skuggavaldid

Skuggavaldið

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Framleitt af Tal.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: skuggavaldid.podbean.com

Autor

skuggavaldid

Categorie

Society

Site-ul podcastului

skuggavaldid.podbean.com

Cel mai nou episod

12 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

#27 - Pussy Riot og Navalny – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi 27.10.2025

Voru meðlimir Pussy Riot og andófsmaðurinn Alexei Navalny í raun útsendarar vestrænna óvina Rússlands? Eiríkur og Hulda kafa ofan í rússneska samsærisheiminn – þar sem list, trú og pólitík fléttast saman í eitruðum kokteil. Þau rekja söguna af pönkbæn Pussy Riot í dómkirkju Moskvu, réttarsalnum, fangelsunum og flóttanum til Íslands. Þau ræða einnig um Alexei Navalny, eitrunina, fangelsun hans og a...

#26 - Er jörðin flöt? — upptaka á Vísindavōku 13.10.2025

Hvernig fékk hugmyndin um að jörðn væri flöt nýtt líf á netinu? Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja söguna frá sönnunum forn-Grikkja um hnattlögun jarðar til sprellifandi samsærissamfélags síðasta áratugar. Við kynnumst Rowbotham og viktoríönsku Zetetic-samfélagi, förum yfir tilraunir Mad Mike til þess að skjóta sér á loft, hlutverk YouTube algrímsins, ráðstefnur og kannanir sem sýna lítin...

#25 - Dramatísk lausn Julian Assange, seinni hluti viðtals við Kristinn Hrafnsson – WikiLeaks, fjórði þáttur 29.09.2025

Var dramatísk lausn Julian Assange sigur réttlætisins – eða kaldur hráskinnaleikur stórveldanna? Í fjórða og síðasta þætti syrpunnar um WikiLeaks segir Kristinn Hrafnsson frá leynilegum samningaviðræðum sem leiddu til þess að Assange var loksins leystur úr haldi eftir fimmtán ár. Eiríkur og Hulda ræða við hann um æsilegan lokasprettinn, alþjóðlega diplómatíu og hvernig baráttan fyrir frelsi uppljó...

#24 - Viðtal við Kristinn Hrafnsson fyrri hluti – WikiLeaks, þriðji þáttur 15.09.2025

Hvernig endaði íslenskur fréttamaður í miðju stærsta tjáningarfrelsismáls samtímans? Í þessum þætti segir Kristinn Hrafnsson frá fyrstu kynnum sínum af Julian Assange, dramatískum uppljóstrunum Wikileaks og því þegar stórveldin fóru að sýna klærnar. Skuggvaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna Bístro og kaffihús.  Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 27. september...

#23 - Julian Assange og andsvar stórveldanna – WikiLeaks, annar þáttur 01.09.2025

Var Julian Assange á mála hjá Rússum eða jafnvel CIA? Sameinuðust leyniþjónustur heims kannski öllu heldur í því að þagga niður í honum? Hulda og Eiríkur rekja hvernig hetjan sem afhjúpaði stríðsglæpi í Írak breyttist í lýjandi gest sem enginn vildi. Þau fara yfir hið meinta kynferðisbrotamál í Svíþjóð, árin í sendiráði Ekvador og allt til reyfarakenndrar atburðarrásar þegar Assange fékk loks frel...

#22 - Reykjavík miðstöð uppljóstrunar aldarinnar – WikiLeaks, fyrsti þáttur 18.08.2025

Hristi hópur hakkara við Grettisgötu stoðir mesta stórveldis heims svo mjög að það óttaðist um eigið vald? Í fyrsta þætti af fjögurra hluta syrpu Skuggavaldsins um WikiLeaks og Julian Assange kafa Eiríkur og Hulda ofan í söguna af því þegar Reykjavík, í miðri efnahagskreppu, varð óvænt miðstöð stærstu uppljóstrunar 21. aldar. Frá Kaupþingslekannum til Collateral Murder – þetta er sagan af því þega...

#21 - Verstu fyrirtæki í heimi 04.08.2025

Eru kenningar um samsæri tóbaksframleiðenda tóm tjara? Eða eru þetta kannski verstu fyrirtæki í heimi? Eiríkur og Hulda fjalla nú í fyrsta sinn um raunverulegt samsæri sem hefur verið afhjúpað og staðfest fyrir dómi. Í áratugi beittu stærstu tóbaksfyrirtæki heims kerfisbundnum blekkingum; þau markaðssettu tóbak til barna, hönnuðu ávanabindandi sígarettur og keyptu sér vísindamenn. Þetta er sagan a...

#20 - Wind of change - seinni þáttur 21.07.2025

Voru listamenn gerðir að leynivopni í kalda stríðinu? Eiríkur og Hulda kryfja sögulegar staðreyndir um það hvernig vestrænar leyniþjónustur beittu bæði bókmenntum og tónlist sem vopni í kalda stríðinu. Þau rekja hvernig vestrænar leyniþjónustur stóðu að útgáfu bannaðra skáldsagna, fjármögunuði tímarit í leyni og sendu djassgoðsagnir austur fyrir járntjaldið - og spyrja svo: Gæti Wind of Change með...

#19 - Wind of change - fyrri Þáttur 07.07.2025

Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Hulda og Eiríkur rekja ótrúlega sögu samsæriskenningarinnar um að vestrænar leyniþjónustur hafi samið lagið Wind of Change með þýsku stálsveitinni Scorpions sem vopn í hugmyndabaráttu kalda stríðsins. Þau leiða hlustendur frá risatónleikum í Moskvu 1989 og töfrastund við Moskvuána, inn í heim njósna, rokkstjarna og hvísls manna á mi...

#18 - Efnaslóðar; að flugvélar drefi eiturefnum – seinni þáttur 23.06.2025

Í nýlegum þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið köfuðu prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann ofan í samsæriskenninguna um að stjórnvöld séu í leyni að úða eitruðum efnum yfir almenning úr flugvélum. Þó að þessi tiltekna kenning eigi sér enga vísindalega stoð, þá sprettur hún ekki alveg upp úr engu. Grunsemdirnar eiga sér nefnilega raunverulega og ansi uggvekjandi forsögu Ábendingar og ath...

#17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þáttur 09.06.2025

Eru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um svonefnda efnaslóða — eða chemtrails — kafa Hulda og Eiríkur ofan í uppruna samsæriskenningarinnar og skoða hvernig raunveruleg vísindaverkefni á borð við HAARP og tilraunir til veðurstýringar hafa lagt frjóan jarðveg fyrir va...

#16 - Andlát Marilyn Monroe 26.05.2025

Myrti mafían Marilyn Monroe? Eða stóðu Kennedy-bræður kannski að andláti hennar? Hulda og Eiríkur kafa ofan í flókið net samsæriskenninga um dularfullan dauða frægustu kvikmyndastjörnu heims. Mafían, CIA, Kennedy-bræður, ástir, losti, fíkn og svik fléttast saman í víðfeman sagnavef.   Ábendingar og athugasemdir sendist í  skuggavaldid@gmail.com

#15 - Illuminati goðsögnin – seinni þáttur 12.05.2025

Var franska byltingin í raun sprottin af þýskri leynireglu? Eiga Rockefellerar, Rothschildar og rapparinn Jay-Z það sameiginlegt að vilja koma á fót nýrri heimsskipan? Og hvernig varð tákn sem eitt sinn stóð fyrir visku og skynsemi að tákni alræðislegs skuggavalds í popptónlist og pólitík? Í síðari þætti af tveimur um goðsögnina um Illuminati rýna Eiríkur og Hulda í þrálátar samsæriskenningar teng...

#14 - Illuminati leynireglan – fyrri þáttur 28.04.2025

Stýrir Illuminati bræðrareglan frá Bæjaralandi heimsviðburðum – allt frá frönsku byltingunni til Kardashian-fjölskyldunnar? Í þessum fyrri af tveimur þáttum um Illuminati kafa Eiríkur og Hulda í sögulegan uppruna leynifélagsins sem síðar varð að alþjóðlegri goðsögn um ósýnilegt vald. Þau rekja hvernig smáhópur hugsuða í Bæjaralandi árið 1776 breyttist í myrka ímynd alheimsstjórnar og greina gagnrý...

#13 - Kennedy bölvunin - þriðji þáttur 14.04.2025

Létu valdaöfl í Repúblíkanaflokknum myrða Robert F. Kennedy Sr til að koma í veg fyrir að Kennedy-fjölskyldan snéri aftur á forsetastól? Í lokaþætti þríleiks Skuggavaldsins um Kennedy-bölvunina skoða Hulda og Eiríkur morðið á Robert F. Kennedy og flétta saman heillandi fjölskyldusögu, samsæriskenningar og bandaríska ofbeldissögu – allt fram til dagsins í dag þar sem sonur hans, RFK Jr., einn áhrif...

#12 - Kennedy bölvunin - annar þáttur 31.03.2025

Leyndu bandarísk stjórnvöld upplýsingum um raunverulegan morðingja John F. Kennedy? Í öðrum þætti þríleiks um Kennedy-bölvunina kafa Eiríkur og Hulda ofan í sígildar samsæriskenningar um að valdastofnanir Bandaríkjanna – þar á meðal leyniþjónustan – hafi annað hvort komið að morðinu á John F. Kennedy eða vitað meira en þær létu uppi. Fjallað er um eftirmála morðsins, skoðað hvaða mann Lee Harvey O...

#11 - Kennedy bölvunin - fyrsti þáttur 17.03.2025

Myrti mafían John F. Kennedy? Eða CIA ? Stóð Castro á Kúbu kannski á bak við morðið? Hverjir höfðu mest að græða á því að þagga niður í forsetanum sem ætlaði að umbylta bandarísku valdi? Í þessum fyrsta af þremur þáttum um Kennedy-fjölskylduna er rýnt í morðið á JFK og farið ofan í söguna sem gerði þau að „konungsfjölskyldu“ Bandaríkjanna – veldi sem virtist dæmt til glæsileika en líka óhjákvæmile...

#10 - Trump samsæriskenningar 2.0 03.03.2025

Snúinn aftur á forsetastól í BNA hefur Trump lyft samsæriskenningum upp í hæstu hæðir valdsins. Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um hvernig Trump hefur breytt samsærisórum í opinbera stjórnarstefnu – með ráðherrum sem trúa á kosningasvindl, bóluefnasvindl og hina svokölluðu „Great Replacement“-kenningu, sem segir að innflytjendur séu markvisst notaðir til að veikja „hina raunverulegu Bandaríkjam...

#9 - Trump samsæriskenningar 1.0 17.02.2025

Gróf djúpríkið í Bandaríkjunum undan árangri Donalds Trumps á fyrri forsetatíð hans? Eitt helsta sérkenni Trumps sem stjórnmálamanns er hvernig hann hefur gert samsæriskenningar að lykilvopni í baráttu sinni – ekki bara til að grafa undan andstæðingum sínum, heldur einnig til að styrkja eigin stöðu. Í þessum þætti kryfja Eiríkur og Hulda samsærisstjórnmál Trumps og sýna hvernig samsæriskenningar u...

#8 - Dauði Kurt Cobain 09.12.2024

Stóð Courtney Love, eiginkona Kurt Cobain, forsöngvara hinnar íkonísku grunge hljómsveitar, Nirvana, að baki dauða hans árið 1994 vegna öfundar og erfðamála? Eða komu yfirvöld honum kannski fyrir kattarnef til að koma í veg fyrir slæm áhrif hans á æsku landsins? Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um samsæriskenningarnar tengdar andláti Kurt Cobain en þær eru eins spegilmyndir í myrkri, þar sem har...

#7 - Ný heimsskipan part 2 25.11.2024

Stýrir leynileg valdaelíta alþjóðstofnunum á borð við ESB og SÞ á bak við tjöldin? Stóð hún kannski að baki bæði fyrri heimsstyrjöld og uppgangi nasismans til að skapa ringulreið og koma á alræði á heimsvísu? Í seinni þætti af tveimur um nýja heimsskipan ræða Hulda og Eiríkur þessa margbrotnu samsæriskenningu.

#6 - Ný heimsskipan part 1 11.11.2024

Stýrir leynileg valdaelíta heiminum? Mun hún hneppa veröldina í ánauð? Í þættinum leiða Hulda og Eiríkur hlustendur í gegnum sögu og einkenni hinnar frægu samsæriskenningar um Nýja heimsskipan (e. New World Order). Samkvæmt kenningunni hefur leynileg valdaelíta, oft nefnd „heimselítan,“ það að markmiði að koma á alræðisstjórn og hneppa heimsbyggðina undir alræði fárra útvalinna.

#5 - Qanon samsæriskenningin part 2 28.10.2024

Stal djúpríkið í Bandaríkjunum forsetakjörinu úr réttkjörnum höndum Donalds Trumps árið 2020? Lágu djöfladýrkandi barnaníðingar í elítu Demókrataflokksins þar undir steini? Í síðari þætti um QAnon rekja þau Eiríkur og Hulda atburðina þann 6. janúar 2021 þegar stuðningsfólk Donalds Trumps, mörg hver keyrð áfram af trú sinni á QAnon samsæriskenninguna, ruddust inní þinghúsið í vanburðugri valdaránst...

#4 - Qanon samsæriskenningin part 1 14.10.2024

Stjórna djöfladýrkandi barnaníðingar Bandaríkjunum undir niðri? Er Donald Trump eina vörnin gegn illvirkjunum? QAnon-samsæriskenningin sem heldur slíku fram hófst sem pískur í myrkustu kimum Internetsins en þróaðist á ótrúlega skömmum tíma í hreyfingu sem átti þátt í einum afdrifaríkasta atburði í sögu Bandaríkjanna – árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggaval...

#3 - Dauði Díönu part 2 30.09.2024

Bar Díana prinsessa barn Dodi Al-Fayed undir belti þegar hún dó í bílslysinu í París? Skipulagði breska krúnan dauða Díönu til að koma í veg fyrir að fá múslima inn í konungsfjölskylduna? Í seinni þætti um dauða Díönu ræða Eiríkur og Hulda um örlagaríka atburði næturinnar þegar Díana dó í bílslysi. Þau ræða opinberar rannsóknir á slysinu og velta upp því sem enn þykir óljóst og hefur verið vant á...

Ascultă podcastul Skuggavaldið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice