RÚV

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

Music

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

4 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Stína Ágústsdóttir, Skálmöld, Led Zeppelin 12.01.2025

***Hljómsveitin Skálmöld hélt tónleika í Eldborg í Hörpu í nóvember þrjú kvöd í röð þar sem þeir strákarnir spiluðu öll lögin af öllum sex plötunum sem hljómsveitin hefur gefið út. Þetta gekk allt upp hjá Þeim. Hugmyndin fæddist á bar í útlöndum eftir vel heppnaða tónleika og var svo framkvæmd. Þetta var mikið þrekvirki sem kallaði á miklar æfingar og sum lögin höfðu aldrei verið spiluð á tónleiku...

Eru þetta bestu lögin 2024? 05.01.2025

Í fyrsta Rokklandi ársins er boðið upp á lög sem eru kannski „bestu lög síðasta árs“ - en ekkert endilega – þetta er allt bundið við smekk þess sem hlustar – eða hvað? Ólafur Páll ætlar samt sem áður að spila lög sem honum þykja standa uppúr eftir árið, – íslensk og erlend og honum til aðstoðar er Birgir Örn Steinarsson sem heldur úti ásamt félaga sínum tónlistarsíðu á Facebook sem heitir Nýleg ís...

Eru þetta bestu lögin 2024? 05.01.2025

Í fyrsta Rokklandi ársins er boðið upp á lög sem eru kannski „bestu lög síðasta árs“ - en ekkert endilega – þetta er allt bundið við smekk þess sem hlustar – eða hvað? Ólafur Páll ætlar samt sem áður að spila lög sem honum þykja standa uppúr eftir árið, – íslensk og erlend og honum til aðstoðar er Birgir Örn Steinarsson sem heldur úti ásamt félaga sínum tónlistarsíðu á Facebook sem heitir Nýleg ís...

29.08.2023
22.08.2023
15.08.2023
01.08.2023
18.07.2023
11.07.2023
04.07.2023
Aretha Franklin 1942 - 2018 09.09.2018

Í Rokklandi vikunnar er skautað yfir ævi og feril Arethu Franklin sem ung að árum fékk viðurnefnið Queen of soul.

Chris Cornell 1964 - 2017 28.05.2017

Söngvarinn, gítarleikarinn og tónlistarmaðurinn Chris Cornell úr Soundgarden og Audioslave stytti sér aldur fyrir rúmri viku eins og margir eflaust vita og Rokkland vikunnar er helgaður Chris, lífi hans og verkum. Chris sem er fæddur og alinn upp í rokkborginni Seattle í Bandaríkjunum varð 52 ára gamall. Hann framdi sjálfsmorð eins og það er kallað á hreinni og beinni íslensku á hótelherbergi í De...

Lestarsöngvar, vögguvísur og harmakvein 09.10.2016

Iron Maiden kemur aðeins við sögu í Rokklandi dagsins, en sjötta platan þeirra, Somewhere in time er 30 ára um þessar mundir og sveitin ætlar að túra aðeins um Bretland og nokkur Evrópulönd næsta sumar. Hljómsveitin Leaves fagnar 15 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni hljóðritaði sveitin aftur fyrsta lagið sem varð til, titillag fyrstu plötunnar sem kom út árið 2002 og heitir Breathe. Við heyru...

Stooges, Bítlar og nýtt og eldra frá Sviss 02.10.2016

Rokkland fer í víða í dag - ég segi það satt. Iggy Pop og Stooges koma við sögu en leikstjórinn Jim Jarmusch er búinn að gera heimildarmynd sem heitir Gimme Danger og Bíó Paradís ætlar að sýna hana innan skamms. Pixies koma við sögu, Muse, Paul Simon, Peter Gabriel, Van Morrison, Bob Weir úr Grateful Dead og Hope Sandoval úr Mazzy Star. Svi förum við til Sviss og heyrum í náunga sem heitir Julian...

Er eitthvað að gerast í Sviss? og Trump og U2 25.09.2016

Um síðustu helgi fór fram tónlistarhátið í Lausanne í Sviss sem heitir Label Suisse og Rokkland var á staðnum. Já í seinni hluta þáttarins á eftir skreppum við til Sviss og heyrum soldið af nýrri poppmúsík frá Sviss sem hann velur ofan í okkur náungi sem heitir Francois Kuffer og tónlistarstjóri hjá "Rás 3 ? útvarpi unga fólksins hjá Frönskumælandi Sviss (RTS ? Radio and Telvision Suisse). Label S...

Stuðmannasögur af flóttamönnum og öðru fólki 28.08.2016

Sögumennirnir Egill og Jakob frímann segja frá í dag, Við heyrum í þættium í dag dálítið af nýrri músík með sveitum og listamönnum eins og Coldplay, Travis, Biffy Clyro, Placebo , Red Hot Chili Peppers og Gary Clarke jr, en svo heyrum við líka tvær magnaðar sögur frá tveimur Stuðmönnum. Jakob Frímann segir okkur fyrst sögu þar sem koma við sögu Joni Mitchell, Leonard Cohen, Ámundi Ámundason, Anna...

Glimrandi Tónaflóð á Menningarnótt 21.08.2016

Í Rokklandi vikunnar er boðið upp á brot af því besta sem var spilað og sungið á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt. Fyrst á svið var Glowie ? Sara Pétursdóttir sem sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2014 þegar hún var 17 ára gömul, en nýjasta lagið hennar fór akkúrat á toppinn á vinsældalista Rásar 2 á laugardaginn, lagið heitir No lie. Á eftir henni komu fánaberar íslenska ra...

Nick Cave í Reykjavík og Iron Maiden á Wacken 14.08.2016

Í fyrri hluta þáttarins heyrum við 30 ára gamalt viðtal sem Vilborg Halldórsdóttir fjölmiðja og leikkona með meiru og eiginkona Helga Björns tók við sjálfan myrkrahöfðingjann Nick Cave þegar hann heimsótti Ísland í fyrsta sinn árið 1986. Cave sem þá var 29 ára gamall og búsettur í Berlín fór með Vilborgu í bíltúr um borgina og þau stoppuðu í Öskjuhlíðinni og spjölluðu þar saman um plötuna sem þá v...

Lengi lifir... 07.08.2016

...í gömlum glæðum segir máltækið. Hljómsveitin Quarashi kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf fyrir 20 árum síðan. Þetta er mikið notaður frasi og hann er sannur í þessu samhengi, ?Quarashi kom, sá og sigraði. En Quarashi hætti síðan og til minningar um hljómsveitina og feril hennar kom út safnplata árið 2011 sem heitir Quarashi Anthology. En þrátt fyrir að Quarashi hafi þakkað fyr...

Bræðslan er best 24.07.2016

...daginn eftir og upphituð - Í Rokklandi dagsins heyrum við brot frá Bræðslunni 2016 sem fór fram í gær á Borgarfirði eystri í 12. sinn í gær. Rás 2 hefur sent út beint frá Bræðslunni allar götur síðan 2006 þegar Emiliana Torrini kom fram á Bræðslunni í annað sinn og dró þá vini sína frá Skotlandi - Belle & Sebastian með sér. Þessi skemmtilega tónlistarhátíð fæddist eiginlega að sjálfu sér þegar...

Geislar, skin og skúrir á Sólstöðuhátíð 19.06.2016

Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram núna um helgina í þriðja sinn og Rokkland er á staðnum. Hátíðin hefur stækkað gríðarlega síðan hún var sett á laggirnar árið 2014 og líklega eru gestir Secret Solstice í ár um 15.000. Mestur spenningur var fyrir tónleikum bresku hljómsveitarinnar Radiohead á föstudaginn, en sveitin sem er búin að vera starfandi í rúm 30 ár hefur aldrei áður komið til íslan...

1000 sinnum segðu Rokkland 03.04.2016

Í dag fer þúsundasti þáttur Rokklands í loftið og gestir þáttarins eru þau Nanna og Raggi úr hljómsveitinni Of Monsters And Men. Músíktilraunir 2016 eru hafnar - hófust í gærkvöldi í Norðurljósum í Hörpu og þess vegna fannst mér passa að 1000asti þátturinn fjallaði um þá sigursveit Músíktilrauna sem hefur náð lengst - Of Monsters And Men sem spilaði einmitt á tónleikum í Jóhannesarborg í S-Afríku...

Eru einhver góð lög á þessari plötu? 20.03.2016

Lifun í 45 ár - Árið 2009 gaf SENA út bók sem heitir 100 bestu plötur Íslandssögunnar. Þeir sem skrifuðu voru Jónatan Garðarsson og Arnar Eggert Thoroddsen og bókin fjallar um 100 bestu hljómplötur Íslandssögunnar. Listinn sem þeir unnu eftir var settur saman af stórum hópi fólks úr íslenska músík-bransanum og með kosningu almennings. Ágætis byrjun með Sigur Rós frá árinu 1999 lenti í fyrsta sæti...

Skrýmsli og frumkvöðlar dansa líka 31.01.2016

Tónlistarheimurinn hefur hreinlega farið á hliðina síðustu vikurnar eftir að David Bowie féll frá, 69 ára aða aldri. Fólk hefur keppst við að mæra hann, allskyns fólk, tjónrmálamenn og aðrir tónlistarmenn. Marilyn Manson lét t.d. hafa það eftir sér að líf hans hafi hreinlega breyst þegar hann heyrði plötuna Scary Monsters á sínum tíma. Plöturnar hans seljast sem aldrei fyrr og þessa vikuna á hann...

Hann dó eins og hann lifði... 24.01.2016

....eins og listaverk í sjálfu sér. Við erum auðvitað að tala um David Bowie sem lést tveimur dögum eftir að varð 69 ára og sendi frá sér nýjustu plötuna sína - Black Star. Tónlist hefur svo mikil áhrif á okkur á allan mögulegan hátt, og þó svo David Bowie hafi ekki þekkt mig og þig ? þá þekktum við hann. Hann söng okkur í svefn og í stuð. Við höfum dansað með honum ? við sáum hann í bíó, sáum han...

Ascultă podcastul Rokkland în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice