ísrael hafa verið vöruð við að uppreisn eða intifada kunni að vera að brjótast út á Vesturbakkanum. Hryðjuverkamaðurinn og fjöldamorðinginn Anders Bering Breivík er einmana í einangrunarvist sinni. Han...
Staða matvælaráðherra, staða Netanyahu og vandi fólks með offitu 08.01.2024 19:57
Umboðsmaður alþingis birti á föstudag álit á reglugerð matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um frestun á hvalveiðum síðasta sumar, þar sem hann segir þessa reglugerð ekki hafa átt sér nægilega skýra stoð í lögum og að ekki hafi verið gætt að kröfum stjórnsýsluréttar um að gæta meðalhófs, þegar hún var innleidd nánast daginn áður en veiðar áttu að hefjast. Umboðsmaður bendir í sínu áliti á að...
Staða matvælaráðherra, staða Netanyahu og vandi fólks með offitu 08.01.2024 20:00
Umboðsmaður alþingis birti á föstudag álit á reglugerð matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um frestun á hvalveiðum síðasta sumar, þar sem hann segir þessa reglugerð ekki hafa átt sér nægilega skýra stoð í lögum og að ekki hafi verið gætt að kröfum stjórnsýsluréttar um að gæta meðalhófs, þegar hún var innleidd nánast daginn áður en veiðar áttu að hefjast. Umboðsmaður bendir í sínu áliti á að...
Svandís í beinni, (Ó)jöfnuður á stór-höfuðborgarsvæðinu 05.01.2024 19:43
Umboðsmaður Alþingis sendi í dag frá sér það álit að frestun hvalveiða síðasta sumar hafi ekki verið í samræmi við lög um hvalveiðar. Rætt var við Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í beinni útsendingu í Speglinum. Ójöfnuður í ráðstöfunartekjum jókst talsvert í Reykjavík á útrásaráraunum en dróst svo snarlega saman strax í kjölfar hrunsins. Hann jókst svo lítillega aftur milli áranna 2010 og 2...
Svandís í beinni, (Ó)jöfnuður á stór-höfuðborgarsvæðinu 05.01.2024 20:00
Umboðsmaður Alþingis sendi í dag frá sér það álit að frestun hvalveiða síðasta sumar hafi ekki verið í samræmi við lög um hvalveiðar. Rætt var við Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í beinni útsendingu í Speglinum. Ójöfnuður í ráðstöfunartekjum jókst talsvert í Reykjavík á útrásaráraunum en dróst svo snarlega saman strax í kjölfar hrunsins. Hann jókst svo lítillega aftur milli áranna 2010 og 2...
Umskurður, Úkraína og Gérard Depardieu 04.01.2024 20:00
4. janúar 2024 Umskurður á drengjum af trúarlegum ástæðum er umdeilt mál hér á landi. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki segir mikilvægt að mismunandi lífsskoðanir séu virtar og telur það geta haft skaðaminnkandi áhrif, ef umskurður standi til boða á heilbrigðisstofnunum. Umskurður drengja hafi djúpstæða, táknræna og trúarlega merkingu fyrir lítinn hóp fólks hér á landi, og beri þvi freka...

Kjaraviðræður, Úkraínustríðið og málefni flóttafólks í ESB 03.01.2024 20:00
3. janúar 2024 Samhljómur og bjartsýni ríkir um gerð kjarasamnings SA og breiðfylkingar landssambanda ASÍ. Ætlunin er að semja til langs tíma og þannig að innistæða sé fyrir því - segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins. Arnar Björnsson fréttamaður ræddi við hana og Ragnar Þór Ingólfsson formann VR eftir fundinn í dag. Ragnar segir að stjórnvöld þurfi að fara að...

Stjórnarskrármál í sjálfheldu, varnargarður rís, kjörstærð 20.000 02.01.2024 20:00
Guðni Th. Jóhannesson forseti segir að að það yrði undarleg niðurstaða að ráðast í breytingar á stjórnarskrá nú en hrófla ekki við kaflanum um þjóðhöfðingjann. Stjórnarskrármál á Íslandi séu í sjálfheldu og kaflinn um forsetann hafi þarfnast endurskoðunar frá stofnun lýðveldis. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður tók forseta tali í dag í kjölfar þess að hann tilkynnti í nýársávarpi sínu að hann ætl...

Víðir hefur áhyggjur af íbúum, Elín Björk spáir í loftslagsmýtur 29.12.2023 20:00
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna segir að lítill tími gefist til að bregðast við ef það fer að gjósa norðan við Grindavík. Hann hefur áhyggjur af fólki sem dvelur í bænum. Hann segir að gist hafi verið í um 30 húsum í nótt og segir búist við að fleiri verði í bænum um áramót. Björgunarsveit er ekki í bænum núna og ef færi að gjósa keyra tveir lögreglubílar um bæinn með vælandi sýrenur til...

Eignir í Grindavík, loftslagsmýtur og fundur LHS 3154b 28.12.2023 20:00
Á meðan jörð rís í Svartsengi og Grindvíkingar bíða sjálfsagt með öndina í hálsinum yfir því sem verða vill, standa margir þeirra frammi fyrir flóknum spurningum. Á ég og mitt fólk að búa áfram í bænum okkar og þá hvar? Spegillinn ræddi við Atla Geir Júlíusson sviðsstjóra skipulags og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar og spurði hvort það hefðu margir bæjarbúar sett sig í samband við bæinn og sagst v...
Björgun og flugeldar, vinnuafl á Ítalíu og loftslagsmýtur 27.12.2023 20:00
27. desember 2023 93 þrjár björgunarsveitir eru starfandi á Íslandi. Samtals taka um 4.500 sjálfboðaliðar virkan þátt í starfi sveitanna og eru tilbúin að svara kallinu þegar þörf er á. En þótt björgunarsveitarfólk sé í sjálfboðavinnu þá kostar það sitt að reka sveitirnar, nánar til tekið um tvo milljarða króna á ári, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar;...
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır