Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: samstodin.simplecast.com
Skapare
Samstöðin
Kategori
Poddens webbplats
Senaste avsnittet
8 okt 2026
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík 20.09.2026 2:26:42
Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- o...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind 19.09.2026 1:18:16
Laugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38 18.09.2026 1:44:12
Föstudagur 18. september Vikuskammtur: Vika 38 Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum.
Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa 17.09.2026 4:05:01
Fimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senun...
Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur: Strandveiðar og staða fiskistofna 17.09.2026 1:07:30
Fimmtudagur 17. september Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur Viðmælendur Grétars eru að þessu sinni þeir Þórólfur Júlían Dagsson, strandveiðimaður, og Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Græna borðið - 20. þáttur: Stórgölluð stjórnsýsla 17.09.2026 49:00
Miðvikudagur 16. september Græna borðið - 20. þáttur Þær Katrín Oddsdóttir og Benedikta Svavarsdóttir frá samtökunum Vá-félag um verndun fjarðar settust við Græna borðið ásamt Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Umræðuefnið var nýlegt leyfi sem fyrirtækinu Kaldvík fékk til laxeldis í Seyðisfirði. Þær lýsa meingallaðri stjórnsýslu sem dregur blygðunarlaust taum hagsmunaðila og hunsar almannahagsmuni. Þær boð...
Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal 16.09.2026 3:40:43
Miðvikudagur 16. september Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smár...
Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing 15.09.2026 3:34:09
Þriðjudagur 15. september Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við G...
Bókaborðið - 1. þáttur: Eru allar gamlar bækur merkilegar? 15.09.2026 57:05
Þriðjudagur 15. september Bókaborðið - 1. þáttur Í þessum fyrsta þætti Bókaborðsins spjalla María Hjálmtýsdóttir og Eiríkur Ágúst Guðjónsson um fornbókabúðir fyrr og nú, bókasöfnun, verðmæti gamalla bóka, bókband og ýmislegt fleira tengt bókum sem gripum.
Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga 14.09.2026 3:40:40
Mánudagur 14. september Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi...
Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin 13.09.2026 31:35
Sunnudagurinn 13. september Bridgeþátturinn: Úrvalsdeildin Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og briddskennari ræða við Björn Þorláks um sjónvarpsmót fram undan og fleira.
Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál 13.09.2026 2:20:54
Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstj...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna 12.09.2026 1:46:38
Laugardagur 12. september Helgi-spjall: Lýður Árna Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks.
Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37 11.09.2026 1:17:44
Föstudagur 11. september Vikuskammtur: Vika 37 Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu.
Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni 10.09.2026 3:16:34
Fimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Sm...
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir 09.09.2026 3:57:31
Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ól...
Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? 09.09.2026 58:36
Miðvikudagur 9. september Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? Ísland er frekur krakki í alþjóðastarfi sem vill undanþágur frekar en ábyrgð í loftslagsmálum. Ríkisstjórnin gæti hafa misst atkvæði í eigin þjóðaratkvæðagreiðslu, með því að vera í PR-kór hagsmunaafla sem sleppa sem léttast frá loftslagsaðgerðum. Loftslagið bar hæst í fyrsta Græna borði haustsins. Gestir:...
Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar 08.09.2026 3:32:15
Þriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli...
Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi 07.09.2026 5:18:44
Mánudagur 7. september Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gun...
Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi 06.09.2026 2:21:00
Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafu...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa 05.09.2026 1:32:37
Laugardagur 5. september Helgi-spjall: Guðrún Ágústa Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, hefur frá mörgu að segja. Hún trúir á Jesús og er skírð í Fíladelfíu. Hún hefur víða komið við. Sat i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og varð fyrsta konan til að vera bæjarstjóri þar. Sem framkvæmdastjóri Samhjálpar hefur hún mætt miklu andstreymi vegna kaffistofu Samhjálpar sem átti að verða...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 36 04.09.2026 1:49:38
Föstudagur 4. september Vikuskammtur: Vika 36 Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistakona, Magnús Scheving frumkvöðull, Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Vesturports og Sigurlaug Didda Jónsdóttir skáldkona ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkendust af sigrum og svekkelsi, verðbólgu og hækkandi vöxtum, slysum, rannsóknarheimildum, listum og menningu.
Rauða borðið 3. sept - Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland 03.09.2026 3:58:00
Fimmtudagur 3. september Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland Guðni Th. Jóhannesson prófessor ræðir við Gunnar Smára um þorskastríðin í tilefni að útgáfu bókar hans um útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Tryggvi Hjaltason hefur gert sig gildandi í umræðu um æsku og skólamál. Hann lýsir afstöðu sinni í samtali við Gunnar Smára. Nú er í boði sérhæfð tíu vikna áfallameðferð fyrir k...
Sjávarútvegsspjallið - 89. þáttur: Sjávarútvegur og Evrópa 03.09.2026 58:09
Fimmtudagur 3. september Sjávarútvegsspjallið - 89. þáttur: Sjávarútvegur og Evrópa Grétar Mar fær til sín þá Ólaf "ufsa" Jónsson og Úlfar Hauksson, skipstjóra og stjórnmálafræðing
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden