mordskurinn

Morðskúrinn

Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: mordskurinn.podbean.com

Autor

mordskurinn

Categorie

True Crime

Site-ul podcastului

mordskurinn.podbean.com

Cel mai nou episod

14 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Mannshvarf: Tiffany Daniels 28.04.2021

Á mánudeginum 12. ágúst árið 2013 gékk hin 25 ára Tiffany Daniels úr vinnunni, en hún hafði beðið um að fá að fara fyrr heim. Hún sagði yfirmanni sínum frá því að hún myndi ekki mæta aftur fyrr en eftir viku því hún þyrfti smá tíma til að sjá um einhverja hluti. Það var í síðasta skipti sem einhver sá hana framar. Hún var ekki tilkynnt týnd fyrr en viku síðar, enda fannst vinnuveitanda hennar ekke...

Manndráp: Kevin Bacon 21.04.2021

Kevin Bacon var 25 ára samkynhneigður maður frá Michigan. Hann hafði ekkert átt síðustu daga sæla og átti hann það til að nota Grindr til þess að dreifa huganum. Hann einmitt gerði það á aðfangadagskvöld árið 2019, þegar hann fór að hitta mann sem hann hafði kynnst í gegnum stefnumótaforritið. Hann hinsvegar skilaði sér aldrei heim. Þið munið heyra af hinum 50 ára gamla Mark, sem var eitt óbermis...

Óupplýst: The Cline Falls Axe Attack 21.04.2021

Í dag bregðum við útaf vananum og segjum frá máli þar sem allir lifa af!  En í júní árið 1977 tóku tvær stelpur þær Terri og Avra af stað í leiðangur sem átti eftir að breyta lífi þeirra til frambúðar.  Keyrt var yfir tjald þeirra og exi notuð samhliða. Áverkar þeirra voru vægast sagt svakalegir og að þær hafi lifað af árásina er kraftaverkasaga útaf fyrir sig.  Árásarmaður þeirra hefur aldrei ver...

Dularfullur dauði: The Somerton Man 14.04.2021

Eitt dularfyllsta mál Ástralíu fyrr og síðar, stytt niður í klukkutíma, verði ykkur að góðu!  Maður fannst látinn á strönd í Adeleide, og ekki hefur tekist að finna út hver hann var. Búið var að klippa alla merkimiða af fötunum hans, hann skildi töskuna sína eftir á lestarstöð, miði fannst í vasanum hans með orðunum Tamam Shud sem þýðir endalok á persnesku. Ótrúlegustu atburðir gerast í kringum þe...

Raðmorðingi: John Norman Collins/Ypsilanti Ripper 14.04.2021

Í þessum þætti fjöllum við um John Norman Collins eða The Ypsilanti Ripper og The Michigan Murders.  En John framdi ófá morðin en var einungis dæmdur fyrir eitt þeirra.  Kvennabósi, myndarlegur maður sem átti auðvelt með að næla sér í stelpur og nýtti sér það heldur betur.  Í þættinum erum við rosalega þreyttar og mikið talað í hringi í lokinn eins og okkur einum er lagið  www.facebook.com/mordsku...

Mannshvarf: Bethany Decker 07.04.2021

Þegar Bethany Decker var farin að birta á facebook síðu sinni óeðlileg skilaboð og vinkonu hennar fannst hún vera tala við einhvern allt annan en Bethany sjálfa á facebook spjallinu vöknuðu áhyggjur vina og fjölskyldu Átti þá eftir að koma í ljós að Bethany hafði hvorki sést né látið heyra í sér í heilar þrjár vikur, Bethany sem var ófrísk hafði horfið einhvern tíman á þessum tíma  Skoða þurfti fl...

Raðmorðingi: Dean Corll 06.04.2021

Dean Corll fékk viðurnefnið The Candy Man og var bandarískur raðmorðingi sem rændi, nauðgaði, pyntaði og myrti að minnsta kosti 28 unglingsdrengi frá árunum 1970-1973, mögulega fyrr. Hann naut aðstoðar tveggja vitorðsmanna sem voru á unglingsaldri, og er þetta mál þekkt sem Houston Mass Murders. Flest fórnarlömbin hans voru vinir eða kunningjar vitorðsmanna hans, en þeir buðu strákum að koma heim...

Dularfullur dauði: Christian Andreacchio 01.04.2021

Þegar hinn 21 árs gamli Christan Andreacchio finnst látinn inn á baðherbergi í íbúð sinni er gert ráð fyrir að hann hafi fyrirfarið sér. Fjölskyldan hans keypti það nú ekki og ekki við Þórdís heldur og förum við yfir margt af því sem bendir til að kærasta Christians og vinur hafi átt eitthvað með atvikið að gera Mikið talað, mikið spáð, margir hringir og alltaf sama niðurstaðan www.facebook.com/mo...

Óupplýst: Judy Smith 30.03.2021

Árið 1997 fór Judy Smith ásamt eiginmanni sínum á ráðstefnu þar sem hún ætlaði að njóta sín og skoða sig um í Philadelphiu á meðan hann sinnti vinnunni sinni. Hún hinsvegar skilaði sér aldrei aftur upp á hótel og óljóst var um afdrif hennar, þar til nokkrum mánuðum síðar, fannst lík í um 10klst akstursfjarlægð. Hvernig dó hún? Fór hún sjálfviljug þangað? Var henni rænt? Drap eiginmaðurinn hennar h...

Manndráp: Rachel Timmerman 24.03.2021

Marvin Gabrion er nauðgari og morðingi sem drap hina 19 ára gömlu Rachel Timmerman, og er einnig bendlaður við mannshvarfið á Shannon, Wayne, John og Robert. Rachel og Shannon dóttir hennar hurfu eftir að Rachel var að fara að vitna gegn honum fyrir nauðgun sem hún varð fyrir að hálfu hans.   www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn  

Mannshvarf: Monique Daniels 24.03.2021

Þegar hin 16 ára Monique hverfur sporlaust er gengið útfrá því að hún hafi hlaupið að heiman, hún átti smávegis sögu um það og því þótti ekkert óeðlilegt að hún hefði gert slíkt hið sama í þetta skiptið.  En foreldrar hennar voru þó eitthvað skrítnir og það vakti athygli frænku Monique sem hrinti af stað atburðarrás sem enn er í gangi í dag, mörgum árum síðar.  Upplýsingar systkina Monique eiga vo...

Óupplýst: Tammy Jo Alexander 17.03.2021

Óvenjulegur þáttur í dag að því leitinu til að lítið er um ógeð í honum  En við segjum hinsvegar frá röð tilviljana sem varð að því að hægt var að bera kennsl á Calidonia-Jane Doe. Hvernig samfélagsmiðlar og internetið getur stundum verið stór hjálp í lausn glæpamála. Vefsíðan sem við minnumst á í þættinum er engin önnur en  www.websleauts.com sem við mælum innilega til að gleyma sér í að skoða ww...

Raðmorðingi: Belle Gunness 16.03.2021

Belle Gunness var norskur-amerískur raðmorðingi sem hagnaðist á peningum annarra á mjög undarlegann og ógeðfelldan hátt. Staðfest fórnarlömb eru 14 manns, en talið er að þau hafi verið allt að 40 talsins, þess vegna fleiri. Belle fór ódæmigerðar leiðir til að koma sínu á framfæri, en hún lokkaði menn til að heimsækja sig með auglýsingu sem hún setti í blöðin, og lofaði fullkomnu lífi - sem endaði...

Óupplýst: Rhonda Hinson 10.03.2021

Kvöldið 22. desember 1981, fór 19 ára Rhonda Hinson í jólapartý í vinnunni sinni. Að því loknu var ferðinni heitið til vinkonu sinnar þar sem hún ætlaði að gista um nóttina. Hún fékk símtal, og skyndilega yfirgaf svæðið til að fara, en komst aldrei á leiðarenda þar sem á leiðinni var hún skotin.  Skrítinn tengdafaðir, þráhyggjuhaldinn kærasti og dularfullir hlutir sem birtust í bílnum hennar. Þið...

Raðmorðingi: The Giggling Granny 09.03.2021

Frú Nannie sem heillaði alla með nýbökuðum bökum, blíðu brosi og hlýju en var þó engin venjuleg frú.  Eiginmenn hennar létust hver á fætur öðrum, dularfull andlát barnabarna og annarra ættingja hennar og engum datt í hug hverslags manneskju frú Nannie var í raun og veru. Rottueitur, Arsenik, einkamáls auglýsingar og líftryggingar spila stóran þátt í máli dagsins! www.facebook.com/mordskurinn www.i...

Manndráp: April Millsap 03.03.2021

April Millsap var lífsglöð ung stelpa sem var dugleg að fara út að skokka með hundinn sinn Penny Þegar hin 14 ára April finnst látin í skurði við vinsæla gönguleið fer í gagn flókin rannsókn á gangi mála. Bæði gekk hægt að finna muni April-ar sem hún hafði verið með á sér daginn sem hún var myrt, engar DNA sýni fundust á líkama hennar, þegar DNA sýnin fengust loksins voru engar samsvaranir og kref...

Mannshvarf: Lauren Spierer 03.03.2021

Lauren Spierer var tvítug þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa djammað með vinum sínum árið 2011. Einungis hefur verið gefin út ein mynd af henni úr eftirlitsmyndavélum frá þessu kvöldi en það var í byrjun kvölds! Mjög dularfullt mál sem inniheldur þónokkrar kenningar um hvað átti sér stað, en ekki hefur tekist að sanna neina þeirra!  Tvær aðrar stelpur drepnar á sama stað, Israel Keys kemur vi...

Dularfullur dauði: Cindy James 24.02.2021

Í tilefni af nýja frumvarpinu hennar Áslaugar um umsáturseinelti fannst okkur tilvalið að taka einmitt slíkann þemaþátt, en í þættinum ræðum við um hana Cindy James. Hún bjó við slíkt einelti í 7 ár samfleytt, áreitandi og hótandi símtöl, miðar og bréf, fyrrverandi eiginmaður, dauðir kettir, eignarspjöll, árásir, íkveikja og fleira. Það var ekki fyrr en hún fannst látin sem fólk áttaði sig á hvað...

Óupplýst: Mary Morris og Mary Morris 24.02.2021

Þegar þær Mary Morris og Mary Morris finnast báðar látnar undir mjög svipuðum kringumstæðum með þriggja daga millibili vakna spurningar hjá lögreglu og ættingjum þeirra - voru málin tvö tengd?  Röð tilviljanna? Leigumorðingi? Reiður eiginmaður eða samstarfsmaður? Hver var ástæðan fyrir andláti þessara tveggja kvenna?  www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn    

Raðmorðingi: Jack Barron 17.02.2021

Í þessum þætti heyrum við af Jack nokkrum Barron en hann virtist vera hinn venjulegasti fjölskyldufaðir en átti við þó mörg vandamál að stríða  En Jack missti eiginkonu og tvö börn á óútskýrðan máta og baðaði sig upp úr samúðinni sem hann fékk í kjölfarið og gjafmildi fólksins í kringum hann - á meðan voru aðstandendur grunlausir um hvað raunverulega kom fyrir.  Við heyrum af sjaldgæfu tilfelli Mu...

Dularfullur dauði: Russell Evans 16.02.2021

Russell Evans var þrettán ára gamall og átti allt lífið eftir framundan. Honum var hinsvegar svipt rétti til lífs, þegar hann fannst liggjandi á götu eftir að einhver keyrði á hann og stakk af. Ótrúlega mikið af hlutum sem passa ekki saman við áverka og hvernig réttarmeinafræðingur taldi að dauða hans hefði borið að, og fjölskyldan eyddi næstu árum í að finna út hver drap son sinn, en þó ekki fyri...

Manndráp: Katie Rackliff 10.02.2021

Árið 1992 fannst hin 18 ára Katie Rackliff látin með fjölda stungusára - málið varð mjög fljótlega kalt enda lítið um áræðanleg sönnunargögn.  Gerandi í atviki í grunnskóla tvemur árum síðar átti þó eftir að tvinnast inn í mál Katie með ótrúlegum hætti og þannig kynnumst við Sharon eða The Devils Daughter  Sharon var ung stelpa með ömurlega æsku að baki og stórglæpaferil framundan. Stórir hnífar,...

Manndráp: Brian Wells 09.02.2021

Í þessum þætti fjöllum við um svokallað "Pizza Bomber" eða "Collar Bomber" mál og ræðum hvernig hinn 47 ára gamli pítsasendill endar með sprengju utan um hálsinn í fjársjóðsleit.    www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn    

Manndráp: Mark Kilroy 03.02.2021

Mark Kilroy ætlaði aldeilis að njóta lífsins með þremur félögum loksins þegar kom að Springbreak fríi þeirra vina.  Ekki leið á löngu þegar langþráða draumafríið breyttist í martröð þegar þeir vinirnir skelltu sér til Mexíkó og Mark hvarf án alls fyrirvara Viðtók stór rannsókn og samstarf mexíkósku og bandarísku lögreglunnar - ekki voru mikið af vísbendingum og málið vannst hægt en átti þó eftir a...

Mannshvarf: Natalee Holloway 03.02.2021

Hin 19 ára Natalee hverfur sporlaust í útskriftarferð árið 2005. Hin ótrúlegasta rannsókn kemur í kjölfarið sem sýnir okkur það hvað sönnunargögn geta verið ansi mikilvæg þegar kemur að því að sakfella einstakling. 5 árum síðar, upp á dag, finnst önnur kona myrt og er bendluð við sama einstaklinginn. Hinsvegar, til dagsins í dag, hefur Natalee aldrei fundist og enginn verið dæmdur fyrir að eiga hl...

Ascultă podcastul Morðskúrinn în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice