Límónutréð

Límónutréð

Límónutréð er hlaðvarp um leikskólamál. Rætt verður um allt milli himins og jarðar sem tengist leikskólastarfi og gestir þáttanna koma úr öllum áttum leikskólasamfélagsins

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: podcasters.spotify.com

Skapare

Límónutréð

Kategori

Education

Poddens webbplats

podcasters.spotify.com

Senaste avsnittet

20 dec 2024

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

Áhrif fyrstu bylgju Covid-19 á leikskólastarf 31.01.2021

Gestir okkar að þessu sinni eru Anna Elísa Hreiðarsdóttir lektor og Kristín Dýrfjörð dósent, sem báðar starfa við Háskólann á Akureyri. Í þættinum spjöllum við saman um rannsóknir okkar sem snúa að áhrifum fyrstu bylgju Covid-19 á leikskólastarf, út frá sjónarhóli stjórnenda og starfsfólks í leikskólum. 

Framúrskarandi lokaverkefni sem tengjast leikskólastarfi - Linda Rún Traustadóttir og Melkorka Kjartansdóttir 24.01.2021

Í þættinum segja þær Linda Rún Traustadóttir og Melkorka Kjartansdóttir okkur fá lokaverkefnum sínum sem nýverið hlutu viðurkenningu frá skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Linda Rún skoðaði áskoranir í starfi leikskólastjóra og Melkorka útbjó stafrænt fræðsluefni fyrir leiðbeinendur í leikskólum. Við óskum þeim báðum til hamingju með þennan glæsilega árangur

Umboðsmaður barna - Salvör Nordal 13.09.2020

Límónutréð fór og hitti Salvöru Nordal sem situr í embætti umboðsmanns barna. Salvör sagði okkur frá því um hvað embættið snýst og hvers vegna það er mikilvægt. Heimasíða umboðsmanns barna er barn.is 

Krikaskóli 24.08.2020

Krikaskóli er samþættur leik-og grunnskóli í Mosfellsbæ fyrir börn á aldrinum 2ja - 9 ára. Þrúður Hjelm skólastjóri segir okkur frá sérstöðu skólans; hvernig hugmyndafræðin og húsnæðið og lóðin vinna saman.

Hetjuspilið - Gunnar Kristinn Þorgilsson 29.06.2020

Í þættinum segir Gunnar Kristinn Þorgilsson okkur frá Hetjuspilinu sem hann útbjó sem lokaverkefni til B.ed prófs í leikskólafræði. Gunnar Kristinn er nú meistaranemi við Menntavísindasvið og undirbýr rannsókn í tengslum við spilið fyrir meistaraverkefni sitt. Markmið spilsins er m.a. að ýta undir félagsfærni og málþroska barna.

Mikilvægt að börn fái tækifæri til að leika sér og tjá sig - Dr. Kristín Karlsdóttir 14.06.2020

Í tíunda þætti þessar árs kom Dr. Kristín Karlsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í spjall við okkur í Límónutrénu. Hún sagði okkur frá helstu rannsóknum sínum  og frá þeim breytingum sem eru að verða í leikskólakennaranáminu.

"Mér finnst rosalega merkilegt að vera leikskólakennari" - Kolbrún Lára Kjartansdóttir, meistaranemi 02.06.2020

Við áttum samtal við Kolbrúnu Láru Kjartansdóttur sem er meistaranemi í leikskólakennarafræði. Hún sagði okkur frá upplifun sinni af náminu og hvers vegna hún valdi þessa leið. Kolbrún Lára heldur úti Instagram síðu sem heitir leikskólakennari.

Nýfrjálshyggja í menntakerfinu og vísindasmiðjur í leikskólum 26.05.2020

Límónutréð nýtti sér tæknina sem við lærðum í samkomubanninu og átti samtal við Kristínu Dýrfjörð í gegnum fjarfundbúnað. Kristín er dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri og hefur lengi komið að málefnum leikskóla á Íslandi frá ýmsum hliðum. Hún segir okkur sína sögu

Útinám í Stekkjarási - Alda Agnes Sveinsdóttir og Unnur Henrysdóttir 09.04.2020

Þær Alda Agnes Sveinsdóttir leikskólastjóri og Unnur Henrysdóttir deildarstjóri sögðu okkur frá leikskólastarfinu í Stekkjarási þar sem áhersla er lögð á útinám. Margt áhugavert að gerast hjá þeim

Lausnahringurinn í Brákarborg - Sólrún Óskarsdóttir og Arnrún Magnúsdóttir 27.03.2020

Í leikskólanum Brákarborg er unnið frábært starf með Lausnahringinn. Þetta er verkefni sem börnin í leikskólanum hafa tekið virkan þátt í að móta. Sólrún Óskarsdóttir leikskólastjóri og Arnrún Magnúsdóttir deildarstjóri segja okkur frá Lausnahringnum

Snerting, jóga, slökun - lærdómssamfélag í Reynisholti - Aðalheiður Stefánsdóttir 13.03.2020

Í þættinum segir Aðalheiður Stefánsdóttir, leikskólastjóri, okkur frá því hvernig unnið hefur verið með nálgun lærdómssamfélags í leikskólanum Reynisholti. Áherslur leikskólans eru snerting, jóga og slökun sem eru þættir sem Límónutréð mælir með að fólk tileikni sér á þessum viðburðaríku dögum

Staða leikskólakennaranema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands - Dr. Amalía Björnsdóttir og Dr. Þuríður Jóhannsdóttir 03.03.2020

Þær Dr. Amalía Björnsdóttir og Dr. Þuríður Jóhannsdóttir, sem báðar eru prófessorar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segja okkur frá áhugaverðum niðurstöðum rannsóknar sem þær gerðu á stöðu leikskólakennaranema við sviðið. Hægt er að lesa meira um niðurstöðurnar í skýrslun sem þær gáfu út ásamt Höllu Jónsdóttur, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ: www.menntavisindastofnun.hi.is/utgafa

Fagmennska leikskólakennara - Arna H. Jónsdóttir 15.02.2020

Í þættinum segir Dr. Arna H. Jónsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, okkur sögu sína. Arna hefur snert á mörgum ólíkum þáttum tengdum leikskólastarfinu. Hún segir okkur einnig frá rannsóknum sínum sem flestar snúa að fagmennsku leikskólakennara og stjórnun menntastofnanna.

Hvað er að gerast í leikskólum Reykjavíkur - Skúli Helgason 31.01.2020

Límónutréð hitti Skúla Helgason formann Skóla-og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. Skúli sagði okkur frá því helsta sem er að gerast í leikskólamálum borgarinnar og að sjálfsögðu ræddum við heitasta málið í dag - fyrirhugaða styttingu opnunartíma leikskóla í Reykjavík. 

Litla menntabúðin í Reykholti - Ingibjörg Kristleifsdóttir 20.01.2020

Límónutréð er loksins komið úr jólafríi og segir gleðilegt nýtt ár við hlustendur sína. Í fyrsta þætti ársins segir Ingibjörg Kristleifsdóttir okkur frá Litlu menntabúðinni í Reykholti, Borgarfirði. Nánari upplýsingar má finna á http://litlamenntabudin.heimskringlan.is/

Jólakveðja frá Límónutrénu 13.12.2019

Límónutréð sendir jólakveðju og þakkar fyrir góðar móttökur á árinu. Fyrir okkur hefur þetta verið mjög skemmtilegt ferli, áhugavert og lærdómsríkt. Við höfum náð að senda frá okkur 18 þætti síðan um miðjan ágúst og við erum hvergi hættar og höfum margar hugmyndir fyrir nýja þætti.  Gleðileg jól

Hvað segja nýútskrifaðir leikskólakennarar? 16.11.2019

Við áttum skemmtilegt samtal við þrjá nýútskrifaða leikskólakennara sem allar fengu viðurkenningu frá Reykjavíkurborg fyrir framúrskarandi meistaraverkefni. Þær Ingunn Heiða Kjartansdóttir, Sólveig Björg Pálsdóttir og Valdís Ingimarsdóttir segja okkur fá meistaraverkefnunum sínum og hvernig er að vera nýútskrifaður leikskólakennari í dag. Við í Límónutrénu erum bjartsýnar á framtíð stéttarinnar ef...

Wonders of Waste - Leikskólinn Akrasel 09.11.2019

Límónutréð fór í bíltúr upp á Akranes og heimsótti leikskólann Akrasel. Þar hittum við Anneyju Ágústdóttur og Sigurrósu Ingimarsdóttur sem sögðu okkur frá helstu áherslum leikskólans og spennandi Erasmus+ verkefni sem er að fara í gang. Verkefnið heitir Wonders of Waste og það er hægt að fylgjast með því á Facebook

Jafnrétti kynjanna og virðingasess í barnahópnum - Þórdís Þórðardóttir 01.11.2019

Þórdís Þórðardóttir dósent í uppeldis-og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir frá rannsóknum sínum síðustu ár. Hún hefur skoðað jafnrétti kynjanna frá ólíku sjónarhornum.

Leyndarmál Rauðhólsgleðinnar 27.10.2019

Hér segja þær Elín Guðrún Pálsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir, verkefnisstjórar, frá þróunarverkefni sem unnið var í leikskólanum Rauðhól í Norðlingaholti.

Sýn barna á leik - Sara Margrét Ólafsdóttir 18.10.2019

Í þættinum segir Sara Margrét Ólafsdóttir okkur frá doktorsverkefninu sínu þar sem hún skoðaði hvernig börn skilgreina leik og hvernig þau sjá hlutverk fullorðinna í leiknum. Hún segir okkur frá áhugaverðum rannsóknarverkefnum sem hún tekur þátt í í dag, sem nýráðinn lektor við Menntavísindasvið.  

Fjóla Þorvaldsdóttir 11.10.2019

Í þættinum segir Fjóla Þorvaldsdóttir sögu sína. Hún útskrifaðist sem fóstra 1983 og lauk meistaraprófi á síðasta ári. Meistaraverkefnið hennar fólst í því að gera námsvef um upplýsingatækni sem heitir Fikt (fikt.kopavogur.is). Fjóla segir okkur einnig frá áhugaverðum menntabúðum sem verða 23. október á vegum faghóps um skapandi leikskólastarf. Fjóla hefur einnig verið varaformaður félags leikskól...

Hildur Skarphéðinsdóttir 05.10.2019

Hér segir Hildur Skarphéðinsdóttir okkur sögu sína. Hún var ung stelpa þegar hún ákvað að verða fóstra og hefur langa reynslu sem leikskólakennari, leikskólastjóri og leikskólaráðgjafi. Margir þekkja Hildi einnig síðan hún var skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála hjá skóla-og frístundasviði Reykjavíkurborgar. 

Menntakvika 27.09.2019

Í þættinum fjöllum við um Menntakviku sem er ráðstefna haldin á Menntavísindasviði HÍ , n.k. föstudag, 4. október 2019. Fyrst segir Kristín Erla Harðardóttir okkur frá Menntakviku. Við hittum einnig nokkra leikskólakennara sem verða með kynningar á ráðstefnunni. Við vonumst til að sjá sem flesta, það er spennandi dagskrá og mikið af erindum sem tengjast leikskólamálum. Sjá nánar á menntakvika.hi.i...

Margrét Halldórsdóttir, Ísafjarðarbæ 26.09.2019

Í þessum þætti segir Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla-og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar, frá breytingum sem eru að fara af stað í bænum til þess að bæta starfsumhverfi leikskólanna

Lyssna på podden Límónutréð i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden