HeilsuErla
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.heilsuerla.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Tíu atriði sem geta bætt heilsuna strax í dag. (Heilsumoli 11) 15.04.2024 3:33
Í þessum stutta heilsumola tel ég upp tíu atriði sem þú getur tileinkað þér til þess að hafa góð áhrif á eigin heilsu. Ég tel heildræna nálgun bestu leiðina til að njóta góðrar heilsu. Hér eru nokkur atriði sem þú getur gert strax í dag til þess að bæta heilsuna. Skipulegðu vikuna Hreyfðu þig daglega Farðu að sofa á ákveðnum tíma á hverju kvöldi (rútína) Borðaðu meira grænmeti Minnkaðu sykurneysl...
41. Tannheilsa. (Umhirða tanna, munnþurrkur, bakflæði, neföndun, tannhvíttun og áhrif á almenna heilsu). Elva Björk Sigurðardóttir 11.04.2024 59:47
Í þættinum ræðir Erla við Elvu Björk Sigurðardóttur tannlækni um tannheilsu, tannlæknanámið, rétta umhirðu tanna, tæknina við að bursta tennurnar, tannhvíttun og þætti sem hafa áhrif á tannheilsu okkar eins og sýrustig drykkja, munnþurrk, bakflæði, neföndun, að naga neglur og fleira auk þess að ræða aðeins um það hvernig tannheilsa getur haft áhrif á almenna heilsu okkar. Auk þess að vera tannlækn...
40. Heilsan er hinn sanni auður. (Hugrekki til að hafa áhrif, gildi og áttaviti okkar). Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason 04.04.2024 1:29:29
Í þættinum ræðir Erla við Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda og eiginmann hennar Björn Skúlason um mikilvægi þess að huga vel að heilsu okkar, bæði andlegri og líkamlegri, hugrekki til að hafa áhrif, gildi og áttavita, mikilvægi þess að vera í tengslum við okkur sjálf, hvernig það er að hugsa um heilsuna í annasömu starfi, hvernig forsetaembættið getur beitt sér fyrir bættri lýðheilsu þjóðarinn...
39. Að endurræsa taugakerfið. (Heilsumissir, áföll, jóga, öndun, sjóböð, KAP, þakklæti, draumar og tilgangur lífisins). Marta Dröfn Björnsdóttir 29.03.2024 1:01:07
Í þættinum spjallar Erla við Mörtu Dröfn Björnsdóttur um heilsumissi, áföll, jóga, öndun, sjóböð, KAP, þakklæti, drauma, tilgang lífisins og það hvernig henni tókst að endurrræsa taugakerfi sitt. Marta er lærður kvikmyndaförðunarmeistari og starfaði við það í 13 ár áður en hún hóf sitt andlega ferðalag árið 2017. Hún er einnig barnabókahöfundur og gaf út bókina Amma með biluðu augun árið 2013 og...
38. Það er alltaf von. (Erfið æska, meðvirkni, barátta við fíkniefni og innri kraftur). Sigríður Ingibjörg Jónsdóttir (Inga) 22.03.2024 1:22:49
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Ingibjörgu Jónsdóttur um erfiða æsku, skömm, meðvirkni, baráttu við fíkniefni, innri kraft, mikilvægi hreyfingar og hvernig hún snéri við blaðinu eftir að hún komst að því að hún væri ólétt af dóttur sinni. Þær stöllur ræða einnig um tilgang lífsins, þakklæti, mikilvægi þess að þekkja sig vel, hvað heilsa er dýrmæt og að ekki megi taka henni ekki sem gefnu. Inga e...
37. Hvað er kírópraktík? (Stoðkerfið, taugakerfið, virkni mannslíkamans, streita og mikilvægi góðrar líkamsbeitingar). Matthías Arnarson 15.03.2024 1:06:37
Þátturinn er gerður í samstarfi við Nettó. Í þættinum ræðir Erla við Matthías Arnarson (Matta kíró) um kírópraktík, stoðkerfið, taugakerfið, réttan skóbúnað, börn, streitu, mikilvægi góðrar líkamsbeitingar, afhverju það er ekki æskilegt að sofa á maganum, hvernig kírópraktík getur bætt heilsu okkar og hvernig við getum gert betur án þess að setja of mikla pressu á okkur sjálf. Matti er einn af ei...
Stutt slökunaræfing- hugræn hvíld. (Heilsumoli 10) 10.03.2024 6:37
5 mínútna slökunaræfing sem er tilvalin til þess að ná smá hugrænni hvíld í amstri dagsins. Það er svo ótal margt í umhverfi okkar sem stelur athygli okkar og því er nauðsynlegt að taka sér hlé nokkrum sinnum yfir daginn til þess að líta inn á við og gefa heilanum smá hvíld frá nýjum upplýsingum. Þá getur verið gott að nýta sér slökunaræfingar, öndunaræfingar , hugleiðslur eða núvitundaræfingar. ...
36. Hættu að heyra og byrjaðu að hlusta. (Markþjálfun, eldurinn innra með okkur, sjálfsvirðing og innsæi). Laufey Haraldsdóttir 08.03.2024 52:56
Þátturinn er gerður í samstarfi við Nettó. Nýtið ykkur 25% appslátt af öllum vörum frá Änglamark til 10.mars þegar þið verslið í appinu. Í þættinum ræðir Erla við Laufeyju Haraldsdóttur um markþjálfun, hvernig við kveikjum í eldinum innra með okkur, hvernig við tengjumst okkur sjálfum betur, sjálfsvirðingu, innsæi og hvernig við hættum að heyra og byrjum að hlusta. Laufey er stofnandi og framkvæm...
Hvað er heilsulæsi? (Heilsumoli 9) 03.03.2024 10:08
Í þessum heilsumola fer Erla yfir hvað Heilsulæsi er og hvað það er mikilvægt í nútíma samfélagi. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
35. Flugheilsa. Hvað þurfa farþegar að hafa í huga og hvernig geta áhafnarmeðlimir hugsað sem best um heilsuna í krefjandi starfi? Jóna Björg Jónsdóttir 01.03.2024 51:15
Áhugaverður þáttur fyrir þá sem ferðast mikið eða þau sem starfa í háloftunum. ATH. Ég biðst velvirðingar á smá hljóðtruflunum í upphafi þáttar. Í þættinum ræðir Erla við Jónu Björgu Jónsdóttur hjúkrunarfæðing, flugfreyju og verkefnastjóra heilbrigðismála hjá Icelandair um hvað farþegar þurfa að hafa í huga varðandi ferðalög og hvernig áhafnarmeðlimir, þ.e. flugfreyjur, flugþjónar og flugmenn ge...
34. Hvað er heilaheilsa? Höfuðhögg, heilahristingur og hugrænt þrot. Ólína G. Viðarsdóttir 23.02.2024 45:52
Þátturinn er gerður í samstarfi við Bandvefslosun. Bandvefslosun býður upp á lokuð námskeið, kennaranámskeið, einkatíma og dásamlega nuddbolta í mörgum stærðum og gerðum. Fylgið Bandvefslosun á Instagram fyrir hvatningu og frekari upplýsingar. Í þættinum ræðir Erla við Ólínu G. Viðarsdóttur, sálfærðing, doktor í líf- og læknavísindum og fyrrverandi atvinnukonu í knattspyrnu um heilaheilsu, höfuðhö...
33. Ofurkona í orlofi. (Sjúkdómurinn offita, efnaskiptaaðgerðir og valdefling kvenna). Bjargey Ingólfsdóttir 16.02.2024 1:14:05
Í þættinum ræðir Erla við Bjargeyju Ingólfsdóttur um ofurkonuhlutverkið, sjúkdóminn offitu, efnaskiptaaðgerðir, valdeflingu kvenna, cranio, heilsumissi, lífsorku og fleira. Bjargey heldur úti hlaðvarpinu Ofurkona í orlofi og hefur óbilandi áhuga á heilsu. Hún missti sjálf heilsuna fyrir mörgum árum og þurfti að finna leiðir til þess að fá hana til baka. Hún byrjaði að hugleiða og hefur það hjálpa...
Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki hvar þú átt að byrja? Þjónusta í boði. (Heilsumoli 8) 14.02.2024 2:56
Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja eða vantar þig bara smá spark í rassinn til þess að komast af stað í átt að betri heilsu? Þá er heilsumarkþjálfun eitthvað fyrir þig. HeilsuErla býður upp á einkatíma, fyrirlestra&ráðgjöf á vinnustöðum og skemmtilega vinnustofu. Heilsumarkþjálfun- einkatími Markmiðasetning- heilsan í fyrsta sæti. 60 mínútna tími þar sem við...
32. Að umturna vinnubrjálæði í innri ró. (Orkustjórnun, áföll, innri vinna, hjónabandsráðgjöf, hugvíkkandi efni og að finna jafnvægi). Björgvin Franz Gíslason og Berglind Ólafsdóttir 02.02.2024 1:08:16
Í þessum skemmtilega þætti ræðir Erla við hjónin Björgvin Franz og Berglindi um vinnubrjálæði, orkustjórnun, áföll, innri vinnu, hjónabandsráðgjöf, þriðju vaktina, hugvíkkandi efni og hvernig ,,tól" eins og núvitund, hugleiðsla, húmor, tónheilun og jóga ,,groundar” okkur og hjálpar okkur að finna jafnvægi. VARÚÐ! Mikil hlátrasköll inn á milli. ;) Viðtalið er blanda að gleði og alvarleika eins...
31. Gríptu þig núna. (Krabbamein, þakklæti, streita, þreyta, kvíði og áhrif áfalla og veikinda á ónæmiskerfið og andlegu hliðina). Kristín Berta Sigurðardóttir 26.01.2024 47:05
Í þættinum ræðir Erla við Kristínu Bertu Sigurðardóttur heilsunuddara um þakklæti, félagslega heilsu, streitu, þreytu, kvíða, krabbamein, áhrif áfalla á ónæmiskerfið og áhrif veikinda á andlegu hliðina. Í miðjum covid faraldri greindist Kristín Berta með brjóstakrabbamein og þurfti að hægja verulega á eftir að hafa verið á hamstrahjólinu í áratugi, eins og hún orðar það. Hún tók þó fljótlega ákvö...
30. Baráttan milli góðs og ills. (Þarmaflóran, hormónaraskandi efni, gervimatur, sætuefni og sjálfsást). Kristín Linda Kaldal 19.01.2024 1:26:03
Í þættinum ræðir Erla við Kristínu Lindu Kaldal, heilsumarkþjálfa og viðskiptafræðing um þarmaflóruna, hormónaraskandi efni, gervimat, sætuefni, heilbrigða lifnaðarhætti, sjálfsást og fleira. Fyrir 16 árum stóð Kristín uppi atvinnulaus, allt of þung og heilsulítil. Hún segist hafa verið manneskjan sem reykti, drakk pepsí max, borðaði Gordon Bleu og var bara ekkert að spá í þetta en klessti svo á...
29. Getum við lært að þekkja og skilja okkur sjálf betur með aðstoð stjörnuspeki? Gísli Gunnarsson 12.01.2024 1:08:02
Í þættinum ræðir Erla við Gísla Gunnarsson, stjörnuspeking um það hvernig stjörnuspeki getur verið tækifæri og verkfæri til þess að kynnast sjálfum sér til vaxtar. Gísli segir stjörnuspeki snúast um sjálfsþekkingu og vera frábært verkfæri til þess að gera okkur ljóst hvernig við erum frábrugðin öðrum og hvernig við erum sérstök. Stjörnuspeki getur aukið meðvitund á tilfinningalífinu, hvernig þú e...
Hvers vegna getur verið gott að setja sér markmið? (Heilsumoli 7) 07.01.2024 17:27
Í heilsumola dagsins fer Erla yfir hvernig við setjum okkur góð markmið og spjallar við Stein Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um markmiðasetningu og hvernig markmiðasetning getur nýst bæði í íþróttum og í lífinu almennt. Af hverju getur verið gott að setja sér markmið? Til þess að vita hvert þú vilt stefna, þ.e. hvaða þætti heilsunnar þú vilt bæta er nauðsynlegt að setja sér markmið...
28. Með röddina að veði. (Raddvenjur, umhverfisáhrif, þekkingarleysi, talkerfið, hávaði í námsumhverfi barna og áhrif raddheilsu á lífsgæði). Valdís Ingibjörg Jónsdóttir 05.01.2024 1:08:14
Í þættinum ræðir Erla við Valdísi Ingibjörgu Jónsdóttur, 80 ára magnaða konu sem er doktor í talmeinafræðum um vini og óvini raddarinnar, raddvenjur, umhverfisáhrif, þekkingarleysi, talkerfið, hávaða í námsumhverfi barna, áhrif raddheilsu á lífsgæði og fleira. Valdís Ingibjörg hefur unnið sem talmeinafræðingur í 50 ár. Hún er með mastersgráðu (M.Phil frá Strathclyde University; Glasgow 1996) og d...
27. Hvernig lifum við innihaldsríku og góðu lífi? (Tilfinningar, tilgangur, hamingja og gervigreind). Bergsveinn Ólafsson 29.12.2023 1:24:08
Þátturinn vikunnar er gerður í samstarfi við Spíruna . Spíran er fjölskylduvænn Bistro staður í Garðheimum þar sem þú færð heiðarlegan, hollan og góðan mat lagaðann af ást og alúð. Fylgið Spírunni á Instagram. Í þættinum ræðir Erla við Bergsvein ÓIafsson , sem flestir þekkja sem Begga Ólafs um heilsu, innihaldsríkt líf, tilfinningar, tilgang, hamingju, gervigreind, hvernig við getum haft jákvæð á...
26. Hamingja, velsældarhagkerfi, lýðheilsa, eitruð jákvæðni og jákvæð sálfræði. Dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir. 22.12.2023 1:16:11
Þátturinn vikunnar er gerður í samstarfi við Spíruna . Spíran er fjölskylduvænn Bistro staður í Garðheimum þar sem þú færð heiðarlegan, hollan og góðan mat lagaðann af ást og alúð. Fylgið Spírunni á Instagram. Í þættinum ræðir Erla við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur um hamingju, eitraða jákvæðni, velsældarhagkerfi, lýðheilsu og jákvæða sálfræði. Þær ræða hvað það er mikilvægt að hafa hugrekki til þe...
Jólaheilsa - Njóttu hátíðanna án matviskubits. (Heilsumoli 6) 19.12.2023 2:27
Á þessum árstíma er oft mun meira af freistingum í kringum okkur, konfekt, smákökur og alls kyns gotterí og þá er einfaldlega líklegra að við borðum meira af því en áður. Þá er bara að vera meðvitaður um það en ekki að banna sér allt! Njóttu hátíðanna! Þetta snýst ekki um hvað þú borðar milli jóla og nýárs heldur hvað þú borðar milli nýárs og næstu jóla. Þetta snýst um stöðugleika og að borða yfir...
25. Að vera nóg. (Foreldrakulnun, meðvirkni og að setja mörk). Anna Claessen 15.12.2023 1:01:55
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Claessen um foreldrakulnun, taugakerfið, meðvirkni, að setja mörk, hvað það er að vera nóg eða gera nóg og hvernig við getum minnkað áreiti og streitu. Anna Claessen er alþjóðlega vottaður markþjálfi og einkaþjálfari á daginn og kennir dans og skemmtir með Happy Studio á kvöldin. Hún er með heimasíðuna www.annaclaessen.com þar sem hún býður upp á kulnunarnámskeið og...
24. Lífið er fallegt. (Barátta við fíkn, samskipti, sjálfstal, þrautsegja og sjálfsvinna). Davíð Tómas Tómasson 08.12.2023 1:06:59
Í þættinum ræðir Erla við Davíð Tómas Tómasson, aka Dabba T, einn fremsta körfuknattleiksdómara landsins, fyrrum bootcamp þjálfara, tónlistarmann og fyrirlesara um samskipti, sjálfstal, þrautsegju, erfiða æsku, sjálfsvinnu og hvernig hann hefur alla ævi verið að vinna að því að fylla ,,tóm" innra með sér. Davíð er þekktur fyrir það að fara ,,all-in" í það sem hann tekur sér fyrir hendur...
Hugleiðsla- ferðalag um líkamann. (Heilsumoli 5) 03.12.2023 15:21
Notaleg 15 mínútna leidd hugleiðsla. Þessi hugleiðsla gengur meðal annars út á það að beina athygli að líkamshlutum í ákveðinni röð og meðvitað slaka á þeim. Við slíka tilfærslu á athygli innan líkamans eykst skynjun iðkandans og hann nær djúpri slökun en markmið er að halda meðvitundinn vakandi. Komdu þér þægilega fyrir í liggjandi stöðu og njóttu þess að slaka á og fara í ferðalag um líkamann....
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır