Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: samstodin.simplecast.com
Skapare
Samstöðin
Kategori
Poddens webbplats
Senaste avsnittet
9 okt 2026
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Fólkið í borginni - Hinsegin félagsmiðstöðin 01.05.2026 22:57
Miðvikudagur 29. apríl Fólkið í borginni: Hinsegin félagsmiðstöðin Í þessum þætti fræðir Snæ Humadóttir, framhaldsskólanemi þáttastjórnandann Ástu Þórdísi Skjalddal um hinsegin félagsmiðstöðina og hvaða máli hún skiptir unga fólkið okkar.
Rauða borðið 30. apríl - Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir 30.04.2026 4:47:19
Fimmtudagur 30. apríl Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóle...
Rauða borðið 29. apríl - Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra og rauða hverfið 29.04.2026 3:11:43
Miðvikudagur 29. apríl Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra, rauða hverfið. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna ræðir húsnæðispakka tvö við Maríu Lilju og möguleg áhrif aðgerðanna á kjör leigjenda. Hvaða áhrif skyldi sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafa á fasteignamarkaðinn að byggja 1400 íbúðir á ríkislóðum? Páll A. Pálsson fasteignasali svarar því. Björn Þorláks ræði...
Rauða borðið 28. apríl - Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir 28.04.2026 3:19:35
Þriðjudagur 28. apríl Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir Rótin hefur sent kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar Sjúkratrygginga á aðgangi að upplýsingum í samningi stofnunarinnar við SÁÁ. Kristín I Pálsdóttir ræðir við Maríu Ragnheiður Þorgrímsdóttir, íbúi í Hvalfirði, segir að mengun frá stóriðjusvæðinu á Grundartanga sé orðin að dragbít sem hamli framþróun...
Fólkið í borginni - Fátækt í Reykjavík 28.04.2026 37:45
Þriðjudagur 28. apríl Fólkið í borginni: Fátækt í Reykjavík Í þessum þætti af Fólkið í borginni ræðir Finnur Ricart Andrason við þau Elísabetu Hauksdóttur íbúa í Fellahverfi og Kolbein H. Stefánsson íbúa í Laugardalnum um fátækt í Reykjavík. Umræðan þeirra á milli er afslöppuð, einlæg og jarðbundin; hún er bæði persónuleg og fræðileg og til þessa fallin að fræða áhorfendur um hinar ýmsu hliðar fát...
Fólkið í borginni - Lifir listin í borginni? 28.04.2026 32:16
Mánudagur 27. apríl Fólkið í borginni: Lifir listin í borginni? Árni Már Þórdísar Viðarsson, einn stofnenda Gallerýs Ports, segir frá menningarlífi borgarinnar og þróun listarýma á undanförnum árum. Við ræðum hvað þarf til þess að listarými geti dafnað í borgarumhverfi og hvernig rými móta upplifun okkar af list. Um leið veltum við fyrir okkur hversu miklu tómlegra borgarlífið væri án listar og hv...
Rauða borðið 27. apríl - Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins 27.04.2026 2:56:49
Mánudagur 27. apríl Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins Regína Ásvaldsdóttir, Pétur Marteinsson og Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir af lista Samfylkingarinnar í RVK ræða við Maríu Lilju um áherslumálin. Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur leggur spilin á borðið og segir frá því hvernig það er að fá sjaldnast ritlaun, sem byggi á geðþóttaákvörðun. Björn Þorláks ræðir við Val. Matild...
Synir Egils 26. apríl - Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB 26.04.2026 1:42:21
Sunnudagurinn 26. apríl Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Áran...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Karl Ágúst 25.04.2026 1:40:18
Laugardagur 25. apríl Helgi-spjall: Karl Ágúst Ásdís Olsen ræðir við fyrrum eiginmann sinn, Spaugstofumanninn, leikskáldið og leikarann Karl Ágúst í persónulegu og einlægu viðtali.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 17 24.04.2026 1:11:33
Föstudagur 24. apríl Vikuskammtur: Vika 17 María Lilja tekur á móti gestum Vikuskammtsins á öðrum degi sumars, en að þessu sinni mæta að borðinu þau Katla Ásgeirsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Freyr Rögnvaldsson.
Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur - Spilling í sjávarútvegi 23.04.2026 1:05:51
Fimmtudagur 22. apríl Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Björn Ólafsson og Jón Baldvin Hannibalsson.
Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur 22.04.2026 2:57:28
Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella...
Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan 22.04.2026 58:58
Miðvikudagur 22. apríl Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan Græna borðið er tileinkað grænu göngunni að þessu sinni. Fulltrúar náttúruverndarsamtaka hringinn í kring um landið ræða um hvaðan samtökin eru sprottin og hvaða viðfangsefni eru brýnust í dag. Rakel Hinriksdóttir, formaður Samtaka Um Náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) stýrir þættinum. Gestir eru Guðrún Óskarsdóttir, formaður Náttúruvern...
Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar 21.04.2026 3:56:06
Þriðjudagur 21. apríl Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar Fregnir bárust um liðna helgi af vefsíðu þar sem karlar skiptust á ráðum og myndefni af nauðgunum sofandi kvenna, í flestum tilfellum eiginkvenna eða kærasta. Drífa Snædal og Guðný S Bjarnadóttir ræða við Maríu Lilju um þetta samfélagsmein. Alma Hrönn Hrannardóttir er reið. En hvers vegna? Jú, vegna þess...
Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur 20.04.2026 3:19:18
Mánudagur 20. apríl Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri H...
Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir? 19.04.2026 46:18
Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir? Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og starfsmaður BSÍ ræða horfurnar fram undan í keppnisbriddsheimi Íslendinga. Úrvalsdeildina, landsliðsverkefni fram undan og úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni ber á góma. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks.
Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB 19.04.2026 1:48:34
Sunnudagurinn 19. apríl Sveitarstjórnir, skólamál og ESB Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi. Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Barto...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16 17.04.2026 1:05:13
Föstudagur 17. apríl Vikuskammtur: Vika 16 Gestir Björns Þorlákssonar í Vikuskammti í beinni útsendingu á Samstöðinni klukkan 16 í dag verða Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Jóhannes Óli Sveinsson, formaður ungs jafnaðarmannafólks og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd. Til umræðu verða ný fylgiskönnun í borginni, umdeildur málflutning...
Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar 16.04.2026 3:15:35
Fimmtudagur 16. apríl Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar Tótla I. Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir við Maríu Lilju um mál barnanna sem liggja utan kerfis, án þjónustu, eftir að málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd voru færð frá sveitafélögunum yfir til ráðuneyta og undirstofnanna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórkostlegri byggð á Noðurnesinu á Á...
Rauða borðið 15. apríl - Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba 15.04.2026 4:42:12
Miðvikudagur 15. apríl Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba Vala Höskuldsdóttir listakona segir Ásdísi Olsen frá einstakri reynslu sinni af líknardauða móður sinnar í Reykjavík, sem leiddi til handtöku og vistunar í fangaklefa. Þröstur Ólafsson þjóðhagfræðingur segir í samtali við Björn Þorláks að íslenska krónan sé mikið mein og standi framförum fyrir þrifum.. Kjartan...
Rauða borðið 14. apríl - Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist 14.04.2026 2:17:46
Þriðjudagur 14. apríl Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist Lítill áhugi virðist meðal almennings á sveitarstjórnarkosningunum fram undan ef marka má óformlega athugun Samstöðvarinnar. Fæstir segjast þora að tjá sig um viðkvæm pólitísk deilumál. Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi ræðir réttarhöld og tímamótadóm í sakamáli gegn Smáríkinu. Ólögleg sala einnar hvítvínsbelju gæti orðið þúfa...
Rauða borðið 13. apríl: Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna 13.04.2026 4:32:18
Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfir...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynja Péturs 28.03.2026 1:03:20
Laugardagur 28. mars Helgi-spjall: Brynja Péturs Dansarinn og frumkvöðullinn Brynja Pétursdóttir segir Maríu Lilju frá ástríðu sinni fyrir hipp hopp tónlist og dansi, en hún hefur helgað líf sitt því að kenna ungu fólki á íslandi allt um þann dans og menninguna sem hann sprettur úr.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 13 27.03.2026 1:31:01
Föstudagur 27. mars Vikuskammtur: Vika 13 Gestir Laufeyjar Líndal eru að þessu sinni Ægir Máni Bjarnason, listarmaður og aðgerðarsinni, Davíð Sól Páls, kennari og aktivisti, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur og ráðgjafi og Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína og eftirlaunamaður.
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden