Digido

Gagnarök

Konfektmolar í veröld markaðsmála í boði Digido. Hér er fjallað milli allt milli himins og jarðar er snýr að markaðsmálum. Komdu með okkur í ferðalag um fjölbreytta undraveröld sem breytist hratt.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.buzzsprout.com

Autor

Digido

Categorie

Business

Site-ul podcastului

www.buzzsprout.com

Cel mai nou episod

16 apr. 2024

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Verður Ísland leiðtogi í stafrænni þjónustu? | Andri, stafrænn leiðtogi og Vigdís, markaðsstjóri hjá Stafrænt Ísland 23.08.2023

Gestir þáttarins koma frá Stafrænt Ísland. Þau eru Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi og Vigdís Jóhannsdóttir, markaðsstjóri. Stafrænt Ísland er sameiginlegt verkefni opinbera stofnana á Íslandi til að bæta stafræna þjónustu og gera líf okkar allra betra. Andri Heiðar stundaði MBA nám í Stanford háskóla í Kaliforníu með áherslu á frumkvöðlafræði, tækni og leiðtogafærni. Hann hefur komið v...

Snjallbirtingar | Björn Þór, markaðsstjóri Toppfótbolta og Helgi Pjetur, einn stofnenda Púls Media 08.08.2023

Gestir þáttarins eru Björn Þór Ingason, markaðsstjóri hjá Íslenskur Toppfótbolti og Helgi Pjetur, einn stofnenda hjá Púls Media. Þátturinn fjallar um hvernig snjallbirtingar eru að breyta birtingamarkaðnum með því að hjálpa markaðsfólki og markaðsstofum að miðstýra auglýsingagerð og birtingum í gegnum eina lausn. Við heyrum einstaklega nytsamlegt dæmi um hvernig Toppfótbolti hefur sparað milljónir...

Hugarheimur Markhópa & Personas 25.07.2023

Í þessum þætti af Gagnarök dusta Ómar og Ebbi rykið af skólabókunum í 101 markaðsfræði og ræða  mikilvægi þess að vera með vel skilgreindan markhóp.  Hvort sem fyrirtæki eru í B2C eða B2B er það staðreynd að þau fyrirtæki sem fara í vel ígundaða rannsóknarvinnu og skilgreina markhópinn sinn eins vel og hægt er ná meiri árangri. Það gerir alla vinnu við að smíða skilaboð, efnisgerð og herferðir mar...

Flatur teymisstrúktur, Agile & markaðsmál hjá Gangverk | Ása rekstrarstjóri og Kristján Director Client of Relations 18.07.2023

Gestir þáttarins eru Ása Rún Björnsdóttir, rekstrarstjóri og Kristján Aðalsteinsson, Director of Client Relations hjá stafrænu vöruhönnunar stofunni Gangverk.   Þátturinn fjallar ítarlega um kúlturinn, teymisstrúkturinn og aðferðafræðina sem Gangverk beitir til að búa til jákvætt, skilvirkt og afkastamikið umhverfi þar sem starfsmenn fá að gera það sem þau gera best. Gangverk er íslenskt fyrirtæki...

Af hverju eru allir að tala um ABM herferðir? 12.07.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar og Ebbi svokallaðar ABM (Account Based Marketing) herferðir sem eru þekktar fyrir vera einstaklega árangursíkar. Fyrirtæki hafa margar leiðir til að búa til eftirspurn eftir vöru eða þjónustu. Ein slík leið eru svokallaðar ABM herferðir. Það sem einkennir ABM herferðir er hvernig markaðs- og söluteymi vinna saman að rannsóknarvinnu til að senda persónuleg skila...

Mikilvægi hönnunar í markaðsmálum | Erla María Árnadóttir, aðstoðar hugmynda- og hönnunarstjóri hjá Hvíta Húsinu 04.07.2023

Gestur þáttarins er Erla María Árnadóttir, aðstoðar hugmynda- og hönnunarstjóri hjá auglýsingastofunni Hvíta Húsinu. Þátturinn fer vandlega yfir hversu mikilvægt það er að þekkja markhópinn sinn og hversu mikilvægt hlutverk hönnun spilar í velgengni fyrirtækja hvort sem það er á vefsíðunni, auglýsingum, samfélagsmiðlum og fleira. Erla fæddist í París og bjó þar til grunnskólaaldurs áður en hún flu...

Góð ráð fyrir Facebook & Instagram herferðir 28.06.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Birkir og Ebbi góð ráð við að keyra herferðir á Facebook og Instagram (FB & IG).  Erlendar birtingar hafa tekið fram úr innlendum birtingum á Íslandi og ljóst að mikilvægi þess að keyra skilvirkar og árangursríkar herferðir á stærstu miðlum landsins hefur aldrei verið mikilvægara. Þeir félagar ræða sín á milli hvernig er best að nálgast slíkar herferðir út...

Hvernig smíðum við vefsíðu sem skilar árangri? 22.06.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Birgir, sérfræðingur í stafrænum lausnum, og Arnar, sérfræðingur í stafrænum miðlum, mikilvægi vefsíðunnar. Gamla góða vefsíðan er ekki að fara neitt og færa mætt rök fyrir því að þessi elska hafi aldrei verið mikilvægari. Allar vefsíður hafa eitthvað markmið hvort sem það er vefsala, bóka fund, senda inn fyrirspurn og fleira. En eru allar vefsíður hannaðar ti...

Vörumerki, branding og neyslusálfræði | Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Öskju 13.06.2023

Gestur þáttarins er Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri bílaumboðsins Öskju. Þátturinn er smekkfullur af skemmtilegum umræðum þar sem Ómar og Helga, samfélagsmiðla sérfræðingur hjá Digido, ræða við Sigríði um þá töfra sem fylgja góðu branding. Við ræðum vörumerki eins og Coca Cola, Pepsi, apple, snyrtivörurisa, Benz, Húsasmiðjuna, Krónuna, Blush, Indó og fleira. Og svo koma raðmorðingjar ein...

B2B markaðsmál eru vísindi & list | Elvar Páll Sigurðsson, markaðsstjóri Men&Mice 06.06.2023

Gestur þáttarins er Elvar Páll Sigurðsson, markaðsstjóri B2B hugbúnaðarfyrirtækisins Men & Mice og er óhætt að segja að þátturinn er hlaðinn gagnlegum ráðleggingum fyrir alla sem vinna í B2B geiranum (sala og markaðsetning fyrirtækis til fyrirtækis). Elvar byrjaði sinn markaðsferil sem ráðgjafi hjá Pipar/TBWA  en færði sig yfir til Men&Mice þar sem hann byrjaði sem stafrænn markaðsstjóri á...

Google Analytics 4 breytingin sem mun kollvarpa vefsíðumælingum 1 júlí 2023 24.05.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar og Arnar þá meiriháttar breytingu sem mun eiga sér stað hinn 1 júlí 2023 þegar Google mun slökkva á núverandi útgáfu af vefsíðumælingartólinu Google Analytics og alfarið færa þjónustuna yfir í nýjustu útgáfuna Google Analytics 4.  Google Analytics er mest notaða vefsíðumælingartól í heiminum og flestar vefsíður á Íslandi nota tólið til mælinga. Þetta er ein stæ...

Tæki & tól | Hubspot CRM, markaðs- og sölukerfið 17.05.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar og Ebbi eitt af sínum uppáhalds tólum sem er Hubspot CRM (viðskiptatengsla), markaðs- og sölukerfið. Hubspot er eitt vinsælasta markaðstól í heiminum og mikill áhugi er á kerfinu á Íslandi þessa dagana. Í þættinum ræða þeir félagar hvernig fyrirtæki geta nýtt Hubspot til að ná hámarkas árangri í sölu- og markaðsstarfi. Í þættinum köfum við ofan í: Helstu kosti...

Samfélagsmiðlar hjá Símanum | Inga María Hjartardóttir, markaðssérfræðingur 10.05.2023

Gestur þáttarins er Inga María Hjartardóttir, sérfræðingur í markaðsmálum og samfélagsmiðlum hjá Símanum. Þátturinn er stútfullur af gullmolum fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem  vilja búa til rétta contentið og nýta samfélagsmiðla til að auka sölu, vörumerkjavitund og jafnvel umsóknir fyrir störf. Inga flutti 19 ára til Boston að læra tónlistarviðskiptafræði í Berklee College of Music en þar kvi...

Email herferðir árið 2023 - virka þær ennþá? 03.05.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Ebbi og Arnar the original gangster í markaðsmálum - email herferðir.  Virka email herferðir ennþá árið 2023? Í þættinum ræða þeir félagar hvernig er hægt að nýta gögn, sjálfvirknivæðingu og gervigreind í bland við góða textasmíði og strategíu til að ná miklum árangri með email herferðum. Í þættinum köfum við ofan í: Hvað einkennir email herferðir? Má ég senda...

Markaðsmál hjá Dominos | Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos 26.04.2023

Hljóðvarpið Gagnarök færir út kvíarnar en í þætti vikunnar tökum við á móti okkar fyrsta gesti. Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos á Íslandi, leit við hjá okkur í Borgartúninu en Magnús er á meðal reynslumesta markaðs- og rekstrarfólki landsins. Aðeins 17 ára gamall byrjaði hann ferilinn hjá Dominos sem pizzusendill en síðan þá hefur hann komið víða við í atvinnulífinu. Ásamt því að hafa rekið v...

Vefsíðumælingar & Google Analytics 4 19.04.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Arnar, Birkir og Ómar allt það helsta um mælingar á vefsíðum. Hvernig hafa þær verið, hvernig eru þær í dag og hvernig munu þær mögulega verða í framtíðinni. Sérstakur gestaleikari þáttarins er Google Analytics 4. Í þættinum köfum við ofan í: Mikilvægi vefsíðumælinga Helstu mælikvarða og mælingartól Google analytics 4 Betrumbætur á vefsíðum Framtíð vefsíðna og mælin...

Hvað er mikilvægast í B2B Markaðssetningu? 12.04.2023

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Arnar og Ómar hvað B2B markaðsetning (fyrirtæki til fyrirtækis) gengur út á og muninn á henni og klassískri B2C markaðssetningu. Í þættinum ræða þeir félagar mikilvægi þess að fara í áhrifaríka stefnumótun, hvaða aðgerðir eru skilvirkastar og hvernig nýtum við gögn til að ná árangri. Í þættinum köfum við ofan í: Hvað virkar í B2B markaðssetningu Hvað eru personas, b...

Hvað er þetta ChatGPT og hvernig gagnast það mér? 06.04.2023

Í þessum þætti af Gagnarök fara Ómar, Arnar og Ebbi yfir gervigreindartólið sem er á allra vörum -  ChatGPT - og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi eins og að skrifa grein sem hljómar eins og Miley Cyrus eða búa til Metallica gítarriff og í markaðsstarfi við hugmyndavinnu, hönnun, textasmíði og margt fleira góðgæti. Í þættinum köfum við ofan í: Hvað er ChatGPT Hvað er í nýjustu útgáfunni C...

Fréttablaðið er fallið - Staðan á birtingamarkaði 05.04.2023

Í þessum þætti af Gagnarök fara þau Ómar, Hrafnhildur, sérfræðingur í innlendum birtingum, og Arnar, sérfræðingur í erlendum birtingum, yfir þá staðreynd að Fréttablaðið heyrir nú sögunni til og hvaða þýðingu það mun hafa fyrir auglýsingabirtingar á íslenskum sem og erlendum mörkuðum. Í þættinum köfum við ofan í: Hvað eru birtingar og hvernig virka þær Hvað þýðingu fall Fréttablaðsins hefur fyrir...

ÍMARK dagurinn & Lúðurinn 2023 29.03.2023

Fyrsti þátturinn af Gagnarök lítur hér með dagsins ljós og heyrir bylgjunnar hljóð. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er Lúðurinn & ÍMARK dagurinn - uppskeruhátíð markaðsfólks á Íslandi sem haldin var þann 24. mars 2023. Þeir Ómar Þór og Andri Már draga andann djúpt og kafa ofan í þetta helsta: Áhugaverðustu molana úr fyrirlestrum dagsins Þekktasta vörumerkið á Íslandi Árangursríkustu herferð ár...

Ascultă podcastul Gagnarök în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice