Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: solviaskrift1210105.libsyn.com

Skapare

Sölvi Tryggvason

Kategori

Education

Poddens webbplats

solviaskrift1210105.libsyn.com

Senaste avsnittet

11 okt 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

#307 Sölvi og Frosti snúa aftur 18.09.2024

Í þættinum ræða Sölvi og Frosti um helstu atburði líðandi stundar í samfélagsmálum. Hlutdrægni fjölmiðla. óeirðirnar í Bretlandi, hatursorðræða, forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og margt margt fleira Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#306 Diljá Mist með Sölva Tryggva 15.09.2024

Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður sem hefur vakið athygli fyrir að tjá skoðanir sínar umbúðalaust síðan hún kom inn á vettvang stjórnmálanna. Í þættinum ræða Sölvi og Diljá um sögu Diljár, stjórnmálin, rétttrúnaðinn, eineltisseggina, hlutverk ríkisins og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www...

#305 Rakel Hlynsdóttir með Sölva Tryggva 10.09.2024

Einkaþjálfarinn Rakel Hlynsdóttir hefur gengið í gegnum margt þó að hún sé ung að árum. Í þættinum ræða Sölvi og Rakel um dimmustu dalina, sigrana, sjálfsábyrgð, heilsu og margt fleira.  Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#304 Sigmundur Davíð með Sölva Tryggva 08.09.2024

  Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er alþingismaður og fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Flokkur hans hefur undanfarið mælst í hæstu hæðum í skoðanakönnunum og Sigmundur hefur vakið athygli fyrir að tjá sig umbúðalaust í ýmsum málum. Í þættinum fara Sölvi og Sigmundur yfir stöðuna í stjórnmálunum, samfélaginu. fjölmiðla, málin sem ek...

#303 Gunnar Wiium snýr aftur 03.09.2024

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um karlmennsku, sannleika, kærleika, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.

#302 Vigdís Hauksdóttir með Sölva Tryggva 01.09.2024

Vigdís Hauksdóttir var um árabil bæði Alþingismaður og borgarfulltrúi og oft á tíðum gustaði mjög um hana, enda þekkt fyrir að segja sínar skoðanir. Í þættinum ræða Sölvi og Vigdís um stjórnmálin, ferilinn, lífið eftir stjórnmál, fjölmiðla, hugrekki og margt fleira.

Brot af því besta: Steindi Jr., Ingó Veðurguð og María Birta 30.08.2024
#301 Hjálmar og Siggi Bond með Sölva Tryggva 28.08.2024

Aukaþáttur um enska boltann og fleira: Sigurður Bond og Hjálmar Örn fara yfir tímabilið sem er framundan í enska boltanum, Fantasy, það besta í íþróttum og margt fleira.

#300 Ragnar Sigurðsson með Sölva Tryggva 25.08.2024

Ragnar Sigurðsson er einn þekktasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Hann var maður leiksins í stærsta sigri landsliðsins frá upphafi þegar Ísland sló England út af EM 2016. Í þættinum ræða Sölvi og Ragnar um magnaðan feril Ragnars, tímann í Rússlandi, ævintýrin með landsliðinu, lykilinn að árangri, þjálfun og margt margt fleira.

#299 Greta Salóme með Sölva Tryggva 21.08.2024

Greta Salóme Stefánsdóttir er löngu orðin landsþekkt fyrir hæfileika sína á sviði tónlistar. Í þættinum ræða Sölvi og Gréta um móðurhlutverkið, samkennd, tónlist, bjartsýni, hugarfar og margt margt fleira.

#298 Bjarni Ben með Sölva Tryggva 18.08.2024

Bjarni Benediktsson er forsætisráðherra Íslands. Hann hefur um árabil verið formaður Sjálfstæðisflokksins og einn umdeildasti stjórnmálamaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Bjarni um samfélagsmál, feril Bjarna, gagnrýnisraddir og margt fleira.

Sölvi Sería 15.08.2024

Áður óbirt efni þar sem Sölvi ræðir á persónulegum nótum um útgáfu bókar sinnar, tímann í útlegð og fleira.

#297 Jón Steinar snýr aftur 12.08.2024

Jón Steinar Gunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður og prófessor í lögfræði. Hann hefur vakið athygli í gegnum árin fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Jón Steinar um samfélagsmál, dómstóla, rétttrúnað, fíkniefni og fleira.

Brot af því besta: Óli Stef, Fjölnir Tattoo og Bubbi Morthens 12.08.2024
Brot af því besta: Erpur, Emmsjé Gauti og Herra Hnetusmjör 09.08.2024
Sölvi hjá Snorra Björns 06.08.2024

Í þættinum ræða Sölvi og Snorri um allt sem snýr að heilsu og fara meðal  annars rækilega yfir bók Sölva: ,,Á Eigin Skinni" þar sem farið er yfir alls  kyns leiðir til að bæta andlega og líkamlega heilsu.

#296 Anna Bariyani með Sölva Tryggva 05.08.2024

Anna Bariyani er söngkona hljómsveitarinnar Curawaka, sem hefur notið mikilla vinsælda víða um heim á undanförnum árum. Í þættinum ræða Sölvi og Anna um listsköpun, minna þekkt samfélög frumbyggja víða um heim, andlega vakningu á jörðinni, tengslin á milli myrkurs og ljóss og margt fleira.

Brot af því besta: Ólafur Darri, Magnús Scheving og Jónína Ben 02.08.2024
Sölvi, Frosti og Gummi Kíró 31.07.2024

Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi, Frosti Logason og Gummi Kíró ræða allt milli himins og jarðar.

#295 Mummi Týr með Sölva Tryggva 28.07.2024

Mummi Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni hefur átt stórmerkilega og viðburðarríka ævi. Í þættinum fara Sölvi og Mummi yfir lífshlaup Mumma, sem var sannkallað götubarn sem þurfti að fara ótroðnar slóðir, árin í Götusmiðjunni og margt margt fleira.

Skuggar - Hluti 4 25.07.2024

Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og líf...

Skuggar - Hluti 3 24.07.2024

Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og líf...

#294 Ásta Björk með Sölva Tryggva 21.07.2024

Ásta Björk Bolladóttir er einkaþjálfari og ævintýrakona sem fer ótroðnar slóðir í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Ásta um ævintýri, ferðalög, athyglisbrest, menntakerfið, hugrekki, ástríðu og margt margt fleira.  

Skuggar - Hluti 2 19.07.2024

Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og líf...

Skuggar - Hluti 1 19.07.2024

Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og líf...

Lyssna på podden Sölvi Áskriftarþættir i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden