gazid

GAZið

GAZið er frjáls og flæðandi íþróttatengdur þáttur með áherslu á körfubolta. Þó getur þátturinn tekið óvænta stefnu hvenær sem er því þú stjórnar ekki gasinu, það stjórnar þér.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: gazid.podbean.com

Autor

gazid

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

gazid.podbean.com

Cel mai nou episod

27 mai 2025

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

#18 - Að finna taktinn eftir áramót 28.12.2024

Fyrri umferð Bónus deild karla lokið. Hvað næst?

#17 - Að fá flöskuborð á B5 22.12.2024

Fyrri hluti jólauppgjörnsins. Við settum öll liðin saman á skemmtistað og veltum fyrir okkur hvernig þau myndu bera sig. Hver fær flöskuborð? Hver er enn að reyna að komast inn? Hverjir eru að dansa? 

MiniGaz 11. Umf 17.12.2024

Hörðu Unnsteins á línunni. Síðasta og stærsta umferð ársins að fara í gang.

#16 - Að svara spurningum fólksins pt.2 14.12.2024

Pavel, Helgi og Hlynur Bæringsson svara aðsendum spurningum.  - Hvar er best að staðsetja sig á bekknum til þess að fá athygli þjálfarans? - Hvar fer treyjan hans Hlyns upp?  - Taktískt tap KR í bikarnum 2009?   Þessum of fleiri spurningum er svarað. 

Bikar x Minigaz 10. Umf 11.12.2024

Bikar og 10 umferð í hefðbundnu formi.

# 15 Að fara af vagninum 08.12.2024

8 umferð gerð upp. Farið yfir önnur mál. Í fjarveru Helga Magg stigu suðurnesin sem fyrr upp og voru til í að ræða körfubolta. Dóri Dóra, Teitur Örlygs og Sævar Sævars með skemmtilega mola. 

MiniGaz 9. umferð 04.12.2024

Helgi Magg blessunarlega kominn til baka og 9 umferð rannsökuð til hlítar. Tómas Steindórsson, sérstakur sérfræðingur þáttarins í 1. deild karla hoppaði inn og útskýrði hluti fyrir okkur. 

#14 - Að tala með kassanum 02.12.2024

Pavel mætti einn í stúdíóið í kvöld og læsti að sér. Hleypti engum inn og gazaði í klukkutíma um körfubolta. Svokallað SoloGaz fyrir lengra komna. 

#13 - Að fagna á nærbuxunum á Ítalíu 26.11.2024

Allir meðlimir landsliðspanelsins koma við sögu eftir stórkostlegt körfuboltakvöld. Ótrúleg frammistaða landsliðsins skoðuð og einnig velt steinum um hvernig sigurfögnuður þeirra gæti mögulega litið út. Léttur snúningur á Bónus deildinni í restina. Hvað gerist eftir núllstillingu...

LandsliðsGaz ft Hlynur/Jón A/Helgi 20.11.2024

Athyglisverð blanda í settinu í kvöld. Stjórnmálamaðurinn Hlynur Bæringsson. Kraftlyftingamaðurinn Helgi Magg og fjármálasérfræðingurinn Jón Arnór Stefánsson. Almenn landsliðsumræða. 

#12 - Að fá boðsmiða á landsleik 17.11.2024

Helgi og Pavel fara yfir ýmis mál tengt körfunni eftir erfitt tap KR-b fyrr um kvöldið. Bættu upp fyrir mistök sín á vellinum  í myrku stúdióinu. 

Minigaz 7. umferð 13.11.2024

7 umferð Bónus deild karla undirbúin og snert á fréttum vikunnar. 

#11 - Að rýna í framtíðina ft. Sævar Sævars 10.11.2024

Sævar Sævarsson hringir inn frá Keflavík og skoðar framtíðina með okkur Helga. Hvar verða liðin stödd eftir 6 vikur eða þegar þau sigla inn í jólafríið. 

#10 - Íþróttir í gegnum augu Halldórs Armand. 08.11.2024

Gestur þáttarins er góðvinur okkar Halldór Armand, rithöfundur og eigandi útgáfufélagsins Flatkökunnar. Halldór hefur einstaka sýn á íþróttir og pælir í hlutum sem fæstir sjá. Kaupið nýju bókina hans Mikilvægt Rusl. 

MiniGaz pt 2 07.11.2024

Leikur Tindastóls og Stjörnunnar gerður upp og komandi umferð skoðuð með stækkunargleri. 

#9 - Að svara spurningum fólksins 03.11.2024

Við tókum við spurningum frá körfuboltafjöskyldunni og svöruðum eftir bestu getu.

MiniGaz - 5. Umferð 30.10.2024

Í þessu fyrsta MiniGazi munum við Helgi kíkja á leikina í komandi umferð í körfunni. Fullt af áhugaverðum leikjum og mikið undir á flestum vígstöðum.  

#8 - Að vera ósammála 28.10.2024

Helgi Magnússon á sínum stað og við ræðum hluti sem við teljum okkur vera vissa um í Bónus deildinni. Einni erum við loks ósammála.

SpesGaz pt.2 - Úrslitakeppni í fótbolta takk 24.10.2024

Í þessum seinni SpesGaz þætti reynum við að svara spurningum og mótrökum gegn hugmyndinni um úrslitakeppni í fótbolta. 

#7 - Að vera sameiningartákn 22.10.2024

Farið yfir helstu atriðin úr liðinni körfuboltaviku. Einnig er heyrt frá aðilum úr hinum ýmsu samfélögum og forvitnast um hvernig stemningin sé. 

SpesGaz pt.1 - Úrslitakeppni í fótbolta takk 17.10.2024

Fyrsti partur af SpezGas seríu þar sem við látum okkur dreyma um alvöru úrslitakeppni í íslenskum fótbolta.

#6 - Að koma sér upp úr miðjumoði 14.10.2024

Öll lið Bónus deildar karla loks rædd. 

#5 - Að þora að vera húsið 10.10.2024

Við förum í sarpinn í þetta skipti. Allra fyrsta Gaz sem var tekið upp var viðtal við Hlyn Bæringsson og Ægi Þór Steinarsson. Þetta er directors cut útgáfan.

#4 - Að vera framlenging á samfélaginu 08.10.2024

Helgi Magg mættur. Einni umferð lokið í Bónus deildinni og við drögum sterkar ályktanir. 

#3 - Að vinna xG bardagann 04.10.2024

GAZið skoðar tölfræði. Við rífumst við Halldór Armand. Lærum af Gunnari Byrgissyni og hjálpum Degi Sigurðssyni.

Ascultă podcastul GAZið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice