Valtýr Björn
Mín skoðun
Podcast með Valtý Birni
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: valtyrbjorn.podbean.com
Autor
Valtýr Björn
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
20 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
543.þáttur. Mín skoðun. 05042022 05.04.2022 40:14
543.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Magnúsi Val Böðvarssyni (Magga Bö), en hann er vallarstjóri hjá KR. Við ræðum um gras og gervigras. Verður KR-völlurinn tilbúinn 25.apríl? Og margt fleira. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu á línunni. Við spjöllum um ítalska boltann, enska boltann, meistaradeildina, Subwaydeildina í körfubolta og margt margt fleira. Njótið.
542.þáttur. Mín skoðun. 04042022 04.04.2022 44:41
542.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Við spjöllum um grasvelli og gervigrasvelli. Landslið karla í fótbolta er tekið fyrir. Pistill Sæbjörns Þórs Þórbergssonar Steinke inná fótbolti.net er tekinn fyrir. Enski boltinn, ítalski boltinn og VAR og fleira til. Njótið.
541.þáttur. Mín skoðun. 01042022 01.04.2022 51:02
541.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Fyrst hringi ég í Benedikt Guðmundsson þjálfara Njarðvíkur í körfubolta en Njarðvík varð í gær deildarmeistari í Subwaydeildinni. Því næst heyri ég í Ólafi Kristjánssyni yfirmanni knattspyrnumála hjá Breiðabliki og að lokum er Guðjón Þórðarson þjálfari Víkings frá Ólafsvík í spjalli. Þórhallur Dan notaði 1.apríl til að skreppa til útlan...
540.þáttur. Mín skoðun. 31032022 31.03.2022 47:22
540.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum í dag um víðan völl. Handbolti hér innanlands, KSÍ er til umfjöllunar, meistaradeild kvenna í fótbolta, fréttir og slúður og margt fleira. Þá hringi ég í Svala Björgvinsson körfuboltagúrú en lokaumferðin í Supwaydeild karla er í kvöld. Við spjöllum um leiki dagsins og fleira í þeim dúr. Njótið.
539.þáttur. Mín skoðun. 30032022 30.03.2022 41:06
539.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um íslenska U21 árs landsliðið og stöðu liðsins. Við förum síðan ítarlega í A-landsliðið okkar og það má eiginlega segja að um uppgjör sé að ræða. Umspil HM er tekið fyrir, lazer ruglið sem leikmenn Egyptlands urðu fyrir í leiknum gegn Senegal, ÍBV og FH mætast í kvöld í Olísdeild karla og margt fleira. Njótið.
538.þáttur. Mín skoðun. 29032022 29.03.2022 42:29
538.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um Subwaydeild karla en þar er mikil spenna fyrir síðustu umferðina. U21 árs landsliðið í fótbolta mætir Kýpur í dag og A-landsliðið leikur gegn spánverjum. Við spáum í spilin og Tóti velur sitt byrjunarlið. Við spáum einnig í leikina í umspili HM sem eru í kvöld. Fréttir og slúður er á sínum stað og Tóti svarar tveimur hlus...
537.þáttur. Mín skoðun. 28032022 28.03.2022 58:44
537.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég til Akureyrar í Heimi Örn Árnason en hann er söðla um á vormánuðum, fer úr sportinu og í bæjarpólitíkina. Því næst heyri ég í Þórhalli Dan. Við förum yfir víðan völl. Handbolti hér innanlands og í Þýskalandi, körfubolti, A og U21 árs landsliðin í fótbolta karla. Undankeppni HM, fréttir og slúður. Sem sagt, nóg um að vera. Njótið.
536.þáttur. Mín skoðun. 25032022 25.03.2022 50:40
536.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Íslensku landsliðin okkar, U21 og A-landsliðin og A-kvenna. Umspil HM er tekið fyrir en Ítalía féll úr leik í gær. Þýski handboltinn er til umfjöllunar og margt margt fleira blandast svo saman við þetta allt. Njótið helgarinnar.
535.þáttur. Mín skoðun. 24032022 24.03.2022 36:53
535.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum í dag um Olísdeildir karla og kvenna. Við tölum einnig um körfuboltann hér heima og förum svo í umspil HM í fótbolta karla en fyrri leikirnir í umspilinu eru í kvöld. Við förum í hugsanleg byrjunarlið og fleira til. Meistaradeild kvenna er til umfjöllunar, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.
534. þáttur. Mín skoðun. 23032022 23.03.2022 39:31
534. þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um fótbolta vítt og breytt. Tennis kemur við sögu, meistaradeild kvenna í fótbolta, Olís-deildir karla og kvenna og við tölum aðeins um Paul Pobga sem hefur glímt við þunglyndi. Fréttir og slúður er svo í lokin ásamt fleiru. Njótið.
533.þáttur. Mín skoðun. 22032022 22.03.2022 57:19
533.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Viðar Örn Kjartansson atvinnumann í fótbolta sem leikur með Vålerenga í Noregi. Við ræðum um landsliðið og hann sjálfan og margt fleira. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við höldum áfram að tala um landsliðsvalið. Afhverju eru Viðar Örn og Willum Þór ekki valdir og margt fleira í þeim dúr. Krummasaga dagsins er um KSÍ og við ræðum það aðeins. Þe...
532.þáttur. Mín skoðun. 21032022 21.03.2022 46:10
532.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Kristjáni Einari Kristjánssyni Formula-1 snillingi en keppni hófst um helgina og Ferrari menn komu sáu og sigruðu. Þá hringi ég í Þórhall Dan og við tölum um enska boltann, körfuboltann hér heima og svo einnig um landsliðsvalið fyrir leikina gegn finnum og spánverjum í fótbolta. Þetta og margt fleira. Njótið.
531.þáttur. Mín skoðun. 18032022 18.03.2022 46:01
531.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Benedikt Guðmundsson körfuboltaþjálfari er á línunni og við spáum í úrslitaleikina í bikarnum sem eru á morgun. Því næst hringi í Þórhall Dan og við förum yfir meistaradeildina í fótbolta en það var dregið í 8-liða úrslit í dag. Við spáum í spilin og tölum einnig um Evrópudeildina og Sambandsdeildina. Íslenski boltinn er á sínum stað og svo í lokin ein stutt Kr...
530.þáttur. Mín skoðun. 17032022 17.03.2022 43:57
530.þáttur. Mín skoðun. Í dag tölum ég og Þórhallur Dan um HSÍ og dómgæslu. Úrskurð aganefndar og margt fleira í þeim dúr. Tölum um VÍS bikarinn í körfubolta og dómgæslu þar, enski boltinn er á sínum stað og Liverpool-umræða. Meistaradeildin í fótbolta, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.
529.þáttur. Mín skoðun. 16032022 16.03.2022 43:17
529.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um meistaradeildina í fótbolta og tökum stöðu Man. Utd. aðeins fyrir. Við spáum í leiki kvöldsins og leik Arsenal og Liverpool. Lengjubikarinn er til umfjöllunar, fréttir og slúður og svo bikarinn í körfubolta. Njótið.
528.þáttur. Mín skoðun. 15032022 15.03.2022 38:58
528.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um Bestu deild karla en keppni þar hefst eftir 1 mánuð og 3 daga. Lengjubikarinn er til umræðu og enski boltinn. Meistaradeildin er á dagskrá í kvöld og þar eru tveir stórleikir. Við komum aðeins inná körfuboltann hér heima og margt fleira. Njótið.
527.þáttur. Mín skoðun. 14032022 14.03.2022 52:08
527.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um ýmislegt. Handboltinn um helgina og dómgæsla koma við sögu, Lengjubikarinn, enski boltinn og ítalski boltinn. Íslenska landsliðið í fótbolta karla og svo í lokin er ein Krummasaga. Þettta og margt fleira. Njótið.
526.þáttur. Mín skoðun.11032022 11.03.2022 51:20
526.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Páll Ólafsson, Nostradamus og handboltagoðsögn, er í spjalli í dag og við förum í úrslitaleikina í bikarnum sem eru á morgun. Þórhallur Dan er svo á línunni og við komum víða við. Enski boltinn, evrópuboltinn í gær, Lengjubikarinn í gær og í dag, PSG, Neymar, Messi, Mbappe og félagar, vandræði Man. Utd. og margt margt fleira. Njótið.
525.þáttur. Mín skoðun. 10032022 10.03.2022 43:53
525.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Gunnari Gunnarssyni þjálfara kvennaliðs Hauka í handbolta. Við spáum í leiki dagsins í Final 4 ásamt því að ræða aðeins um núverandi fyrirkomulag keppninnar. Þórhallur Dan er svo á línunni og við komum víða við. Meistaradeildin, Chelsea og Abramovich, Evrópudeildin, enski boltinn og hvað kostar 1 klst. í fótboltahúsunum. Smá yfirsýn yfir...
524.þáttur. Mín skoðun. 09032022 09.03.2022 52:21
524.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Pál Ólafsson handboltagoðsögn og við spáum í leikina í Final 4 í bikarkeppni karla sem eru í dag og við tölum einnig um aðstöðuleysi afreksfólks okkar. Þórhallur Dan er svo á línunni og við ræðum um leiki gærkvöldsins í meistaradeildinni og einnig um leiki kvöldsins. Aðstöðuleysi afreksfólksins okkar kemur við sögu ásamt Lengjubikarnum og fle...
523.þáttur. Mín skoðun. 08032022 08.03.2022 43:44
523.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag spjöllum við Þórhallur Dan um ýmislegt. Enski boltinn, staða Everton í deildinni. Meistaradeildin í kvöld. Líkleg byrjunarlið hjá Liverpool og Inter. Þá tölum við um fyrirkomulag Final 4 í handboltanum hér heima og slúður og fréttir eru svo á sínum stað. Í lokin hringi ég svo í hinn eina sanna Sigga Hlö en kappinn á afmæli í dag. Njótið.
522.þáttur. Mín skoðun. 07032022 07.03.2022 43:20
522.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Ítalski boltinn og Lengjubikarinn eru fyrst til umræðu og síðan tekur enski boltinn við. Kvennalandsliðið í handbolta vann Tyrkland í gær og svo ræðum við einnig um þýska handboltann ásamt fleiru. Herra Vestri, Samúel Samúelsson, er svo á línunni en loksins er Vestri búinn að ráða þjálfara. Njótið.
521.þáttur. Mín skoðun. 04032022 04.03.2022 52:08
521.þáttur. Mín skoðun. Sæl og blessuð. Í dag tölum við Þórhallur Dan um margt og mikið. Olísdeild karla, Subwaydeildin í körfubolta, enski boltinn um helgina og stórleikur Man. City og Man. Utd. Ítalski boltinn er til umfjöllunar, þýski handboltinn, slúður og margt margt fleira. Undir lok þáttar hringi ég til Ísafjarðar í herra Vestra,Samúel Samúelsson, og athuga stöðuna á þjálfaraleit félagsins....
520.þáttur. Mín skoðun. 03032022 03.03.2022 36:46
520.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta, Lengjubikarinn er á sínum stað, enski bikarinn og einnig ítalski bikarinn. Við ræðum um sölu Abramovich á Chelsea og förum aðeins í slúður dagsins. Njótið.
519.þáttur. Mín skoðun. 02032022 02.03.2022 42:11
519.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um blikaliðið í fótbolta og einnig um Lengjubikar karla og kvenna. Við spjöllum um enska bikarinn en Tottenham féll úr leik í gær. Ítalski bikarinn er til umræðu, Tyrkland - Ísland í handbolta kvenna, Abramovich eigandi Chelsea og margt margt fleira. Njótið.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice