Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: samstodin.simplecast.com
Skapare
Samstöðin
Kategori
Poddens webbplats
Senaste avsnittet
9 okt 2026
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd 17.06.2026 1:00:21
Miðvikudagur 17. júní Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd Ný stjórnarskrá sem fyrst til að tryggja réttindi dýra. Löggjafinn þarf að hlusta á þjóðina og banna hvalveiðar, blóðmerarhald og loðdýraeldi. Samtök bænda eiga að axla ábyrgð á dýravelferð. Við þurfum draga stórlega úr þjáningasporinu á bak við það sem við borðum og láta af þessari mannmiðjuvillu sem hrjáir mannkynið. Þetta...
Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti 16.06.2026 3:47:07
Þriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllu...
Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB 16.06.2026 5:11:00
Mánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira....
Rauða borðið - Helgi-spjall: Árni Pétur 13.06.2026 1:41:48
Laugardagur 13. júní Helgi-spjall: Árni Pétur Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri.
Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum 12.06.2026 1:07:18
Föstudagur 12. júní Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum Í þætti dagsins fengum við góða gesti sem ræddu við okkur um líf sitt og starf. listakonan, stílistinn, socialiteið og Iconið Iða Dögg og svo alt muligt mennirnir, listamennirnir og frumkvöðlarnir Dagur og Gylfi.
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 12.06.2026 1:14:22
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn.
Rauða borðið 11. júní - Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list 11.06.2026 3:04:06
Fimmtudagur 11. júní Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdótti...
Rauða borðið 10. júní - Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga 10.06.2026 5:05:51
Miðvikudagur 10. júní Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrím...
Græna borðið 16. þáttur - Réttlát umskipti 10.06.2026 1:01:45
Miðvikudagur 10. júní Græna borðið 16. þáttur - Réttlát umskipti
Græna borðið - 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing 09.06.2026 1:00:00
Miðvikudagur 3. júní Græna borðið 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing Varmá, vatn og virðing verða rædd við Græna borðið í dag. Heilbrigðiseftirlitið, vatnalíffræðingur og íbúi við Varmá telja að mengunin í ánni sé brot á lögum og afleiðing óvirðingar gagnvart náttúrunni, en ekki umhverfisslys. Þörf sé á miklu betri umgengni við vatn á Íslandi, eins og náttúruna almennt, en ferskvatn, ár og votlend...
Rauða borðið 9. júní - Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús 09.06.2026 5:09:01
Þriðjudagur 9. júní Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segi...
Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín 09.06.2026 49:22
Föstudagur 5. júní Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín Nýr þáttur á Samstöðinni um listir og menningu í umsjón Álfheiðar Karlsdóttur og Emilíu Bergsdóttur. Í þessum fyrsta þætti spjölluðum við við Gretti Valsson, leikara, grínista og tónlistarmann. Hann klúðraði aðeins og komst ekki í stúdíóið, en við gerðum það besta úr aðstæðum og hringdum í kallinn á zoom. Eftir spjallið fórum við eitth...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigfinnur 09.06.2026 2:24:58
Laugardagur 6. júní Helgi-spjall: Sigfinnur Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar.
Rauða borðið 8. júní - Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM 08.06.2026 5:05:00
Mánudagur 8. júní Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því a...
Rauða borðið 4. júní - Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál 04.06.2026 3:20:10
Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning...
Rauða borðið 3. júní - Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar 03.06.2026 3:22:33
Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélagi...
Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn 02.06.2026 4:17:33
Þriðjudagur 2. júní Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrif...
Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun 01.06.2026 4:24:08
Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar er...
Bridgeþátturinn - Flott frammistaða 31.05.2026 50:23
Sunnudagurinn 31. maí Bridgeþátturinn - Flott frammistaða Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, og Magnús Magnússon briddskennari og landsliðsmaður ræða við Björn Þorláks um Evrópumótið framundan, æfingar að baki, maraþonviðureign við Hollendinga og fleira.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22 29.05.2026 1:36:22
Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.
Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið 28.05.2026 4:09:59
Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotaf...
Græna borðið - 14. þáttur - Velsældarhagkerfið 28.05.2026 1:01:49
Hagvöxtur sem mælikvarði framfara ógnar náttúrunni og heilsu samfélagins, segja höfundar nýrrar bókar um velsældarhagkerfið. Ásgeir Brynjar Torfason og Kristín Vala Ragnarsdóttir eru gestir Græna borðsins, ásamt Silju Elvarsdóttur verkefnisstjóra í Norræna húsinu. Félagið Miðstöð velsældarhagkerfis, verður stofnað í Norræna húsinu í dag og stefnir að fræðslu og umræðu um leiðir til betra lífs, Kri...
Rauða borðið 27. maí - Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi 27.05.2026 4:14:39
Miðvikudagur 27. maí Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka P...
Rauða borðið 26. maí - Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja 26.05.2026 3:41:00
Þriðjudagur 26. maí Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Bjö...
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden