RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.ruv.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Play, Los Angeles og stóru málin hjá lögreglunni suður með sjó 10.06.2025 20:00
Í minnisblaði setts lögreglustjóra á Suðurnesjum um stöðuna á landamærunum og baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi er dregin upp býsna skýr mynd af stöðunni; það vantar menntaða lögreglumenn þar sem embættið hefur að sumu leyti lent undir í samkeppninni við önnur lögregluembætti; Við fjöllum líka um þá ákvörðun Donalds Trump forseta Bandaríkjanna sem sendi þjóðvarðalið og landgönguliða til að...
Starfsáætlun tekin úr sambandi og stóru málin eftir 06.06.2025 20:00
Það er vandséð hvernig á að ljúka þingstörfum og nánast hægt að fullyrða að þinglok verða ekki á föstudag í næstu viku; það er ekki búið að afgreiða stærsta málið á yfirstandandi þingi úr nefnd; veiðigjaldið og í dag var sett á dagskrá bókun 35 við litla hrifningu sumra þingmanna stjórnarandstöðunnar. Þegar menn voru að setja sig í stellingar bárust svo tíðindi af nýrri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnu...
Gaza verra en helvíti á jörð, Alþingi og ríkisborgararéttur og gervigreind 04.06.2025 21:06
Gaza er verra en helvíti á jörðu - segir forseti alþjóðaráðs Rauða krossins og það sem þar gerist er í trássi við öll viðmið alþjóðalaga, mannúðar og siðferðis. Það þarf mikið til að Rauði krossinn taki svo djúpt í árinni segir framkvæmdastjóri RKÍ og það sýnir hve brýnt er að brugðist verði við. Milljónir stríðshrjáðra íbúa sveltur á Gaza. Þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu framgang formanns all...
Gaza verra en helvíti á jörð, Alþingi og ríkisborgararéttur og gervigreind 04.06.2025 20:00
Gaza er verra en helvíti á jörðu - segir forseti alþjóðaráðs Rauða krossins og það sem þar gerist er í trássi við öll viðmið alþjóðalaga, mannúðar og siðferðis. Það þarf mikið til að Rauði krossinn taki svo djúpt í árinni segir framkvæmdastjóri RKÍ og það sýnir hve brýnt er að brugðist verði við. Milljónir stríðshrjáðra íbúa sveltur á Gaza. Þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu framgang formanns all...
Samskipti Víðis og snjómokstur í júní 03.06.2025 20:00
Forstjóri Útlendingastofnunar taldi sig þurfa skýr svör frá formanni allsherjar- og menntamálanefndar um hvort Alþingi ætlaði sér að veita sautján ára kólumbískum dreng íslenskan ríkisborgararétt. Til að gæta jafnræðis yrði annars að fresta brottflutningi átján annarra umsækjenda sem hafa sótt um ríkisborgararétt en á að flytja úr landi. Formaður nefndarinnar var í samskiptum við ríkislögreglustjó...

Snemmsumarshvellur og mótmæli gegn útlendingum 02.06.2025 20:00
Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjó...
Lokaspretturinn framundan hjá þinginu 30.05.2025 20:14
Síðustu dagarnir á Alþingi eru oftar en ekki spretthlaup þar sem mörg mál eru afgreidd á skömmum tíma. Í sumar gæti þetta orðið langhlaup eða jafnvel utanvegahlaup því vísir að einhvers konar samkomulagi um þinglok virðist ekki innan seilingar.
Varnarbúnaður á norðurslóðum 28.05.2025 20:00
Aukinn varnarbúnaður á norðurslóðum var meðal þess sem Kristrún Frostadóttir, forsætirráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Nato, ræddu á blaðamannafundi sínum í dag. Í Háskólanum á Akureyri var einnig fjallað um norðurslóðir í dag og þau miklu áhrif sem breytt heimsmynd hefur haft innan Norðurskautsráðsins meðal annars. Þá er spurt hvort ríkisstjórnin eigi að stöðva málþóf sem komið er fram úr...
Átök í litlum flokkum og forsætisráðherra hittir framkvæmdastjóra Nató 27.05.2025 20:00
Síðustu daga hafa væringar á vinstri vængnum verið áberandi í fréttum. Miklar sviptingar urðu hjá Sósíalistaflokknum um helgina og jafna má til hallarbyltingar. Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir erfiðara að vera í litlum en stórum stjórnmálaflokki. Forsætisráðherra hittir á morgun framkvæmdastjóra Nato. Fundurinn er liður í undirbúningi fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsin...

Bætur vegna símhlustunar og áhrif veiðigjalds á litla báta 26.05.2025 20:00
Íslenska ríkið greiddi tæpar 10 milljónir króna í skaðabætur vegna símhlustana sérstaks saksóknara í hrunmálum og fjórar milljónir í lögmannskostnað. Þetta kemur fram í tölum frá ríkislögmanni. Tuttugu og átta kröfðust bóta. Í tuttugu og fjórum tilvikum var samið um bætur. Þrjú mál fóru fyrir dóm, þar sem tveimur lauk með dómsátt og einu með dómi. Einni kröfu var hafnað. Fyrirhuguð hækkun veiðigja...
Gervigreind hjá skipulögðum glæpahópum, stækkunarstjóri ESB og niktótínpúðar 23.05.2025 20:00
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kallaði í vikunni eftir hertari aðgerðum gegn Nikótínpúðum. Hlutfall ungmenna sem nota slíka níkótínpúða er hvergi hærra á Norðurlöndum en á Íslandi - Á stóru blaði sem hangir á veggnum á skrifstofunni hjá stækkunarstjóra Evrópusambandsins í í Brussel, eru nöfn níu ríkja sem sótt hafa um aðild að ESB og yfirlit yfir hvernig viðræðurnar ganga -...
Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu 21.05.2025 20:00
Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var...
Leigubílafrumvarp, alþjóðastjórnmál og ágenga trjátegundin stafafura 20.05.2025 20:00
Innviðaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um leigubílaakstur. Stöðvarskylda verður innleidd á ný og bílstjórum gert að skrá allar ferðir sínar rafrænt. Ráðherra segir að traust almennings til leigubílstjóra hafi algjörlega hrunið og við því verði að bregðast. Nauðsynlegt sé að tryggja betur öryggi farþega. Bandaríkjaforseti heldur áfram þeirri stefnu að draga Band...
Matvælaverð hækkar í hverjum mánuði, leiðtogafundur í London og sólarorkubylting 19.05.2025 20:00
Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt að 20 prósent á ársgrundvelli. Það eru að verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hin...
Vill fúskara burt og áhrif á sveitarfélög af hækkun veiðigjalds 16.05.2025 20:02
Hækkun veiðigjalds getur haft afdrifarík áhrif á einstaka byggðakjarna og breytingin gæti náð langt út fyrir útgerðina, snert samfélög í heild og umhverfi þeirra. Þetta kemur fram í drögum að umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem þau kynntu fyrir þingmönnum á fundi í morgun. 141 fyrirtæki verður fyrir verulegum áhrifum af hækkun veiðigjaldsins, tuttugu og sex þeirra eru á Vestfjörðum. Húsnæ...
Vill fúskara burt og áhrif á sveitarfélög af hækkun veiðigjalds 16.05.2025 20:00
Hækkun veiðigjalds getur haft afdrifarík áhrif á einstaka byggðakjarna og breytingin gæti náð langt út fyrir útgerðina, snert samfélög í heild og umhverfi þeirra. Þetta kemur fram í drögum að umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem þau kynntu fyrir þingmönnum á fundi í morgun. 141 fyrirtæki verður fyrir verulegum áhrifum af hækkun veiðigjaldsins, tuttugu og sex þeirra eru á Vestfjörðum. Húsnæ...
Fimm stóru og enginn fundur 15.05.2025 20:00
Brim, Samherji, Síldarvinnslan, Ísfélagið og Fisk-Seafood greiddu meira en þriðjung af heildarupphæð veiðigjalds á síðasta ári, eða 3,7 milljarða. Eignir þessara félaga hlaupa á hundruðum milljarða króna. Ekkert varð af fundi forseta Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna í Tyrklandi til að ræða um hvernig mætti binda enda á stríðið í Úkraínu en sendinefndir Rússa og Úkraínumanna ræðast við í Istanbú...

Útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, verð á laxveiði og gleyminn síldarstofn 14.05.2025 20:00
Ekki er mikill ágreiningur um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka á þingi en menn eru ekki alveg á einu máli um tímasetningu og hvað sé ásættanlegt verð. Verð á laxveiðileyfum vekur á stundum furðu og hneykslan en eftirspurnin er mikil og auðlindin takmörkuð segja þeir sem selja. Fyrir fjórum árum færðust hrygningarstöðvar norsk-íslenska síldarstofnsins skyndilega 800 kílómetra norður með ströndum...
Indverskir hakkara herjuðu á lögmannsstofu og „sextortion“ í viku hverri 13.05.2025 20:00
Indverskir tölvuhakkarar herjuðu á lögmannsstofu sem sá meðal annars um hópmálsókn gegn Björgólfi Thor. Stór kúnni þessarar lögmannsstofu var það líka og það hvaða einstaklinga helst var herjað á í þeim innbrotstilraunum, varð blaðamönnum Reuters tilefni til að vangaveltna um hvort einhver Íslendingur, þriðji íslenski aðilinn, tengdist málinu; hvort hann hefði ráðið málaliðana indversku til starfa...
Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum, Karl Wernersson ákærður fyrir skilasvik og framkvæmdir hjá Landsneti 12.05.2025 20:00
Fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag liggur mál um skyldur Ísraels samkvæmt alþjóðalögum til að tryggja íbúum á hernumdum svæðum í Palestínu nauðþurftir, skyldur sem Ísland líkt og meginþorri ríkja sem sendu inn skriflega greinargerð til dómstólsins telja að Ísrael sé brotlegt við. Karl Emil Wernersson, einn umfangsmesti fjárfestir á árunum fyrir hrun, sonur hans og sambýliskona hafa verið ákærð af embæ...
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır