Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: samstodin.simplecast.com
Skapare
Samstöðin
Kategori
Poddens webbplats
Senaste avsnittet
11 okt 2026
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson 10.05.2025 1:44:06
Laugardagur 10. maí Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson Í Helgispjalli Ruða borðsins er Pétur Þorsteinsson prestur óháða safnaðarins, sem stendur á tímamótum. Á sunnudag messar hann yfir sóknarbörnum sínum í síðasta skipti, hann kallar það lífslokamessu. Pétur hefur lengi verið þekktur fyrir petrískuna en með gamansömum hætti hefur hann fundið upp nýyrði og gefið út, orð sem gjarnan snúa upp á tungun...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19 09.05.2025 1:33:26
Föstudagur 9. maí Vikuskammtur: Vika 19 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Hjálmtýsdóttir kennari, Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Haukur Már Helgason rithöfundur og Ása Björk Ólafsdóttir prestur og ræða fréttir vikunnar þar sem finna á njósnir, svik, deilur, þjóðarmorð, frið og nýjan páfa.
Rauða borðið 8. maí - Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn 08.05.2025 5:02:31
Fimmtudagur 8. maí Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvís...
Sjávarútvegsspjallið - 49. þáttur 08.05.2025 52:26
Fimmtudagur 8. maí Sjávarútvegsspjallið - 49. þáttur
Rauða borðið 7. maí - Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge 07.05.2025 4:43:59
Miðvikudagur 7. maí Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge Gunnar Smári slær á þráðinn til Qussay Odeh í Jerúsalem og innir hann eftir viðbrögðum Palestínumanna við þjóðarmorðinu og vaxandi kúgun. Sigurjón fær til sín reynslubolta að ræða samfélagsmál: Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jón G. Hauksson blaðamaður ræða he...
Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur: Veiðigjöld og vald - hver á auðlindina? 07.05.2025 59:24
Miðvikudagur 7. maí Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur Gestur þáttarins er Kári Jónsson, sósíalisti sem hefur starfað við ýmis störf í sjávarútveginum og hefur séð og fundið þær breytingar sem kvótakerfið hefur haft í för með sér. Fiskurinn í sjónum, hann hefur lengi verið gullkista þjóðarinnar. Í gegnum aldirnar hefur hann fætt okkur, haldið samfélögum gangandi og tryggt Íslandi sess á alþjó...
Rauða borðið 6. maí: Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur 06.05.2025 4:19:54
Þriðjudagur 6. maí Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, er formaður átakshóps ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Sem eru í tómu tjóni. Ragnar segir Gunnari Smára hvernig hann ætlar að bjarga málunum. María Lilja ræðir við mótmælendur við ríkisstjórnarfundinn í morgun, fólk sem krefst aðgerða íslenskra stjórnval...
Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi 05.05.2025 4:37:21
Mánudagur 5. maí Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi Ísraelsstjórn samþykkti í morgun áætlun um að herða hernaðaraðgerðir á Gaza og leggja alfarið undir sig landsvæðið. Stjórnin hvatti íbúa til að færa sig til suðurs og von er á miklum blóðsúthellingum. Ingólfur Gíslason, kennari við menntavísindasvið er vel inni í málunum og ræðir við Maríu Lilju um nýjustu fr...
Synir Egils 4. maí: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir 04.05.2025 2:23:43
Sunnudagurinn 4. maí Synir Egils: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Svandís Svavarsdóttir formaður Vg, Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður og væntanlegur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar o...
Rauða borðið - Helgi-spjall: GVA 03.05.2025 1:40:21
Laugardagur 3. maí Helgi-spjall: GVA Gunnar V. Andrésson ræðir um æsku sína og uppruna og samfélagið sem hann skráði sem ljósmyndari í rúma hálfa öld, en stór sýning með myndum hans sem blaðaljósmyndari verður opnuð í Ljósmyndasafninu í dag.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 18 02.05.2025 1:33:17
Föstudagur 2. maí Vikuskammtur: Vika 18 Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur. Saman fara þau yfir þetta helsta og áhugaverða...
Sjávarútvegsspjallið - 48. þáttur - Trillukarlar 01.05.2025 59:00
Fimmtudagur 1. maí Sjávarútvegsspjallið - 48. þáttur Grétar fær að þessu sinni til sín tvo trillukarla, Þá Kjartan Sveinsson formann Strandveiðifélagsins og Guðlaug Jónasson.
Sósíalísk stjórnarandstaða - Sósíalistar í Hafnarfirði 30.04.2025 56:08
Miðvikudagur 30. apríl Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarkona og starfskona Kvikmyndasafns Íslands, Jón Hallur Haraldsson forritari, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Í þættinum munum við beina sjónum okkar að Hafn...
Rauða borðið 30. apríl: Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur 30.04.2025 3:44:53
Miðvikudagur 30. apríl Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur Vilhjálmur Bjarnason ræðir við Sigurjón M. um mál málanna þennan miðvikudaginn, afhjúpun Kveiks en Vilhjálmur er einn þeirra sem voru óafvitandi um nokkurt skeið undir vökulu auga njósateymis á vegum Björgólfs Thors. Reynsluboltar Sigurjóns M. að þessu sinni eru þau Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Saunders, og Pá...
Rauða borðið 29. apríl: Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar 29.04.2025 4:50:58
Þriðjudagur 29. apríl Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins ræðir harða gagnrýni á rekstur félagsins og veika stöðu blaðamennsku. Pólitísk afskipti af fréttamennsku, fjölmiðlastyrkir og fleira verður til umræðu í samtali hennar við Björn Þorláksson. Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor og tónlistarmaður, sérfræ...
Rauða borðið 28. apríl - Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð 28.04.2025 4:05:19
Mánudagur 28. apríl Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð Maria Lilja fær til sín þær Drífu Snædal, talskonu Stígamóta og Dr. Margréti Valdimarsdóttur til að ræða afbrotatölfræði, falsfréttir, rasisma og nauðgunarmál. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, heimspekingur og ritstjóri Hugar ræðir við Oddnýju Eir um dómstól götunnar og óréttmæta vitnisburðavæðingu. U...
Synir Egils 27. apríl - Átök og umræða, fréttir og pólitík 27.04.2025 2:22:36
Sunnudagurinn 27. apríl Synir Egils: Átök og umræða, fréttir og pólitík Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau fyrst Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og síðan þau Ólína Kjerúlf...
Hipp hopp varpið - 4. þáttur: DJ Platurn 27.04.2025 1:04:56
Atriðaorðaskrá Madonna U2 MTV, tónlistarsjónvarp Michael Jackson “Billy Jean” Run Dmc, Raising hell Run Dmc & Aerosmith “Walk this way” Pop lock, dans Electric boogaloo West coast electro (vesturstranda elektró/raftónlist) Boom bap Gangstarr KRS-One Techincs SL 1200 plötuspilari Stevie Wonder Otis Redding Old school hipp hopp, snemma á níunda tug síðustu aldar (upp úr 1980) Beasti...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Heiða Björg 26.04.2025 1:13:31
Laugardagur 26, apríl Helgi-spjall: Heiða Björg Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri mætir á persónulegu nótunum í Helgi-spjall hjá Maríu Lilju. Skemmtilegt samtal um sveitastúlku sem verður að Borgarstjóra, áskoranir móður langveiks barns, næringarfræði, grænt gímald, flóttafólk og hlutverk borgarinnar í friðarumleitunum í veröldinni.
Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 17 25.04.2025 1:28:02
Föstudagur 25. apríl Vikuskammtur: Vika 17 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri Vg, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frel...
Rauða borðið 23. apríl: Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin 23.04.2025 4:08:03
Miðvikudagur 23. apríl Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin. Við hefjum samræðuna við Rauða borð kvöldsins á Reynsluboltunum. Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín fína gesti, þau Oddnýju Harðardóttur, Lárus Guðmundsson, Jakob Frímann og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Þau ræða um mannlífið, pólitíkina hér og erlendis og margt annað, veiðigjöld, skólamat, páfa. Marí...
Hipp-hopp varpið - 3. þáttur: Kalliman Jah og Gnúsi Yones 22.04.2025 1:19:44
Föstudagur 18. apríl Hipp-hopp varpið - 3. þáttur Laufey og Sesar fá til sín góða gesti, bræðurna Karl Kristján Davíðsson (Charlie D/KallimanJah/Youze/UC) og Magnús Jónsson (Gnúsi Yones/Magse/Maximus), sem hafa komið víða við í íslenskri tónlistarmenningu og víðar. Bræðurnir segja okkur frá sínum fyrstu kynnum af hipp-hoppi og ferðalagi sínu um menningarheim þess. Lagalista við þennan þátt má finn...
Rauður raunveruleiki - Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin 22.04.2025 1:05:54
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna. Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?
Hipp hopp varpið - 2. þáttur: Þórdís Claessen 22.04.2025 52:10
Föstudagur 11. apríl Hipp hopp varpið - 2. þáttur í þessum þætti ræðir Sesar A við Þórdísi Claessen um hennar fyrstu kynni af, og lífinu með, hipp-hoppi. Þórdís breikaði í Breiðholti, og kynntist Hipp Hoppinu um miðjan níunda áratuginn þegar hún var í barnaskóla. Kraftur þessarar hreyfingar greip hana samstundis og mótaði að einhverju leyti hennar líf. Hún gaf út bók um íslenskt graffíti fyrir nok...
Rauða borðið 22. apríl - Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir 22.04.2025 5:09:48
Þriðjudagur 22.april Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir María Lilja fer með okkur á mótmæli við dómsmálaráðuneytið vegna brottvísunar Oscar Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs. Gunnar Smári ræðir við Pétur Pétursson guðfræðiprófessor um Frans páfa, sem Pétur hitti á sínum tíma og sem hafði mikil áhrif á hann eins og heiminn allan. Björn Ólafsson, ú...
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden